Vísir - 22.08.1966, Síða 16

Vísir - 22.08.1966, Síða 16
VISIR Mánudagur 22. ágflst TO66. Hellusund 3, sem Verzlunarskól inn hefur fest kaup á. AKUREY SELD í dag gefur norski útgerðarmað- urinn Bjarne Benediktsen ákveðin svör um, hvort hann ætlar að kaupa Akurey, nýsköpunartogara Akumesinga, en útgerðarmaöurinn hljóp frá samningunum fyrir nokkr um vikum út til Noregs. Aö því er bæjarritari á Akra- nesi tjáði Visi í morgun, voru samn ingar komnir á lokastig, þegar Benediktsen stakk af til Noregs. Hafði hann þá látið mála togarann og kostað upp á hann talsverðu fé til viögerða. Síðan hefur útgerðarmaðurinn séð sig aftur um hönd og tjáð sig reiðubúinn til þess að ræða málin að nýju. Haf. af þessum sökum gengið skeyti og sfmtöl á milli Akraness og Tromsö. Er nú svo komið, aö útgerðarmaðurinn hefur strengt þess heit að segja af eða á í dag. Eru því nokkrar líkur til þess að Akurnesingum takist loks- ins að selja skipiö og er sölusaga þess þá orðin nokkuð viðburðarík, og er þá fyrst að minnast Fær- eyjaævintýrisins fyrir tveimur áwr* '' um, en þar lenti togarinn í hönd- um svikulla kaupenda og var end- urheimtur til íslands, vegna samn- ingssvika. Verzlunarskólinn kaupir Hellusund 3 Verzlunarskóli íslands hefur ors og á þar að fara fram ön keypt húsið að Hellusundi 3 og flytur þangað alla vélakennslu í haust. Losnar við þetta hús- næði í gamla skólahúsinu, sem mikil þörf var orðin á, en tví- sett er núna í fimmta bekk og er það annað árið í röð. Hellusund 3 var áður í eigu Ágústs H. Bjamasonar prófess- kennsla á ritvélar fyrst og fremst og reiknivélar eins og fyrr greinir. Með kaupum húss- ins og lóðarinnar var Verzlun- arskólinn fyrst og fremst að tryggja sér aðstöðu fyrir bygg- ingarframkvæmdir i framtíð- inni, en skólinn þarf mjög á auknu húsnæði að halda. 4. STÓR VEIÐIDA GURINN IRÖÐ 40 þúsund tunnur saltaðar á Raufarhöfn Enn helzt góð veiði á síldarmið- unum eystra. Sólarhringsaflinn var 7.550 tonn hjá 48 sktpum. Skiptist hann nokkum veginn jafnt milli veiðisvæðanna SA af GerpiogNNA af Raufarhöfn. Mikið hefur verið saltað á flestum söltunarstöðvum, sem starfræktar em noröanlands og austan. Saltað var á 9 söltunar stöðvum á Siglufirði yfir helgina. Þar er nú hlé á töminni i bfll, en von 'er á bátum inn þangað með nóttinni. Á Raufarhöfn er nú búiö að salta í rúmlega 40 þúsund tunnur, hæsta söltunarstöðin er Norðursfld með 9.774 tunnur. Söltunin þessa síð- ustu daga, eða síðan þann 18. að veiði hófst á norðursvæðinu nem- ur tæpum 13 þúsund tunnum. Ágætis veður er á miðunum og margir bátanna eru á útleið svo að búast má viö áframhaldandi veiði næstu daga. 3 flutningaskip eru á miðunum og landa mörg veiðiskip anna í þau, en nokkur leggja þó upp í siglingu í land til þess að koma aflanum í salt. 1 bandaríska vikuritinu NEWS WEEK, sem út kom í dag, segir, að innrás verði gerð í Norður Vietnam í haust. Gerir ritið ráð fyrir landgöngu á suðurhluta Norður-Vietnamstrandar tfl þess að rjúfa samgönguleiðir suður á bóginn, um afvopnaða svæðlð á landamærunum. — Heimildir nefnir blaðlö ekki, en segir þær frá borgaralegum athugendum, sem góð skilyrði hafl tfl að fylgjast með málum. Douðaslys Mánudaginn 15. ágúst beið Þór- hallur B. Snædal húsasmiður á Húsavfk bana í bifreiðarslysi skammt frá Eyvik á Tjörnesi. Fór bifreið hans þar fram af klettum og mun fallið hafa verið einir 40 metrar, en Þórballur var eirm í bílnum. Er að var komið var Þór hallur með lifsmarki, en hann and aðist f sjúkraftagvél á leið suður. Þórhallur var rúmiega fertogur að aldri. — Hvargi fullt>roskuð ber nema á Vestfj'órðum, segir Þórður á Sæbóli Fólk er nú að venju fariö að leita eftir berjum, sem í venjulegu ári eru orðin fullþroskuö um þetta leyti, Eftir þeim upplýsingum sem blaðið hefur aflað sér munu ber vera óvenju illa þroskuð víðast hvar. Talsvert er um krækiberja- grænjaxla, en lítið um svört og þroskuð ber. Bláber fyrirfinnast varla. Vfsir áttí í gær tal við Þórö Þor- steinsson frá Saebóli, sem nýlega fór f