Vísir - 02.02.1967, Side 10
10
VlSIR . Fimmtudagur 2. febrúar 1967.
Ný þingskjöl
í gær var lagt fyrir Alþingi frum-
varp un viðauka og breytingu á
sauðfjársjúkdómalögunum, en land-
búnaðarráðherra fól sauðfjársjúk-
dómanefnd endurskoðun þeirra
'aga 10. maí ’56. Helztu tillögur til
reytingar eru: Að felld verði niður
notkun orðsins „mæðiveiki", þar
sem þeirri veiki hefur verið útrýmt.
Og að takmarkað verði bann á flutn
ingi sauðfjár til lífs yfir vamarlín-
ur, þar sem það ákvæði torveldi
mjög kynbætur á sauöfé í landinu.
Þá var lagt fyrir frumvarp um
stofnun embætta verkfræðiráðu-
nauta ríkisins á Noröur-, Austur-
og Vesturlandi. Flm.: Gísli Guð-
mundsson (F) og Ágúst Þorvalds-
son (F).
Sameinað Alþingi
Fundur var í sameinuðu Alþingi
í gær og hófst með því að forsætis-
ráðherra las upp forsetabréf. Skýrt
var frá því, að Skúli Guðmundsson
gæti ekki mætt á fundum vegna
veikinda. Á meöan tekur sæti hans
lón Kjartansson, forstj. Því næst
voru öll mál á dagskrá tekin út af
'agskrá og fundi slitið.
íþróttir —
Framh. af bls. 2
sjá um alla okkar ferð og hún
sér einnig um bókun á mjög
þægilegt hótel. Þá hafa verið
gerðar ráðstafanir til að ýmislegt
verði skoðað, og m.a. er ákveð-
ið að verja kvöldi f óperunni.
Við erum bjartsýnir eins og
alltaf, FH-ingar, og vonumst til
að sýna okkar bezta í þessari
ferð. Það er góð „stemning" í
liðinu og ástæða til að búast við
góðum árangri, enda þótt Ragn-
ar Jónsson vanti í liðið. Kannski
tekst okkur vel upp í Búdapest
og þá er ekki svo slæmt að hafa
Ragnar Jónsson í bakhöndinni
sem leynivopn í leiknum hér í
Laugardal", sagði Árni Ágústs-
son að lokum.
þeim byggðarlögum væri til mik-
illa bóta, að landi þeirra jarða, sem
liggja að afréttunum, yrði bætt við
þær og búskap á þeim jörðum
hætt.
Þá eru margar jarðir í landinu,
sem enn þá hafa of lítil tún. Bú-
rekstur á þessum jörðum yrði mun
hagkvæmari, ef unnt væri að bæta
við þær jörðum, sem Jarðeignasjóð-
ur ríkisins hefði keypt og lagt
niður búskap á.
Á undanförnum árum hefur geng
ið illa að selja jarðir. Nokkrir
bændur hafa því orðið að halda
áfram búskap, þó þeir hefðu viljað
hætta, eða þá að ganga frá jörð og
húsum án þess að fá nokkra
' greiðslu fyrir.
Frumvarp —
Framh. af bls. 16
nefndar, en hliðsjón skal höfð af
gangverði hliðstæðra jarða og fjár-
munum þeim, sem eigendur hafa
| lagt í jarðimar.
Sameiginlegt með jörðum þessum
er það, að ef ætti að gera þær vei
fallnar til búskapar, yrði það mik-
ill kostnaður fyrir þá, sem á þeim
búa, og fyrir hið opinbera. Þegar
á hitt er lit'ið, aö offramleiðsla er
á mjólk og kjöti, en markaösskil-
yrði erlendis mjög óhagstæð, þá
virðist ekki ástæða til þess að
leggja í mikinn tilkostnað til þess
að halda jörðum, með óhagstæð
búskaparskilyrði í byggð.
Víða um land er mikill skortur
á sumarbeitilandi fyrir sauðfé. 1
ATVINNA
Viljum ráða mann með sprengingaréttindi
Hlaðbær h.f.
Símar 40450, e.h. og 38006.
100 ára —
Framh. af bls. 16
stjórans í Reykjavík og færa hon-
um gjafir.
Hófiö á Sögu hefst kl. 17 -
veizlustjóri verður Þór Sandholt,
| skólastjórí Iðnskólans. Guömundur
H. Guðm..idsson flytur minni fé-
lagsins, Helgi H. Eiríksson flytur
ávarp og Jökull Pétursson flytur
I afmælisljóð. — Iðnaðarmálaráð-
herra, borgarstjórinn í Reykjavík
og formaður félagsins flytja ávörp.
