Vísir - 16.11.1966, Page 6
V í SIR . Miðvikudagur 16. nóvember 1966.
Fyrsta umr. um stjórnarfrumvarp
um tekjustofna sveitarfélaga fór
fram í neðri deild í gær. Er þetta
frumv. boriö fram til staðfestingar
bráöabirgðalögum. Magnús Jónsson
fjármálaráðherr^ gerði grein fyrir
frumvarpinu. Einnig tók til máls
Skúli Guömundsson (F),
Þingskjöl.
Lagt var fram í gær stjómar-
frumvarp un> breytingu á lögum um
verðlagsráö sjávarútvegsins. Sara-
kvæmt því er gert ráö tyrir aö
verð á fiskúrgangi veröi ákveðiö
af verðlagsráði þriggja manna.
Þá var lögð fram fyrirspurn frá
Gils Guðmundssvni (K) i allmörg-
um liðum um lóöaúthlutanir Þing-
vallanefndar.
Flestlr úr stjórn Félags íslenzkra dægurlagahöfunda með kynningarspjald, sem verður íanddyri Lido, og
dægurlagaheftið, sem selt verður. Frá vinstri: Kristinn Reyr, Hjördís Pétursdóttir, formaður félagsins,
Þórunn Franz, Ágúst Pétursson, meðstjórnandi og Jenni Jónsson gjaldkeri. Á myndina vantar Jónatan Ói-
afsson ritara og Hauk Morthens meðstjómanda.
mt a
BíðS brnnn ú
Akureyri
Tveir piltar stigu rétt mátulega
út úr bíl, sem geymdur var í stál-
grindarhúsi slippstöðvarinnar á Ak-
ureyri, til þess aö verða ekki fyrir
slysi, þegar eldur gaus skyndilega
upp i bílnum. — Pegar slökkvilið
Akureyrar kom á vettvang litlu
síðár var bíliinn kolbrunninn. Ekki
er vitað um eldsupptök.
KörfukuuffEeikur
f kvöld kl. 20 leika KFR og fR
í körfuknattleiksmóti Revkjavikur
í Laugardalshöllinni. Að leik þeirra
loknum leika Ármenningar við
stúdenta.
. Islenzkir dægurlagahöfundar
ætla að mlnna íslendinga á aö
það er ekki alltaf nauðsynlegt að
sækja góð og skemmtileg dans- og
dægurlög til annarra landa með
því að halda „íslenzkt dægurlaga-
kvöld“ i Lldo á föstudagskvöld.
Þar mun verða dansað, leikið og
sungið fram tll kl. 2 eftir miðnætti
og öll lögin sem leikin veröa eru
eftir islenzka dægurlagahöfunda.
Félag islenzkra dægurlagahöf-
unda stendur fyrir þessari skemmt
un en félagið hafði íslenzkt dæg-
urlagakvöld í fyrsta skipti í fyrra
á 10 ára afmæli félagsins og þótti
það takast mjög vel. 1
Sextett Ólafs Gatiksi' leikur is-
lenzk dægurlög frá því kl. 9 um
kvöldifS og þar að auki verða mörg
skemmtiatriði, sungin og leikin ís-
lenzk dægurlög, en ein undantekn-
ing verður, töframaðurinn Viggo
Sparr sem sýna mun listir sínar.
Leikhúskvartettinn syngur, Vala
Bára syngur, Gunnar Kr. Guö-
mundsson dægurlagasmiður leikur
einleik á harmonikku og Sverrir
Guðjónsson syngur. Jónas Jónas-
son verður kynnir.
Helgi Bergmann, listmálari sýnir um þessar mundir málverk í Templ-
arahöllinni. Mikill hluti þeirra hefur þegar selzt og sýningunni lýkur
um næstu helgi.
HóskóBa-
fyrirlesíur
Prófessor Rolf Waaler, fyrrver
andi rektor Verzlunarháskóla Nor-
egs, sem hér er staddur vegna
ráöstefnu fjármálaráöuneytisins
um umbætur í opinberum rekstri
mun halda fyrirlestur í Háskóla ís
lands, lapgardaginn 19. nóv. kl.