berjakönmmarieiðangur víða nm Jand. -— Sagöi hann að hann hefði ekki orðið var við þroskuð ber nema á Vestfjörðum. Hér sunnanlands er mikið af berj um sagði hann, en þau eru illa þroskuð og virðast mánuði á eftir því sem venjulegt er. Ég fór um Suðurland og meöal annars upp í Þjórsárdal. Þar er oft mikið af berjum. Við tíndum inni á afréttum til dæmis um 400 kg. fyr ir nokkrum árum, þegar hvergi fengust ber annars staðar, en nú var þar ekkert að hafa. Einnig fór ég um Vesturland, Snæfellsnes, Dali og á Vestfirði. Þar var ekkert um ber, nema á Vestfjörðum. Þar tíndi ég við ann an mann um 300 kg.. Það er eina svæðið, þar sem berin virðast vera nokkurn veginn þroskuð. Ég er að leggja upp í annan leiöangur þang að til þess að tína um helgina. Fyrir fjórum dögum var nætur frost til heiða þar sem ber væri kannski helzt að finna. Það er því hætta á, að þau nái ekki að þrosk ast og eyðileggist úr þessu. Nú um helgina hélaði viða niður í byggð á Norðurlandi, svo að bú ast má við, að útséð sé um alla berjatínslu þar. — Þegar kemur fram í september fer að verða allra veðra von og óvíst að berin náist nokkurs staðar að þroskast. — En vonandi verður hægt að skrapa eitthvað upp í Heiðmörk eða í Hafnafjarðarhrauninu ef hann helzt frostlaus hér sunnan- lands fram í næsta mánuð. Farnir utan vegna Loftleiðafundar Eins og kunnugt er af fréttum verður haldinn fundur fulltrúa ot- anríkisráðuneyta Norðuriandanoa fjögurra, íslands, Svíþjóðan, Kor- egs og Danmerkur í Kaupwnanna- höfn vegna óskar Loftleiða um lendingarleyfi fyrir htaar stóru RR-400 á flugvöllum í SAS-fónd- unum. Mun fundurmn hefjast bmn 25. ágúst n.k. Fulltrúar íslands á fundinum verða: Gunnar Thorodd- sen, sendiherra, formaðor nefndar- innar, Niels P. Sigurðsson, deitaar- stjóri í utanrikisráðuneytinu og Agnar Kofoed Hansen, Qugmála- stjóri. Tveir hinir síðamefndu, ecu farnir utan 1 sambandi vfð þenoan fund, en þó mun utanferð Niefsar P. Sigurðsson einnig standa í sambandi við væntanlegan fund utamfkSsráðherra Norðurlanda, sem hefet nman skamms í Ála- borg. Unnið nf fullum kmfti við Strákagöngin Unnið er nú af fullum krafti við framkvæmdir við Strákagöng- in við Siglufjörð. Hefur verkið gengið greiðlega undanfarið og munu nú vera um 50 metrar eftir, unz komið er í gegn. Nú er byrjað að sprengja af fullum krafti Siglu- fjarðarmegin, sunnan megin í fjall- inu, og einnig er verið að sprengja noröanmegin, rétt fyrir ofan Sáms staöamúlann. Þá er og verið að malbera veginn í Almenningnum , svokallaða, svo að sjá má að unnið | er af fullum krafti að því að veg- , urinn verði eins og hann getur | beztur verið, er göngin opnast. I Göngin munu verða Siglfirðingum mikil samgöngubót, sérstaklega á veturna, en þá er vegurinn þangað oftast lokaður vegna snjóa. Alllíflegt hefur verið á Siglufiröi yfir helgina, mikið saltað og er búizt við, aö meiri síld komi í nótt. Fyrstu íslenzku kartöfiurnar á markaðinn í dag — Næturfrost fella kart'óflugr'ósin Fyrsfai islenzku kartöflumar í ár koma á markaðlnn f dag. Er uppskeran frá Eyrarbakka og lít ur mjög vel út. Kostar kg. af kartöfiumim kr. 17.30 út úr búð. Er þama um að ræöa snemm vaxna tegund, sem að sögn for stjóra Grænmetisverzlunar land búnaðarins Jóhanns Jónassonar er þó ekki eins góð og þær teg undir kartaflna, sem þurfa lengri tíma til þess að verða fullþroska. — Við bíðum í offænj næstu vikur eftir því hvernig uppsker unni reiðir af sagði Jóhann í við tali við blaðið í morgun. Næsta hálfa mánuöinn getur gerzt geysilega mikið. Komi nætur- frost næstu nætur og taki þar með fyrir vöxt karflnanna verð ur uppskeran ekki mannamatur vegna smæðar. Jóhann sagði að aöfaranótt laugardags hefði vottað fyrir frosti og sézt á grösum vestan fjalls, þó tiltölulega lítið, en sér væri ekki kunnugt um ástandið austanfjalls. Norðanlands hefði komið næt urfrost aðfaranótt sunnudags- ins og sást verulega á grösum sérstaklega að vestanverðu í Eyjafirðinum hjá Dalvík og í nágrenni.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.