Vísir - 18.08.1966, Síða 7
tfíSIR Fimmtudagur 18. ágúst 1966.
7
Ritari Knattspyrnusambands Waíes
í viðtaii við Vísi:
Blaðamaður Vísis hitti fyrir
skömmu að máli fararstjóra
knattspyrnulandsliðsins frá
Wales, sem hér lék landsleik
við íslendinga á mánudaginn.
Fararstjóri Iiðsins, mr. Herbert
Powell er ritari Knattspymu-
sambands Wales (Football
Association of Wales) og hef-
ur gegn því starfi í samtals 21
ár, en f stjóm sambandsins hef-
ur mr. Powell verið í samtals
35 ár. Þá er Powell einnig í
stjóm Knattspymusambands
Evrópu. Af þessu má sjá, að
hann hefur tekið miklu ástfóstri
við knattspyrnuiþróttina, eins
og svo mörgum löndum hans er
Iagið. Mr. Powell ætlaði að fara
héðan af landinu í morgun.
Sagði hann, að sig langaði til
að hvíla sig hér á Islandi frá
önnum hins daglega lífs. Hér
væri svo kyrrt og rólegt, en
hann hefði verið önnum kafinn
við undirbúning ferðar lands-
um, svo sem Evrópubikar-
keppni fyrir áhugamenn, Evr-
ópukeppni bikarmeistara, og er
reglan sú, að það lið, sem
vinnur bikarkeppnina í Wales,
fer beint í Evrópukeppni bikar-
meistara. í fyrra vann Swan-
sea Town bikarkeppnina í
Wales, og tekur þátt í Evrópu-
keppninni í ár, leikur i 1. um-
ferð gegn bikarmeisturum Búlg-
aríu, en úrslitaleikur bikar-
keppninnar þar í landi fer ekki
fram fyrr en 9. september n. k.
þannig að við vitum ekkert um
andstæðing okkar fyrr en þá.
En ákveðið hefur verið að dóm-
ari og línuverðir verði frá ís-
Iandi. Sambandið er nú að
koma á fót sérstöku námskeiði
fyrir þjálfara frá öllu Wales-
ríki, og er tilgangur námskeiðs-
ins m. a. sá að fá landsliðsþjálf-
ara. Við erum þegar farnir að
undirbúa okkur fvrir næstu
heimsmeistarakeppni, sem verð
ur haldin í Mexíkó árið 1970.
^ Herbert Powell
yfir, áður en leikurinn byrjar.
Annars voru áhorfendur rétt-
látir, eins og ég sagði áðan,
fögnuðu því, sem vel var gert
hjá báðum aðilum, og ekki
kvörtum við yfir því þó að þeir
hvetji ekki heimaliðið!
Fallegt á Þingvöllum
Hafið þér ekki ferðazt eitt-
hvað um landið?
— Jú, á laugardaginn fórum
við til Þingvalla og sáum
einnig heita hveri. Veðrið var
alveg framúrskarandi gott og
ferðin mjög vel heppnuð. Við
vorum mjög hrifnir af lands-
laginu á Þingvöllum og þar er
undrafagurt. Þjóðgarðsvörður-
inn á Þingvöllum flutti frábært
erindi um sögu staðarins, og
vorum við mjög hrifnir af mál-
snilld hans. Við höfum orðið
fyrir miklum áhrifum af Is-
lendingum. Þeir eru svo vin-
gjamlegir. Alltaf þegar maður
er í útlöndum, og manni er vís-
JSLENZKIR AHORFENDUR VERÐA AÐ
HVETJA HEIMALIÐIÐ TIL DÁÐA"
i
liðsins hingað til íslands, og
hvíldin því mjög kærkomin.
í upphafi báðum við mr.
Powell að segja lesendum blaðs-
ins frá knattspyrnusambandinu
í Wales og fleiru í sambandi
við það.
— Já, í Wales eru um 1000
knattspyrnulið, þar af eru inn-
an við 100, sem eru atvinnu-
mannalið, eða leikmenn þess
ern atvinnumenn eða hálf-
atvinnumenn. Atvinnuliðin frá
Wales taka þátt í ensku knatt-
spymukeppnunum, þ. e. ensku
deildakeppninni, sem byrjar á
laugardaginn og í ensku bikar-
keppninni. Þau eru fjögur tals-
irts, Cardiff í 2. deild, Swansea
Town í 3. deild, og Newport og
Rexham í 4. deild.
