Vísir - 22.08.1966, Qupperneq 3
VlSIR. Mánudagur 22. ágúst 1966.
Hagbarður og tveir bræður
hans koma í land Sigurðar
konungs til að hefna föður
þeirra Hávarðs, sem Siguröur
konungur drap í einvígi, sem
konungarnir tveir háðu, þegar
þeir voru ungir. Hagbarður og
bræður hans hevja einvígi við
syni Sigurðar, sem einnig eru
bræður Signýjar. Berjast þeir
allan daginn, en að kvöldi
standa þeir allir, enginn er fall-
inn. Eins og hetjum sæmir fyll-
ast þeir virðingar hver á öðrum,
en andstætt við flestar hetjur
Leikbrúður, sem tákna lík konungssona 1 fjorunni. Emn kvikmyndagerðarmannanna hefur fengið sér blund á einu „líkinu“.
ÁSTARDRAMA í
GRINDAVÍK
fallast þeir á, að margt er sælla
en að höggva hvem annan.
Þeir sættast, er þeim gerð
veizla í konungsgarði Sigurðar,
fætur þeirra laugaðir og þeim
borinn beini. í fagnaðinum hitt-
ast Signý, dóttir Sigurðar og
Hagbarður, elzti sonur Hávarðs,
og fella þegar huugi saman.
Þannig byrjar kvikmyndin
„Rauða skikkjan", sem verið
er að taka hér á landi. —
Kvikmyndaflokkurinn byrjaði
að vinna við töku myndarinnar
19. júlí f Kelduhverfi, þar sem
flokkurinn hefur verið þar til
í síðustu viku, að hann flutti
sig til Grindavíkur. Þar verður
lokið við að taka útisenur í
þessari viku og mun hópurinn
sfðan halda til Stokkhólms, þar
sem allar innisenur verða tekn-
ar.
Konungssynir hafa allir sætzt
og fellur vel á með þeim
Signýju og Hagbarði, en þar
sem myndin er aðeins hálfnuð
er greinilegt að við svo búið
má ekki sitja. Vondi maðurinn
kemur inn í myndina, — Ges.t-
ur Sigurðar konungs um þessar
mundir er Þjóðverji, Hildigfsl
að nafni. Hann fellir hug til
Signýjar, eins og flestir heil-
brigðir menn myndu gera, en
hann er yfir sig „skotinn“ og
svífst því einskis. Hann reynir
með öllum ráðum að spilla á
milli Signýjar og Hagbarðs.
Það reynist árangurslítið og
snýr hann sér því að konungs-
sonum, þegar H.agbarður fer á
svínaveiðar. Tekst honum að
magna upp hatur þeirra aftur
og þeir berjast 3 synir Sigurð-
ar við tvo bræður Hagbarðs
Þegar Hagbarður kemur af
veiðum, eru bræður hans báðir
fallnir. Fyllist hann heift,
gleymir sinni ástkæru Signýju
og drepur allar bræður hennar.
Hann flýr síðan frá mönnum
Sigurðar konungs, en snýr aftur
dulklæddur f kvenfatnaði og
þykist vera konungsdóttir, kom
in til að læra rétta, siðu við
hirð Sigurðar. Kemst hann f
hús Signýjar og dveljast þau
saman í rósrauðri rómantik og
bezta yfirlæti um nóttina.
Hildigísl, hinn armi þræll,
þekkir þó aftur hross „prin-
sessunnar" og segir Sigurði frá
því. Sigurður og menn hans
ráðast inn í skemmu Signýjar
og tekst að lokum að yfirbuga
Hagbarð, þegar einn húskarl-
anna læðist aftan að honum og
skellir um hann keðju.
Hagbarður er leiddur út og
hengdur. Fyllist Signý harmi
við það og fremur sjálfsmorð.
Eftir situr Sigurður barnlaus
og búinn að láta hengja pilt,
Gísli Alfreðsson (til vinstri) leikur bróður Signýjar, en Flosi Ólafs-
son húskarl Siguröar. Auk þess hefur Flosi séð um og valið hest-
ana, sem notaðir eru.
sem honutn lfkaði f raun mjög
vel við.
Þetta ástardrama, mun íslend
ingum gefast kostur á að sjá
um næstu áramót. Myndin
verður með mörgum fræknum
fslenzkum og erlendum leikur-
um. Má þar nefna Gunnar
Björnstrand, Evu Dahlbeck,
Birgittu Federspiel, Manfred
Reddemann, Oleg Vidov, Gittu
Hænning, Gisla Alfreðsson,
Flosa Ólafsson og Borgar Garð-
arsson, að ógleymdum fslenzku
hrossunum og statistum. —
Margar fallegar landlagssenur
eru í myndinni, sem með ein-
staklega vel völdum hestum
(Flosi Ólafsson sá um hestana)
munu gera rnyndina hina skraut
legustu.
Hagbarður (Oleg Vidov) með hest sinn. Þegar Hagbarður kemur
dulklæddur til að finna Signýj -, þekkir Hildigísl aftur hestinn. Bak við alla harmleiki stendur kona. Signý (Gitte Hænning) þjáist mikið vegna fegurðar sinnar.
eœ