Vísir - 31.10.1966, Blaðsíða 6
o
VÍSIR . Mánudagur 31. október 1966.
—Listir-Bækur-Menningarmál
Halldór Haraldsson skrifar tónlistargagnrýni
Borodin-strokkvartettinn
1 einni bók sinni um yfirvof-
andi hættu á kjarnorkustyrjöld
og tilraunir sínar í friðarátt,
hugsar hinn aldni en síungi
Bertrand Russel sér, að hann
standi andspænis almættinu og
telji upp alla þá mannanna
kosti, sem gefi þeim verðskuld-
aðan rétt til að lifa áfram á
jörðinni, en ekki eyðast í gor-
kúlumynduöum reykskýjum
atóm-bombunnar. Ég tel að
Russell gamli mætti vel bæta í
upptalningu sína tónlist, sem
flutt er á slíkan hátt, sem Boro-
din-kvartettinn gerði — slik
spilamennska hlýtur að teljast
til merkari þátta í menningu
okkar. Sitjandi í slíkum hug-
leiðingum á tónleikunum, varð
manni allt í einu kippt niður
í hversdagsleikann af jafn
einföldum hlut og lás á hurö!
Hver þremillinn gengur eigin-
lega á að hurðarbaki á tónleik-
um sem þessum? Hvernig væri
nú að athuga skrambans lásinn
á dyrunum til hægri, þegar út
er fariö, og láta einfaldlega
gera við hann, ef dyrnar vilja
alltaf hrökkva upp á miðjum
tónleikum? Þetta er ekki f fvrsta
sinn, en að vfsu ekki sérlega
áberandi núna, en þaö hefði
orðið herleg skömm, ef þessum
listamönnum yrði boðið upp á
fjúkandi fortjöld eins og
Czerny-Stefönsku sællar minn-
ingar! Og — hvernig f ósköpun-
um stendur á símahringingu
einhvers staðar bak við bíó-
tjöldin — ég held aö það sé
ekki sérlega þægileg tilfinning
að fá svona upphringingu f
miðjum Beethoven-kvartett!
Slfk slys sem þessi eiga ekki aö
geta átt sér stað á tónleikum.
Þrátt fyrir þetta, voru þetta
einstæðir tónleikar, samspil af
þessu tagi, hárffn nákvæmni í
smáu sem stóru án þess að
verða eðlilegri tjáningu að fjör-
tjóni, er ekki á hverju strái.
Það er ekki oft, sem maður
kemur út af tónleikum stoltur
yfir að tilheyra „dýrategund",
sem getur gert slfka hluti.
FÍB OG OLÍUFÉLÖGIN
RÆÐA „OKTANE'-MÁLIÐ
Eitthvað virðist vera á döf-
inni í „oktane‘‘-málimi, sem Vís
ir hefur skýrt frá að undan-
fömu, en Félag íslenzkra bif-
reiðaeigenda hefur komið þeirri
ósk félagsmanna á framfæri að
betra og sterkara benzfni verði
komið á markað hér á landi.
Á laugardaginn frétti Vísir
fyrir tilviljun af fundi, sem for-
ráðamenn FÍB áttu meö forstjór
um olíufélaganna og var um-
ræðuefnið þetta mikla hagsmuna
mál íslenzkra bifreiðaeigenda.
Önundur Ásgeirsson, forstjóri
Olíuverzlunar Islands sagöi í
morgun m.a.: „Þetta var mjög
ánægjulegur fundur meö for-
ráðamönnum FÍB, sem vill betra
benzín fyrir bifreiðir félags-
manna sinna. Sjálfir erum við
óánægðir meö viöskiptin viö
Rú?^a ;i pg, hpfitm, vnargoft lagt
til, aö þeim verði hætt m.a.
vegna þess aö ekki er hægt aö
verða við óskum um sterkara
benzfn en ' §7 ólttáne. í 13 ár
hafa olfufélögin verið neydd til
að kaupa rússneskt benzfn. Við
erum sannarlega reiöubúnir aö
veita betri þjónustu, svo fram-
arlega sem hendur okkar verða
lausari um innkaupin."
