Vísir - 14.03.1967, Blaðsíða 3
V í SIR. Þriðjudagur 14. marz 1967.
3
MARZFERÐ
í ÞÓRSMÖRK
✓
MYNDATEXTAR:
j
1. mynd: Skáli Ferðafélags íslands í Þórsmörk er myndarlegt hús,
eins og sjá má á meöfylgjandi mynd.
2. mynd; Séð inneftir Þórsmörk frá skálanum.
*
\
3. mynd: Einn skátinn tók að sér að kanna vaö á Markarfljóti og
hér sjáum við hann koma úr könnunarferðinni og stökkva á mllli
skara eins og Skarphéðinn gerði forðum.
4. mynd: „Kirkjan“ svokallaða er tignarlegt fjall andspænis Herða-
félagsskálanum handan við Markarfljót. (Myndimar tók Jóhannes
Borgfjörð Birgisson).
Um sl. helgi fóru 33 skátar á langferðabifreið inn á Þórsmörk.
Sumir mundu ætla að slík ferð væri aldeilis fráleit á þessum tíma
árs og fífldirfska að leggja í slikt ferðaiag um hávetur. En ferða-
langamir urðu ekki fyrir teljandi óhöppum á leiðinni og komust
klakklaust aftur til Reykjavikur klukkan 5.30 á mánudagsmorg-
un. Þelr gistu f sæluhúsi Ferðafélags íslands í Mörkinni. Þó ótrú-
legt megi virðast uröu helztu farartálmamir í nágrenni Selfoss, en
þar vom nokkur snjóþyngsli, en færðin inn á Þórsmörk var aft-
ur á móti meö ágætum.