17.15 í I. kennslustofu Háskólans.
Efni fyrirlestrarins er: Aktiviser-
in, og motiverlng: Bruk av ökono-
mlske og andre insiterende midler.
Fyrirlesturinn á erindi til þeirra,
sem fást við stjómun, og er öllum
heimill aðgangur.
Blaðumenn
Fundur í B.í. um kjaramálin verð
ur í dag kl. 4 í Tjamarbúð.
Þingmenn á NATO-
fundi - nýir vnru-
þingmenn
Nokkrir varaþingmenn hafa
nú tekið sæti á Alþingi. Oddur
Andrésson fyrir Matthias Á.
Mathiesen (S), Hilmar Hálfdán-
arson fyrir Birgi Finnsson (A),
Hjörtur Eldjárn fyrir Ingvar
Gfslason (F) og Ragnar Jónsson
fyrir Matthías Bjamason (S). Þá
hefur Pétur Pétursson setið frá
upphafi þings fyrir Benedikt
Gröndal (A).
Hinir fjórir fyrstnefndu þing-
menn eru nú staddir í París á
þingmannafundi NATO-ríkja.
MACBETH
/y
//
HEIMDALLUR sýnir í kvöld kl. 8.30 kvikmyndina
„Macbeth“ í félagsheimili Heimdallar í Valhöll við
Suðurgötu. — Heimdellingar eru beðnir að fjölmenna
og taka með sér gesti.
; • ^ IjtwO1 i _ , •
Heimdallur F.U.S.
Jafnframt því aö vera kynning á
íslenzkum dægurlögum er ætlunin
að skemmtun þessi verði til að
styrkja eitthvað fjárhag félagsins
og veröur aögangseyririnn 100 kr.
Öllum er heimill aðgangur meðan
húsrúm léyfir og verður matur
framreiddur frá kl. 7. „
Númskeið fyrir
leiðsögumenn
Vegna óska ýmissa aðila vill
Ferðaskrifstofa ríkisins hér með
taka fram, aö námskeið :þaö fyrir
leiðsögumenn ferðamanna, sem
auglýst hefur verið undanfarið, er
algjörlega óviðkomandi Ferðaskrif-
stofu ríkisins.
Ferðaskrifstofa ríkisins mun hins
vegar halda námskeið fyrir leið-
sögumenn ferðamanna síðar á þess
um vetri, þar sem þátttakendur
munu væntanlega eiga þess kost
að námskeiði loknu að ganga undir
próf, sem veitt getur viss starfs-
réttindi.
12. nóv. 1966.
Feröaskrifstofa rikisins.
Hundrifudómur
ú morgun
Klukkan 10 í fyrramáliö verður
kveðinn upp dómur í Hæstarétti
Danmerkur um handritamálið.
Skúk —
Vinnurunnsóknir -
Framhald af bls. 16
sambandi samvinnufélaganna og
Vinnuveitendasambandi Islands
hinn 11. des. 1965. 1 leiðbeining-
unum §egir einnig, aö það sé skoð-
un samtakanna, ,,að vinnurann-
sóknir séu nytsamt og hentugt
hjálpartæki til að bæta samstarf-
iö um vinnutilhögun, vinnuaðferð-
ir og launaákvarðanir, þegar vinnu
rannsókrtir eru framkvæmdar og
notaðar á réttan hátt.“
Til þess að svo megi verða, er
mikilsvert, að sem viðast i íslenzk-
um fyrirtækjum séu starfandi
menn, sem öðlazt hafa nokkra
þekkingu á, þeirri tækni, sem um
er að ræða. 1 áðurgreindu sam-
komulagi er t. d. beinlínis gert
ráð fyrir því, að trúnaöarmönn-
um starfsmanna í fyrirtækjum, þar
sem taka á upp vinnurannsóknir,
sé séð fyrir fræðslu og hagnýtri
þjálfun, sem þörf er á til að skilja
og meta vinnurannsóknagögn og
gera samanburðarathuganir, en yf-
irferð námskeiðanna miðast einmitt
við það.