Ingólfur Finnbogason, formaður
Iðnaðarmannaféiagsins gat þess á
fundj með fréttamönnum í gær, að
markmið Iðnaðarmannafélagsins
hefði veriö það, að sameina hin
j msu félög í eitt. Félagið hefði
jafnan látið sig menntun jðnaðar-
manna miklu skipta. Það kom með
al annars upp iðnskólanum 1904
(gamla skólanum í Vonarstræti).
Félagið hefur nú mikinn áhuga
á því að koma sér upp hentugu
húsnæði, í því sambandi hefur ver-
ið minnzt á lóð í hinum væntan-
lega nýja miðbæ. Gjaldkeri félags-
ins, Leifur Halldórsson, sagði við
fréttamann Vísis í gær að einnig
hefðu verið uppi raddir um bygg-
ingu hvíldarheimilis fyrir iðnaðar-
menn og sitthvað fleira hefur fé-
lagið á döfinni.
Gefið blóð —
LEIGUÍBÚÐ
Lítil 3 hérb. íbúð til leigu strax í vesturbænum
Tilboð merkt: „Fyrirframgreiðsla“ sendist
auglýsingadeild Vísis.
FISKIBÁTUR
Til sölu 65 tonna fiskibátúr með 400 hesta
nýrri vél. Bátur og tæki í mjög góðu ástandi.
Fasteignamiðstöðin, Austurstræti 12,
sími 14120, heimasími 35259.
Iðnaðarhúsnæði óskast
50 ferm. fýrir léttan iðnað. — Tilboðum sé
skilað til blaðsins fyrir 5. febrúar n.k. merkt
„Húsnæði — 1010“.
Fermingarkjólar
Unglingakjólar — frúarkjólar — vinnukjólar
hettukápur.
Fatamarkaðurinn
HAFNARSTRÆTI 1 (Vesturgötumegin)
Framh. af bls. 16
vindu í notkun í gær, sem gerir
það að verkum að hægt er að
geyma blóð um árabil, en áður
var aðeins hægt að geyma heil-
blóð í þrjár vikur. Einnig eykur
skilvindan mjög möguleika til
blóðvatnsframleiðslu.
Á fundi með fréttamönnum í
gær, skýrðu þeir dr. Jón Sig-
urðsson form. RKf, Ólafur Step
hensen framkv.stj. RKÍ og Val-
týr Bjarnason yfirlæknir BIóö-
bankans frá forsögu þessa máls.
Árið 1963 gáfu bankar landsins
ásamt Sparisjóði Reykjavíkur
og nágrennis Rauða krossinum
allverulega upphæð, sem verja
skyldi til lfknarmála innanlands.
Valið var auðvelt: Til var banki
í landinu, sem var bæði fátækur
og átti litlar innistæður, en marg
ir eiga mikið að launa - jafnvel
líf sitt. Þetta er blóðbankinn,
sem komið var á Iaggirnar 1953
og sér spítulum landsins fyrir
blóði. Bankinn byggir tilveru
sfna á fómfýsi almennings, en
alveg síðan bankinn var stofn-
aður hefur almenningur í Rvík
og nágrenni sýnt honum mikinn
velvilja. Bankinn hefur ekki
haft bolmagn til aö skipuleggja
blóðsöfnun úti um landsbyggð-
ina, en ljóst var orðið að blóð-
gjafir Reykvíkinga voru ekki
nægjanlegar fyrir allt landið.
Hefu. m.a. þess vegna ekki ver-
'ð kleift að safnan neinum veru-
legum blóðbirgðum, þannig að
bankinn er engan veginn undir
það búinn að mæta fjöldaslysi. !
sem al'taf gæti átt sér stað.
Rauði kross íslands ákvað því
að byggja upp blóðsöfnunar-
starf í landinu í samvinnu við
Blóðbankann. Var keyptur í
þessu skyni sérstakur bíll fyrir
tveimur árum, sem síðan hefur
verið innréttaður fyrir þetta
starf. í bflnum eru frystitæki og
hitatæki, sem munu koma í veg
fyrir að blóðiö skemmist áður
en hægt er að vinna úr þvf f
Blóöbankanum. — Blóðbankinn
leggur til alla sérfræðilega vinnu
vegna söfnunarinnar, en RKÍ
mun skipuleggja sveitir blóðgef
enda um land allt í samvinnu
við deildir félagsins.
Vegna rúmleysis er ekki hægt
að geta þessa máls nánar í blað-
inu í dag, en Myndsjáin á morg-
un verður helguð því.
Bæjarþing —
Framh. af bls. 1
við heildarfjölgun giftinga i
Reykjavík.
