Vísir - 16.03.1967, Blaðsíða 3
V í SIR. Fimmtudagur 16. marz lu.
Cnjórinn er jafn eðlilegur á
^ Norðurlandi • skammdeg-
inu og snjólevsið á Suðurlandi.
Þó vill nú svo vera, að mönnum
finnist ýmist of eða van af
hvoru tveggja, eiginhagsmunim-
ir segja til sín.
Hvað um það. Það er a.m.k.
nægur snjór á Noröurlandi þess-
ar vikumar.
Myndsjáin er frá Akureyri,
en þar hefur verið vetrarríki,
eins og annars staðar á Norður-
landi. — Göturnar hafa oft
orðið torfærar, þrátt fyrir iðni
bæjaryfirv. við að ryðja snjón
um burtu jafn óðum og hann
hefur setzt á göturnar. Margir
hafa því lagt bílum sínum og
ganga bara á tveim jafnfljótum.
SVIPMYNDIR
FRÁ
AKUREYRI
Þá hafa vegir út frá Akureyri
iðulega teppzt, og enda þótt
Vegagerðin hafi þá komið til
skjalanna eftir mætti, þá hefur
reynzt nauðsynlegt að flytja
vörur meö skipum mun meira
en ella.
Efsta myndin er frá uppskip-
un úr einum Fossinum í Akur-
eyrar höfn. Á henni má einnig
sjá ýmsar kunnar byggingar í
höfuðstað Norðurlands, s.s. Ak-
ureyrarkirkju, Barnaskóla Akur-
eyrar, Gagnfræðaskólann,
Menntaskólann (ógrednjlega),
hluta af Hótel KEA og Prent-
verk Odds Bjömssonar.
Á litlu myndunum sést hvem-
ig snjórinn hefur breitt sig yfir
gróður jaröar og bíla og bú-
staði borgaranna.