Vísir - 31.10.1966, Page 15
t
'so mejv tjíe two
ELPERLY MEtV
WANÞEREÞ OFF, 1
WASfFT CONCERNEO.
rr HAP NEVER
DAWNEÞ ON
A1E THAT OTHER
HUMANS MIGHT
NOT FEEL AT <
HOME IN THE
vJUNGLE/ J
BUT THE REMA/N/NG
TVREE WERE...
'THE YOUN&MAN ORPEREO
Tf/E 7WO WOMEN /NTO Tf/E
CAB/N~TNEN, ARMEOW/TH
MYSPEAR, SETOUT 70
F/NO 7HEM/*
CíiAmO
Mér hafði aldrei dottið það í hug að aðrar
mannverur kynnu ekki við sig í skóginum.
Svo aö ég hafði engar áhyggjur, þegar rosknu
mennimir tveir röltu af stað.
En hin þrjú höfðu þær.
Ungi maðurinn skipaöi konunum tveim
fara inn í kofann — fór síöan að leita a
mönnunum vopnaöur spjóti.
V1 S IR . Mánudagur 31. október 1966.
m^BmaaaismÆawiBamnzsTa&s^mgsszsssEsmMtiWM
— Nei, vitanlega ekki. Og ef þú
viit afsaka að ég segi það þá held
ég aö þau séu svona illa siðuð
vegna þess að þú hefur látið allt
eftir þeim meðan Chris var í Trini
dad.
Jenny horfði á Chris.
— Heldur þú það líka, Chris?
spuröi hún.
Chris var oröinn gáttaður á
þessu. — Finnst ykkur skemmtilegt
að eyða rólegum sunnudegi svona?
Vitanlega dettur mér það ekki í
hug, Jenny.
— Hann mundi ekki segja það
þó hann áliti þaö satt, sagði Fran.
— Hann er svo kurteis.
Chris steytti hnefann framan f
hana, bæði í gamni og alvöru. —
Nú finnst mér að þú ættir að hvíla
þig og verða í betra skapi þegar
þú kemur niður aftur.
— Mér sýnist þú ekki vera í sem
beztu skapi heldur. ,
— Finnst þér það nokkuð undar-
legt? Hann brosti til Jenny.
— Nú skulum við gleyma þessum
leiðindum og koma út í garð og
fá okkur kaffi.
Jenny hikaði. Hún ætlaði að fara
að segja að hún ætlaði líka upp og
hvfla sig. En þama gafst henni
kannski tækifærið, sem hún hafði
beðiö eftir. Þvf að nú var það
sjaldan, sem þau Chris vora ein
saman. Og hún varð að segja hon-
um að hún vildi komast til Lond-
on. Henni fannst sérstaklega
mikið liggja á því núna, eftir þenn
an árekstur við Fran. En hún þoröi
varla aö hugsa til þess hvemig þá
mundi fara um bömin. Hún vissi
það eitt, að Fran hafði ekki hug-
mynd um hvernig átti að umgang-
ast böm.
— Hvað ertu að hugsa um núna?
spurði Chris, þegar þau voru setzt
undir sedrustréð með kaffibakkann
á litlu borði milli sín.
— Reyndu að geta upp á því.
— Jæja, ég ætla að reyna. Ég
held að þú ætlir aó segja mér, að
þú viljir komast til London.
— Já, því miður, Chris. Ég vil
komast þangað.
Hann horfði á hana og fann að
hann mundi sakna hennar mikið.
Og sannarlega skjátlaðist Fran þeg
ar hún sagði að Jenny mundi hafa
hug á Robert Drake. Hann minnt-
ist þessarar stuttu stundar heima
hjá Drake kvöldið áöur. Ef hann
hefði verið afbrýöisamur að upp-
lagi-, mundi hann hafa grunað að
það væri Fran sem þessi deli var
að draga sig eftir — alls ekki
Jenny. Hann hafði sagt þetta við
Fran rétt áður en þau fóru að
hátta. Hann faömaði hana að sér
og sagði eins og í gamni: — Heyrðu
ég heid að ég sé hræddur um þig
fyrir Robert Drake. Þú færð ekki
að hitta hann nema sérstaklega
standi á.
