Vísir - 18.08.1966, Page 6
5
VÍSIR - Fimmtudagur 18. ágúst 1966.
Læknamiðstöð -
Framh. at bls. 1.
Vísjx hafði í morgun sam-
band við Gísla Auðunsson, sem
nú starfar á Landspitalanum
og spurði hann nánar um þessa
fyrirhuguðu nýskipan.
— Það er ætlun okkar að
vinna að því að koma upp
læknamiðstöð á Húsavík, þótt
ekki verði hægt að tala um
eiginlega miðstö.ð meðan við
verðum aðeins tveir, en svo
verður i vetur. Daníel Daníels-
son fyrrverandi héraðslæknir
sem ráðinn hefur verið sjúkra-
húslæknir verður fjarverandi í
vetur, fer utan til framhalds-
náms, en er hann kemur aftur
verðum við þrír á Húsavlk. Er
ætlunin aö starfa á sama grund-
velli og gert er víða í Bret-
landi og eru áætlanir um að
koma upp slíkri skipan víðar
hér á landi. Er áhugi mikill
á þessu, bagöi frá okkar
hendi svo og ráðamanna nyrðra.
— Fyrirkomulagið á fyrir-
hugaðri læknamiðstöð á Húsa-
vík verður þannig að samlags-
sjúklingar verða hjá okkur báð-
um og verðum við með sameig-
inlega spjaldskrá. Við höfum
sömu stofu, sama aðstoðarfólk
og skiptum með okkur vöktum.
Eru Húsvíkingar búnir að ráða
tvo starfskrafta til okkar, rann-
sóknarmanneskju (laborant) og
ritara, en hvort tveggja er
frumskilyrði fyrir því að hægt
sé að reka læknaþjónustu með
einhverjum myndarbrag úti á
landsbyggöinni.
— Hugmyndin er að við
byrjum daginn með því að ræða
saman um þau tilfelli sem eru
á dagskrá og síðan skiptum við
með okkur störfum á sjúkra-
húsi, læknastofu og útköllum.
Munum við jöfnum höndum
gegna sjúkraköllum út I bæ og
sveitimar en læknishéraðið nær
yfir Húsavik og Tjömes, hluta
af Reykjahverfi, Aðaldal og
Kinn og Flatey á Skjálfanda.Það
sitja læknar í nágrannahéruðun-
um, á Breiðumýri og Raufar-
höfn. En ef svo fer sem alveg
PERSTORP
PLATTAN
Sænska harðplastið viðurkennda fyrirliggj-
andi í miklu úrvaii.
Verðlækkun
Sntiðjubúðm
við Háteigsveg. — Sími 21222
Smiður eðo vanur maður
óskast til húsgagnaframleiðslu. Eingöngu
reglusamur maður kemur til greina. Mikil
vinna. Uppl. í síma 41791.
íbúð óskast
3 herb. íbúð óskast fyrir Bandaríkjamann giftan ís-
lenzkri konu. Sími 19911 kl. 8-5 til föstudags.
Háseta
vantar á dragnótabát sem er með víra. Uppl.
í síma 10344.
ATVÍNNA
Okkur vantar nú þegar vana saumakonu, einnig karlmann
með ökuréttindi.
Verksmlðjan DÚNA
Auðbrekkú 59, Kópavogi
eins má búast við að að því
komi að ekki fáist þangað
læknar má búast við að íbúar
þessara héraða þurfi að sækja
lækni til Húsavíkur þótt um
langan veg verði að fara. Það
er vart að búast við því að
hinir ungu læknar geti sætt sig
við þær aöstæður sem era viða
í læknishéruðum úti á landi,
þótt gömlu mennimir hafi látið
sig hafa það. Skilyrðin fyrir
læknana eru svo langt á eftir
kröfum tímans — læknirinn er
bundinn í báða skó og hefur
því sjaldan tækifæri til að
komast burtu um skeið og afla
sér framhaldsmenntunar.
— Það er hugmynd okkar
að haga störfunum á Húsavík
þannig að við getum skipzt á
um að fara utan og bæta og
auka okkar þekkingu, því að
slíkt er alger nauðsyn hverjum
lækni i dag. Einnig munum við
geta haft frjálsari hendur með
að sækja ráðstefnur og þing i
Reykjavík um heilbrigöismál,
en hér er miðstöð lækna og
heilbrigðisþjónustunnar.
— Þótt við höfum verið
ráðnir norður er ekki búið að
ganga frá formsatriðum varð-
andi ráðninguna, en frá þeim
verður gengið á næstunni. Mun
annar okkar að Ifkindum fara
norður í október og hinn í nóv-
ember.