Magnús Valdimarsson, fram-
Búöardiskur óskast y
Búðardiskur óskast til kaups. Uppl. í síma
16457.
kvæmdastjóri FÍB kvað þessar
viðræður við forstjóra olíufélag-
anna hafa veriö gagnlegar fyrir
báða aðila og kvaðst vonast til
að yfirvöld sýndu þessu máli
skilning sinn.
Betri úfkoiiits -f
Frn. aí bfs 2:^
reikna með að fleiri vilja koma
og horfa á leiki í Laugardal en
Hálogalandi. Handknattleiksráð-
ið fékk í sinn hlut f gær á 6.
þúsund krónur, sem veröur að
teljast gott, húsið 10.000 krónur
og slysasjóður og fleiri afgang-
inn.
• Það verður fróölegt aö
fylgjast með gangi þessara mála,
enda er það e.t.v. fullsnemmt
að taka afstöðu til málsins, fyrr
en lokatölur Reykjavíkurmóts-
ins liggja fyrir. Þá veröur lík-
lega bezt aö reikna út þá leigu,
sem sæmilega getur talizt.
— jhp —
Skák —
en, Ingi vann Ujtumen, Guðmund-
ur Pálmason vann Tsagaan eftir
biöskák og Guðmundur Sigurjóns-
son geröi iafntefli viö Tchalkas-
uren.
Leikar að ööru leyti fóru þannig
í, fjórðu umferð: Indónesía 3 —
Mexico 0, 1 biðskák — Austurríki
3 — Tyrkland 1 Júgóslavía sat hjá.
I 5. umferð tefldu íslendingar
svo við Mexicó og vann Ingi sína
skák á móti Acevedo en skákir
Friðriks, Guömundar Pálmasonar
og Freysteins fóru í bið. I þessari
umferð hlaut Júgóslavía 3 y2 vinn-
ing á móti Indónesíu, Mongólía
vann 1 skák á móti Austurríki en
3 fóru f bið. — Tyrkland sat hjá.
Staðan eftir þessar 5 umferðir
er því þessi:
Júgóslavía 14 v.
fsland 9y2 v, 3 biðskákir.
Indónesía 9 v. 1 biöskák.
Tyrkland 6y2 v.
Mongólía 6 v. 3 biöskákir.
Austurrfki 6 v. 3 biðskákir.
Mexico 2 v. 3 biðskákir.
Leyniviðræður —
rramn ai ois .
dönskum lögum, þar sem gert
sé ráö fyrir, að nefndin eigi aö
fylgjast með gangi allra helztu
utanríkismála. Engum í Dan-
mörku hafi veriö kunnugt um .
þessa grein fyrr en nú og gefur j
blaðiö í skyn aö tímaritiö hafi '
horfið úr umferð mjög skyndi- I
lega.
I grein Gylfa Þ. Gislasonar i
kom fram, að Jens Otto Krag, '
þáverandi utanríkisráðherra,
hafi árið 1959 heitið því aö
stjórnin skyldi beita sér fyrir
lausn handritamálsins ef hún
heföi til þess aöstööu eftir þing-
kosningar 1960.
Þá hafi Bjarne Poulsen am-
bassador Dana á íslandi farið
með áður ókunna yfirlýsingU til
Reykjavíkur í febrúar .1961 um
aö danska ríkisstjórnin væri að
hugleiöa lausn handritamálsins
og óskaöi eftir nánari upplýsing
um um stjórnarmið íslendinga í
málinu.
Loks getur blaðiö þess aö ekk-
er hafi verið skýrt frá viöræð-
um Gylfa Þ. Gíslasonar og
Jörgens Jörgensens þar sem
þeir reyndu að komast að sam-
komulagi um hvaða handrit ætti
að afhenda íslendingum. ís-
Ienzki ráöherrann hafi ekki get-
að fallizt á tilboð Jörgensens og
síöan hafi samningum veriö
haldið áfram á bak við tjöldin.