Hún hió og sagöist aldrei á æv-
inni hafa heyrt aðra eins vitleysu.
Hún bætti því við að sig grunaði
að Robert og Jenny hefðu orðið ó-
sátt og þess vegna ekki hitzt eins
oft upp á síðkastið og þau gerðu
áður. Og Robert mundi hafa sýnt
henni — Fran — sérstaka stima-
mýkt til þess að vekja afbrýði hjá
Jenny...
— Mig tekur það sárt, Chris,
sagði Jenny. —\En ég verð að fara.
Hann fann að hann vissi harla
lítið hvað Jenny leið núna. En þó
var eitt víst: ef hún vildi fara, þá
var rangt af honum að halda í hana
Hún hafði þegar fómað of miklu
af ævi sinni fyrir fjölskyldu hans.
— Jæja, góöa, sagði hann. — Ef
þér finnst þetta, verður ekki hjá
því komizt. En ég get varla hugsað
til þess að þú farir frá okkur. Og
sama er að segja um öll hin.
— Fran getur hugsað til þess.
Hann hallaöi sér fram í sætinu
og klappaði henni.
— Hlustaðu nú á mig Jenny. Þú
skilur ekki Fran. Og ég lái þér það
ekki. Hún er alls ekki auðskilin. En
þegar hún reiðist svona, þá er það
ekki nema í nösunum. Henni þykir
verulega vænt um þig, og er allt
af að tala um hve heppin við sé-
um, aö þú skulir vilja vera hjá
ckkur.
— Auðvitað hef ég verið ánægö
hérna. Þaö hefur farið ágætlega um
mig. En ...
— En þú ert kannski orðin
þreytt á þessu?
— Það er ekki það. Það er...
Henni varð litið upp að hús-
inu og sá Michael gægjast með
raunasvip út um barnaherbergis-
gluggann. Hún gat ekki að því gert
að hún fékk tár í augun.
— Þú mátt ekki vera svona
raunaleg, Jenny. Viltu ekki segja
mér hvað gengur aö þér?
— Ég er áhyggjufull — það er
allt og sumt.
— Hefuröu áhyggjur út af ein-
hverju sérstöku? Ég meina — öðru
en þessum árekstri áðan?
En hún hristi bara höfuðið.
— Drekktu kaffið þitt áður en
það kólnar, sagði Chris. — Ég
vildi óska að þú yrðir ástfangin af
efnilegum ungum manni og giftist
honum. Þú ættir að eignast fjöl-
skyldu, Jenny. Mann sem gæti
hugsað vel um þig. Ég held að ég
hafi ekki skilið hve einmana ég var
eftir að Sally dó, fyrr en ég kynnt
ist Fran og varð ástfanginn af
henni. Þú tregar vonandi ekki Pet
er ennþá?
— Peter?
Hann hló. — Þú gerir þaö auð-
sjáanlega ekki, annars mundirðu
ekki verða svona hissa.
— Nei, það eru margar eilífðir
siðan ég jafnaði mig eftir það,
sagði hún. — Svo var þér og Sally
fyrir að þakka. Sérstaklega Sally.
1 — Sally hafði áhyggjur af þér þá
— Þið voruð bæði svo hugulsöm
/ið mig þá. Hún stóð upp og gekk
í áttina heim að húsinu. — Ég
! held að ég verði aö hvíla mig dá-
litla stund’líka, sagöi hún.
— Ertu tilbúin, Jenny.
Mjúk rödd Fran heyrðist fyrir
utan dyrnar hjá Jenny. Hún leit
inn í gættina og rak upp stór augu.
— Ertu ekki komin á fætur?
— Ég er með höfuðverk, ég held
að ég geti ekki komið til Eldridge.
— Hann Chris sagði að við ætt-
um að koma, öll þrjú. Þú ert von-
andi ekki reiö, Jenny? Þú ert ekki
það flón.
Jenni fann að það var einmitt
það sem hún var. Og henni fannst
hún hafa fulla ástæðu til þess.
— Mig tekur þetta svo sárt,
Jenny. Ég ætlaði ekki aö móðga
neinn, en ég er svoddan klaufi,
góða mín. Sem betur fer hef ég sam
ið frið við Michael. Við eram búin
að kyssast og orðin vinir aftur, svo
aö mér finnst að við ættum að sætt
ast líka.