Nú er knattspyman mjög rót-
gróin i hugum landsmanna
þinna, hvenær var Knattspyrnu
samband Wales stofnað?
— Knattspyrnusamband Wal-
es heldur á þessu ári upp á 90
ára afmæli sitt. Það var stofn-
aö árið 1876, og hefur nú að-
setur sitt I borginni Wrexham,
sem er í norðausturhorni Wal-
es, mjög nálægt landamærum
Wales og Englands. Þaðan er t.
d. mjög stutt til Liverpool, sem
er nú einna þekktust enskra
borga, bæði fyrir bítla og knatt-
spymulið, en þaðan eru tvö af
beztu knattspymuliðum Eng-
lands, Liverpool, deildarmeist-
arar í fyrra, og Everton, bikar-
meistarar í fyrra. Starfsémi
sambandsins er nú með mikl-
um blóma, það hefur á að skipa
starfsliði, sem telur sex manns.
Wales tekur árlega þátt í mörg-
um alþjóða knattspyrnukeppn-
Heimsmeistarakeppnin
Hveming gekk landsliði
Wales í undankeppni heims-
meistarakeppninnar í fyrra?
— Við lentum í riðli með
Sovétmönnum, Dönum og
Grikkjum, en komumst ekki
áfram, töpuðum með litlum
mun öðrum leiknum gegn
Sovétríkjunum (2—1) en unn-
um hinn, 2—1, en Rússar kom-
ust síðan áfram úr riðlinum í
lokakeppnina, þar sem þeir
urðu nr. 4. Aftur á móti töpuð-
um við öðrum leiknum við Dani
og það réð baggamuninn.
Margir af beztu leikmönnun-
um í ensku atvinnumannalið-
unum eru frá Wales, og
skal þar fyrstan telja mið-
vörðinn frá Blackbum Rovers,
Mike England, sem svo mikið
hefur verið í fréttum undanfar-
ið, en hann vill skipta um fé-
lag, og hefur gengið þar á ýmsu.
Þá má einnig nefna þá Sprake,
sem er markvörður Leeds Uni-
ted, Vernon, sem nú leikur með
Stoke City, en var þar áður
með Everton, og Hennessy,
fyrirliða Notthingham Forrest.
Cliff Jones, sem leikur með
hinu þekkta liði Tottenham,
Hottspurs, er einnig frá Wales.
Við búumst við að ná góðum
árangri í næstu heimsmeistara-
keppni, við eigum mjög góða
menn, sérstaklega varnarmenn,
og sérstaklega er hagstætt fyr-
ir okkur, að á þeim tíma, sem
næsta heimsmeistarakeppni fer
fram verða hinir sterku vam-
arleikmenn okkar, sem leika
meö enskum atvinnuliðum, á
aldrinum 26—28 ára, en sá
aldur held ég sé sá bezti fyrir
knattspymumenn, hvað árang-
ur snertir.
Það þarf náttúrlega ekki
að spyrja að því, að þér hafið
séð einhverja leiki í nýafstað-
inni heimsmeistarakeppni?
---- Já, ég sá alta leikina í
Liverpool, fvrsta leikinn í
keppninni milli Englands og
Umguay, og að sjálfsögðu úr-
slitaleikinn milli Englands og
V.-Þýzkalands, og að auki sá
ég einn leikinn í Sunderland,
milli N.-Kóreu og Chile. Bezti
leikurinn sem ég sá var leikur-
inn milli Brazilíu og Ungverja-
lands. Hann var beztur, ef öll
atriði eins knattspyrnuleiks eru
tekin með í reikninginn, þ.e.
leikurinn, einstakir leikmenn,
áhorfendur, dómari og línu-
verðir. Allt var 1. flokks í
þessum leik.
ísland: Wales
Jón Jóh. beztur
Hvað getið þér sagt okk-
ur um nýafstaðinn landsleik
milli íslendinga og Wales?
