Vísir - 02.02.1967, Side 16

Vísir - 02.02.1967, Side 16
Fimmtudagur 2. febrúar 1967. 11 tonn í róðri Á þriðjudagirm leit út sem eitt- hvað væri að lifna yfir vertíð- inni. Línubátar frá Faxaflóahöfn- um fengu óvenju góðan afla. Kefla- víkurbátar, sem róa með línu voru með þetta upp í 11 tonn. 5 bátar eru byrjaðir netaveiðar frá Grinda- vík og voru þeir með yfir tíu tonn á þriðjudaginn. — Aflinn var aftur á móti minni í gær. — Vertíðarbátar eru nú víðast hvar að búa sig til netaveiða og eru nokkrir þegar byrjaðir hér syðra. Breiðafjarðarbátar eru einnig nokkrir byrjaðir netaveiðar, þeir fyrstu lögðu net sfn þar fyrir um viku og hefur netavértið aldrei byrjað jafn snemma KYNNA FRJÁLSARIFORM ÍJASSI Nokkrir hljóðfæraleikarar hafa tekið sig saman og stofnað nýjan jassklúbb í Reykjavík og hyggjast hafa jasskvöld fram- vegis á þriöjudögum viku hverja, í Silfurtungiinu. — Það er Guðmundur Ingólfsson sem aðallega stendur fyrir þessum nýja klúbbi og ræddi frétta- maður Vfsis lítillega við hann og félaga hans, eftir fyrsta jasskvöld þeirra á þriðjudaginn. — Það hafa margir spurt um þetta síðan það lagðist niöur niður frá (í Tjarnarbúð). Ég held ekki, ég veit, að hér er dágóður hópur jassunnenda, sagði Guðmundur og það virðist fremur vanta jassmúsik en hitt. — Eitthvað nýtt á prjónun- um? — Við höfum hugsað okkur að kynna hér, það sem kallað er „freeform". Það er eins kon- ar abstraksjón í músík, algjört frjálsræði í improvisasjón. — Ætliö þið að reyna að fá erlend númer hingaö? — Við erum nú ekki farnir aö hugsa út fyrir landsteinana ennþá, en við munum reyna að ná í kunna jassleikara, sem eiga leið hér um, ef nokkur kostur er. — Við höfum fengið svo marga þekkta krafta á undan- fömum árum, að það er eigin- lega synd að missa niður þráð- inn, en fyrsta skilyrði fyrir því aö þeir komi, er að hér sé eitt- hvað iökaður jass, eitthvert „lokal“ fyrir reglubundin jass- kvöld. — Fyrst um sinn veröa þessir sömu hljóðfæraleikarar að mesiu eða minnsta kosti sama hljóðfæraskipan, nema hvað breytt verður til með sólóista. — Fyrsta kvöld hvers mánaöar verður opið til klukkan eitt, annars til kl. 11.30. — Það tek- ur fólk nokkurn tíma að átta sig á því að hér sé eitthvað á ferðinni, — en við erum bjart- sýnir á þetta. Frumvarpið um jurðeignu- sjóí komiB frum í gær var lagt fram fyrir Alþingi frumvarp til laga um stofnun Jarö- eignasjóðs ríkisins, en hinn 29. sept. ’66 skipaði landbúnaöarráö- herra 5 manna nefnd til að endur- skoða frumdrög aö frumvarpi þessu, sem samin höfðu verið að tilhlutan Ingólfs Jónssonar, land- búnaðarráðherra. Tilgangurinn með löggjöf þessari er sá, að stofnaöur verði Jarð- eignasjóður ríkisins, sem hafi það hlutverk að kaupa jarðir af bænd- um, sem vilja hætta að búa, en geta ekki selt jarði'r sínar á frjáls- um markaði. Enn fremur á sjóður inn að ráðstafa þeim jörðum, sem hann festir kaup á, á sem hag- kvæmastan hátt fyrir sveitarfélög- in, sem jarðirnar eru í, og þjóðar- heildina. Jarðir þær, sem með þess um hætti er ætlað að fella úr ábúð, eru jarðir sem þessar: 1) Jarðir, sem ekki seljast með eðlilegum hætti, en eigendur verða að hætta búskap vegna aldurs eða van- heilsu. 2) Jaröir, sem hafa óhag- stæð búskaparskilyrði. 3) Jarðir, sem ekki njóta framlaga og lána, sem veitt eru til umbóta á lögbýl- um, sbr. 4. kafla jarðræktarlaga nr. 22/1965. 