Vísir - 16.03.1967, Blaðsíða 10
10
V í SIR. Fimmtudagur 16. marz 1967,
Á fundi f sameinuðu þingi í gær
svaraði Gylfi f>. Gíslas. viðskipta-
málaráðh., fyrirspurn þeirra Björns
Jónss. (Ab) og Ragnars Arnalds
(Ab) um bindingu sparfjár innláns-
"'ifnana á Norðurlandi. Tekin var
til einnar umr. þáltll. Einars Ol-
geirss. (Ab), Gils Guðmundss. (Ab)
og Ragnars Arnalds (Ab) um sam-
bykki Alþingis við tillögur U
Thants til lausnar á styrjöldinni í
Vietnam. Umræðunni var frestað.
Fleiri mál voru ekki tekin fyrir
í gær.
Framh. at bls. 16
hóf víðtækar rannsóknir á sög-
unni. Segir hann, að til séu
sagnir af „velskum Indíánum",
sem hljóti að vera afkomendur
Madocs og félaga hans. Falsanir
á gömlum kvæðum höfðu leitt
menn afvega í athugunum þeirra
á sögninni um Madoc, segir Ric-
hard Deacon. Tilraunir til að
finna hina „velsku Indíána" við
ósa Missisippi-fljótsins mis-
heppnuðust og menn gáfust upp
við að rannsaka sögu Madocs.
En í seinni heimsstyrjöldinni 1
reyndi Deacon, sem er sjálfur
frá Wales, að það er hægt að
sigla á flatbytnu frá Ameríku
til Afriku. Það sannfærði hann
um að sigling eins og sú, sem
Madoc hefur oröið að takast á
hendur, gat hafa átt sér stað.
Hann hóf síðan rannsóknir sínar
sem hafa í mörg ár staðið í
Wales, Englandi, Frakklandi,
Belgíu, Hollandi, Spáni, Dan-
mörku og víðs vegar um Banda
ríkin. Hann telur nauðsynlegt
að landnámssaga Bandarikjanna
verði endurskoðuð í ljósi þeirra
uppgötvana, sem hann hefur
gert þar eð spurning hljóti að
vakna: Vissi Kólumbus um ferð
ir Madocs?
SCefSöviSc ■—
Framh. af bls. 1
eigendur krefðu einstaklinga um
leigu á lóðum, sem þeim var
úthlutaö.
Keflavíkurkaupstaður . hefur
eins og önnur bæjarfélög variö
miklum fjármunum til að gera
bæjarsvæðið íbúðarhæft, með
vatnslögnum, vegalögnum, raf-
lögnum o. s. frv. Þótti því bæj-
arstjórn það vera nægjanleg •
umbun fyrir landeigendur bæj-
arsvæðisins að njóta góðs af
því, þar sem áður var bæjar-
svæði kaupstaðarins nær einsk-
is virði heiðarland.
Vegna þessa leigukrafna land
eigenda Ytri-Njarðvíkurhverfis
með Vatnsnesi, hefur bærinn
nú óskað eftir því að fá að taka
eignarnámi meirihluta bæjar-
svæðisins og var skipuð matsn.
Húsmæður — Aukavinna
Óskum eftir nokkrum konum til sölustarfa í
frítímum. Þurfa að geta unnið sjálfstætt og
hafa þægilega framkomu. — Tilb. ásamt uppl.
sendist augl.d. Vísis fyrir laugardag, merkt
„Há sölulaun“.
Verðlouna
sumkeppni
TénlistarféBagsins
til að meta landeignir Keflavík-
ur h.f., sem á um helming bæj-
arsvæðisins, en matið hefur
dregizt nokkuð þar sem staðið
hefur á ákveðnum upplýsing-
um, að sögn Stefáns Gunnlaugs-
sonar deildarstjóra, en hann er
annar matsmanna.
Einn aðilinn í Keflavík h.f.
seldi bænum í fyrra landshluta
sinn fyrir um 3 milljónir króna.
Nam landshluti þessi um 1/14
af öllu bæjarsvæði Keflavíkur-
kaupstaðar. Ef allt bæjarsvæð-
ið verður virt á grundvelli þess-
arar sölu, mun því allt bæjar-
svæðið kosta um 50 milljónir
króna, sem samsvarar heildar-
tekjum kaupstaðarins í tæplega
2 ár. — Fróðir menn telja þó,
að ekki verði landiö metið svo
lágt og bera m. a. fyrir sig, aö
hreppsnefnd Geröahrepps hafi
krafizt um 300 milljóna króna
fyrir sinn 'hlut í landi Keflavík-
ur h.f., en lögsagnarumdæmi
Keflavíkur var fært út í Geröa-
hrepp með lögum í fyrra. Sam-
kvæmt því gæti bæjarsvæði
Keflavíkur veriö metið
á allt upp undir 400 milljónir
króna, sem tæki bæjarfélagiö
13 ár að greiöa niður með öll-
um tekjum þess og er þá ekki
tekið tillit til vaxta.