Dauðaslys —
Framhald af bls. 1.
samstundis.
Eins og sést á myndinni sem
fylgir, er bilið miili gröfunnar
og staursins allmikið, er stjóm
hús gröfunnar snýr eins og þaö
er á myndinni, en er því er snú
ið til að láta mold ofan á bíl-
pallana eða til að láta moldina
á skurðbakkann verður bilið
milli staursins og aftari hluta
stjómhúss gröfunnar fáir senti
metrar.
Atburöir sem þessir hljóta að
vekja menn til umhugsunar um
viðbúnað á stöðum þar sem
veriö er að vinna slík verk, sem
í þessu tilfelli Allir hljóta að
vita og sjá að á mörgum stöðum
í borginni er verið að vinna aö
skurðgreftri, verið er að steypa
upp hús, gatnageröarfram-
kvæmdir eru í fullum gangi og
þannig mætti lengi telja. Allir
slíkir staöir bjóða hættunni
heim, og það verður að segja
aö á mörgum stöðum eru gerö-
ar harla litlar eöa alls ekki nein
ar varúðarráðstafanir til að
hindra slys. Blaðinu er þó ekki
kunnugt um, að slíkt hafi verið
um að ræöa í þessu tilfelli, en
allir ættu aö muna að of seint
er að byrgja brunninn er barnið
er dottið ofan í hann. Erlendis
munu vinnustaðir sem þessir
vera girtir af, og alls enginn
samgangur vera á milli barn-
anna og vinnutækjanna á göt-
unni, enda slíkt með öllu óhugs
andi og með öllu óverjandi, þó
við lýði sé hér á landi. Reglu-
gerð varðandi öryggi á vinnu-
stöðum mun nú í endurskoðun
og er sú athugun langt á
veg komin og vonandi veröur
tekið strangt á brotum á
henni og verulegt eftirlit haft
með að sú nýja reglugerð verði
haldin.
Þéttir ailt
Heildsölubirgóir:
Hannes Þorstein&son,
heildverzlun.
Hallveiaarstie 10 Sirm 'Í4455
Húsavík —
Framh. af bls. 1.
huganir heföu ekki farið fram
á þeim fyrr en í ár. Er Lauga-
dalur 300—400 metra frá mið-
bæ Húsavíkur en auk holanna
þar var borað hola inni á sjálfri
Húsavík og hefur hún enn ekki
verið athuguö. Fyrir mörgum
áram var gerö áætlun um hita-
veitu frá Hveravöllum i Reykja
hverfi en þegar til kom þótti
um of langan veg að fara og
hætt var við framkvæmdir. Nú,
er Húsvíkingar eru með heitt
vatn við bæjardymar er að von
um mikill hugur í þeim að nýta
þaö, en engar áætlanir um hita-
veitu veröa gerðar fyrr en
fullnaðarathugun hefur farið
fram á borholunum.
Síldin —
Framh. af bls. 1.
Langanesi og orðið var við eitt-
hvert síldarmagn, en mun minna en
á veiöisvæðinu nyrðra. Flutninga-
skipið Cirion er væntanlegt á
miðin um hádegi í dag og tekur
það afla 4 fyrstu skipanna. En
alls höfðu 6 skip tilkynnt um afla
af norðurslóðum kl. 8 í morgun
og höfðu þó fleiri fengið afla, eða
voru með góö köst á síðunni.
Samtals tilkvnntu 14 skip um
afla til síldarleitarinnar síðasta
sólarhring, 24.402 tonn.
Trefjagler —
Framhald af bls. 16
og fremst ætluð sem sumarbú-
staðir eöa hús fyrir mótel.
Trefjaglershús Cadoviusar
hafa vakið geysilega athygli á
sýningunni. Sumum finnast hús
in vera of byltingarkennd, en
bæði fagmenn og leikmenn taka
þau samt alvarlega. Cadovius
hefur of gott álit til að hægt
sé aö yppta öxlum út af hug-
myndum hans.
Cadovius hefur lagt um 20
milljónir íslenzkra króna í bygg
ingu húsaverksmiðju sinnar.
Kynferðisbrot —
Framhald af bls. 16
að aka þeim í laugina. Þegar
stúlkurnar voru komnar upp í bif-
reiöina ók hann þeim upp fyrir
borgina, þar sem hann sagöi þeim
aö fara úr bifreiðinni og úr fötun-
um. Litlu stúlkurnar urðu þá
hræddar og fóru að gráta. Viö
það hætti maöurinn við áform sín
og ók þeim aftur í bæinn.
