Vísir


Vísir - 31.10.1966, Qupperneq 16

Vísir - 31.10.1966, Qupperneq 16
VISIR Mánudagur 31. október 1966. Stjóm N.L.F.Í. og forstöðufólk í matsalnum að Hótel Skjaldbreið: Helga Vigfúsdóttir meðstjóm- andi, Anna Matthíasdóttir, ritari, Guðbjörg Kolka forstöðukona matstofunnar, Böðvar Pétursson, gjaldkeri, Árni Ásbjamarson, framkvæmdastjóri N. L.F.Í., Björn L. Jónsson, varaformaður og Njáll Þórarinsson, formaður N.L.F.R. Náttúrulækningafæ&i / HÓTEL SKJALDBRHD í dag opnar Náttúrulækninga- félag Reykjavíkur matstofu í húsi Hótel Skjaldbreiðar við Kirkjustræti. Þar verða hvern dag framvegis framreiddir rétt- ir af svipuðu tagi og á Heilsu- hæli Náttúrulækningafélags ís- lands f Hveragerði. Uppistaðan í máltiðunum verður mest megn is úr jurtaríkinu, eins og að lik- um lætur: grænmeti hvers kon- ar, ávextir og baunir, svo og mjólk og ostar, — N.L.F.Í. hef- ur tekið matsal Hótel Skjald- breiðar á leigu til eins árs, en félagið hefur á prjónunum að færa út kvíarnar í veitingahúss- rekstri, ef vel tekst til með þessa byrjun. Náttúrulækningafélagiö hefur áður rekið matstofu, í Lands- höfðingjahúsinu viö Skálholts- stíg, en sú starfsemi lagöist niður 1952. Forstöðukona veitingastofunn ar er frú Guðbjörg Kolka og skýrði hún lítillega frá væntan- legum rekstri stofunnar í kvöld- verðarboði með blaðamönnum í gær. Á morgnana verður á boð- stólum morgunverður frá kl. 8 til 10,30 og mun kosta 50 krón- ur, miðdegisverður um hádegiö og svo kvöldverður, en fullar máltíðir kosta 75—100 krónur. Auk Guðbjargar vinna tvær stúlkur á stofunni, en gestir munu afgreiða sig að nokkru leyti sjálfir. Náttúrulækningafélag Reykja víkur telur 700 félagsmenn, en félagið er langstærsta deildin í Náttúrulækningafélagi íslands, alls eru þær 5 með 1000 félaga. Formaöur N.L.F.R. er Njáll Þórarinsson / tæpa þrjá tíma — biðraðir mynduðust við brúna yfir Strandasiki Stór vörubifreið úr Reykjavík olli umferðarteppu í tæpa þrjá tíma á Suðurlandsvegi á laugar- dagskvöld. Lokaöist vegurinn við brúna yfir Strandasíki og mynd- uðu'it fljótt bílaraðir beggja meg- in brúarinnar, sem vörubifreiðin hékk þversum á. Var margt manna á leið á dansleik að Hvolsvelli og ;neru margir við og héldu að Hellu staöinn, þegar sýnt var að ekki var hægt að flytja vörubifreiðina | nema með æmu umstangi. Voru tveir menn í vörubifreið- inni á leið austur í Rangárvalla- sýslu með tvö folöld, sem höfð I voru á palli bifreiðarinnar, sem ; var yfirbyggður. Þegar kom að brúnni um hálftíuleytiö, sem er mjó og erfið yfirferðar stórum bif reiðum, slóst bifreiðin utan í ann- an brúarstólpann og missti bílstjór inn við það vald á bílnum. Snerist bíllinn á brúnni. Við áreksturinn brotnuðu bæði jámgrindverkin á rnilli brúarstólpanna þannig að bíll inn hékk þversum á brúnni á eftir. Ekki urðu slys á mönnunum, sem í bílnum voru viö áreksturinn. Fol- öldin sakaði ekki heldur en ekki var hægt að komast að þeim fyrr en bif reiðin hafði veriö færð til. Lokaðist þarna vegurinn í þrjá tíma en gangandi manni var ekki einu sinni fært að komast yfir brúna með bifreiðinni á. Kom lög- regla úr Reykjavík, sem leið átti þar um um hálftíma eftir að at- burðurinn gerðist. Var kranab. feng inn frá Selfossi til aðstoðar við að færa bifreiðina, sem skemmdist mikið viö áreksturinn og enrifrem- ur tveir dráttarbílar frá Hvolsvelli. Var mikil umferð um veginn meðan á þessu stóð og biðu margir eftir því að komast leiðar sinnar, en aðr- ir kusu að fara yfir lækinn hjá Gunnarsholti. þar sem er önnur brú yfir Strandasíki. 9 ém feBpa fyrir bíl Umferðarslys varð á móts við Langholtsveg 151 kl. hálf þrjú í gærdag. Varð níu ára telpa fvrir bifreið, en talið er að hún hafi hlaupið fyrir bílinn. Var hún flutt á Slysavarðstofuna þar sem meiðsli hennar voru könnuð en ekki reynd ust þau vera alvarleg. Mun hún hafa hruflazt á höfði. 