Vísir - 16.03.1967, Síða 7

Vísir - 16.03.1967, Síða 7
V í SIR. Fimmtudagur 16. marz 1967. 7 morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd i • Somalipiltar, sem eru við nám í Moskvu, efndu til mótmæla í gær fyrir utan franska sendiráðið, til þess aS mótmæla stefnu Frakka varöandi Franska-Somaliiand. — Sovétlögreglan lét þetta afskipta- laust. Þriggja manna nefnd úr hópi piltanna fékk að ræða viö fyrsta sendiráðsritara og lagöi fyrir hann mótmælin. 6 Bandarískar sprengjuflugvél- ar vörpuðu í gær sprengjum á jám brautir og þjóövegi f Noröur-Viet- nam, sem liggja til kínversku landa- mæranna. Thunderchief-flugvélar fóru til árásanna og var varpað niður 3000 sprengjum um 112 km. fyrir vestan Hanoi og brú eyðilögö. Sprengingarnar komu af stað skriðu sem féll yfir þjóöbraut og huldi hana á kafla. @ Talsmaöur Vietcong f Moskvu sagöi í gær, að þjóöin í Suður-Vietnam ætti ekki annars úrkosta en að beita hemaðarlegum ráöum til að granda fjandmönnun- um, en þeir væm stööugt aö herða sínar aðgeröir og væri það alger- lega andstætt fuliyröingu þeirra um friöarvilja. • Leit er haldið áfram að vest- ur-þýzkum togara, Johannes KrUss, við i suðurodda Grænlands. Leitin hefir þegar staðiö í nokkra daga. Á togaranum er 22 manna áhöfn. • Blaðið Washington Post seg- ir skoðanakönnun hafa leitt í ljós, að 4 af hverjum 5 Bandaríkjamönn- um vilji nú herða loftárásimar á Noröur-Vietnam, og byggist það á þeirri trú þeirra, að þaö verði til þess aö stytta styrjöldina. © Mike Mansfield leiðtogi demokrata í öldungadeild þjóð- þingsins hefir stungið upp á, að Öryggisráð Sameinuöu þjóöanna 'kalli saman fund aðila í Vietnam- styrjöldinni. Vill Mansfield, að full- trúar Sovétríkjanna og Kína fái aö sitja fundinn — svo og fulltrúar Vietcong, auk fulltrúa stjómar Suð ur-Vietnam, Norður-Vietnam og Bandaríkjanna. © Fidel Castro flutti ræðu í fyrrakvöld í Havana og réðst heift- arlega á Sovétríkin — án þess þó að nafngreina þau — og talaöi Castro viðstöðulaust í 3y2 klst. — og ásakaöi þau m. a. fyrir.að reka viðskipti við „ríkisstjórnir í Suður- Ameríku, sem kúga- alþýöuna". — Hann tók sérstaklega til bæna so- vézka viðskiptasendinefnd í Colum bia og sagði, aö þaö væri ekki hægt að treysta á, aö „allt rautt væri tákn þess byltingarkennda". © De Gaulle mun ekki hrófla viö rikisstjórn sinni vegna kosn- ingaúrslitanna, aö því er Pompidou forsætisráðherra tjáði fréttamönn- um í gær, en áður liaföi hann setið á löngum fundi með de Gaulle. — Nýja þingiö kemur saman 2. apríl Gaullistar hafa nú 244 þingsæti en höföu 282. — Von um eitt þing- sæti til viöbótar (í Polynesiu) dó ’ gær, er frambjóöandi Gaullista þar afturkallaði framboö sitt, og eru þá aðeins tveir í kjöri, þar, annar fyrir lýðræöislegu miöflokka- -samtökin og hinn óháður. UTHANT LECGUR FRAM NÝJAR VIETNAM - TILLÖGUR U Thant framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna heflr lagt fram nýjar tillögur til bess að leiða styrj öldina í Vietnam til lykta með frið- samlegu móti. Þetta er haft eftir heimildum, sem ávallt hafa reynzt hinar áreið- anlegustu, enda heimildarmennimir í skrifstofum aðalsamtakanna í New York. U Thant mun hafa sent Arthur Goldberg tillögurnar í bréfi, sem hann skrifaði honum í fyrradag. Að því er haft er eftir áðurgreindum heimildum munu hinar nýju tillög- ur U Thants frábrugðnar fyrri tillög U Thant um hans að því leyti, að hann gerir nú ráð fyrir, að aöilar dragi sam- tímis úr hernaöaraðgerðum, áður en setzt er að samningaborði. Kunnugt er, aö viðræöur hafa átt sér staö aö undanfömu á vett- vangi S. Þ. í New York og Feder- enko fulltrúi Sovétríkjanna tekiö þátt í þeim. Cabot Lodge fer frá Johnson Bandaríkjaforseti skýrði frá því i gær, aö hann hefði skipaö Ellsworth Bunker ambassador USA í Suður-Vietnam, í staö Henrv Cab ots Lodge, sem heföi beðizt lausn- ar. Þessi