Vísir - 16.03.1967, Blaðsíða 2
V í S IR . Fimmtudagur 16. marz 1967.
VIKINGA R UNNU FH 16 :14!
og FH lítur fram til erfiöra daga -
leikir gegn Val og Fram eru eftir
Snarar „vendingar“ urðu
í 1. deildinni í handknatt-
leik í gærkvöldi, þeghr Vík
ingar, öllum á óvart, tóku
tvö stig af FH, liðinu, sem
í miðju móti var álitið ör-
uggur sigurvegari í deild-
inni. í dag eiga FH-ingar
erfiða daga framundan,
leiki gegn Val og Fram. —
Það þarf meira til en þeir
sýndu í gær, ef þeir ætla
að halda ísiandsbikamum.
Leikur FH gegn Víking var með
því litlausasta, sem sézt hefur
lengi til FH-liðsms. Víkingarnir
léku skynsamlega og af varkámi
og örlítil heppni var vitanlega ekki
illa séður gestur hjá liði þeirra.
Þeir komu út sem betri aðilinn f
þessum leik, enda þótt sjá mætti
í gegnum allt saman aö ef allt heföi
verið eðlilegt hefði FH átt aö vera
sterkari aðilinn.
Víkingar tóku forystu þegar í
upphafi, en FH komst yfir í 2:1.
Þá skora Víkingar fjögur mörk í
röö og komast 1 5:2 eftir 12 mín-
útna leik. Eftir 21 mín. voru FH-
ingar nær búnir að jafna í 5:6, en
þá skorar Þórarinn tvö mörk í
röð, en í hálfleik var staðan 9:7
?yrir Víking.
Margir bjuggust við sterkara liði
FH út á völlinn í seinni hálfleik.
Sú von brást, því liðið lék áfram
sömu hálfvelgjuna, óákveðiö og oft
lélegt spil. Víkingar héldu forystu
þar til á 5. mínútu í síöari hálf-
leik. Þá jafnar FH upp úr mis-
heppnuöu vítakasti Víkinga, vörn
er snúið í sókn og Geir skorar fyrir
FH 10:10 úr vítakasti. En Víking-
ar skora næstu 2 mörk, en Birgir
skorar 11:12. Birgir brýtur af sér
og það er dæmt vítakast og Jón
Hjaltalín skorar 13:11. Á 17. mfn.
skorar Geir 12:13 og Páll jafnar
mínútu síðar 13:13. Þegar rúmar
10 mínútur eru eftir ná FH-ingar
ioks forvstunni, en rétt áður hafði
Jón Hjaltalfn brennt af vítakasti
og virtust Víkingunum um það leyti
ailmislagðar hendur. Kristófer kór-
)
Hvernig á nð
skipfa um perur
^ Þaö má benda forráöamönn-
um iþróttahallarinnar ■' Laug-
ardal á það, ef einhverþr for-
ráðamenn eru til, því erfitt er
að finna út hver eöa hverjir
það eru, að lýsingu hallarinnar
er ábótavant í ýmsu. Vantar nú
t.d. þrjá lamna vfir öðru mark-
. inu, sem má heita í myrkri miö-
I að viö aðra staði. Ættu nú verk-
l fræöingar að setjast niður og
hugsa ráö til að skipta um perur
|í ljósastæðum i mannvirkinu.
f Þaö, þó smátt sé, er tals-
Ivert atriðl að hægt sé að fram-
[ kvæma.
I
ónaði allt saman með því að verja
víti rétt á eftir.
Rósmundur iafnar 14:14 oe bee-
ar lætin eru f algleymingi tekst
Einari Magnússyni að skora með
hörkuskoti 15:14 fyrir Víking.
Geir í opnu færir skýtur rétt á eftir
f stöng hjá Vfkingum og þegar að-
eins 40 sekúndur eru eftir af leik
skorar Jón Hjaltalín 16:14, markiö,
Víkingar skora af línu í gærkvöldi.
sem tryggði sigur Víkings í þess-
um spennandi leik.
Víkingar léku vel þennan leik og
eflaust áttu þeir sinn stóra þátt í
að slá FH út af laginu, leyfðu þeim
hreinlega ekki aö hafa sig í frammi
á nokkurn hátt. Jón Hjaltalín
Magnússon var maður kvöldsins,
skoraði sjö af mörkum Víkings.
Einar Magnússon var og góður, en
gæti án efa skorað mun fleiri
mörk, enda á hann auðvelt með
að skora yfir varnir sökum hæðar
sinnar. Þá voru þeir Gunnar Gunn-
arsson og Þórarinn ágætir f þess-
um leik og Einar markvöröur varði
oft laglega.
í FH-liöinu var raunar enginn
maöur nálægt sinni getu, Kristó-
fer varði oft falleg skot, en önnur
heldur lök, fóru í netið, markvarzl-
an i heild undir meðallagi. Vörn
FH reyndist mjög sundurlaus, enda
sótti hún nokkuö langt út á móti
Víkingunum, sem notfærðu sér
línuna þar af leiðandi mjög vel.