15 til 17 ára úr um- ferð vegna ölvunar Sýning á íslenzkri mynt söfnun færist mjög í uuknna Söfnun íslenzkrar myntar hefur farið mjög vaxandi undanfarin ár. Söfnunin hefur jafnvel gengið svo langt að menn hafa farið inn í verzlanir og beöið um skiptimynt með gamla skjaldarmerkinu. Næstu viku hefur Frímerkjamið stöðin við Týsgötu sýningu á allri íslenzkri mynt og jafnframt öllum gerðum íslenzkra peningaseðla. Þar verða auk hins opinbera gjaldmiðils til sýnis: Alþingishátíð arpeningamir, 500 króna minning- arpeningur Jóns Sigurðssonar, sem gefinn var út á 150 ára afmæli hans Brunubötamut hækkar um 15% Á fundi í borgarráöi Reykja- víkur á föstudaginn var sam- þykkt sem álit borgarráðs að á næsta ári þyrfti aö hækka brunabótamat í Reykjavík um 15%. Hafði það komið fram á fundinum í bréfi frá brunabóta- virðingarmönnum borgarinnar, að skv. áliti þeirra þyrfti að hækka brunamótamat sem þessu næmi. Var þetta álit þeirra samþykkt. 1961, svo og ýmis önnur mynt. Með al annars má þar nefna svonefnda brauðpeninga, það er mynt, sem slegin var og notuð til launa- greiðslu hjá fyrirtækjum og var gjaldgeng í vissum verzlunum. Þar á meðal eru brauöpeningar frá Pétri Thorsteinssyni á Bíldudal og svo vörupeningar frá Bíldudal og Stokkseyri. Þá eru einnig á sýn- ingunni Selsvarardalir Péturs Hoff manns af silfri og gulli. Segja má að þetta sé ein ágæt- asta sýning, sem sézt hefur á ís- lenzkri mynt, þó að hún láti Iítið yfir sér. Mynt var fyrst slegin fyrir ís- lendinga árið 1922, 300 þús. stykki af 25-eyringum og annað eins af 10-eyringum, en alls hafa farið fram 94 myntsláttur síðan, nú síð- ast ’66, en þá voru 10-eyringarnir og 25-eyringamir slegnir í 2 millj. upplagi Jafnframt myntsýningunni liggja frammi í Frímerkjamiðstööinni bók menntir um mynt erlenda og inn- lenda, þar á meðal bæklingur Staffans Björkmans um íslenzka mynt og einnig safnbækur fyrir mynt. Mikið annríki var hjá lögreglunni sl. laugardagskvöld og aðfaranótt sunnudagsins vegna ölvunar í borg inni og nágrenni. Fylltust fanga- geymslurnar í Síðumúla og í kjall- ara lögreglustöðvarinnar af ölóðum Bar slasaöan á sjúkrahúsið Á laugardagsmorgun varö dreng- ur á vélhjóli fyrir bifreið kl. 9.22 Kom í Ijós eftir rannsókn, að drengurinn fótbrotnaöi og hlaut nokkrar skrámur eftir slysið. I þessu umferöarslysi varð öku- manninum það á að þverbrjóta all- ar reglur, sem gilda um meðferð slasaöra á slysstað. í staö þess að kalla á lögreglu og sjúkralið, fékk hann annan mann til þess að bera drenginn meö sér inn í Landakots- spítala. Að því loknu ók maður- inn bifreið sinni af slysstað niður á lögreglustöð til þess að tilkynna slysið en samkvæmt lögum á bíll- inn að standa óhreyfður á staðnum þar til rannsókn og mælingar hafa farið fram. Munu tilfelli sem þessi ekki koma oft fyrir. Flestir munu vera kunnugri þessum reglum, sem gilda þegar atburðir sem þess ir koma fyrir, en ökumaðurinn í bessu tilfelli. lýð eins og raunar um flestar helg- ar. Mikil ölvun var á dansleik, haldinn var að Hlégaröi, en > sækja aðallega unglingar undir tvítugu. Varö að taka nokkra ungl- iriga á aldrinum frá 15 til 17 ára úr umferð vegna ölvunar. Voru þeir settir í fangageymslu lögregl- unnar. Dagur frímerkísins er á ntorgun: Sérstakar stimpill og umslög Á morgun er dagur frímerkisins og í tilefni hans hefur Félag frímerkjasafnara látið gera sér- stök umsl. til notkunar á morg un Umslögin eru teiknuð af Hall dóri Péturssyni, listmálara og eru silkiprcntuð. Á umslaginu er mynd af hluta af skildinga- bréfi. — Umslögin verða seld í frímerkjaverzlunum svo og við Póststofuna. Sérstakur dagstimp ill verður einnig í notkun á Póst stofunni af bessu tilefni. Frímerkjasalan mun bæði taka á móti umslögum með á- limdum núgildandi frímerkjum til stimplunar og pöntunum til álímingar og stimplunar. Gluggasýningar verða einnig að þessu sinni á tveim stöðum i bænum eins og fyrr á degi frímerkisins. Ellerf B. Schram skrifstofustjóri borgurverk- fræðings Ellert B. Schram, lögfræðing- ur og hinn þekkti knattspymu- maður, hefur verið ráðinn skrif- stofustjóri borgarverkfræöings. Var samþykkt á fundi borgar ráðs fyrir helgina að ráða Ell- ert til starfans, en fyrirrennari hans var Helgi Jónsson. Mun Ellert taka við stöðunni á morg un, 1. nóvember. 1

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.