Vísir - 05.08.1966, Page 4
Q
V í S IR . Föstudagur 5. ágúst 1960.
Starfsemi LYNGÁSS gengur vel
Úr skýrslu stjórnar Styrktarfélags vangefinna
Félagatal.
Árið 1965 voru ársfélagar
516 og ævifélagar 150, samtals
666. Á árinu bættust við 33
ársfélagar og 4 ævifélagar. Fall-
ið hafa niður af félagaskrá 31
vegna vangoldip 'rsgjalda og
vegna þess, að e' hefur tekizt
að hafa upp á heimilisfangi
sumra. Einn félagsmaður hefur
látizt á árinu.
Skrifstofan.
Félagið rak skrifstofu að
Skólavörðustíg 18 í Reykjavík
til 1. nóv. s.l., en flutti þá starf-
semi sína að Laugavegi 11. Er
það húsnæði allmiklu dýrara,
en hentar félaginu að sumu
leyti betur. Framkvæmdastjóri
frá 1. júní 1964 og fram í maí
1965 var Helgi Bergsson. Frú
Kristrún Guðmundsdóttir ann-
aðist skrifstofustörf um tíma í
maímánuði. Nýr framkvæmda-
stjóri var ráðinn frá 1. júní
1965, séra Erlendur Sigmunds-
son, og hefur hann gegnt því
starfi síðan.
Allmikið hefur verið leitað
til skrifstofunnar um fyrir-
greiðslu fyrir vangefið fólk,
einkum hefur verið leitað að-
stoðar um útvegun hælisvistar,
en vegna skorts á hælisrými
hefur litla aðstoð verið hægt að
velta.
•• . , *•
Fjáröflun.
Félagið efndi til happdrættis
með sama fyrirkomulagi og áð-
ur, og varð árangur þess sæmi-
legur. Vinningar voru að verð-
meeti kr. 523.400,00, en þó í
rauninni allmiklu hærri, er kaup
voru gerð á bifreiðunum eða
kr. 542.470,00. Vinningar voru
C hevrolet fólksbifreið og
Willysjeppi og kom fólksbif-
reiðin á miða seldan í Reykja-
vík, sem utanbæjarmaður
keypti. Tvær konur önnuðust
einkum sölu happdrættismiða í
Reykjavík svo og nokkrir sjálf-
boðaliðar innan félagsins.
Ber að þakka þeim lofsverð-
an áhuga og mikla vinnu. For-
stjóri Á.T.V.R., Jón Kjartans-
son og Gunnar Thoroddsen
fyrrverandi fjármálaráðherra,
áttu frumkvæði að þvl að gefa
félaginu smygltóbak til hluta-
veltu, sem haldin var í septem-
ber s.l., og varð hagnaður af
henni rúmar kr. 200.000,00.
Tjáir félagið fyrrv. fjármálaráð-
herra og forstjóra Á. T. V. R.
einlægar þakkir fyrir þennan
mikilvæga stuðning. Þess skal
og getið, að stjóm Hallveigar-
staða léði félaginu heimilið end
urgjaldslaust fyrir hlutaveltuna.
Þakkar félagið þennan mikla vel
vilja og aðstoð.
Hin árlega merkjasala fór
fram 3. sunnudag í nóvember
eins og áður. Nettóhagnaður af
merkjasölunni varð lítið eitt
minni en árið áður, enda þurfti
að láta prenta ný merki, og
varð af því allmikill kostnaður.
Veður var fremur óhagstætt,
enda varð árangur af merkja-
sölunni í Reykjavík ekki góður,
en mun betri úti um land.
Minningaspjöld.
Tekjur af minningaspjöldum
námu kr. 39.587,00 sem er lítið
eitt hærri upphæð en árið áður.
Minningakortin voru aðallega
seld á skrifstofunni.
Gjafir og áheit.
Gjafir og áheit, er bárust á
árinu námu kr. 199.780,47. Er
það rúmlega kr. 130.000,00
meira en í fyrra. Hæstu peninga
gjafir eru frá Islenzkum aðal-
verktökum kr. 30.000,00 og frá
fjórum litlum systrum kr.
10,000,00. Margir aðrir hafa
gefið félaginu rausnarlegar
gjafir. Nú nýlega gáfu tvær
systur kr. 10.000,00 til minning-
ar um móður sína og sá, sem
hlaut fólksbifreiðina, gaf fé-
laginu kr. 30.000,00. Þessar
tvær síðastnefndu gjafir koma
Jólagjafir.