Fyrsta námskeiðið hefst mánu-
daginn 28. nóvember n. k. og fer
fram i Iðnaðarmálastofnun íslands
aö Skipholti 37 í Reylfjavík. Nám-
skeiðið stendur í tvaer vikur og lýk
ur laygardaginn 10. desember.
Væntanlegir umsækjendur geta
fengið nánari upplýsingar og um-
sóknareyðublöð með þvi að snúa
sér til Iðnaðarmálastofnunar Is-
lands. Bent skal á, að umsóknar-
frestur fyrir fyrsta námskeiðið er
til 21. nóvember n. k.
íþrótfar —
framhald af bls. 2
Schneider, 24 ára, Di Grallert, 25
ára, S. Lohmann, 28 ára, K. Rata-
yczak, 22 ára og hefur leikir 5
landsleiki með landsliði utanhúss,
H. Schroers, 22 ára, landsliðsmaður
utanhúss og innan, D. Rehbach, 22
ára leikmaður með landsliði í hand-
knattleik inni og úti, F. Brauweiler,
26 ára, f jórum sinnum fyrirliði með <
landsliði innanhúss, R. Schwanz,
19 ára, 9 sinnum í landsliði, verður
með J HM-liði Þjóðverja og er tal-
ið mesta efni, sem Þjóðverjar eiga
í dag f íþróttinni, M. Zwier-
kowsky, 25 ára 6 sinnum í úti-
landsliðinu. Aðrir leikmenn: Ch.
Spönlein, 19 ára, J. Ante, 29 ára
og A. Esser, 31 árs gamall.
Fararstjóm skipa 5 menn undir
forystu Josef Dömkes, formanns
félagsins en ennfremur kemur hing
að sérstakur fulltrúi borgarstjórn-
ar Krefeld.
Framh. af 16. síðu.
Tékkóslóvakía 3 — Rúmenía 1
Argentína 3 — Kúba 0 (l'bið.)
Rússland 3 — Noregur 0 (1 bið.)
Ungverjal. 2 y2 — Spánn y2 (1 bið.)
Bandaríkin 1 y2 — Búlgaría l/2
(1 bið)
Júgóslavía 2 — Danmörk 0 (2 bið.)
Rússland er nú Iangefst með
28y2 vinning og biðskák, en Banda
ríkjamenn koma næstir með 26 y2
vinning og 2 biðskákir.
Islendingar og Danir eru í 10—
11. sæti með 14 y2 vinning hvorir.
wsmmnm
\ Knattspyrnufélagið Víkingur.
j, Aðalfundur knattspyrnudeildar
I Víkings veröur n. k. miðvikudag
| kl. 8,30 i félagsheimilinu við P«5ttar
I holtsveg. — Stjórnin.
Tekjuhæsti —
Framh bls. 7
að skrifa bækur í bili, en snúa
sér að gerð sjónvarpsþátta, sem
verða byggðir á bókum hans.
Hann segist eiga fjórar bækur í
peningahólfi í banka en sumir
segja að hann, eigi beztu bók
sína meðal þeirra. Hann hefur
ritað þessar bækur án nokkurs
fyrirfram undirbúnings. Allar
athuganir á staðreyndum fara
fram jafnóöum og hann vinnur
að bókum sínum. Hann er sagð-
ur skrifa eins og hann talar.
tíver sem skýringin er á því
er Harc’d Robbins virkast-
ur og auðugastur þeirra rithöf-
unda, sem á síðustu árum hafa
komið fram og eru ekki siður
kaupmenn en rithöfundar. Þeir
skrifa eins og almenningur vill
aö þeir skrifi og það aflar þeim
auðs og eftirtektar, en ef til
vill ekki ætíð hamingju. Aö
minnsta kosti hefur gengið á
ýmsu f lífi Harolds Robhins.
,,Ég er ævintýramaður“ segir
hann.