Vísir - 18.02.1967, Page 10
w
V í SIR . Laugardagur 18. febrúar 1967.
DAUÐASLYS UM
BORÐ í JÚPITER
Það sorglega slys vildi til um
7-leytið í gærmorgun að 2. vélstjóri
á togaranum Júpíter lenti í tann-
hjóli á skrúfuöxli fyrir áftan vél
togarans og lézt hann þegar. Ekk-
ert vitni var að slysinu, en félag-
ar hins látna manns komu fljót-
lega á vettvang.
Var togaranum þegar siglt til
Patreksfjarðar, en hann var stadd-
ur 45 sjómílur VNV af Látrabjargi,
þegar slysið varð. Kom hann til
hafnar um kl. 2 í gærdag og hófust
sjópróf þegar eftir komuna. Jó-
hannes Arason, fulltrúi sýslu-
manns stjómaði sjóprófum, sem
iauk um kl. 19 í gærkvöldi.
Ekkert er vitaö um orsakir slyss
þessa, þar eð engin vitni voru aö
atburðinum. Nafn hins látna verð-
ur ekki birt að svo stöddu, þar eð
ekki var búið að tilkvnna öllum
ættingjum hins látna um hinn
voveiflega atburð.
Forsetinn sæntdur
heiðursdoktors-
nafnbót
Edinborg, 17. febrúar.
Blöð, útvarp og sjónvarp í Skot-
landi hafa birt fréttir og myndir
vegna væntanlegrar veitingar
heiðursdoktorsnafnbótar Edinborg-
arháskóla til forseta íslands.
1 kvöld verður forsetinn gestur
Michael Swann, aðalrektors há-
skólans.
Athöfnin á morgun fer fram í
Old College, sem er elzta bygging
háskólans, hátt á þriðja hundrað
ára gömul og í hátíðasal byggingar-
innar, fer athöfnin fram kl. 10.30
að íslenzkum tíma. Viðstaddir
verða prófessorar og háskólaráð.
Sögur —
Framh. af bls. 16
þar margt forvitnilegt fram, t.d.
um tæknihlið bókagerðar að fornu
og um sögu Skarðsbókar. í bók-
ina var valið efni það, sem
skemmtilegast er aflestrar, einnig
stílfagrir kaflar og nokkrir kaflar,
sem gefa hugmynd um trúfræði og
hugmyndaheim þeirra manna, sem
sögurnar sömdu. Textinn er með
nútímastafsetningu.
Þá hefur AB gefið út tíundu
bókina í Alfræðasafninu. Er það
„Vöxtur og þroski“ í þýðingu Bald-
urs Johnsen læknis. Einnig „Kor-
mákskver“, sem er gjafabók AB til
þeirra félagsmanna, sem kaupa sex
bækur eða fleiri á ári.
' Fundur hjú
Fíateigendum
Félag Fiateigenda heldur fé-
lagsfund í dag, laugardaginn 18.
febrúar, kl. 13.30 í Domus Medica,
Egilsgötu 3, og eru allir Fiateig-
endur velkomnjr á þennan fund,
hvort sem þeir eiga eldri eða yngri
árgerðir af Fiat.
Stjóm Fiateigendafélagsins vill
hvetja alla Fiateigendur til að
ganga í félagið, einu skilyrðin fyr-
ir inngöngu eru, að viðkomandi sé
í Félagi íslenzkra bifreiðaeigenda
eða gangi í þau samtök.
Ekki Alþýðu-
flokkurinn
Það slæddist 1 fyrirsögn í fyrra-
dag að átök ættu sér stað meðal
Alþýðuflokksmanna í Vestfjarða-
kjördæmi. Þetta er vitanlega al-
rangt, eins og fram kemur við
lestur fréttarinnar.
Leiðréttist þetta hér með.
Stef úr... —
Framh. af bls. 16
arar, gerir Gísli sér efnivið úr
landslaginu, enda segir hann
sjálfur, að allar myndimar á
sýningunni séu stef úr lands-
lagi. Sumt er sótt í fjörur, ann-
að I fjöll og víðlendi heiðanna,
urð og grjót og snjór. Kveikjan
að þessum verkum er oftast
einhvers staðar í hrjúfu lands-
lagi Reykjanesskagans, sumt er
frá Kleifarvatni, Krýsuvíkur-
bjargi og austan úr Selvogi.
Þetta eru talsvert mikið stílfærð
ar myndir, sumar nærri því að
vera abstrakt eins og t. d.
„Málverk um holklaka og hrím“
sem prentað er í fullum litum
á sýningarskrána.
Sýning Gísla verður opin dag
lega frá kl. 2—10, til 26. febr.
Ófaglærðir —
Framh. af bls. 16
þau efni, sem notuð eru í kjöt-
iðnaöi.
Getur verið um
Iífshættu að ræða?
