Vísir - 24.09.1966, Page 1
U íj^8Wu'
,imsr»
VISIR
56- árg. — Laugardagur 24. september 1966. - 218. tbl.
Letöangur Flugbjörgunarsveitarinnar til Grænlands gekk mjög vel
FUNDU 10 EÐA 12 LÍK
Bandaríski ísbrjóturinn Atka dag til að sækja lík úr banda- þar sem hún hafði sundrazt
kom í gærkvöldi til 'Reykja- rískri könnunarflugvél, sem á jöklinum upp af Wiede-
víkur frá Grænlandi með ís- fór frá íslandi 12. janúar mansfirði, sem er skammt
lenzku flugbjörgunarmennina 1962 í ískönnunarferð, en frá Scoresbysundi á austur-
8 og 7 Bandaríkjamenn, sem kom aldrei til baka. í ágúst- strönd Grænlands. Ferðin
lögðu af stað héðan snemma mánuði þessa árs fannst svo gekk mjög vel. Leiðangurs-
morguns síðastliðinn þriðju- flak flugvélarinnar úr lofti, Framh. á bls. 6.
Pk 4
'u'lSf ' w~
'
Uiuiió við uppgröftinn. Fremst á myndinni til hægri sést eitt hjólið af flugvélinni, sem fórst. Þyrlan gegndi mikilvægu hlu tverki við að fllytja menn og lík upp og ofan af jöklinum.
Tjaldbúðir Iciðangursmanna sjást bera í Wiedemansfjöröinn. (Leiðangursstjóri, Sigurður S- Waage, tók myndina).
FARA TOGARARÁ SÍLDVEIDAR?
1 vikunni er lciö l’ór togarinn
Jón Þorláksson á síldveiðar með
nýjan þýzkan útbúnað, flotvörpu og
mæli sem sýnir hversu djúpt nót
in fer. Gerði togarinn tilraunir með
þessi veiðarfæri við Austfirði og afl
aði um 300 lestir, sem hann kom
með til Reykjavíkur í fyrradag. —
Útgerðarmenn togaranna gera sér
vonir um að þessi aðferð geri tog
urunum kleift að stunda síldveiðar
einkum þegar síldin er komin í
svokallað vetrarástand, og er uppi
við yfirborðið alla nóttina.
Þessi fyrsta tilraun með slík tæki
tókst raunar ekki sérlega vel enda
rfldr millibilsástand á háttemi
síldarinnar. Hún stöðvast mjög
skamman tíma við yfirborðið —
þegar skyggir undir nóttina og í
birtingu á morgnana.
Þessi útbúnaður kostar innan við
eina milljón, mælirinn kostar 400
þúsund niðursettur, en verð nót-
arinnar fer eftir ýmsu. — Fleiri ís
lenzk skip munu taka þessi tæki
um borð. Togarinn Neptúnus er
úti í Þýzkalandi um þessar mund-
ir og er þar verið að gera hann
færan til síldveiða, en ekki er á-
kveðið hvenær hann heldur á síld.
Jón Þorláksson hefur t’vær vörp
ur um borð síldarvörpu, eða flot-
vörpu öðrum megin og þorskvörpu
hinum megin og getur því veitt
síld eða þorsk eftir því sem hent-
ara þykir.
Þessi útbúnaður hefur verið reynd
ur af þýzkum togurum, m.a. einum
sem var hér viö land i vikunni,
en sneri aftur þar eö ekki þótti
hentugt aö hefja veiöamar að svo
komnu.
Flotvarpa liefur verið reynd hér
áður fyrir tilstilli þeirra Jakobs
Jakobssonar og Bjama Ingimars-
sonar, en allmörg ár eru síðan.
Þá var mælirinn sem segir til um
á hvaða dýpi varpan er ekki kom-
inn og mistókust þessar tilraunir á
sínum tima þess vegna að því að
talið er.
Straiimur hús-
mæðra uð
kuupa slútur
í gær
Slátursalan hófst í gær hjá
Verzlanasambandinu Sldpholti
37. Myndaðist til að byrja með
biðröð af húsmæðrum, sem
komnar voru til sláturkaupa
með ilát undir slátrin.
