Vísir - 04.01.1967, Side 3

Vísir - 04.01.1967, Side 3
VÍSIR. Miðvikudagur 4. janúar 1967, 3 Fáeinar athugasemdir að lokinni æfingu, f. h.: leikstjórinn Benedikt Árnason, höfundurinn Matthías Jóhannessen, Valur Gíslason, sem fer meö aöalhlutverkin i báöum þáttunum, og Gísli Alfreðsson er e kki búinn aö taka af sér bítlagervið. ÞIÐ MEGIÐ H AFA ÞAÐ EFTIR MÉR, EF ÞIÐ SEGIÐ RÉTT FRÁ ÞVÍ, AÐ... Frn æfingu á einþáttungum Matthiasar í Lindarbæ — Ert þú senumaður? spurði höfimdurinn, þegar Myndsjár- maöur rak höfuðið inn um gætt- ina aö Lindarbæ. Æfingin var hálfnuö, matarhlé, annar þátt- urinn búinn, EINS OG ÞÉR SÁIÐ, sá fyrri. — Höfundur og leikstjóri töluðu í bröndurum i viðurvist stóreflis jólatrés, sem stóö þar úti undir vegg alsett glóandi glingri. £ Þeir áttu eftir að fara yfir „JÓN GAMLA“, en þessir tveir einþáttungar Matthíasar Johann- essen eiga aö frumsýnast um helgina. Einhern veginn hefur það kvisazt út aö þeir fjölluöu um valdið og beitingu þess hvor með sínum hætti, hvort heldur þaö segir lesendum mikið eða Iítið um innihaldið. Hins vegar kvaö Benedikt Ámason leik- stjóri það máia sannast, aö þættirnr væru gjörólíkir - og hreint og beint ótrúlegt að þeir skuli vera eftir sama manninn. A — Þið megið hafa þaö eftir mér, ef þið segið rétt frá því, að þetta hafi verið góöur skóli fyrir mig. Það er lærdómsríkt aö vinna með svona mönnum, þetta eru engir smákallar hérna, eins og Valur og Lárus. Gísli er ágætur maöur líka og Bene- Jikt hefur gert þetta ákaflega ■el. — Hefurðu breytt miklu, eft- • að farið var aö æfa? — Ég hef breytt alveg eins ég hef getað. Þetta gera flest- ir leikritahöfuúdar. Ég veit ekki um neinn nema Ibsen, sem breytti engu, sendi bara hand- ritin. — Jú, mikil 'ósköp, þaö er ákaflega mikilsvirði aö kynn- ast leikhúsinu. Blaöamennska og leikhús, þetta er ekki ólíkt hvort öðru. Þetta er hvort tveggja svona kanall, sem lífið gengur í gegn um. Blaðamennskan er alltaf í snertingu viö lífið, að tala við fólk undir vissum kringumstæð- um. Hún er bara raunverulegri. Hitt er alltaf „theater“. & — Annars er þetta tómur misskllningur, ég skil ekkert i aö þeir skuli vera að sýna þetta. Ég hélt aldrei að þetta yrði sett á sviö. Benedikt fékk bara að ■lesa þetta yfir og hann sagði að þetta væri leikrit. — Við erum nú héma frá Myndsjánni ... — Já, þaö hlýtur aö vera allt í lagi að þið takið myndir, en þiö megið bara ekki taka mynd af leynigöngunum sem ég' ætla aö læöast út héðan af frumsýn- ingunni, ef .... & Síðan hófst æfingin og ljós- myndarinn smellti af nokkrum sinnum. Þegar henni var lokið ruddist Þjóödansafélagiö 1 sal- inn, tugir bama, klædd sjald- hafnarflíkum, tóku aö dansa kringum jólatréð. Láms Pálsson og Valur Gíslason í hlutverkum sínum. Táningurinn flytur Jóm Gamla frumort kirkjugarðsljoö.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.