Frssmboð Fram-
sóknarflokksins í
Reykjavík
Framsóknarflokkurinn hefur birt
framboöslista sinn í Reykjavík og
skipa eftirtaldir menn 12 efstu sæti
listans: Þórarinn Þórarinsson al-
þingismaður, 2. Einar Ágústsson
alþingismaður, 3. Kristián Thorla-
cius form. BSRB, 4. Tómas Karls-
son blaðamaður 5. Sigriður Thorla-
cius frú, 6. Jón A. Ólafsson lög-
fræðingur, 7. Sigurður Þórðarson
vélsmiður, 8. Þorsteinn Ólafsson
kennari, 9. Jón S. Pétursson vél-
stjóri, 10. Hannes Pálsson banka-
fulltrúi, 11. Bjárney Tryggvadóttir
hjúkrunarkona, 12. Páll Magnússon
trésmiður.
Tónlistarfélagið hefur ákveöið aö
efna til samkeppni um kammertón-
verk fyrir 3 til 7 hljóðfæri, en
lengd tónverksins á að vera 10 —
20 mínútur. Hljóðfæraskipun er
frjáls, en haft sé í huga, aö hljóð-
færaleikarar okkar geti flutt verk-
ið. Islenzk tónskáld yngri en 40
ára eiga rétt á þátttöku í samkeppn
inni.
Ein verðlaun verða veitt í sam-
keppninni, að upphæö 60 þúsund
kr. Verða úrslit samkeppninnar til-
kynnt í júní 1968, en frestur til að
skila verkinu er til 1. apríl 1968.
Veröur dómnefnd skipuð tveim ís-
lenzkum tónlistarmönnum og ein-
um viðurkenndum erlendum tón-
listarmanni. Áskilur Tónlistarfélag-
ið sér rétt til frumflutnings á verð-
launaverkinu og fari hann fram
snemma vetrar 1968 — 69.
Aflasölur í vikunni
Tveir togarar hafa selt ísfiskafla
í V-Þýzkaiandi í vikunni, Ingólfur
Amarson í Cuxhaven sl. mánudag
og Surprise í Bremerhaven sama
dag.
Báðir voru meö mikið af ufsa.
Ingólfur seldi 228 lestir fyrir 171.
100 mörk og Surprise 196 tonn fyr-
ir 151.500 mörk.
Verö á togarafiski eriendis var
gott fyrstu tvo mánuði ársins en
hefur nú aftur farið lækkandi. Að
sögn geta menn ekki gert sér fylli-
lega grein fyrir veröiaginu og verð-
lagsbreytingunni að undanförnu.
,,FRAMUS##
rafmagnsgítar, lítið notaður og
vel með farinn, til sölu. Uppl.
í síma 37312, eftir kl. 5.
BELLA
Ég hef það á tilfinningunni, að
ég muni hvað úr hverju hitta
þann eina rétta. Svo ég reyni að
gera lionum auðveldara fyrir að
finna mig.
VEÐRIÐ í DAG
Vaxandi suðaust-
an átt með snjó-
komu. Stormur
og slydda, þegar
líða tekur á dag-
inn. Rigning í
kvöld.
VISIR
G&rthwn er meiri Cortinal
Yfir 500 sigrar í erfiðustu þol- og kappaksturskeppnum um allan heim.
Nýja Cortinan er 6 cm breiðari. Hún er mýkri í akstri, rúmbetri og stöðugri d vegum.
Hin nýja kraftmikla 5 höfuðlegu vél gefur bifreiðinni mjúkan og öruggan aksiur.
Gúmmíhlífar yfir höggdeyfurum varna skemmdum vegna óhreinindc.
Kraftmikil miðsföð og loftræsting með lokaðar rúður. Mikið farangursrými. Ný og befri bólstrun á sæfum
SVEINN EGILSS0N H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 SÍMI 22466
Verð á
Cortina De Luxe er kr. 182 þús.
Innifalið: Hlífðarpönnur undir vél og benzíngeymi
Styrkfar fjaðrir og höggdeyfar. Stór rafgeymir.
Hjólbarðar 560x13
fyrir
árum
Símskeyti frá fréttaritara Vísis
Kaupmannahöfn 11. marz.
Uppreist er hafin í Pétursborg.
Þingið hefur mótmælt upplausn-
inni. Radzianko er formaður fram
kvæmdanefndar uppreistarmanna.
Ráðuneytið gamla hnept í fang-
elsi.
Setuliö borgarinnar, 30 þús.
manns, gengið í lið með upp-
reistarmönnum.
Kínverjar hafa lagt hald á þýsk
skip sem eru í höfnum þeirra.
Brauðskamtur hefir verið, á-
kveöinn hér frá 1. apríl, 350 gr.
á mann á dag.
16. marz 1917.
21. Bd2 — c3
Staðan er þá þessi:
Akureyri
Júlíus Bogason
Jón Ingimarsson.
Reykjavík
Björn Þorsteinsson 4
Bragi Björnss.o.n,