I áðurnefndri tilkynningu segir
Afhyglisverð þjónusfa
Höfum úrval af vinsælum gjöfum, málverk
(afborguriarkjör), málverkaeftirprentanir,
gamlar bækur og antikvörur. Vöruskipti.
Framkvæmum vandaða innrömmun.
Málverkasalan Týsg’ótu 3
Sími 17602.
að mörg efni sem í kjötiðnaði eru
notuð, geti verið lífshættuleg ef
óvariega er með þau farið, eða af
þekkingarleysi.
Félag íslenzkra kjötiðnaðar-
manna var stofnað 5. febrúar áriö
1947 og varð því 20 ára þann 5.
febrúar sl.
Aðalhvatamaðurinn að stofnun
félagsins og fyrsti formaður þess
var Sigurður H. Ólafsson, en stofn-
endur voru 17, víðsvegar að af
landinu. Meðal fyrstu verkefna fé-
lagsins var að fá kjötiðnað lögfest-
an sem iðn.
í tilefni af afmælinu mun félag-
ið gefa út myndarlegt afmælisrit
og minnast þessara tímamóta með
hófi í Blómasalnum í Hótel Loft-
leiðum í kvöld. Núverandi formað-
ur 'félagsins er Amór Einarsson.
Skógrækfin —
Framhald af bls. 16.
lands, en girðingar skógræktarfé-
laganna eru 324 kílómetrar og
girða 5300 hektara. Reiknað er meö
að Skógrækt ríkisins þurfi að end-
urnýja girðingar sínar, sem svarar
27 km á ári og fer til þess um
1,3 milljónir króna og er þá van-
talið viðhald girðinga hinna ýmsu
félaga, sem skortir mjög fé til þess
arna.
Nytjar af íslenzkum skógum eru
næsta litlar, enn sem komið er.
Þó voru á síðasta ári seldir 4.500
girðingastaurar, sem er öllú minna
en undanfarið og 95 tonn af reyk-
ingar og eldiviði. Nokkur jólatré
voru seld á síðasta ári úr Hallorms
staðaskógi, en skógræktarmenn
töldu að ekki liði á löngu, þar til
Skógræktin ætti með hægu móti
að geta séð landinu fyrir jólatrjám.
Heildarútgjöld Skógræktar ríkis-
ins á síðasta ári námu um 11 millj-
ónum króna, en framlag hins opin
bera til hennar nemur 8 milljónum
króna.
Skógræktinni hafa borizt ýmsar
gjafir að undanförnu meðal annars
kvikmynd frá Danmörku, sem hing
að kemur til sýninga á næstunni.
Framkvæmdabankinn hefur einnig
gefið upphæð, sem verja á til þess
aö gera kvikmynd af íslenzkum
skógum. Loks er að geta hins ár-
lega framlags Braathens hins
norska til skógræktar, en fyrir
framlag hans hefur verið ræktað
allmikið svæði i Skorradal í Borg
arfirði.
Hefilbekkur —
Framh. af bls. 1
íbúanna viljað kannast við hann.
Datt þá mönnum það í hug, að
hér kynni nú einhver þjófurinn
að hafa ginið yfir meiru en hann
hefði svo ráðið við. En við nán-
ari rannsókn málsins kom í ljós,
að svo var ekki, heldur var hér
um að ræða sendingu, sem hafði
farið húsavillt. Réttur viðtak-
andi kassans bjó ofar i götunni,
og beið þar rólegur kassans,
þekkjandi venjulegt seinlæti
mörlandans.
Áröður
Öllum þeim mörgu, sem minntust mín á áttræðisafmæli mínu
þann 9. þessa mánaöar með skeytum, blómum og dýrum
og veglegum gjöfum, votta ég innilegast þakklæti mitt.
Jónas Rafnar
Framh. af bls. 1
störfuðu að framleiðslu veiöar-
færa og efnis til þeirra, yrði
greitt nokkurt framlag, er hjálp
aði þeim til að laga sig að
breyttum framleiðsluaðferðum
og breyttri eftirspurn veiðar-
færa.
Hannes Pálsson forstjóri
Hampiðjunnar, hefur einnig
sent frá sér greinargerð, þar
sem skýrt er frá niðurstöðum
athugana Rannsóknarstofnunar
iðnaðarins á efnisstyrkleika á
innfluttum portúgölskum köðl-
um og garni annars vegar, en
hins vegar á sömu vörum
framleiddum hérlendis. Segir í
greinargerðinni, að vörur Hamp
iðjunnar hiafi í öllum tilfellum
haft meira slitþol, hærra eðlis-
slitþol á kíló efnis og minni
tognun en hinar portúgölsku
vörur, sem teknar höfðu ver-
ið til samanburðar. 4 Hinn
mikli áróður þeirra hags-
muna, sem vilja gera hlut inn-
lends veiðarfæraiðnaðar sem
minnstan, hefur náð hámarki í
ódrengilegum málflutningi og
rógi um léleg gæði á framleiðslu
vörum Hampiðjunnar, segir
Hannes Pálsson í greinargerð
sinni.