Hófst salan kl. 13 en síödegis
Frh. á bls. 6.
Síldartökuskipin aðgerðar-
laus I nær tvær vikur
Sildartökuskipin sem hafa ver-
ið i síldarflutningum af Austfjarða
miðum til fjarlægra hafna í sum-
ar lóna nú aðgerðarlaus um miðin
eða liggja inni á Austfjarðahöfn-
um. Skipin hafa ekki fengiö neinaj
sild til þess að flytja hart nær hálf
an mánuð vegna þess, hve veiði-
svæðið er nærri landi. Bátamir
kjósa fremur að sigla 4-6 tíma í
land með aflann, og koma honum
þar í salt fyrir miklu meira verð
en þeir fá fyrir hann, ef Iandað er
í flutningaskin, en farmar þeirra
fara allir í bræðslu. 3 skipanna
hafa legið inni á Seyðisfirði í rúma
viku og hin verið á lóni milli hafna
og úti á miöum.
Alls hafa 5 flutningaskip verið
á miöunum í sumar og geta þau
flutt samanlagt um 15 þúsund lest-
ir. Síldar og fiskimjölsverksmiðj-
an í Reykjavík á „Sxldina" og
hafði hún flutt 32 þúsund lestir
til Reykjavíkur kringum mánaða-
mót, en lítið síöan. Hafþór, hið nýja
flatningaskip síldarverksmiðja rík-
isins hefur aðallega veriö 1 flutn-
ingum til Siglufjarðar. Dagstjam-
an, eign Einars Guðfinnssonar Bol-
ungarvík, og fleiri hefur flutt síld
til Vestfjarða, aðallega Bolungar-
víkur. Verksmiöjurnar á Hjalteyri
og Krossanesi tóku hvor sitt skip-
ið á leigu, Cirion og A-skida.
SJONVARPSSALA STÓREYKST
,Sala sennilega tvö- til þrefaldast'
Sala sjónvarpstækja hefur
tekið gífurlegan fjörkipp núna
síðustu vikumar og hefur eftir-
spumin aldrei verið meiri. Borst
verzlunum þeim og verk-
stæðum, sem annast sjónvarps-
sölu fjöljdi fyrirspurna á degi
hverjum bæði um kaup og still-
ingu tækja svo og um skipti á
loftnetum. Eftir könnun sem
Visir gerði í gær, þegar hringt
var í sjö verzlanir sem selja
sjónvörp þá virðist sem sölu-
aukningin hafj byrjað síðast í
ágúst og hafi farið vaxandi það
sem af er þessum mánuði. Selja
sumar verzlanir tvö tæki á dag
og jafnvel fleiri en nokkuö er
það breytilegt frá degi til dags.
Er nýlokið könnun hjá Ríkis-
útvarpinu á sjónvarpstækjaeign
í Reykjavík og nágrenni. Töld-
ust vera alla í allt 12—13
þúsund sjónvarpstæki á því
svæði.
Fer áhugi fólks á því að
eignast sjónvarp því meir vax-
andi sem styttist í það að ís-
lenzka sjónvarpið hefji útsend-
ingar sínar. Hefur eftirspum
verið meiri í allt sumar, en
nokkru sinni áður, en þó mest
þennan mánuð.
Talaði blaðið m. a. við Eggert
Benónýson, Viðtækjavinnustof-
unni, Laugavegi 178 og skýrði
hann frá því aö salan hefði
sennilega þrefaldazt upp á síö-
kastið. Þennan mánuð hefðu
selzt að meðaltali 12 tæki á
viku. Hefði líka boriö á því að
margir hefðu komið með sjón-
varpstæki til þess að láta stilla
þau.
— Fólk gerir þetta á síðustu
stundu, sagði Eggert, bæði að
kaupa og láta stilla tækin. Það
má gera ráð fyrir voðalegri
skorpu síðustu dagana áður en
sjónvarpið byrjar.