Vísir - 18.02.1967, Blaðsíða 1
VISIR
57. árg. - Laugardagur 18. febrúar 1967. - 42. tbl.
HEFILBEKKUR
í HRAKNINGI
Fyrir nokkru barst lögregl- sakaði hinn dulart'ulla kassa,
unni vitneskja um það, að
heljarstór kassi stæði fyrir utan
blokk eina í Hlíðunum og fynd-
ist enginn eigandinn að honum.
Lögreglan fór á stúfana og rann
sem reyndist þá vera hefilbekk-
ur, hinn mesti forlátagripur.
Kassinn hafði staðið fyrir utan
blokkina í 3 daga og enginn
Framh. á bls. 10
Unnið er af krafti við hið nýja hús Tollstjóraembættisins við Tryggvagótu. Fyrir nokkru var fyrsta skoflu
stungan tekin, en nú hefur verið lokið við að grafa fyrir grunni hússins og i gær, þegar fréttaljós-
myndari átti leið um var búið að steypa botnplötu hússins, eins og sjá má á myndinni (Ljósm. Vísis B.G.).
Frá framkvæmdum við Búrfell.
Félag ísl. iðnrekenda ítrekar íyrri ályktanir um veiöarfæraiönaö
Áróður gegn innlendum veiðurfæru■
iðnuði ber vott um þekkingurskort
Stjórn Félags ísl. iðnrekenda
hefur sent frá sér yfirlýsingu
þess efnis, að ■' þeim umræðum,
sem hafa farið fram undanfarið
um ísienzkan veiðarfæraiðnað,
beri mlkið á þekkingarskorti á
raunverulegum vandamálum
þessarar iðngreinar. — í því
sambandi vekur stjórnin athygli
á áliti nefndar, sem iðnaöar-
málaráðherra skipaði í septem-
ber 1964, til að kanna hvort
ekki væri tímabært, að íslenzk
um vciðarfæraiðnaði yrðu bú-
in sömu kjör og öðrum ís-
lenzkum iðnaði og hliðstæðum
erlendum iðnaði. Nefndina skip
uðu fulltrúar eftirtalinna aðila:
Landssambands ísl. útvegs-
manna, Fiskifélags íslands,
Iðnaðarmálastofnunar íslands
og Félags ísl. iðnrekenda.
Nefndin komst að þeirri niður
stöðu af samanburði á starfs-
kjörum erlends op innlends
veiöarlæraiðnaðar, að veiðar-
færaiðnaður væri verr settur
hér en sams konar iðnaður er-
lendis. Gilti einu, hvert litið var
til samanburðar, „íslenzkur
veiðarfæraiðnaður er og hefur
verig algjör hornreka í atvinnu-
Iífi þjóðarinnar", eins og segir
í áliti nefndarinnar. Afleiðing-
arnar hafa komið berlega í ljós.
M. a. voru um tíma starfandi
4 fyrirtæki að gerð veiðarfæra,
sem lögðu um skeið skerf til
þjóðarbúsins. ,sem torvelt var
að meta til fjár. Aðeins eitt
þessara fyrirtækia befur haldið
velli.
Nefndin komst að þeirri nið
urstöðu, að sterk rök hnigju
að þvi að hér mætti reka sam-
keppnisfæran veiðarfæralðnað:
1. Markaður er stór.
2. Vélbúnaður getur verið sá
sami og hjá sams konar fyrir-
tækjum erlendis.
3. Verð á hráefnum getur ver-
ið svipað eða hið sama.
4. Ytri aðstæöur eru hér all-
góðar, m. a. með tilliti til fag-
lærðs fólks vélaverkstæða til
viðgerða o. fl.
Til að jafna metin og leiðrétta
áralangt misrétti lagði nefndin
til, að fyrirtækjum þeim, sem
Framh. á bls. 10
Fimm menn vinna við
aö endurskoða bókhald
Friöriks Jörgensens
Dómrannsókn i máli útflutn- j
ingsverzlunar Friðriks Jörgen-
sen hefur legið niðri nú um j
nokkurn tima, þar sem beðiö,
er eftir niðurstöðum úr endur-
skoðun á bókhaldi fyrirtækisins. i
Ragnar Ólafsson endurskoðandi *
og hæstaréttarlögmaður hefur j
endurskoðunina með höndumJ
en eins og stendur vinna 5 starfs |
menn hans við endurskoðunina.