Augu Fran voru biðjandi. Hún
var svo áfjáð í að sættast að
Jenny varð að láta undan. En hana
grunaði að friðurinn mundi verða
skammvinnur. Hún varö að tala við
Fran um Robert á morgun, þegar
Chris væri farinn inn í borgina.
Hún varð að fá Fran til þess að lofa
þvf að vera Chris trú. Hún varð
allra hluta vegna að koma vitinu
fyrir hana.
Bíllinn blés fyrir utan, það var
auðheyrt að Chris var orðinn ó-
þolinmóður. Fran rak hausinn út
um gluggann.
— Nú komum við, kallaði hún.
— Farðu niður, ég kem eftir
augnablik, sagði Jenny.
— Þú þarft ekki að fara í annan
kjól. Lagaðu bara trýnið á þér of-
urlítið . . .
Þegar bíllinn nam staðar við Up-
lands Hall, varð Jenny órótt því
að hún sá að fleiri bílar stóðu
þama fyrir utan.
— Og ég sem hélt að ekki kæmu
aðrir en við, sagði hún.
— Það gerir ekkert til sagði Chris
hughreystandi.
— En hvað það er gaman að
það skuli vera fleiri gestir héma,
sagði Fran. — Finnst þér ekki að
við ættum að halda gestaboð bráð-
um Chris?
— Ef þú vilt svaraði hann alúö-
Passamyndir
Teknar í dag — Tilbúnar á morgun.
Sér tímar eftir samkomulagi.
Ljósmyndastofa Péturs Thomsens
Ingólfsstræti 4. Sími 10297, eftir kl.
7 sími 24410.
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR
úr harffplasti: Format innréttingar bjóffa upp
ó annaff hundrað tegundir skópa og litaúr-
val. Allir skópar meff baki.og borffplata sér-
smíðuff. Eldhúsiff facst mcð hljóffeinangruff-
um stólvoski og raftækjum af vönduffustu
gorff. - Sendiff effa komiff meff mól af cldhús-
inu og viff skipuleggjum eldhúsiff samstundis
og gcrum yffur fast verfftilboð. Ótrúlcga hag-
stætt verð. Muniff a S söluskattur er innifalinn
í tilboffum fró Hús & Skip hf. Njótiff hag-
stæffra grciffsluskilmóla og _ „
lækkiff byggingakostnaffinn. Síi *f?æ ki
HÚS & SKIP.hf •* LAUGAVKðl 11 • S (MI 21515
____________________________75
lega og tók handlegginn á henni
og leiddi hana inn.
Jenny létti þegar hún kom inn
með Chris og Fran og sá að gest-
imir voru ekki eins margir og hún
hafði búizt við. Eldridge kom strax
til þeirra og heilsaði þeim. Hann
sagði, um leið og hann rétti Fran
höndina:
— Það gleður mig innilega að
kynnast yður, frú West. Því miður
fékk ég ekki tækifæri til að hitta
yður í samkvæminu í gær. En kona
mín sagöi mér hve hrífandi þér
væruð.
Orðsending
Nú geta þeir bíleigendur, sem aka
á hálfslitnum eða slitnum sumar-
dekkjum látið breyta þeim í snjó-
munstruð-dekk á aöeins 20 mín. og
kostar aðeins frá kr. 100 (pr. dekk)
Verið hagsýn og verið á undan
snjónum. Við skoöum ykkar dekk
að kostnaðarlausu.
Opið virka daga kl. 8-12.C3 og
14 - 20, laugardaga frá kl. 8 -
12.30 og 14 -18, og sunnudaga
eftir pöntun í sfma 14760.
MUNSTUR OG
HJÓLBARÐAR
Bergstaðastræti 15
(gengið inn frá Spítalastig)
METZELER
hjólbarðamir eru sterkir og
mjúkir, enda vestur-þýzk gæða
vára.
Hjólbarða- og benzínsalan
við Vitatorg Sími 23900
Barðinn h.t.
Ármúla 7. Sími 30501
4 ~.nna \ erzlunarfélagið h.t.
Skipholti 15 Slmi 10199
fe