frétt hefur komið nokkuð óvænt, en Ellsworth Bunker, sem er 72 ára að aldri, hefur verið sér- legur sendimaður Johnsons forseta að undanfömu, og oft fengið vanda söm hlutverk til þess aö inna af höndum, bæöi í forsetatíö Kenne- dys og Johnsons. Hann miðlaöi m.a. málum í deilunum í Dominiku eöa Dominikanska lýðveldinu 1965— 1966. Herstjórnarstöð Banda- ríkjanna í Frakklandi flutt til Stuttgart Bandaríkin hafa nú í vikunni flutt aöalherstjórnarstöö sina frá Frakklandi til Stuttgart. Fánaat- höfn fór fram og Lemnitzer yfir- hershöfðingi flutti ræöu. Þetta var gert til þess að veröa við þeirri kröfu de Gaulle aö herafli Banda- ríkjanna og annarra No: ður-Atlants hafsríkja yrði fluttur frá Frakk- landi. SHAPE, aðalstöðvar NATO í Evrópu verða einnig fluttar (til Belgíu) svo sem áöur er getið og stendur sá flutningur fyrir dyrum. Henri greifi fær danskan ríkisborgararétt Henrl greifi, heitmaður Margrét- ^ar Danaprinsessu, fær dönsk borg- i' araréttindi á brullaupsdeginum 10. ! júní. Innanrikisráðherrann leggur i þessari viku fyrir þjóðþingið frum- varp um borgararéttindi til handa um 200 manns og er nafn greifans nr. 180 á listanum. U Thant til Belgíu Tilkynnt er I Briissel, að U Thant framkv.stj. Sameinuðu þjóðanna komi í heimsókn tSI Belgíu 30. maí. Það var Pierre Harmel, belgíski utanríkisráöherrann, sem bauð hon- um fyrir hönd ríkisstjómarinnar. /#Pacifica##-sæfar- arnir hættu við #/ „Kontikiferð nr. 2 Frétt frá Quayaquili í Equador hermir, að sæfararnir 6, sem síðan um jól hafa látiö sig reka vestur yfir Kyrrahaf frá Equadorströnd í áttina að Polynesiu hafi nú gefizt upp við þessa fyrstu tilraun sína til þess að „kopiera" Kontikiferð Thor Heyerdahls. Sendu þeir frá sér hjálparbeiðni, er þeir voru fam ir að óttast aö farkosturinn (PACI- FICA) myndi sökkva, og fór banda- rískt herskip þeim til hjálpar. — Seinustu fréttir herma, aö þýzkt flutningaskip hafi bjargað sæför- unum. Cabot Lodge Telur að styrjöldinni muni lykta með hreinum skæruhernaði Cabot Lodge telur hæpið, að Viet namstyrjöldin veröi til lykta leidd á venjulegri stjómmálalegri ráö- stefnu, sem haldin er að hefðbundn- um hætti, eins og það er orðað Telur hann, að aöilar muni smám saman draga úr hernaðaraðgeröum. en lokaþátturinn veröi hreinn skæruhemaöur. Hann telur vanda- málið enn að „friöa þorpin“ og tals- vert hafi unnizt á f seinni tíö, en tilætluðum árangri ekki náð. Hann klykkti út með því aö segja: Viet- cong getur ekki sigraö — það er ekki hægt að sigra okkur. Samdráttur í stáiframieiðslu Yfirstjóm Evrópu kola- og stál- sambandsins i Briissel hefir mælt með þvi vSð stálframleiðendur, að þeir dragi úr framleiðslunni til þess að betra jafnvægi náist milli fram- boðs og eftirspumar. Framleiðslutakmörkunin á eink- um að ná til aðildarlandanna sex. Gert er ráð fyrir, aö stálframleiösl- an á öðrum fjórðungi ársins verði 21.75 millj. lesta, en fulltrúar stál- framleiöenda telja enga hættu bundna við það, að miöað veröi við 22.3 millj. lesta framleiðslu á öðr- um ársfjóröungi. Marina segir Lee Harvey Oswald aldrei hafa nefnt Ferrie eða Shaw Frú Marina Porter, sem var gift hann minnast á nelnn David Ferrie i Bertrand (nafn, sem Shaw á að Lee Harvey Oswald, hefir skýrt né heldur Clay Shaw, og aldrei hafi j hafa notað). frá því, aö hún hafi aldrei heyrt hann f hennar áheym nefnt neinn Vantar herbergi Vantar eitt stórt herbergi á góðum stað í bæn- um, handa reglusömum manni. Sími 36730 eftir kl. 4.00. Frú Marina, sem er rússneskrar ættar, giftist aftur sem kunnugt er, en var áður um tíma viö nám 1 Chicago, eða nokkrum mánuðum eftir að Jack Ruby varð manni hennar að bana. Jim Garrison heldur áfram til- raunum sínum til að sanna þá kenn ingu sína, aö samsæri hafi veriö bruggað til þess að ráöa Kennedy af dögum. Marina Porter

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.