Vísir - 14.03.1967, Síða 10
10
VI S IR . Þriðjudagur 14. marz 1967.
Sandnám —
Framh. af bls. 9
—r I Dalasýslu er skorturinn
mjög mikill. Bergið á því svæði
er mjög gamalt og fúið, ef svo
mætti segja, og hefur þar af
leiðandi mjög lítið veðrunarþol
til bygginga. Einstaka staðir
hafa ekki byggingarefni í ná-
grenninu og getum við tekið
Siglufjörð og Ólafsfjörð sem
dæmi. Mestallt byggingarefni
verða Siglfirðingar að sækja yfir
„Skaröið“, yfir i Haganesvík, en
það segir sig sjálft að það hefur
mikinn aukakostnað í för með
sér. Á Seyðisfirði og víða á
Austfjörðum er þetta einnig mik
ið vandamál, en íbúar Seyðis-
fjarðar verða að sækja mestallt
byggingarefnig yfir Fjarðarheiði
og alla leið upp á Hérað, norður
i Hjaltastaðaþinghá. Þar er aftur
á móti gnægð byggingarefnis og
afbragðsgóð náma,
— Nú er farið að dæla steypu
efninu upp úr sjónum ?
— Það er orðin mikil þörf á
að gera athuganir á því sviði,
sérstakiega fyrir þá staöi sem
eiga erfitt með að nálgast efni á
kmdi, til dæmis áðurnefnda
kaupstaöi. Það verður að gera
skipulega leit að efni á hafs-
botni, efni sem má nota beint
til steypugerðar og koma fyrir
birgðum af hráefni við hina efn-
issnauðu byggðakjama sem að
sjó liggja.
— Þó að þú hafir ekki fundið
gull við þessar rannsóknir Sverr
ir, þá hefur máske eitthvað ó-
vænt fundizt í námunum ?
— Venjulega sér maður fljót-
lega hverskonar efni er undir
þeim svæðum sem maður rann-
sakar. Ef eitthvað óvænt hefur
komið fyrir þá er það helzt að
maður hafi dottið niður á gott
steypuefni i mel þar sem maður
hélt að hefði ekki slíkt að geyma
Það hefur komið fyrir nokkrum
sinnum, Einnig hefur það komið
fyrir að fundizt hefur náma í j
byggðarlagi sem álitið var laust
viö slík gæði, en slíkur fundur
er að sjálfsögðu gleöiefni og hef-
ur í för með sér mikinn sparnað
fyrir viðkomandi byggðarlag.
Einnig kemur það fyrir að hið
sýrublandna yfirborð er þynnra
en ráð var fyrir gert, en það er
til mikilla þæginda þegar farið
er aö vinna í námunni.
— Hvaö um efni til olíumalar-
gerðar ? r . |
— Rannsóknir okkar ættu aö
koma í góöar þarfir í sambandi
við olíumölina, en við getum
að vissu marki gefið þeim kaup-
stöðum sem áhuga hafa á olíu-
möl upplýsingar um nærtækasta
efni til hennar Nú eru ýmis
bæjarfélög að taka sig saman
um olfumalarlagriingu og veitum
við þeim að sjálfsögðu yfirlits-
upplýsingar um efnin sem næst
eru, viðloðunarhæfileika þeirra
og styrkleika. Við höfum safnað
sýnishornum á hverjum stað, og
eigum að geta svarað fljótt og
vel hvernig ástandið sé með til-
liti til þessara jarðseta og yfir-
leitt aö gefa allar þær upplýs-
ingar, sem nauðsynlegar eru.
Við þökkum Sverri Scheving
jarðfræðingi fyrir fróðlegt við-
tal og óskum honum alls vel-
farnaðar í hans þýðingarmikla
starfi. r.
M^TniM
K.F.U.K.
Aðalfundur félagsins verður hald
inn f kvöld kl. 20.30. Venjuleg
aðalfundarstörf. Stjómin.
