Vísir - 24.09.1966, Side 8

Vísir - 24.09.1966, Side 8
8 VISIR Utgefandl: BlaöaOtgátan VISER Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson AðstoðarrJtstjóri: Axe) Thorsteinson Auglýsingar- ÞinghoJtsstræti 1 Afgreiðsla: Túngötu 7 Ritstjóm: Laugavegi 178. Siml 11660 f5 línur) Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði innanlands. I lausasölu kr. 7,00 eintakið Prentsmiðja Visis — Edda h.f. Hvoð ber á milli? það er staðreynd, sem ekki verður móti mælt með / nokkrum haldbærum rökum, að í árslok 1959 var / gjaldeyrisstaða íslands orðin svo slæm, að við ) greiðsluþrotnun lá, þ. e. a. s. landið gat varla staðið ) við umsamdar skuldbindingar sínar erlendis. Mátti \ ekkert út af bera til þess að í algert óefni kæmist. ( Allir yfirdráttarmöguleikar bankanna höfðu verið / nýttir til hins ýtrasta og mjög tilfinnanlegar hömlur ) orðnar á öllum gjaldeyrisyfirfærslum, jafnvel til brýn- j ustu nauðsynja. ( Engum gat því blandazt hugur um að taka varð / upp nýja stefnu í efnahagsmálum, og það var gert ) þegar viðreisnarstjórnin kom til valda. Sú stefna var ) að dómi hinna hæfnustu sérfræðinga í efnahagsmál- ) um eina leiðin, sem þá var fær til þess að komast út ( úr ógöngunum. Þeirri stefnu hefur síðan verið fylgt ( með þeim árangri, að lífskjör þjóðarinnar hafa aldrei / verið betri en nú og gjaldeyrisaðstaðan er orðin eins ) góð og liúrf'hefur bezt verið áður. ) Þessi stefna hefur þó verið umdeild, eins og stjórn- ) arstefnan er ævinlega í lýðræðislöndum. Stjórnar- ( andstaðan hefur margt við hana að athuga og telur ( sig kunna betri ráð á ýmsum sviðum, eins og gengur. / Það voru þó núverandi andstöðuflokkar ríkisstjórn- ) arinnar, sem ráðið höfðu stjórnarstefnunni, sem leiddi ) til þess ástands, sem ríkti þegar viðreisnarstjórnin tók ) við þjóðarbúinu. ( í þessu sambandi er fróðlegt að athuga skýrslu Efna- ( hagsstofnunarinnar, sem birt hefur verið nú nýlega. | / Tíminn sagði fyrir nokkrum dögum, að hún væri ) mjög í samræmi við þær skoðanir, sem Framsóknar- ) flokkurinn hefði haldið fram og barizt fyrir í stjórn- \ arandstöðunni. En hvernig má það vera? Tökum t. d. ) eftirfarandi kafla úr skýrslunni, sem er ein af megin ) niðurstöðum hennar: ( „Þau meginatriði, sem stefnt er að í efnahagsmál- ( um hér á landi, eru þau sömu og í nágrannalöndun- // um: næg atvinna og ör hagvöxtur samfara jafnvægi /) í greiðsluviðskiptum við önnur lönd og í verðlags- )) þróun innanlands. Þær leiðir, sem farnar hafa verið \) hér á landi til þess að ná þessum markmiðum, hafa y. einnig á undanförnum árum verið þær sömu og tíðk- {( ast í nágrannalöndunum: frjálsræði í framkvæmdum !( og utanríkisviðskiptum samfara ákveðinni stjórn J fjármála og peningamála og vaxandi notkun áætlun- jj argerðar um opinberar framkvæmdir og um stefn- \\ una í málum einstakra atvinnugreina“. \( Og ennfremur: „Árangur þessarar stefnu í efna- ( hagsmálum hefur verið mikill og sízt minni en náðst / hefur í öðrum hlutum heims, þar sem aðrar leiðir ) hafa verið farnar til þess að ná svipuðum markmið- ) um . ) Sé þetta það sem Framsóknarflokkurinn vill — en ( svo er að skilja á Tímanum núna — ætti hann ekki ( að greina mikið á við núverandi stjóm um stefiauna. II V í S I R . Laugardagur 24. september 1966. -k Sambandskanslarí í lausu lofti — Sud-deutsche Zeitung. VESTUR-ÞÝZKA STJÓRNIN ENDURSKIPUÐ FYRIR ÁRAMÓT - VON HASSEL FÉKK GÁLGAFREST í dag leggur Ludwig Erhard forsætisráðherra Vestur- Þýzkalands af stað í feröalagið til Washington til viðræðna við Johnson Bandaríkjaforseta. Þær viðræöur munu snúast um Norð ur-Atlantshafsbandalagið, sam- starfið innan þess, Iandvamimar yfirráð kjamorkuvopna, ákvörð unarvaldið um hvort þeim skuli beitt. Vegna mikilvægis þessara við ræðna var það vitaö fyrirfram að Erhard mundi ekki taka til greina kröfu jafnaðarmanna um að von Hassel landvamaráð- herra færi frá völdum, enda fór svo sem greint hefur veriö frá í fréttum, að von Hassel hélt velli með 246 atkvæöum gegn 199, en í ýmsum blöðum er talið, að hann hafi aðeins fengið gálgafrest. Það hefur nætt allnapurlega um Ludwig Erhard að undan- förnu. í kjölfar allrar gremjunn ar og gagnrýninnar á von Hassel út af Starfighter-slysunum — og sú gremja virðist enn vax- andi — komu hershöfð- ingjaskiptin — þrír viku eöa urðu að víkja og 12 voru settir á eftirlaun, þar næst deila um efnahagsmál — og svo — nú Franz-Josef Strauss fyrir skömmu, rétt fyrir hina margumtöluðu Washington-heim sókn, virtist stjómarkreppa vera yfirvofandi, er lausnar baðst nánasti vinur Erhards dr. West- rik ríkisritari og „hinn einasti er hann treysti algerlega." Auðsjáanlega hefði það valdið Erhard óþægindum í heimsókn inni, ef ekki hefði tekizt að af- greiða þessi mál fyrir hana, þótt ekki væri nema til bráöabirgða eða leggja þau til hliðar og það hefur tekizt. — Fyrir umræð- una um landvamimar er jafn- aðarmen báru fram vantraust á von Hassel höfðu stjórnar- flokkamir náð samkomulagi um að fella hana. Og Erhard lýsti yfir í flokks- stjóminni og við leiðtoga sam- herjanna f sambandsstjóminni að hann myndi ekki gera nein- ar breytingar á stjöminni fyrir Washington-heimsóknina. BREYTING I NÓVEMBER En breyting er áreiðanlega framundan á skipan Bonn-stjórn arinnar — sennilega í nóvemb er, aö minnsta kosti fyrir ára- mót. — í Berlingske Aftenavis, sem hér er stuðzt við er talið að vænta megi að Franz-Josef Strauss fái þá sæti f stjóminni Andspyrna Frjálsra lýðræðis- sinna gegn þvf, að hann fái sæti í stjórninni, er sögð dvínandi. „Ekki er vitað,“ segir blaðið „hvaða embætti hann fær í stjóminni, en það er augljóst að hann verður áhrifamesti mað ur stjómarinnar" („hinn sterki maöur stjórnarinnar" eins og blaðið orðar það.)

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.