4) Jarðir, sem afskekkt ar eru og liggja illa við samgöng- um. Auk þessara sem upp hafa verið taldar, jarðir, sem hlunnindi fylgja og líkur eru til að verði ekki nýttar til búrekstrar, en hafa sér- stakt notagildi fyrir sveitarfélag eða ríki. Kaupverð jarða, sem Jarðeignasjóöur festir kaup á, en ekki seljast með eðlilegum hætti, skal vera matsverð þriggja manna Framh. á bls 10 Hljómsveit jassklúbbsins: Guöm. Ingólfsson, píanó, Kristinn Svavarsson, tenor-saxóf., Aðalsteinn Brynjúlfss., bassi, Erlendur Svavarss., trommur. Færeyska landsstjórnin talin hiynnt umsókn Flugfélags Islands Færeyska landsstjórnin er talin | Er þetta haft eftir færeyska blað mjög hlynnt bví að Flugfélag ís-j inu Tingakrossu, sem er handgeng lands fái lendingarleyfi á Færeyj- um tvo daga vikulega, eins og FÍ hefur óskaö eftir. iö landsstjórninni. ,Faroe Alrways' hefur einnig sótt um lendingaleyfi og mun landsstjóm Færeyja telja eðlilegt að umsókn þess verði einn- ig samþykkt. Mun það vera álit hennar að ekki sé ástæöa til að I leggja hömlur á samkepnni þess- ara tveggja flugfélaga, enda mun hún vera mjög andvíg því aö Flug- félagi i Jands veröi bolaö út úr Færeyjaflugi. Það var Flugfélag íslands, sem hóf Færeyiaflug að undirlagi Fær- eyinga árið 1962. Síðan tóku smá- flugfélög að sækja inn í Færeyja- flug, en hættu því fljótlega. Flug- félag íslands hefur hingað til flog- Valtýr Bjamason yfirlæknir tekur blóð af Geir Hallgrímssyni borgarstjóra í fundarherbergi borgar- ráös, en borgarstjórinn varö fyrstur til að gefa blóð til Blóðbankans eftSr að blóðsöfnunarbíll RKÍ var tekinn i notkun í gær. Bjurgií lífí — Ráðamenn Reykjav'ikur fyrstir til oð gefa blóð i söfnunarherferð Blóðbankans og Rauða kross Islands. Blóðsófnunarbill tekinn i notkun i gær Árleg útbreiðsluvika Rauða kross íslands hófst i gær, en að þessu sinni er vikan helguð blóðsöfnun. „Bjargið IfFi — gef- ið blóð“ eru einkurmarorð v!k- unnar. Blóðsöfnunarbíll RKI var tekinn opinberlega í notkun, en fyrstur til að gefa blóð var borg- arstjórinn í Reykjavík, Geir Hallgrímsson, borgarráð, borg- arritari og þeir þrír aðilar, sem oftast hafa gefið blóð síðan Blóð banldnn var stofnaður 1953. Blóðbankinn tók nýja skil- Framh. á bls 10 ið einu sinni í viku á Fokker Friendship flugleiðina island, Fær- eyjar, Glasgow — Færeyjar, ís- land. Nú hefur Flugfélagiö óskað eftir að fá að lenda tvo daga í viku á Færeyjum. Búizt er við því að ' flugfarþegum til Færeyja geti fjölgað mjög í sumar, ef til vill allt að 13 þúsundum í samanburði viö 7 þúsund á sl. ári. Flugfélag I'slands mun fyrir sitt leyti ekkert hafa á móti því að fljúga til Færeyja þótt annað flug- félag fái einnig sömu réttindi. Færeyingar telia danska aðila yf- irleitt hafa verið mjög áhugalitla um flugsamgöngur við Færeyjar. Lokaákvörðun verður tekin af dönskum yfirvöldum. Iðnaðarmannafélagið í Reykjavík 100 ára á morgun Á morgun eru liðin 100 ár frá stofnun Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík. Afmælisins hefur þeg- ar verið minnzt með sýningu, sem stendur yfir í Iðnskólanum, en af- mælisfagnaðurinn verður annað kvöld að Hótel Sögu. Stjóm Iðnaðarmannafélagsins mun á morgun ganga á fund borgar Framh. á bls 10 Danir leggja til að Færeyingar fái fulltrúa i Norðurlandaráð Forsetar Norðurlandaráös koma saman til íundar £ Osló á morgun og verður þá tekin fyrir stjórnar- tillaga frá Dönum um að Færey- ingar fá; fulltrúa i Norðurlandaráð. í dönsku tillögunni er gert ráð fyrir að færeyska lögþingiö kjósi tvo fulltrúa og landsstjórnin tvo fulltrúa til setu í Norðurlandaráði meö sömu réttindum og fulltrúar annarra landa hafa. Gert er ráð fyrir að löggjafar- þing þeirra landa, sem aöild eiga nú að Norðurlandaráöi, taki inn- göngu Færeyja til meðferðar að ósk forsetafundarins. Vegna inn- göngu Færeyinga þarf að gera breytingar á reglum um Norður- landaráð og veröa löggjafarþingin að samþykkja þær hvert í sínu lagi Efnahagsmálanefnd Norðurlanda ráðs er að liúka fundum sinum i Helsingfors, en þar hefur hún m.a verið að ræða afstöðu Norðurland a/.na 1 Kennedyviðræðunum í Gen' Menntamálanefnd Norðurlanda ráös kemur saman 5.-6. febrúai nk., félagsmálanefnd og samgöngu málanefnd hafa nýlokið fundum en laganefnd kemur saman 8.-9 þ. m. Noröurlandaráö kemur saman 1. apríl í Finnlandi.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.