Vísir - 05.08.1966, Side 3
V í S IR . Föstudagur 5. ág
3
—• — •
fræðslu. Síðan voru samtökin
„Varúð á vegum“ stofnuð, en
þar eru Slysavarnafélagið og
tryggingarfélögin stærstu aðil-
amir. Eftir stofnun samtakanna
var ákveðið að ég færi norður
og heimsækti þessa staði, þ. e.
Húsavík og S,iglufjörð.
Þátttakendurnir í hjólreiðanámskeiðinu röðuðu sér upp við reiðhjólin sin á svæðinu fyrir framan
sundhöiiina á staðnum, meðan smellt var af einni mynd.
Fyrir nokkru fór erindreki
Slysavarnaféiagsins, Sigurður
E. Ágústsson til Húsavíkur og
Siglufjarðar í þeim erindagerð-
um að hafa á þessum stöðum
kcnnslu í meðferð ökutækja,
bæði reiðhjóla og bifreiða. Vísir
hafði á dögunum samband við
Sigurð, og bað hann að segja
lesendum blaðsins frá ferðinni
í stórum dráttum og varð Sig-
urður fúslega við þeirri beiðni.
— Kannski þú segir okkur
fyrst frá aðdraganda ferðarinn-
ar, Sigurður.
— Segja má að ferð mín til
þessara staða hafi verið bein af-
leiðing af þingi Slysavarnafé-
lags íslands, sem haldið var í
vetur. Þá óskaði formaður
kvennadeildar Slysavamafé-
lagsins á Húsavík, frú Sigrún
Pálsdóttir þess, að erindreki fé-
lagsins yrði sendur norður til
aö annast kennslu í meðferð
reiðhjóla og bifreiða, eða rétt-
Á HÚSAVÍK.
— Hvernig var svo tilhögun
fræðslunnar á þessum stöðum?
— Á Húsavík var útbúin
æfingaraðstaða á leikvellinum
á staðnum, og jafnframt undir-
búin góðaksturskeppni á reið-
hjólum. Þá voru og kvikmynda-
sýningar tvö kvöld og voru þær
mjög vel sóttar og áhugi barn-
anna á fræðslunni var yfirleitt
mjög mikill.
— Hvernig gekk börnunum i
hæfnisæfingunum á hjólunum?
— Það má segja, að þeim
hafi yfirleitt gengið vel. Þrjú
hlutskörpustu í þessum æfing-
um urðu: 1. Hermann Jóhanns-
son, 12 ára, 2. Ásberg Sal-
ómonsson, 13 ára, og 3. Tryggvi
Bersason, 10 ára. Prófdómari í
keppninni var Gunnar Jónsson,
fvrrv. lögregluþjónn úr Reykja-
vík.
— En hvað um góðaksturs-
keppnina á bifreiðunum, Sigurð-
ur?
— Aðsókn að keppninni var
mjög góð, því að ekki færri en
18 tóku þátt í henni. Komið
15 stöðum víðs vegar um Húsa-
vlkurbæ. Góðaksturskeppni
þessi var haldin að tilhlutan
Bindindisfélags ökumanna á
Húsavík, og þeir sem stjórnuðu
keppninni voru: Þo)rvaldur
Árnason, Sigrún Pálsdóttir,
Helgi Pálsson, Vigfús Hjálmars-
son, Valdimar Halldórsson, Jón-
ast Egilsson, Sigurður Ágústs-
son, en auk þess veitti Hjálmar
Hjálmarsson, varðmaður á lög-
reglustöðinni á Húsavík mikla
og góða aðstoð.
— Hvað er að segja um ár-
angur keppninnar?
— Árangurinn var mjög góð-
ur, hvað viðvlkur umferðar-
reglum, en það sýndi sig sem
oftar, að hæfnisakstri, svo sem
að aka aftur á bak og aka eftir
borðum var mjög ábótavant og
gefur til kynna, að ökumenn
mættu leggja aukna áherzlu á
að æfa sig í akstri á opnum af-
skekktum svæðum. Hlutskarp-
astir í góðakstrinum urðu:
Hörður Sveinsson, Ragnar
Helgason og Helgi Jökulsson.
Einn kvenmaður tók þátt 1
keppninni, og stóð sig eftir at-
vikum mjög vel. Heitir hún
Þorgerður Þórðardóttir.
A SIGLUFIRÐI.
— Var aðdragandi þessara
námskeiða á Siglufirði sá sami
og á Húsavík?
— Já, það má segja sem svo.
Það var fyrir áeggjan Guðrúnar
Rögnvaldsdóttur, form. kvenna-
deildar slysavarnadeildarinnar
á Siglufirði, og með góðri að-
stoð karladeildarinnar á sama
stað, að komið var upp aðstöðu
til reiðhjólaæfinga á svæðinu
við Sundhöllina á Siglufirði.
Þama voru bömin æfð í vanda-
sömum reiðhjólaþrautum, sem
miðuðust að því, að þau fengju
gott jafnvægi á hjólinu og ör-
yggi og vald £ meðferð þess.
— Var eitthvað fleira gert í
sambandi við þetta?
— Námskeiðið endaði svo
með kvikmyndasýningu, þar
sem einnig vom afhent verð-
laun, sem slysavarnadeildimar
á staðnum höfðu gefið.
— Hver urðu úrslit reiðhjóla-
hæfniskeppninnar?
— Þátttakendur í námskeiö-
inu og hæfniskeppninni voru
samtals 33 á aldrinum 7—12
ára. Hlutskarpastur varð Krist-
ján Möller, 13 ára, nr. 2 Elinóra
Jósafatsdóttir, 11 ára, og nr.
3—i urðu þeir Vigfús Hauks-
son, 10 ára, og Hallgrímur
Sverrisson, 9 ára.
— Er eitthvað áformað um
áframhald á slíkum námskeið-
um og hæfniskeppnum?
— Já, gert er ráð fyrir slíku
námskeiði á Akureyri á vegum
Bindindisfélags ökumanna þar
og er áætlað að námskeiðið
hefjist 13. ágúst n.k.
— Er nokkuð sem þú vilt
segja að lokum og koma á fram-
færi við aðila úti á landi, sem
um þessi mál fjalla, Sigurður?
— Ég vil þakka fyrir þann
stuðning, sem þegar hefur feng
izt við málstaðinn, en ég vil
taka fram, að til þess að eins
mikill árangur og unnt er að ná,
náist verða allir aðilar að vinna
saman að þessum málum. Mjög
æskilegur er stuðningur kenn-
ara, lögreglumanna og annarra
áhugamanna og vel þegin hvers
kyns aðstoð frá þeirra hendi i
sambandi við framkvæmd þess-
ara námskeiða.
Fyrsti þátttakandinn í góöaksturskeppninni á Húsavík leggur af
stað.
Hélt ntímskeið / meðferð
reiðhjtíla og akstri bifreiða
- V'fisir ræðir v/ð Sigurð E. Agústsson, erindreka Slysavarnafélagsins,
sem fór til Húsavikur og Siglufjarðar og hélt þar námskeið
Frú Sigrún Pálsdóttir afhendir verðlaun fyrir árangur í reiðhjólakeppninni á Húsavík.
Einn þátttakendanna í hjólreiðakeppninni á Siglufirði.