Venja hefur verið undanfarið
að geta sérstaklega hins svo
kallaða Jólagjafasjóðs stóru
barnanna. Þar sem gjafir til
þessa sjóðs hafa sáralitlar ver-
ið, er sérstök reikningsfærsla
vegna hans niður felld.
Frú Sveinbjörg Klemenzdóttir
tók að sér að annast kaup og
úthlutun jólagjafa til vangef-
inna á hælum annarra en Skála
túns, og bar félagið smávægi-
legan kostnað vegna þessa. Til
vistmanna I Skálatúni gaf fé-
lagið kr. 6000,00, sem forstöðu-
konan, Gréta Bachmann, ráð-
stafaði.
til starfa í Lyngási á síðasta
hausti. Þá starfa þar eins og
áður tveir handavinnukennarar
og sjúkraþjálfari, svo og læknir
og sálfræðingur.
Borgaryfirvöld Reykjavíkur
hafa nú gefið eftir þann kostn
að, sem varð af fullnaðargerð
lóðarinnar í Lyngási. Nemur sú
upphæð um 500 þúsund krónum
(sjá reikninga). Þá greiðir ríkis-
sjóður frá ársbyrjun 1965, auk
tvennra kennaralauna, hluta af
launum matráðskonu og
hluta af aksturskostnaði vegna
barnanna. Bætir allt þetta tals
vert hag heimilisins.
Ýmsar góðar gjafir bárust
heimilinu á árinu, þar á meðal
ir nokkrir fundir með starfs-
fólkinu. Stjómarnefnd Lyngáss
hefur jafnaðarlega fundi einu
sinni í mánuði. Nefnd þessi er
skipuð af stjóm Styrktarfélags
ins til tveggja ára í senn.
í nefndinni eiga sæti:
Sigríður Thorlacius, formaður
Arnheiður Jónsdóttir
Kristrún Guðmundsdóttir
Sigríður Ingimarsdóttir
Sveinbjörg Klemenzdóttir.
Að lokum skal tekið fram, að
börnin virðast yfirleitt þroskast
og dafna vel í Lyngási, og sam
starf foreldra, starfsliðs og
stjórnarnefndar hefur verið með
ágætum.
Bamaheimíliö Lyngás.
á reikning félagsins fyrir yfir-
standandi ár. Þess skal og getið,
að frú Fanney Benónýsdóttir
hefur gefið Systrasjóði stór-
gjafir á s.l. ári.
Öllum þessum gefendum fær-
n stjórnin alúðarfyllstu þakkir
og beztu árnaðaróskir.
Framlög.
Tuttugu og eitt sveitarfélag
greiddi framlag til Styrktarsjóðs
vangefinna á árinu að upphæð
kr. 93.680,00.
Félagið naut framlags frá
borgarsjóði Reykjavikur kr.
600.000,00. Auk þess greiðir
borgarsjóður félaginu innan
skamms kr. 250.000,00, sem
áður hefur verið dregið frá
framlögum hans, vegna lóðar-
gerðar við Lyngás. Er þessi upp
hæð því reiknuð með tekjum s.l.
árs.
Af þessum framlögum eru kr.
800.000,00 teknar til rekstrar
Lyngáss, en kr. 50.000,00
færðar til tekna á aðalrekstrar-
reikningi.
Framlag ríkisins til félagsins
og Lyngáss var hið sama og und
anfarin ár kr. 50.000,00. Einnig
naut félagið framlags úr ríkis-
sjóði að upphæð kr. 317.220.00
til greiðslu á kennaralaunum,
hluta af matráðskonulaunum
og akstri bama vegna Lyngáss.
Styrkir.
Tveim stúlkum, Ólöfu Sigurð-
ardóttur og Guðbjörgu Andrés-
dóttur, voru veittir námsstyrk-
ir að upphæð kr. 30.000,00.
Stunda þær nám 1 Noregi í
gæzlu vangefinna.
Námslán að upphæð kr. 10.000
00 var veitt Steinunni E. Jóns-
dóttur til framhaldsnáms í
gæzlu vangefinna í Danmörku.
Félagið gaf úr félagssjóði til
sundlaugarbyggingar í Skála-
túni kr. 100.000,00.
Lyngás.
Dagheimilið Lyngás hefur
starfað með sama sniði og und
anfarin ár. Þar eru nú 43 börn
og unglingar. Gæzlu þeirra ann
ast 6 fóstrur auk forstöðukonu.
Börnin eru á heimilinu frá 9-6
fimm daga vikunnar, en frá 9-12
á laugardögum. 6au fá þar há-
degisverð og síðdegishressingu.
