Vísir - 05.08.1966, Blaðsíða 11

Vísir - 05.08.1966, Blaðsíða 11
 SíÐAN Sara Churchill gefur út ljóðabók Sara var uppáhaldsbarn föð- ur sins, Winstons Churchills. Hann batt miklar vonir við framtíð hennar, en hún fór í mörgu á annan veg en hann hafði óskað. Sara gerðist leik- kona en svo kom að því að hún fór að drekka og eitt sinn varð að hætta leiksýningu í miðju kafi vegna þess að Sara var drukkin á sviðinu. Sara hefur alltaf verið heims blöðunum kært efni. Fréttir hafa borizt um að hún hafi fengið sektir vegna ölvunar við akstur í París, London og Róm og margir furðuöu sið á er hún afþakkaöi 100 þúsund dollara tilboð frá bandarísku vikublaði fyrir að skrifa ævisögu föður síns. Nú er Sara aftur á dagskrá en í þetta sinn er það ekki vegna einhvers hneykslis, held ur vegna þess að hún er oröin skáld og dómamir, sem hún fær eru svo góðir að hún sjálf segir: — Ég er alveg bit. Sara gaf nýlega út ljóðabók. Það vissi enginn fyrr en nú að hún hefur skrifað Ijóð allt frá því að hún var ung stúlka. Það vissi enginn fyrr en nú, að þessi kona, sem ávallt hefur lifað mjög óreglusömu lffi hafði skáldgáfu. Ljóðasafnið „The empty spaces“ hefur eins og fyrr er sagt fengið mjög góða dóma og eitt Lundúnablaðanna segir: — Líf. Söru, þar sem alltaf hafa skipzt á skin og skúrir, endurspeglast í ljóðunum. Hún segir frá sínum innstu tilfinn ingum. Það eru hugsanir gáfaðr ar, tilfinninganæmrar og sannr- ar konu, sem endurspeglast í ljóðunum. Margir álíta að útgáfa þessa ljóðasafns sé svar Söru við öll um „Churchill-iðnaðinum", sem orðið hefur til í kringum minn ingu föður hennar. Henni hefur alltaf þótt leiðinlegt, þegar hershöfðingjar, stjómmálamenn þjónar og læknar hafa gert sér pening úr kynnum sínum af föður hennar, með því að skrifa um hann greinar — og þegar hún hefur séð myndir af föður sínum á ölkrúsum segir hún, að sér hafi orðið óglatt. Vinir Söm segja að hún sé gerbreytt manneskja. Hún sé miklu ánægðari með lffið og fyrir heimmum, ef svo má segja. Hún hélt kokkteilboð, sem stóð í 5 daga. Hún þakti veggi íbúöar sinnar með málverkum Nochos og listamaðurinn, sem hélt sig við hlið Söm komst í sviðsljósið. Sara var klædd svörtum stutt um kjól, netsokkum og í eyrun um hafði hún langa svart-hvíta eymalokka. Lobo er hálfgerður bóhem í eðli sínu. „Allur heimurinn er heimili mitt“, segir hann. „Ég veit aldrei hvar við verðum á morgun.“ Og nú er spumingin vöknuð: Ætlar Sara að draga Lobo upp aö altarinu? Hún hefur nefni- lega yndi af að giftast óvenju- legum mönnvun. Fyrsti maöur hennar var leikarinn Vic Oliver, sem var af ungverskum ættum. Annar var Ijósmyndarinn Anth ony Beauchamp, sem framdi sjálfsmorð og sá þriðji var Verður málarinn fjórði maður Lobo Nocho hennar? tilveruna en hún var og líti bet ur út en nokkru sinni fyrr. Þetta sé allt vini hennar, Lobo Nocho að þakka. Sara hefur verið í vinfengi við ameríska málarann Lobo Nocho, sem er 45 ára og 5 ár- um yngri en Sara, í nokkur ár. Fyrir nokkm tók Sara á sig rögg og kynnti þennan vin sinn Audley lávarður, sem lézt af hjartaslagi — og verður sá fjórði málarinn Lobo Nocho? Sara og Lobo Nocho ÆTLAR AÐ EIGNAST 3 ÓÞEKKA STRÁKA Soffia Loren á von á fyrsta barninu Soffía Loren á von á bami. Þetta þykir heldur en ekkl frétt þar sem hún hefur verið gift í fjöidamörg ár og hjónabandiö verið bamlaust. Reyndar var gifting hennar og Carlo Ponti ekki viðurkennt af yfirvöldum ítalíu fyrr en í vor sem leið, |>ar sem ekki var fyllilega geng Auglýsingafsímar Vísis ið frá skilnaði Ponti frá fyrri konunnl. Soffía er um þessar mundir að leika I kvikmynd á Suður Ítalíu og þar skýrði hún frá þessum „merkisviðburði." — Ég er himinlifandi, sagði Soffía. Ég hef verið að vonast eftir bami í mörg ár, frá því löngu áður en hjónaband mitt varð „alvöruhjónaband." Við emm bæði afskaplega ánægð, þótt þetta komi auðvitað til með að kosta það að ég verð að taka mér frí frá kvikmyndaleik um tfma. Allt frá því ég var ung stúlka hefur minn stærsti draumur verið að eignast þrjá óþekka stráka. Og þessi draum ur skal rætast. Þegar fæðingin nálgast mun Soffía draga sig í hlé og dvelj ast í höll sinni skammt utan við Róm. AUGLÝSIÐ í VÍSI Kári skrifar: Heimamaður í Háteigshverfi skrifar: Þeir sem eiga daglega leið eftir Háteigshverfi taka trúlega ekki svo mikið eftir höggmynd, sem stendur við heimreiðina að Sjómannaskólanum, neðan við vatnsgeyminn gamla. Þetta er allstór mynd í steyptum ramma, táknmynd úr íslenzku atvinnulífi og sýnir fulltrúa hinna stritandi stétta við störf sín. Nú ber ekki svo að skilja að höggmynd þessi sé engrar at- hygli verð og menn gangi fram hjá henni þess vegna án þess að gefa henni gaum. Nei það er umgjörðin, sem gerir hana svo hversdagslega tilsýndar. Ramminn utan um hana er úr steinsteypu og má sjálfsagt um þaö deila, hvort hann hæfir verkinu, en hann sæmir því á- kaflega illa eins og hann er ópússaöur og ófrágenginn og þaö hefur hann raunar verið í allmörg ár. Listaverkið verður því tilsýndar eins og stakur veggur að húsi, sem hætt hefur verið við í miðjum kllöum. Þarna umhverfis hafa nú á undanfömum árum risið fjöl- mörg glæsileg hús, tvær kirkj- ur, kennaraskóli auk fjölda í- búðarhúsa. Keppzt hefur verifi við að prýða umhverfi þessara húsa og er það að verða til fyr- irmyndar að öllum frágangi. — En listaverkið hefur alveg gleymzt í öllum þeim tiltektum og er það þó öllum þessum hús um eldra. Það hefur orðið fóta skinn krakka og unglinga, sem leyfa sér að klifra upp um það, enda enginn sem bannar þeim það. — Hvers á þetta iistaverk og höfundur þess að gjalda?

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.