TILBOÐ
óskast í eftirtaldar bifreiðir, sem verða til
sýnis fimmtudaginn 16. marz kl. 1-4 í porti
bak við skrifstofu vora Borgartúni 7:
Árgerð
Volvo fólksbifreið 1963
Willys jeppi 1964
Willys jeppi, lengri gerð 1956
Austin Gipsy diesel 1962
Austin Gipsy 1963
Volkswagen 1200 fólksbifreið 1964
Volkswagen 1200 fólksbifreið 1962
Volkswagen 1200 fólksbifreið 1962
Volkswagen sendiferðabifreið 1962
Ford Taunus sendiferðabifreið 1962
Chevrolet 20 manna fólksbifreið 1955
Ford 14 manna fólks/vörubifreið 1951
Chevrolet sendiferðabifreið 1955
Chevrolet vörubifreið 4x4 1942
Dodge Weapon 1951
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Borg
artúni 7, sama dag kl. 5 e.h. að viðstöddum
bjóðendum.
Réttur áskilinn til að hafna tilboðum, sem
ekki teljast viðunandi.
BÚRGARTÚNI 7 SÍMI 10140
Hornfirðingar —
Framh. af bls. f
firði, en kaupfél. leggur til 40% af
hlutafénu á móti 60 frá sjómönnum
og útvegsm. Sagði hann, að hug-
myndin heföi verið að byggja þessa
verksmiðju til þess að nýta nálæg
síldarmið og loðnumiðin, sem væru
mjög auðug hluta úr vetri.
Sagði hann, að nú stæði á fyrir-
greiðslu frá Landsbankanum, sem
gefið hefði vilyrði fyrir lánveit-
ingu á þessu ári, en félagið heföi
hins vegar fengið neikvæð svör
frá bankanum nú í febrúar. hvað
svo sem yrði.
Ásgrímur sagöi, að áætlaður
kostnaður við byggiriguna næmi 15
—17 milljónum.
Kaupfélagið á Hornafirði á litla
fiskimjölsverksmiðju og sagði Ás-
grímur, að á henni þyrfti að gera
endurbætur, ef hún ætti að geta
brætt allan fiskúrgang frá fisk-
vinnslu á staönum, en hún væri
ekki útbúin til þess að bræða síld
né loðnu.
Útflutningur —
Framh. af bls. 1
Nokkrar sölur hafa farið fram
héðan á síldarlýsi og loðnulýsi
undanfariö. Þannig voru seld
um 900 tonn af síldarlýsi í sl.
viku á £53 tonnið og um 800
tonn af loðnulýsi á £52 tonnið.
— Má geta þess í þessu sam-
bandi, aö á sama tíma f fyrra
var lýsistonnið selt á um £80.
tonnið.
Einu markaðsvörurnar sem
sæmilegt útlit er fyTir er salt-
fiskur og skreið, en þessar vöru-
tegundir gegna ekki jafnmikil-
vægu hlutverki f útflutnings-
verzluninni.
Ávísanafals —
Framh. aí 1. bls.
útgáfu innistæðulausra ávísana.
Má í því sambandi t. d. minna
á, að í síðustu skyndikönnun
Seðlabankans fundust innstæðu
lausar ávísanir að samanlagðri
upphæð rúmlega þremur millj-
ónum króna.
Reglurnar, sem hafa gilt, eru
margar og flóknar. sem yrði of
langt mál að telja upp hér, en
í þeim er m. a. kveðið á um,
að loka skuli ávísunarreikningi
í öllum bönkum fyrir þeim, sem
uppvísir verða að endurteknu
ávísunarmisferli. Viðkomandi
banki, sem brotið er á, tilkynn-
ir um það til Seðlabankans, sem
tilkynnir það síðan til annarra
banka. Kemur það í veg fyrir,
að viðkomandi menn geti opn-
að reikning í öðrum bönkum.
Árið 1964 var samvinna bank
anna varðandi innheimtu ávís-
ana aukin og hefur Seðlabank-
inn síðan haft með alla tékka-
innheimtu að gera. Tekur hann
10—11% í innheimtugjald auk
vaxta.