Dómkvaðningar voru 165 tals
ins, þá eru hæfir menn dóm-
kvaddir af yfirborgardómara til
að framkvæma mat eða skoöun.
Vísir spurði yfirborgardómar-
ann um orsakir hins vaxandi
málafjölda hjá embættinu, eink-
um víxil- og skuldamálin. Hann
kvaðst ekki geta sagt um orsak-
ir með fullri vissu, auðvitað
bæru hin mörgu mál vitni hirðu
leysi eða getuleysi til greiðslu.
Þó taldi hann hiklaust mega
rekja þennan vöxt að verulegu
Ieyti til afborgunarviðskipta, og
lét hánn þess getið, að sér þætti
nauðsynlegt að sett yrði löggjöf
um kaup lausafjár með afborg-
unum.
Yfirborgardómarinn, Hákon
Guðmundsson, er einnig í for-
sæti Siglingadóms, en auk hans
sitja þar 4 siglingafróðir menn.
Þessi dómstóll afgreiddi á s.l.
ári 30 mál, ýmist með dómum,
sátt eða áminningu.
Náttúruvernd —
Framh. af bls. 1
harðlega fvrir lagabrot og slælega
framgöngu hvað þjóðgarðinn
snertir.
Samkvæmt lögum frá 1956 um
náttúruvernd, voru stofnaðar nátt-
úruverndamefndir í bæjar og
sveitarfélögum, en það kom í ljós
að þær höfðu gert minna en ekk-
er. Þessar nefndir hafa annars
miklu hlutverki að gegna hver á
sínum stað.
Náttúruverndarráð hefur fremur
lltil völd sem slíkt, en á að starfa
sem ráðgefandi stofnun fyrir rík-
isstjórnina.
Það kom fram á fundinum að
náttúruvernd hefur mikinn kostn-
ag í för með sér, en sá kostnaður
er lítill ef miðað er við það gullna
tækifæri sem nú er fyrir hendi hér-
lendis á þessu sviði og gæti orðið
dýrara að láta það úr greipum
ganga.
r
Oku upp d
Tindustól
BORGIN
BELLA
„Þér eruö alveg eins og gamli
reikningskennarinn mlnn. Hann
varö líka alveg óður yfir komm-
um, settum á ranga staði“.
VEÐRIÐ í DAG
Suðvestan kaldi. Skúrir £ dag,
en slydduél £ nótt. Hiti 2 — 4 stig.
FUNDIR í DAG
Kvenfélagið Bylgjan. Fundur £
kvöld að Bárugötu 11, kl. 8.30.
Sýnd verður matreiðsla nokkurra
rétta. — Stjórnin.
Kvenfélag Háteigssóknar. Aöal
fundur félagsins veröur haldinn
í kvöld kl. 8.30 i Sjómannaskólan
um. — Stjórnin.
Æskulýðsfélag Laugarnessókn-
ar. Fundur í kirkjukjallaranum í
kvöld kl. 8.30. Fjölbreytt fundar-
efni. — Sr. Garðar Svavarsson.
vi ts: I R
fijrir 3' l í árum
SÍMSKEYTI
frá fréttaritara Visis.
Kaupm.höfn 1. feb. kl. 12,5.
Þjóðverjar hafa lýst þvi yfir,
að þeir bannj umferð á sjóleiðum
öllum umhverfis England, Frakk-
land og Ítalíu.
2. feb. 1917.
Nokkrir félagar úr slysavarna
deildinni á Sauðárkróki óku um
síðustu helgi upp á fjallið Tinda f
stól á jeppum sinum.
Lagt var upp frá Heiði í
Gönguskörðum um dali og
botna, sem skerast þar inn í
fjallið. Voru þrír bílar í ferðinni
en 14 menn alls. Tveir bílanna
voru af Land Rover-gerð en
einn Rússajeppi. Upphaflega
lögðu fjórir af stað, en einn
Rússajeppinn varð að hætta
vegna þess hve þung yfirbygg-
ing hans var. AUt voru þetta
nokkuö gamlir bílar. Rússinn
og diesel Landroverinn 6 ára
en bensínbíllinn 11 ára, en ferð
in gekk mjög vel og tókst að ná
tindinum um síðir, en fjallið er
986 metrar á hæð.
Síldar-
réttir
KARRI-SÍLD
RJÓMA-LAUKSÓSA
COCKTAIL-SÓSA
RAUÐVÍNS-SÓSA
SÚR-SÍLD
KRYDD-SÍLD
MARINERUÐ-SÍLD
Kynnizt hium ljúffengu
sildarréttum vorum.
SMÁRAKAFFI
Sími 34780