— Mér fannst leikurinn mjög
skemmtilegur. Það var mikið
barizt og hart, en án baráttu
vinnst ekki sigur, en bæði liðin
stefndu að honum eins og gef-
ur að skilja. Ég vil taka það
fram í sambandi við leikinn, í
fyrsta lagi að íbúar Wales eru
um 2 milljónir, og höfum við
því úr mun fleiri leikmönnum
að velja en þiö, og í öðru lagi,
að okkar leikmenn hafa ekki
leikið leik síðan í maí í vor, þvf
eins og ég sagði áðan, er keppn-
istímabilið að byrja á Bretlands
eyjum. Okkar menn voru mjög
vel líkamlega sterkir og £ góðri
þjálfun Ifkamlega, en það er
ekki nóg. Leikreynsluná vant-
aði okkur alveg, af fyrrgreind-
um ástæðum. Ef leikurinn hefði
farið fram svona tveimur mán-
uðum sfðar, hefðum við átt að
geta sigrað með svona 1 marks
mun.
Hvað getið þér sagt um ís-
lenzka knattspymu?
— Knattspyrnan hjá ykkur
er eins og við bjuggumst við
að hún væri. Hún er mjög ensk,
vegna mikilla samskipta ykkar
við Bretlandseyjabúa á knatt-
spymusviðinu. Við höfðum
ekki gert okkur neinar vonir um
sigur fyrir .leikinn, vegna skorts
á leikreynslu, og erum ánægðir
með jafntefli.
Hverjir funduzt yður vera
beztu leikmenn ísl. liðsins?
— Miðherji ykkar, Jón Jó-
hannsson var mjög góður, vann
mikið og vel, var alltaf að.
Hann lék miðvörð okkar oft
grátt þrátt fyrir góðan leik af
hans hálfu og mark hans var ..
mjög laglega gert. Þá var og
hægri útherji liðsins, Reynir
Jónsson, mjög góður.
Hvað viljið þér segja um
áhorfendurna?
— Okkur fundust þeir vera
mjög réttlátir, en þeir láta allt of
lítið í sér heyra. Þeir fögnuðu
aðeins þegar Islendingamir skor
uðu, en annars létu þeir ekhi í
sér heyra til hvatningar liðinu.
Það er mjög nauðsynlegt fyrir lið
að hafa góðan og tryggan á-
horfendahóp, og í Wates-teljum
við það að leika á hehnaveílí
vera á við að hafa eitt mark
að til vegar, er sagt eitthvað
á þessa leið: Ganga þessa götu
á enda, þá til vinstri, síðan tfl
hægri og síðan til vinstri ...
og svo framvegis. En þannig er
það ekki hér á landi. Fólkið
beinlínis fylgdi okkur í verzl-
animar. Við höfum farið all-
mikið í verzlanirnar hér í borg-
inni, og þegar við spurðum til
vegar, fylgdi viðkomandi okkur
alveg að búðardyrunum. Þetta
er mjög óvenjulegt Þá höfum
við og tekið eftir þyf, hve fölk-
ið hér á landi er ánægt á svip-
inn og í léttu skapi. Það eru
alltaf allir brosandi. Verðlagið
hér á landi er að vfsu langt ofar
því sem gerist í Englandi, en
þess ber og að geta, að íaun hér
eru mun hærri en þar.Vöruúrval
hér í verzlununum viröist mér
vera allgott.
Hvað getið þér sagt les-
endum um samskipti íslands
og Wales í framtiðinni?
— Við vonum og vitum að
með þessum leik hefur íþrótta-
samskiptum þessara vinaþjóða
verið komið á fastari grundvöll.
Við viljum endilega fá ísl.
landslið til landsleiks í Wales.
En því miður er ekki fjárhags-
legur grundvöllur fyrir slíkri
ferð. Þetta þykir okkur mjög
leitt. Ég hef þekkt formann
Knattspyrnusambands íslands,
Björgvin Schram í langan tíma,
og höfum við báðir mikinn é-
huga á að efla samskipti land-
anna á knattspyrnusviðinu. En
eitt get ég sagt að lokum, að
ég og allir ltííkmennirmr, sem
voru hér í sambandi við lands-
leikhm metum Island og fs-
lenzku þjócffna mun meira eftir
þessa ágætu ferð hingað.