— Þegar endurskoðun bókhalds j
ins er lokið veröur haldið áfram ,
með dómrannsókn á malínu, |
að því er Ólafur Þorlákssonj
tjáði Vísi í gær.
Endurskoðunin er aðallegal
framkvæmd með tilliti til við-*
skipta fyrirtækisins við fram-
leiðendur sjávarafurða. Jafn- ]
framt verður gerð rannsókn á(
gjaldeyrisviðskiptum fyrirtæk-
isins, vegna gruns um misferli.j
Það var Útvegsbankinn, semj
Framh. á bls. 10
Brú á Tungnaá í sumar
Þyrla Landhelgisgæzlunnar flaug
í gær með Pál Flygenring verk-
fræðing og tvo menn frá Vega-
málaskrifstofunni yfir Tungnaár-
svæðinu í blíðskaparveðri. Var
ferðin farin til þess að athuga brú-
arstæði á Tungnaá, ef til virkjunar
gerðar kæmi við Tungnaá. Er ætl-
unin að þessi brú verði notuð,
þegar fiutningar á rannsóknartæk.i
uni fara fram, og má vænta þess
að brúarsmíðin hefjist jafnvel í
sumar. Myndi brúin verða full-
gerð 45 — 50 metrar á lengd. Stað
setning hennar verður rétt fyrir
neðan Sigöldufossa í Tungnaá, sem
er nokkru neðar Tungnárkröks.
Undanfarin sumur hafa unnið
við Tungnaá flokkar undir stjóm
Hauks Tómassonar jarðfræðings
hjá Raforkumálaskrifstofunni, • viö
rannsóknir. Hafa þess vegna ver-
ið lagðir bráðabirgðavegir upp að
Hrauneyjarfossi sem er nokkru
neðar en Sigöldufossar.
Tókst ferðin í gær með ágætum
að sögn Páls og var í þeim leið-
angri unnin mæling brúarstæðis-
ins, sem hefði tekið fjóra daga
hefði notkun þyrlu Laldhelgisgæzl
unnar ekki komið til.
Búrfell:
Tveggju mónuðu seinkun
„Vongóðir um aö vinna upp töfina“, segir Páll
Flygenring, verkfræöingur hjá Landsvirkjun
Byrjað er nú á hverju mannvirk-
inu á fætur öðru við Búrfell, en
þar unnu um sl. ínánaðamót 300
manns. Eru framkvæmdir þó tveim
mánuðum á eftir áætlun og komu
þær tafir fljótlega eftir að fram-
kvæmdir hófust, „en hafa síður en
svo aukizt“ á undanförnum mán-
uöum eftir þv: sem Páll Flygenring
verkfræðingur hjá Landsvirkjun
tjáöi blaöinu í gær. Sagðist Páll
ennfremur vera vongóður um að
hægt sé að vinna þær tafir upp i
sumar.
Þær mannvirkjagerðir, sem mest
eru á döfmni núna við Búrfell, eru
bráðabirgðastífla í Þjórsá sem ný-
byrjað er á, en þessi bráðabirgðá
stifla er rétt fyrir ofan stíflustæð-
ið í Þjórsá. Lokið er að mestu við,
byggingu mulnihgs- og steypu-
stöðvar og nýlokið er háspennu-
línu 11 volta, sem lögð var frá að-
alrafstöðinni að stíflustæðinu við
Þjórsá. Núna er samtals búið að
grafa um 350 þúsund rúmmetra af
jarðvegi og sprengja um 112 rúm-
metra af klöpp fyrir stöðvarhúsinu
og búið er að sprengja um það bil
100 metra fyrir aðalgöngunum, en
hjálpargöngum er lokið. Einnig er
byrjað að grafa út veituskurð uppi
við Þjórsá. Þá eru framkvæmdir
hafnar við að hreinsa til fyrir einni
iarðstíflunni, Bjarnarlónsstíflú, sem
á að koma frá veitumannvirkjun-
um að Búrfelli. Húsum fyrir eftir-
lltsverkfræðinaa er að mestu lokið.