Einar Sigurðsson lék nú aftur með
FH-Iiðinu eftir nokkra fjarveru
Dómari var Sveinn Kristjánsson
og dæmdi ekki illa. Hins vegar
i virðist það orðin einhver tízka hjá
dómurunum aö flauta um leiö og
smávægilega er brotiö á lfnu og
dæma þá aukakast. Oftast er betra
að bíða örlítið átekta, því það vill
koma oft fyrir aö maðurinn, sem
j brotið er á þarfnast ekki aðstoðar
* dómara, kemst í gegn og skorar,
j en þá er markið dæmt af, slíkt er
j ótækt. — jbp —
Staðan
! — eftir leikina í gærkvöldi. -
I Víkingur—FH 16—14 (9—7). -
> Fram—Haukar 24-19 (12-12). j
j FH 8 6 0 2 183—133 12 '
! Fram 8 6 0 2 177—121 12 J
' Valur 9 5 0 4 184—164 10 ,
J Haukar 9 5 0 4 183—184 10
» Víkingur 9 4 0 5 156—164 8 j
! Ármann 9 0 0 9 135—254 0 ■
Næstu leikir veröa á sunnu-1
! dagskvöldið þá mætast Valur— j
FH og Fram—Víkingur.
Markahæstu
menn
i — í 1. deild eru nú þessir: —
Hermann Gunnarsson, Val, 56
; Jón Hjaitalín Magnúss., Vík., 51
Geir Hallsteinsson, FH, 49
Gunnlaugur Hjálmarss. Fram, 43
| Ástþór Matthíasson, Árm., 42
Ingólfur Óskarsson, Fram, 41
! Einar Magnússon, Víkingi, 33
Ragnar Jónsson, FH, 33
Viðar Símonarson, Haukum, 33
FRAM SETTIST VIÐ HUÐ
ÓVINARINS" FH
— með sigri yfir Haukum 24:19 í góöum seinni iiálfleikj
Framarar sýndu bezta
handknattleikinn í gær-
kvöldi í Laugardal. Þenn-
an handknattleik sýndu
þeir þó aðeins annan hálf-
leikinn gegn Haukum og
unnu á þeim leik með 5
marka mun 24:19. Eftir
þennan leik eru það Fram
og FH, sem ein eiga mögu-
leika á að verða íslands-
meistarar í ár. Fyrir leik-
inn höfðu Haukar von með
■ íví að sigra Fram.
Fram komst í byrjún fvrri hálf-
leiks í 3:0 og 4:1, en á 9. mín.
jafnaði Matthíás og Logi Kristjáns-
son, sem var nú kominn á sinn
stað í markinu varði eins og ljón,
vítakast og línuskot. Siguröur
Jóakimsson færði Haukum foryst-
una í 5:4, en Fram náöi henni aft- ^
ur og komst í 7:5. Matthías jafnar !
enn, þegar 10 mínútur eru eftir af
hálfleik, 8:8, og Haukar komast
yfir í 10:8, sem Fram jafnar. í
hálfleik var staðan 12:12.
Nýtt og betra Framlið kom inn
á völlinn í seinni hálfleik, en sama
verður ekki sagt um Haukana. sem
gjörféllu saman, þegar Framarar
fóru að sýna, hvað í þeim býr. Þrjú
fyrstu mörkin skoruðu Framarar
og var staðan þá 15:12. Eftir 9
mín. var staðan 17:13 og rétt á
eftir 18:14 og 19:14, — sem sagt
nokkuð vonlaust fyrir Hauka að
ná sigri, enda þótt hálfleikurinn
væri enn aðeins hálfnaður. Aö visu
minnkuðu Haukar aöeins forskotiö
um tíma, en gátu aldrei ógnað
Fram, svo heitið gæti.
Fram vann leikinn 24:19 og var
vel að sigrinum komið. Þar með
settist Fram viö hlið erkiandstæð-
ingsins, FH. Hver skyldi hafa trúað
því fyrir nokkrurn vikum,
þegar sigurinn blasti við FH? —
Gylfi Jóhannesson átti mjög góðan
leik hjá Fram, og við hann réði
vörn Hauka ekki neitt og skoraöi
hann 7 mörk yfir vömina í leikn-
um. Ingólfur og Gunnlaugur voru
og báðir í essinu sínu og Þorsteinn
varði vel i markinu.
Af Haukunum er þaö að segja
að þeir léku laglega í fyrri hálfleik,
en í hinum síðari var eins og allur
móður væri úr þeim dreginn. Var
liðið þá ekki svipur hjá sjón. Logi
Kristjánsson var enn bezti maður
liðsins, varði mjög vel oft á tíðum.
Matthías skoraöi flest mörk Hauka,
5, en skottilraunir hans voru óþarf-
Iega margar.
Dómari var Karl Jóhannsson og
dæmdi mjög vel. — ibn —
Þórður kemst hér framhjá Ingólfi og skorar.