Þetta kæmi allt fram í grein
Gylfa Þ. Gíslasonar.
Segir blaðið að þessar upp- j
lýsingar hafi aldrei veriö lagðar
fyrir utanríkismálanefnd þings-
ins, sem þó hafi verið látin fjalia
um smærri atriði f íslenzka
handritamálinu. Þá hafi utanrík-
isráöuneytinu ekki verið kunn-
ugt um grein Gylfa Þ. Gíslason-
ar. og þykir blaöinu undarlegt
aö danska sendiráöiö skyldi ekki
á sínum tíma láta ráðuneytið
vita um tilvist hennar.
Þá segir blaðiö að K. B.
Andersen menntamálaráöherra
Dana hafi engar' upplýsingar
veitt um hinar leynilegu við-
ræöur þegar hann var spurður
um gang viðræöna f hanr.málinu
1964—65. Loks gefur blaöið i
skyn að utanríkisráðuneytiö
hafi hliðraö sér hjá að gefa upp-
lýsingar um viðræður þessar
þegar utanríkismálanefndin baö
um minnisgreinar utanríkis-
ráðuneytisins varöandi viöræð-
ur við íslenzka aðila um hand-
ritamálið marz/apríl 1961. Bæt-
ir blaðiö því viö að orðsending
sú sem Bjame Poulsen fór með
hafi verið send f febrúar og þess
vegna hafi ráðuneytið getað
hliörað sér hjá aö geta um hana
þar sem þaö var beöið um upp-
lýsingar um viðræöumar næstu
tvo mánuði þar á eftir.
Rétt er að geta þess að um-
rætt hefti af Áfanga var aldrei
tekið úr umferö.
Verðfall —
Framhala at bls. 1.
tíma, en mjöliö heldur áfram
aö lækka.
Vegna þessarar fréttar sneri
Vísir sér til Eggerts G. Þorsteins
sonar, sjávarútvegsmálaráö-
herra og spurðist fyrir um hvort
slíkt hið sama yrði ef til vill gert
hér á landi.
— Þaö er vissulega mjög að
Norðmönnum sorfiö, þegar þeir
gripa til þessara ráöstafana,
sagöi sjávarútvegsmálaráð-
herra. Verölagsráöið hér hefur
íramlengt síldarveröiö, sem
átti aðeins að gilda f október,
fram til 5. nóvember til að fá
umhugsunarfrest hvað gera
skuli. Munu hlutaöeigandi aðil-
ar að sjálfsöigðu nota timann til
að kanna gmndvöll frekari síld
arverðs. Ef nauösynlegt reynist
að lækka síldarverðið verulega,
er trúlegt aö síldarseljendur, út
vegsmenn og síldarsjómenn
muni ekki sætta sig við það og
leggja niður veiðar.
Slðngusýning
i Templarahöllinni viö Eiríks-
götu. Eiturslöngur, risaslöngur.
Opiö daglega frá kl. 2—7 og
8—10 —. vika.
''Á°' — jp ^ r
Sjö hljómsveitir
og níu söngvarar
y^~Sextett Ólafs Gauks
Svanhildur og Björn R.
y^-Hljómsv. Guðjóns Pálss.
Guðrún Frederiksen og
bassasöngvarinn A1 Bishop
á hljómleikum í Austurbæjarbíói annað kvöld kl. 11.30 e.h.
Aðgöngumiðasala í Austurbæjarbíói sími 11384.
(Ágóði rennur í sjúkrasjóð Fél.ísl. hljómlistarmanna).
y^-Ragnar Bjarnason
og hljómsveit hans
Hljómsveit Maghúsar
Ingimarssonar
Vilhjálmur Vilhjálmsson
og Marta Bjarnadóttir
y^~Hljómsveit Elvars Berg
og Mjöli Hólm
'y^-Lúdó sextett
og Sefán
Hljómsveit Reynis
Sigurðssonar