Vísir - 14.03.1967, Síða 13
V1 SIR . Þriðjudagur 14. marz 1967.
Fulltrúaráð Sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu, þriðjudaginn 14. marz kl. 20.30
Fundarefni: Tillögur kjömefndar um skipán framboðslista fyrir Alþingis-
kosningamar 1967.
Fulltrúar eru minntir á að sýna þarf skírteini við innganginn.
Svetlana —
Framh. af Ms. 8
og síðar milli hans og sonarins,
er hann óx upp. Eitt sinn flutti
hún frá Kreml með bæði bömin
og tók ibúð á leigu í Leningrad,
en kom þó aftur eftir hálfan
mánuð. Á heimilinu var Stalin
aldrei hinn „algeri einræðis-
herra“. í íbúðinni í Kreml hafði
Svetlana herbergi fyrir sig, en
synirnir urðu að sofa á legii-
bekkjum í setustofunni, ef þeir
voru báðir heima.
Sjálfsmorð
í nóvember 1932 voru hjónin
í næturgildi hjá Voroshflov
marskálki. Stalin hafði drukkið
fast og varð ævareiður vegna
þess, að kona hans lét orð falla
um hungursneyðina í sveitun-
um. Jós hann yfir hana svívirð-
ingum, en aðrir gestir hlustuðu
á sem steini lostnir. Loks reis
hún á fætur náföl, gekk út og
heim. — Fannst hún látin í íbúð
sinni klukkan 4 um nóttina.
Opmberlega var tllkynnt, að
hún hefði Iátizt af botnlanga-
bólgu, en „í Kreml efaðist eng-
inn um, að hún heföi stytt
sér aldur, að sumra ætlan skot-
ið byssukúlu í höfuð sér, en
sennilega hefur hún hellt í sig
svefntöflum".
Gift þrisvar
Þegar Stalin lézt 1953 var
Svetlana til kvödd. Til þessa
dags er ýmislegt á huldu varð-
andi fráfall hans, en „vitað er
með vissu, að hann lézt ekki á
þeirri stundu, sem tilkynrit var
að hann hefði látizt". En þótt
Svetlana væri til kvödd fékk
hún ekki næstu 3 daga að sjá
lík föður síns. Og eftir dauða
hans heyrðist ekkert um hana,
en alloft um Vassily, sem var
allhátt í metorðastiganum í flug
hemum, meðan faðir hans lifði,
en síðar var hann lækkaður æ
meira og loks var tilkynnt, fyrir
nokkrum árum að hann væri lát
inn.
Svetlana giftist 1945, en flest
um það hjónaband virðist hjúpi
hulið, en þó mun hún hafa fætt
að minnsta kosti eitt bam í
því. 1 júlí 1951 giftist hún Mihail
Kaganovich, syni Lazars Kag-
anovich, eins af flokksleiðtog-
unum. Stalin var á móti þessu
áformi, því að hann vildi ekki
að Svetlana giftist manni af
Gyðingaættum, en lét þó undan,
og brullaup var haldiö meö
„pomp og prakt“.
Á síðari árum bió hún í við-
hafnarlítilli fbúð skammt frá
Kreml með börnum sínum og
lét jafnan lftið á sér bera. Eina
merki þess, að hún og maður
hennar, Indverjinn Raja
Bræjesh Singh, bjuggu við betri
kjör, vom, að þau höfðu vinnu-
stúlku. — Fáir vestrænir menn
hafa séð hana síðan 1953, en
þeir sem sáu hana þá og fyrr
lýsa henni sem elskulegri konu,
— í einni lýsingu af henni seg-
ir. að hún hefði. frekar litið út
sem frsk en rússnesk,. Hún hélt
eitt sinn fyrirlestra í Moskvu-
háskóla um sovézk sagnaskáld
og sovézkar skáldsögur.
Að sumra ætlan mun hún
vart kunnug stjórnmálalegum
leyndarmálum, og ekki gera upp
skátt um þau, ef hún vissi þau.
I fréttum hefur ekki vantað
tilgátur um sitt af hverju, og
meðal annars rætt um, að ef
hún kjósi að hverfa (þetta var
í vikunni se'm leið þegar talið
var að hún mundi fara til
Bandaríkjanna) gæti hún látið
breyta útliti sínu, eins og marg-
ir höfðu gert með bandarískri
hjálp, og vitanlega komu fram
tilgátur um, að CIA væri með
fingur í spilinu! Daily Express
sagði sem sé, að fréttin um að
hún hefði skipt um flugvélar í
Róm gæti vel verið verk CIA
til þess að leyna hvert hún
hefði farið — meðan hún væri
á leiðinni til Bandaríkjanna, en
þetta voru tilgátur einar — og
til Sviss fór hún en ekki Banda-
ríkjanna. (Stuðst við Norður-
landa- og Lundúnablöð). — a.
Aðalfundur Styrktar-
félags vangefinna
verður haldinn að Dagheimilinu Lyngási á
pálmasunnudag 19. marz kl. 2 e.h. Dagskrá: 1.
Skýrsla stjórnarinnar, 2. Reikningar félags-
ins, 3. Stjórnarkosning, kosnir 2 menn í að-
alstjórn og 2 í varastjórn, 4. Kosning endur-
skoðanda og varamanns hans til 3 ára, 5. Önn
ur mál.
STJÓRNIN
íbúð óskast til leigu
Útlenzk kona óskar eftir að taka íbúð á leigu í
apríl og maí n.k. (má vera 1 herb. og eldhús)
með húsgögnum. Uppl. í síma 24647 í dag og
næstu daga.
Ameríku
Ávallt nýjar og ferskar frá U.S.A.
Reynið Winston strax í dag