Vísir - 20.10.1966, Side 16
i
VISIR
Fimmtadagw 20. aktóber 1966
Ekki drukkinn
— heldur konu
Maður nokkur hringdi til lög-
reglurmar í gær og sagðist hafa
séð bifreið velta uppi við Jaðar
við Heiðmörk. Hefði bifreiðin ver-
.ið mjög óstöðug á veginum áður
en hún valt, sem manninum fannst
benda til að ökumaður væri í
meira lagi drukkinn. — Þegar lög-
reglan kom á staðinn, upplýstist,
að ökumaðurinn var kona.
sauBfjárhaldi í Reykjavík
Ibúar Seláss og Arbæjarbletta lýsa ánægju sinni yfir banninu
Fjáreigendur í Reykja
vík hafa nú samþykkt
að rýma land félagsins
í Breiðholti fyrir þann 1.
júlí 1967. Eins og skýrt
var frá í frétt í Vísi fyr-
ir nokkru samþykkti
borgarráð á fundi þann
23. sept. að banna sauð-
fjárhald í Reykjavík
enda höfðu komið fram
eindregnar áskoranir
borgarbúa, aðallega í
Voga- Selás- og Árbæj
arhverfum um að það
yrði gert
Hafði ágangur sauðfjár verið
mikill í görðum þessara aðila.
Skrifuöu um 300 manns undir
áskorunarskjalið, sem lagt var
fram í borgarráði um bann við
sauðfjárhaldi. Á síðasta fundi
borgarráðs var lagt fram bréf
Framfarafélags Seláss og Ár-
bæjarbletta þar sem lýst var
ánægju með þá ákvörðun borg-
arráðs að banna að mestu sauð-
fjárhald í Reykjavík.
Framh. á bls. 6.
Veiða aftur eftir 6 daga brælu
Stúlka kærir varnarliðs-
menn fyrir nauðgun
Fjórir varnarliðsmenn i gæzluvarðhaldi
16 ára unglingsstúlka úr Reykja-
vík hefur kært 4 varnarliösmenn
af Keflavíkurflugvelli fyrir nauðg-
un, sem á að hafa átt sér stað
aðfaranótt 19. sept. síðastliðinn. —
Kærði stúlkan atburð þennan til
rannsóknarlögreglunnar í Reykja-
vík 24. sept., en málið var sent til
lögreglustjóraembættisins á Kefla-
vikurflugvelli nokkrum dögum
seinna. Hafðist upp á várnarliðs-
mönnunum fj'órum 7. okt. og voru
þeir úrskurðaðir í gæzluvarðhald
meðan rannsókn fer fram i málinu.
Er rannsókn enn ekki lokiö. Stúlk
an var send í læknisskoðun, þegar
er hún hafði kært vamarliðsmenn-
ina, en vegna þess hvaö langt var
Framh. á bls. 6.
! Byggð hæð ofan
! d Kjörgarð
Eins og vegfarendur úm
Laugaveg hafa eflaust veitt eft-
irtekt var í sumar hafizt handa
um byggingarframkvæmdir við
4. hæð verzlunarhússins Kjör-
garðs aö Laugavegi 59. Nú þessa
dagana er unnið af fullum krafti
að byggingarframkvæmdum, og
að því er Kristján Friðriksson,
forstjóri Últíma tjáöi Vísi í morg
un, veröa framkvæmdir þess-
ar langt komnar um næstu ára-
mót. Ekki er enn vitað, hvaöa
starfsemi verður á þessari hæð,
en ekki verður byggt hærra,
að því er Kristján sagði, því
að byggingarsamþykkt og skipu
lag levfa það ekki.
Dagur SÞ., 24. október:
Helgaður vanda-
málum flóttamanna
Dagsins minnzt á Islandi með fjáröflun og
kynningum á vandamálum j flóttamanna
Seinni partinn í gær tóku bátarn-
ir að tínast á miðin, eftir 5—6 daga
landlegu. En engin síld hefur veiðzt
síðan á fimmtudag vegna brælu á
miðunum. Bátarnir leituðu í nótt
á sömu slóðir og áður og fengu 27
skip afla í Reyðarfjaröardýpi, sam-
tals 2960 lestir. Veiðiskilyrði eru
þó ,ekki verulega góð því ennþá
eru 3—4 vindstig og nokkur sjór.
Skipin voru að veiðum á þessum
slóðum í sfðustu viku. Þá fékkst
dágóður afli eða frá 4 og upp í 7"^
þúsund lestir á sólarhring þar til
hvessa tók aðfaranótt föstudags-
ins.
Nú er heildarsíldaraflinn orðinn
131.701 lest meiri en í fyrra
(miðað við laugardagskvöld). Aftur
á móti er söltun um 10 þúsund
tunnum minni en þá.
Segir svo í skýrslu Fiskifélags
l’slands um síldveiðarnar síðustu
viku: Frarríh. á bls. 6.
Eins og kunnugt er af fréttum
blaða og útvarps er mánudagurinn
24. október n. k. dagur Sameinuðu
‘ jóðanna, helgaður vandamálum
flóttamanna um heim alian. Hér-
lendis' mun Féiag Sameinuðu þjóð-
. anna aö venju standa fyrir fræðslu
erinþum um störf S.Þ. Meðal
eirra, sem erindi flytja í skólum
borgarinnar verða Ármann
Snævarr, háskólarektor, form. fé-
Iags S. Þ., Ivar Guðmundsson, for-
stöðumaður fréttadeildar S.Þ. í
Kaupmannahöfn, Helgi Þorláksson,
skólastjóri, Hannes Þ. Sigurösson,
fulltrúi, og Ólafur Stephensen
framkvæmdastjóri Rauða Kross Is-
lands. Framh. á bls. 6.
Tvær bækur eftir
Axel Thorsteinson
Frá bókaútgáfunni Rökkri eru
komnar á markaðinn tvær bæk-
ur eftir Axel Thorsteinson rit-
stjóra, „Horft inn í hreint
hjarta“ og „Rökkur I“.
„Horft inn í hrcint hjarta"
hefur að geyma samnefnda sögu
og ..okkrar smásögur. Allar ger-
ast þessar sögur í lok fyrri
heimsstyrjaldarinnar, en Axel
var þá í her Kanadamanna í
Frakklandi, Belgíu og Þýzka-
’andi. Er hér um að r;eða heild-
arútgáfu á endurminningum höf
undar frá ofannefndu tímabili
og hefur sumt birzt áður, en
annað ekki. í sögum þessum er
lýst lifi hermannanna og fólks-
ins á ófriðarsvæðunum. Bókin
er 20 arkir, prentuö í Leiftri, og
káputeikningu gerði Kjartan
Guðjónsson.
Rökkur I, ljóð, sögur og grein
ar, kemur nú út í annarri út-
gáfu, aukin og breytt. Bókin
kom út í fyrstu útgáfu í Winni-
peg 1922 og var meðal efnis er-
indið „Silfurhærur“ um Stein-
grím Thorstcinsson skáld. Út-
gefandi kom heim til Islands
með leifar upplagsins 1923 og
er hað f fárra höndum hér á
sAxel Thorsteinsson
I
landi. Hefur verið óskað eftir
endurprentun þessarar bókar, og
er hún nú komin út aftur. Bókin
er sex arkir í Eimreiðarbroti,
prentuð í Odda.
J