Vísir - 05.08.1966, Blaðsíða 2

Vísir - 05.08.1966, Blaðsíða 2
9 9 ÞRJU VALSMORK A 5 MINUTUM SETJA KR-INGA í FALLHÆTTU Bikarkeppni KSÍ á Melavellin- um. Fram og Víkingur leika kl. 20.30 i kvöld. ... " " VALUR tók forystuna í 1. deildarkeppninni í gær- kvöldi með sigri yfir KR í Laugardal með 3:2 í all skemmtilegum og spennandi leik og er nú svo kom- ið fyrir KR, að liðið er í fallhættu ásamt Þrótti, hef- ur aðeins 4 stig að loknum 5 leikjum, en Þróttur hefur 2 stig að loknum 5 leikium. Leikurinn í gær einkenndist nokkuð af lélegum vamarleik beggja aðila og virtust framlínumenn geta gengið út og inn að vild lítt truflaðir. Þetta kom fram í fjöldamörgum marktækifærum, sem nýtt- ust sum, en flest misheppnuðust þó. 10 mínútum og virtust sannarlega ætla að ógna Valsmönnum og sigri þeirra. Það tókst þó ekki, en baráttan var spennandi allt til leiksloka og aldrei útséð um sig- urinn. ® Á 2. mín. í seinni hálfleik myndaðist þvaga við Valsmarkið og markvörðurinn hljóp út í þvög- una heldur glannalega. Einar ís- feld notfærði sér þetta og lyfti yfir vömina og skoraði fallegt mark 3:1. Rétt á eftir virtist Valsliðið hreinlega ætla að hrynja niður. Tveir leikmenn vom utan vallar og meiddir, Þorsteinn Friðþjófsson öðrum megin og var Óli B. þjálfari að stumra yfir honum, en hinum megin á línunni var Reynir Jónsson og voru tveir KR-ingar að hjálpa honum, Guðbjörn Jónsson og Ól- afur Jónsson í mótanefnd. Báðir fóru aftur inn en höltruðu um völl- inn heldur illa á sig komnir. © KR skoraði enn á 12. min. eftir að Sigurður Dagsson hafði varið hörkuskot Harðar Markan í hom. Úr horninu náði Einar I'sfeld boltanum á skalla og skoraði 3:2, sem hleypti miklu lífi í leikinn. Eftir þetta áttu bæði liðin góð tækifæri og hefði t.d. vel átt Framh. á bls. 5. Staðan * 1. DilLD Staoan í 1. deild er nú þessi: Valur 7 4 12 17:11 9 Keflavík 6 3 1 2 13« 7 Akranes 5 2 2 1 8:6 6 Akureyri 6 2 2 2 10:13 6 KR 5 1 2 2 7:8 4 Þróttur 5 0 2 3 5:14 2 : Eyleifur byrjaði að misnota tækifæri á 12. mín., skallaði 1 slána af stuttu færi og Valsmenn björguðu aftur á lfnu í sama skipti. © Bergsveinn Alfonsson skor- aði 1. mark Vals, sem kom ekki fyrr en á 30. mínútu, — en þar með voru Valsmenn komnir í gang. Skot Bergsveins var af örstuttu færi eftir að Hermann Gunnarsson hafði leikið laglega upp að enda- mörkum og gefið fyrir. Skotið lenti upp 1 þverslá, lenti greinilega inni en hrökk jslðan út, — minnti óneitanlega á skot Geoff Hurst, sem var 3. markið gegn Þjóðverj- um á Wembley s.I. laugardag. © Fjórar mínútur liðu og þá hleypur Reynir Jónsson upp miðj- an völl með boltann, sendir heldur ónákvæmlega á Ingvar Elísson, sem virðist ætla að hafa verr í keppni við tvo KR-inga og mark- vörð KR, sem hljóp rangt út í eitt af fjöldamörgum skiptum, en Ingv- ari tókst að skjóta og skorar 2:0. © Og á 36. mín. skorar Reyn- ir 3:0. Hann fékk stórglæsilegan skalla frá Hermanni og skot Reyn- is af vítateig lenti í bláhorni marksins. Um þetta leyti varð Bjami Felixson að yfirgefa völlinn vegna meiðsla og var hann fluttur á Slysavarðstofuna í sjúkrabifreið. Hafði hann fengið spark í legginn. Eftir þetta var eins og KR-ingar tækju fyrst svolítið við sér. Ey- /iðurelgn Vals og KR er einnig viðureign bræðranna Óla B. Jóns- onar (til hægri á myndlnni) og Guöbjöms Jónssonar, en Óli er þjálfari /als og Guðbjöm hjá KR. Hér horfa þeir spenntir á leikinn í gærkvöldi. Valsmenn sækja stíft í seinni hálfleik og þama leit sannarlega út fyrir að Bergsveini Alfonssyni tækist að skora fjórða mark Vals, en Guð- mundur Pétursson varð hlutskarpari í þetta sinn og náöi boltanum. leifur átti gott skot af löngu færi í þverslá og 2—3 góð skot fylgdu en Sigurður Dagsson markvörður Vals varði vel. I seinni hálfleik byrjuðu KR- ingar vel og skoruðu tvö mörk á CLAY. LONDON. (lay-London á morgun Á morgun fer fram í London keppni um heimsmeistaratitil- inn í þungavigt. Það eru þeir Cassius Clay og Brian London, sem berjast í Earls Court og meiningin er hjá Cassiusi Clay, eða Mohammed AIi, eins og hann heimtar að vera kallaður, að ná hér inn 150.000 sterlings- pundum fyrir keppnina, en eftir mánuð eða svo hefur hann í hyggju að keppa við Karl Mildenberger hinn þýzka í Frankfurt. Það er því nóg að starfa hjá Clay um þessar mundir. Clay kom til London fyrir nokkrum dögum og höfðu blaða menn þá að sjálfsögðu viðtal við hann. Var Clay hinn spak- asti og lét ekki hafa neina vit- leysu eftir sér. Hann taldi Brian London hafa gjörólíkan stíl miðað við Henry Cooper. Hefði hann nú „stúderað“ London alllengi og kvaðst þess vegna sjálfur hafa breytt sínum stíl. * Á mánudaginn verður sagt frá keppni þeirra Clay og Lon- don hér á síðunni og myndir áf átökunum birtar. I )

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.