Önnur stúlknanna sagöi móður
sinni frá þessum atburöi og gat
hún gefið lýsingu á manninum og
bílnum. Hann var síðhærður og ók
í ljósleitum bíl.
► Sett hefir verið hrjúft lagt
á Strikið i Kaupmannahöfn til
þess að koma í veg fyrir að
farand-listamenn legðu götuna
undir sig til þess að mála á
hana myndir, en með því aura
þeir sér dálftið inn. Var orðið
svo mikið um þetta, að það
tru-Taði umferð. — En nú
kvartn konurnar — segja
stiletto-hælana sína eyðileggjast
eða slitna um of á ósléttri göt-
unni.
Auglýsing í Vési
eykur viðskiptin
Reykjaborg —
Framhald af bls. 1»
sjór aö komast aö síldinni á
dekkinu til þess aö velkja hana.
Skipinu mun við þetta einnig
aukast burðarþol. — Á síld-
veiðum verður síldinni dælt úr
nótinni upp í skipið, en ekki
háfuð, eins og yfirleitt hefur
tíökazt hingað til. Á þorsknóta-
veiðum veröur hins vegar háfað
niður um lúgu á efra þilfari.
Skip, sem þannig er útbúið er
algjörlega sérhæft til nótaveiða
og mun trúlega illfært að stunda
á þeim annan veiðiskap, nema
með einhverjum aukaráðstöf-
unum. Norömenn hafa gert til-
raun með þannig yfirbyggt skip
sem verið hefur á veiðum við
Grænland og Nýfundnaland í
sumar og reynzt vel.
Læknar —
Framh. af bls. 5
gera það upp við sig hvaö hann
geröi í þessu efni, en samtökin
mæla ekki meö því að sjúkrahús-
læknar endurnýi samninga, sem
þeir búa við, er þeir ganga úr gildi.
Brezka læknafélagið THE BRIT-
ISH MEDICAL ASSOCIATION hef
ir fengið mörg mótmælabréf frá
læknum vegna kaupbindingar-
stefnunnar og einkum hafi marg-
ir ungir læknar við orð, að flytja
úr Iandi, og horfurnar séu ærið
ískyggilegar.
Einnig hafa nokkrir læknar að
sögn I huga að hætta læknisstörf-
um vegna þess hvemig að þeim
er búið.
Vietaam —
Frh. af bls. 5:
sumar af þessum ræðum voru
fluttar í Bandaríkjunum. — í
fyrra hvatti Pearson til þess að
Bandaríkin hættu sprengjuárásun-
um á Norður-Vietnam til þess að
komast að raun um hvort það yrði
til þess að greiða fyrir samkomu-
lagsumleitunum um frið.
Pearson sagði í morgun, að
fundurinn hefði verið ákveðinn
þegar forsetinn gerði fyrirspum
um hvort honum hentaði að koma
til Campobelloeyjar. Pearson á-
formar að fljúga til St. Andrews
í New Brunswick á laugardag og
fara þaðan til eyjarinnar á sunnu-
dagsmorgun til þess að hitta John-
son forseta og konu hans. Þetta
verður önnur heimsókn Johnsons
til Kanada síðan hann varö for
seti, og þetta veröur þriðja heim
sókn hans til annarra landa, þv
að hann hefir einnig heimsót
Mexikó.
Pearson sagðist fúslega ræða vif
Johnson um heimsvandamálin
þrátt fyrir miklar annir vegna erf
iðra ir.nanlandsvandamála, sen
biðu úrlausnar, m. a. væri hætt vif
verkfalli á ríkisjárnbrautunum.
Sþrótfir —
mhald at bls 2
Belgíumeistari og jafnfram
varð varalið þess einnig sigur
vegari í varaliðakeppni 1. deild
ar. 1932 tók það aftur þátt
Evrópukeppni meistara og sl
fyrst út Noregsmcistaraní
Frederiksstad, með 2—1 og 2-
0. í „kvartfínal“ sigraði Stand
ard Glasgow Rangers í Liég
með 4—1, en tapaði i Glasgor
með 2—0. Hélt því áfram á haj
stæðara markahlutfalli. 1 und
anúrslitum lék félagið við Ra
Madrid, en þar var við ofuref
að etja. Enn verður Standar
Belgíumeistari 1963, en er slegi
út úr Evrópukeppninni í
Norrköping í Svíþjóð. Árið efi
ir er félagiC í úrslitum í Belgít
en tapar fyrir Anderlecht.