Fimm menn —
Framh. af bis. 1
óskaði dómrannsóknar á við-
skiptum fyrirtækisins. — Ekki
hefur verið óskað eftir dóm-
rannsókn á innflutningsverzlun
Friðriks Jörgensen h.f. og vifF
skipti þess fyrirtækis hafa þess
vegna ekki verið tekin til rann-
sóknar. — Fyrirtækin tvö eru
rekin sem tvö sjálfstæð fyrir-
tæki og ekki sömu eigendurnir
að báðum fyrirtækjunum, nema
að einhverju leyti, sagöi Ólafur
Þorláksson. Þess vegna er ekki
ástæða til á þessu stigi málsins
að rannsaka viðskipti innflutn-
ingsfyrirtækisins, en það verður
ef til vill gert seinna, ef ástæða
þykir til.
BíLAKAUP^r
I9f
™ Vel með farnir bílar til sölu
og sýnis í bílageymslu okkar .
að Laugavegi 105. Tækifæri
til að gera góð bílakaup.. —
Hagstæð greiðslukjör. —
Bílaskipti koma til greina.
BORGIN
Land Rover 1965
Mercedes Benz 220 S
Opel Capitan 1959 og '60
og ’65
Commer sendibílar 1964
Zepyr 1955 og ’66
Cortina 1964
Opel Rekord 1958 og ’62.
Commer 1963.
Skoda station 1965
Taunus 17 M station
1959 og '63
Willys jeppi 1955
Anglia sendibíll 1964
Mercedes Benz 190
1960
Simca Ariane 1963
Bronco klæddur 1966.
Tökum góða bíla í umboðssöluj
Höfum rúmgott sýningarsvæði
innanhúss. ,
mí'/Vfm umboðið
SVEINN EGILSSON H.F
LAUGAVEG 105 SIMI 22466
FÉIAGSLÍF
K.F.U.M.
Á morgun:
Kl. 10.30 f.h.
Sunnudagaskólinn Amtmanns-
stíg. Drengjadeildin Langagerði.
Barnasamkoma Auöbrekku 50
Kópavogi.
Kl. 10.45 f. h.
Drengjadeildin Kirkjuteigi 33.
Kl. 1.30 e. h.
Drengjadeildirnar (Y.D. og V.D.)
Amtmannsstíg og Holtaveg.
Kl. 8.30 e. h.
Almenn samkoma i húsi félags-
ins við Amtmannsstíg. Nokkrir
starfsmenn úr unglingadeildum
taia. U.D. piltar syngja.
Allir velkomnir.
BELLA
í rauninni er ég steinhætt að
reykja. Þetta er sígarettan, sem
ég ætia fyrst að reykja í næstu
viku.
FUNDIR í DAG
Bakkfir^ingar í Reykjavík og
nágrenni. Skemmtifundur veröur
haldinn í minni salnum í Skáta-
heimilinu í dag kl. 8.30. Takið
með ykkur gesti. — Stjórnin.
VISIR
50
Jyrir
árum
TAPAST HEFUR
frá húsi Jónatans Þorsteinssonar
EIRPÍPA með vír í gegnum og
typpi á endanum. Finnandi er vin
samlega beðinn að skila þvi gegn
borgun til
S. S.
Laugaveg 31.
18. febr. 1917.
LÆKNAÞJDNUSTA
Slysavarðstofan í Heilsuvernd
arstöðinni. Opin allan sólar
hringinn — aðeins móttaka slas
aðra — Sími 21230
Upplýsingar um læknaþjónusti,
1 borginni gefnar I símsvara
Læknafélags Reykjavfkur Slm
inn er: 18888
Næturvarzla apótekanna í Reykia
vík, Kópavogi og Hafnarfirðt ei
að Stórholti 1 Sími- 23245
Kvöld- og næturvarzla apótek
anna í Reykjavfk 18.—25. febr.
Laugavegs Apótek — Holts Apó-
tek.
Kópavogsapótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, Iaugardaga
kl. 9—14. nelgidaga kl. 13—15
Helgarvarzla í Hafnarfirði laug-
ardag til mánudagsmorguns:
Kristján Jóhannesson, Smyrlahr.
18, sími 50056.
Ráðgjafa- og upplýsingaþjón-
usta Geðverndarfélags íslands.
Skrifstofa. að Veltusundi 3, sími
12139. Viðtalstímj Fél.ráðgjafa
mánud. kl. 4 — 6. Almenn skrif-
stofa á sama stað. Opin alla daga
nema Iaugard. frá kl. 2 — 3.