Matráðskona heimilisins sér um
máltíðir og aðdrætti alla. Börn
in eru flutt að og frá heimilinu
í leigubifreiðum. Þeir aðstand-
endur, sem tök hafa á, taka þátt
í þeim kostnaði sem af akstrin
um verður. Vistgjöld eru þau
sömu og á dagheimilum Barna-
vinafélagsins Sumargjafar.
Nýr kennari £ bóklegum efn
um, Rósa Guðmundsdóttir, tók
skemmtilegt smáhús og útibekk
ir frá Lionsklúbb einum hér í
borg.
Á síðastliðnu sumri var húsið
málað að utan, svo og eldhúsið,
tvær stofur að nokkru og allir
gluggar að innan. Skýrir þetta
að mestu þanri viðhaldskostnað,
sem kemur fram á rekstrarreikn
ingnum. Nauðsynlegt er að
ljúka málningu alls hússins í
sumar og telst það til eðlilegs
viðhalds. Nokkrir aðstandendur
barnanna £ Lyngási unnu þar á-
gætt sjálfboðaliðsstarf við girð
ingu umhverfis lóðina, gróður
setningu og fleira.
Foreldrarfundur var haldinn
26. febrúar sl. og var afar vel
sóttur. Þessir fundir eru nú
orðnir fastur liður £ starfi heim
ilisins. Þá hafa og verið haldn
Starf félagskvenna.
Starf kvenna I Styrktarfélag-
inu hefur staðið með blóma
þetta ár sem önnur, og eru eins
og fyrr haldnir fundir mánaðar
lega yfir veturinn. Koma að
jafnaði 50 konur á fund og oft
fleiri. Bazarnefnd félagsins, en
hana skipa 10 konur, hefur unn
ið mikið og fómfúst starf. Baz
ar og kaffisala var £ Tjarnarbúð
í desember sl. og hefur hagnað
ur aldrei verið meiri. Ágóði
af fjáröflun kvennanna rennur
í sérsjóð þeirra og fylgja reikn
ingar hans reikningum Styrktar
félagsins. Veita konumar árlega
fé úr honum til kaupa á hús-
gögnum og kennsluleiktækjum
á vistheimili vangefins fólks.
Austur- ÞjóBverjar vilja
kaupa uiðursaBuvörur hér
Á haustkaupstefnunni i Leip-
zig, sem stendur yfir frá 4.—11.
september verða þátttakendur
framleiðsluvarnings í rúmlega
60 löndum, en stærst verður sýn
ing þýzka alþýðulýðveldisins.
Að þessu sinni hafa fslenzkir
aðilar ekkert sýningarsvæði.
Skýrði hr. Baumann verzlun-
arfulltrúi þýzka alþýðulýðveld-
isins frá kaupstefnunni á fundi
með fréttamönnum fyrir
skömmu.
Skýrði Baumann enn fremur
frá þvf að verzlunarjöfnuðurinn
stæöi nú á núllpunkti milli Is-
lands og Þýzka sambandslýð-
veldisins en viðskipti landanna
á milli hefðu aldrei veriö eins
mikil. Sagði hann að það væri
von sín að þau víðskipti mættu
aukast en Austur-Þjóöverjar
hefðu mikinn áhuga á kaupum
á ýmsum fslenzkum vörum eink
um þó niðursuðuvörum.
Skýrði Baumann frá þvi aö
Þýzka alþýðulýðveldið myndi að
öllum líkindum fá 400 ferm. sýn
ingarsvæði á vörusýningu, sem
f ráði er að haldin verði í sýn-
ingarhöllinni f Laugardalnum í
júní næsta ár, en þátttakendur
þeirrar vörusýningar eru alþýðu
lýðveldin.
Sýningarsvæðið á haustkaup-
stefnunni í Leipzig í ár er yfir
100.000 fermetrar og verður það
sýning í 30 vöruflokkum. Sýna
þar 6500 framleiðendur frá 60
löndum. En reiknað er með heim
sókn 250.000 kaupsýslumanna
frá 80 löndum.
Þótt vorkaupstefnan í Leip-
zig sé mun stærri en haust-
sýningin hafa margir framleið-
endur neyzluvamings í þýzka
alþýðulýöveldinu gert meira fyr-
ir framboð sitt og nýjungar á
haustin, t. d. í raftækjum, vefn-
aðarvörum, húsgögnum og leik-
föngum.
Mun verksmiðjan VVB DEKO
leggja fram tilboð f 1350 nýj-
ar gerðir af vefnaðarvörum, þar
á meðal teppi.