Vísir - 18.08.1966, Qupperneq 11
3
SiÐAN
Karlmannaklæðnaður árið 1967?
— Á geimklæðnaður Torres eftir að taka
Forsetadóttirin sækir um vinnu:
Vill gerast blaðakona
Fyrir nokkrum dögum kom
22 ára gömul stúlka til New
York í atvinnuleit. Hún var
ekki sú eina sem kom þennan
dag til milljónaborgarinnar til
þess að Ieita sér að starfi — en
hún var liklega eina forsetadótt
irin, sem þangað var komin í
fyrrgreindum tilgangi. Þetta var
nefnilega Lynda Bird Johnson
eldri dóttir Bandaríkjaforseta.
Lynda Bird fullyrðir að faðir
hennar hafi ekkert vitað af
þessu, nema hvað hún hafi áð-
ur sagt honum að hana langaöi
til þess aö lifa sínu eigin lífi —
helzt í New York.
Allt útlit er fyrir að forseta-
dóttirin ætli að gerast blaðamað
ur, því að hún byrjaði vinnuléit
ina á þvi að sækja um vinnu
hjá kvennablaöinu „McCall“.
Daginn eftir mætti hún hjá rit-
stjóranum og í fylgd með henni
var leikarinn Georg Hamilton
og fjórir öryggisverðir.
Það fara ekki sögur af því aö
ráðning Lindu hafi verið ákveð-
in, enda vildi hún fyrst athuga
með vinnu á fleiri stöðum. Hún
hefur þegar nokkra reynslu í
blaðamennsku því að í fyrra
birtist grein í „McCall" um
þátttöku hennar í fornleifarann-
sóknaleiöangri. Þá hafa birzt
eftir hana greinar í „Look“ og
hinu fræga tímariti „National
Geographic".
Lyndu tókst að komast frá
Washington til New York án
þess að tekið væri eftir henni
— en er til New York kom fór
á annan veg. Leikarinn Georg
Hamilton sem þar var í fylgd
með henni er þekktur af kvik-
myndatjaldinu og auk þess voru
öryggisverðimir fjórir grunsam-
legir.
Lynda, sem undanfarið hefur
alveg horfið í skuggann vegna
brúðkaups systur sinnar er nú
aftur komin í sviðsljósið og biöa
margir eftir því með eftirvænt-
ingu hver verði endanleg á-
kvörðun forsetadótturinnar í
sambandi við stöðuvalið.
Kmum hefðbundnu
Á leið á skrifstofuna f hnappa-
lausum fötum.
ing hennar og öll framtíð eftir
að vekja óskipta athygli þús-
unda um heim allan og ekki
sfzt hinna hollu þegna konungs
dæmisins brezka.
Anna prinsessa af Englandi
varð 16 ára um daginn og þessi
mynd er ein fyrsta opinbera
myndin, sem af henni er birt en
áreiðanlega ekki hin síðasta. Yf-
irleitt hafa birzt óformlegri
myndir af Önnu litlu hingað til
en nú er hún komin af bemsku
skeiðinu, þegar alvara lífsins
byrjar að taka við.
Á myndinni er Anna klædd
samkvæmt hinni hefðbundnu
venju brezkra prinsessa — með
perluhálsband — og í silkikjól
með perlum þræddum á krag-
ann.
Afmælisdeginum eyddi hún
með hundmðum íþróttamanna
frá brezka heimsveldinu í
kveðjuboði, sem var haldið fyr
ir þá.
karlmannafötum
„Geimurinn hefur áhrif á
sköpunargáfu mína, en fyrst og
fremst bý ég til klæðnað til
þess að sigra með honum hinn
daglega heim“. segir franski
tízkuhöfundurinn Ruben Torres
sem nýlega kom fram með karl
mannaklæðnað, sem mörgum
mun finnast æöi nýstárlegur.
Fötin, sem Torres vill klæða
karlmennina í árið 1967 em t.d.
að því leyti frábrugöin hinum
við af
venjulega karlmannafatnaði að
þau eru hnappalaus, auk þess
sleppir Torres hinum venjulega
skófatnaði, en kemur í staðinn
með sérstaka tegund af stígvél-
um.
Nú er aðeins eftir að sjá
hvemig viðtökur geimklæðnaö
ur Torres á eftir að fá og hvort
fatnaður hans verði klæðnaður
ársins 1967.
16 ára prinsessa
Þessi unga dama á myndinni brezka konungsdæmisins ef aö
á eftir að koma mikið við sögu líkum lætur. án efa á gift-
16 ára.
Kári skrifar:
„Borgari" skrifar dálkinum:
Gömlu umferðarljósin
„Frá þvi hefur verið skýrt,
að setja eigi upp ný umferðar
ljós á ýmsum gatnamótum í
borginni, og er það vel, en væri
nú ekki ráð að láta hendur
standa fram úr ermum um leið
og fjarlægja „stútana“ á umferð
arljósunum gömlu, en þeir
munu véra arfur frá hættutíma
(síöari heimsstyrjaldar), til þess
gerðir að þau sæjust ekki úr
lofti i myrkvun. Ég hef einhvern
tíma séð kvartaö yfir þessum
stútum — i blaði, ég held oftar
en einu sinni. Það eru ekki þeir
hættutímar nú, að þeirra sé
nein þörf, og þar sem umferðar
ljósin myndu sjást betur stúta
laus, myndi því fagnað jafnt
af akandi mönnum sem gang-
andi, ef þeir væru fjarlægöir.
Borgari."
Það hafa ekki allir
ísskáp
„Ég kom inn í verzlun f gær
til þess að kaupa mér sroior
og baö um „lítið stykki“, en
búðarmaðurinn blessaður kom
með stórt og sagöi: Þeir eru
hættir að pakka inn þannig —
finnst ekki taka því, síðan
smjörverðið Iækkaði. — Þetta
kemur sér fráleitt illa fyrir þá,
sem hafa ísskápa, en það hafa
ekki nærri allir ísskápa, og ein
hleypu fólki kemur betur að
kaupa lítið í einu. Og meðal ann
arra orða: Mundi ekki súrmjólk
ursalan aukast mikið, ef fólk
gæti fengið súrmjólk f hálfs
lítra hymum?
Kerling.“