Var t.d. ófær't sums staðar í Hlíö-
unum, ófært var suður í Skerja-
fjörð og á mótum Suðurlandsbraut
ar og Reykjavegar urðu miklar
umferðartruflanir vegna snjó-
skafla. Var búið að ryðja götur
og orðiö fært alls staöar þegar á
morguninn leið. Urðu allmargir á-
rekstrar í morgun að sögn umferð
arlögreglunnar, enda eru mikil
brögð að því að bílstjórar búi bíla
sína engan veginn nægilega vel til
að mæta snjónum og hálkunni.
Einnig er mikið um aö menn þurrki
ekki snjó af bílrúðum og beinir um-
ferðarlögreglan þeim tilmælum til
ökumanna að þeir hreinsi snjóinn
af öllum rúðum og búi bíla sína
að öðru leyti betur til aksturs í
snjó og hálku.
Glimuskórnér
Frá Glimusambandd Islands.
Eftirfarandi tillaga var samþykkt
á fundi Glímusambands Islands 9.
marz s.l.:
„Þar sem nú eru fáanlegir glímu
skór, sem fullnægja skilyröum 3.
gr. reglugerðar um búnað glímu-
manna, sem tók gildi 1. janúar
1966, skal heimild sú, sem veitt er
í 1. tölulið ákvæðis til bráðabirgða
f reglugerðinni hér með úr gildi
felld“.
SINFÓNlU'HLJÓM'SVEIT
ÍSLANDS
Skólatónleikar
D-flokkur (framhaldsskólar)
miðvikudaginn 15. marz kl.
14,00. Aðgöngumiðar við inn-
ganginn.
E-flokkur (bamaskólar) fimmtu-
daginn 16. marz kl. 10.30
og kl. 14,30 og föstudaginn
17. marz kl. 14,30.
LAÚGAVEGI 90-02
17 manna Benz 1964 nýinn-
fluttur með nýjum mótor. —
Til sýnis og sölu í dag.
Færðin —
Framh. af bls. 1
í morgun og stöðug snjókoma, þann
ig að hætta varð við áformað flug
til þeirra staða.
Vandræðaástand var viða f
Reykjavík og nágrénni í gærkvöldi
og nótt vegna skafrennings og ó-
færðar og í morgun áttu bílstjórar
víða í erfiðleikum vegna skafla.
íbúÓ óskast
3-4 herb. íbúð óskast. Einhver fyrirfram-
greiðsla ef óskað er. Sími 38076.
Áf Fótaaðgerðir
Handsnyrting
if. Augnabrúnalitun
SNYRTISTOFAN ,ÍRIS‘
Skólavöröustig 3 A m. h.
Slmi 10415
SNYRTISTOFA
rÆ
Sími 13645
Bílaval
BELLA
Þótt ég sé sammála þér í þess-
um atriðum, þýðir bað ekki endi-
lega ,að þú hafir rétt fyrir bér.
VEÐRIÐ I DAG
Gengur í hvassa
norðvestan eða
vestan átt með
éljum. Vægt
frost.
FUNDIR I DAG
Bræðrafélag Langholtssóknar
heldur fund í safnaðarheimilinu
í kvöld kl. 8.30. Hannes Hafstein
erindreki segir frá starfi Slysa-
vamafélags íslands og sýnd verð-
ur kvikmyndin „Björgunin við
Látrabjarg". - Stjómin.
Nessókn
Sr. Helgi Tryggvason flytur
bibliuskýringar í félagsheimili
Neskirkju í kvöld kl. 9. Erindið
nefnir hann „Grundvöllur kirkj-
unnar“. Allir velkomnir.
Bræðrafélagið.
SÍMASKÁK
19. Hd8-e8
20. Bg5-d2
Staðan er þá þessi:
Akureyri
Júlíus Bogason
Jón Ingimarsson
fi
■m H
m íis^ i m
i '
Q : ' .. S
Reykjavík
Björn Þorsteinsson
Bragi Björnsson