Vísir - 31.03.1967, Page 1
VISIR
57. árg. - Föstudagur 31. marz 1967. - 73. tbl.
'VISIR I VIKULOKIN
aftur á morgun
Fyrsta tólublað er uppselt
Bjarmi II kom til Reykjavikur f gærdag, en bátnum var náð af strandstað í fyrradag við Eyrarbakka. í morgun var verið að gera athuganir
á skemmdum á botni bátsins í Slippnum og reyndust þær talsverðar. Ljósmyndari blaðsins tók þessa mynd af botnplötunum á einum staðn-
um og má sjá, að þær hafa skemmzt miklð.
Á morgun kemur út annað
tölublaðið af „Vísi í vikulokin“,
laugardags-fylgiblaði Visis. Er
það litprentað eins og hið fyrra
og hefur að geyma uppskriftir
að hrísgrjónaréttum, prjónaupp-
skriftir, ráöleggingar um snyrt-
ingu og lýsingu. Fyrsta tölublað
ið varð miög vinsælt og seldist
upp, þótt upplagið væri mun
hærra en er venjulega á Vísi
á laugardögum. Þess vegna er
fólki bent á að £lata ekki þessu
fyrsta eintakl, né beim sem síð-
ar koma, og safna þelm saman
Vísir mun síðar hafa á boðstól-
um möppur til að safna þessum
blöðum i. Vegna hinna góðu
viðtaka er ráðgert, að „Vísir í
vikulokin" komi ekki sjaldnar
út en annan hvem laugardag.
Jón meö 1V2 v. og2 bið eftir
4 umferðir á svæðamótinr
Jón Kristinsson, sem teflir a
I’slands hálfu á svæðamótinu i
Halle, Þýzkalandi, hefur staðið sig
vel fvrstu umferðirnar, unnið Uin-
ic, gert jafntefli við Ciocalupia,
sem er rúmenskur stórmeistari og
á biðskák við Uhlmann, sem er
alþjóðlegur meistari og Pietrusikol.
— Semsagt, V/2 v. og 2 biðskákir
eftir 4 umferðir.
|,Byggingakostnaður 50% afgangveríi íbúðal
Byggingasamvinnufélag sjómanna og verkamanna ieggur fram tölur um
ótrúlega lítlnn kostnaö við byggingu nýrra fjölbýlishúsa
Á aðalfundi Byggingasamvinnufélags sjómanna og
verkamanna, sem haldinn var í gærkvöldi, var
skýrt frá niðurstöðutölum byggingakostnaðar í
fjölbýlishúsum, sem félagið reisti fyrir félagsmenn
sína að Reynimel 88—94. Kostnaðarverð íbúðanna
reyndist a. m. k. helmingi lægra en gangverð íbúða
er nú á almennum markaði.
íbúðir tílbúnar til að flytja inn
í þær kosta hundruðum þúsunda
minna en íbúðir af sömu stærö
tilbúnar undir tréverk kosta á
almennum markaði. Sem dæmi
upp á þetta mætti taka, að 4ra
herbergja íbúðir fullkláraðar
kosta hjá byggingasamvinnufé-
laginu 680 þús. kr., en nú að
undanfömu hafa verið seldar
samsvarandi íbúðir tilbúnar und
ir tréverk við sömu götu á 850
þús. kr., sem hefur þó alls ekki
þótt ótilhlýðilegt verð.
Verð íbúðanna, þegar þær
voru fokheldar, var eftirfarandi:
2ja herb. (222 rúmm.) 152.840
kr., 3ja herb. eru þrenns konar
(267 rúmm. til 288 rúmm.) kost-
uöu 184.000 kr. til 197.950 kr.
og 4ra herb. íbúðimar (332
rúmm.) kostuðu 228.260 kr. Auk
þess eru 2 íbúðir í ká-lfi, sem
voru mun dýrari fokheldar, þar
sem þær voru látnar greiöa lóða
gjöld eins og raðhús, og báru
tvær allan kostnað við grunn og
þak. Kostuðu íbúðimar tvær í
kálfinum 642.292 kr.
Þegar íbúðirnar voru orðnar
Framh. á bls 10
önnur feikna snjóskriða á Seyðisfirði
Olls ekki tjóni - umferð bönnuð um hættusvæðið
ÖIl óbarfa umferð um strönd-
iaa norðanverðu Seyðisfjarðar er
nú bönnuð vegna yflrvofandi
FesBlhlífarstökk
yfir Reykjavíkur-
flugvelli
Ungur flugumferðarstjóri, Ei-
ríkur Kristinsson, stökk í fall-
hlíf yfir Reykjavíkurflugvelli í
gær.
Eiríkur fór með Sigurði
Thorsteinssyni p Cessna-flugvél
upp í 6000 feta hæð og stökk
yfir Flugfélagsafgreiðslunni á
vellinum. Hann kom niður hin-
ummegin við brautina, skammt
norðan við Loftleiðahóteliö.
Eiríkur fékk leyfi til stökksins
hjá viðkomandi aðilum.
Eiríkur var sendur til Banda-
ríkjanna á sínum ti'ma til að
læra fallhlífarstökk og hefur
hann síöan þjálfaö nokkra ís-
lendinga i fallhlífarstökki.
hættu á skriðufalli úr snarbrött-
um hliðum Bjólfs. Mikil skriða féll
um daginn úr Sandhólatindi innar
í firðinum og var sú engu minni,
en Bjólfsskriðan sem tók mjöl-
skemmu Hafsíldar á dögunum. —
Snjór liggur yfirleitt á harðbergi
i hliðum fjallanna, i skorningum
og hanga bar miklar snjódyngjur
víöa.
Milli Sandhólatinds og Bjólfs er
dalur, Vesturdalur. og féll skrið-
an niður í hann en olli ekki
skemmdum niðri við ströndina.
Timbur og annað dót út úr mjöl
skemmunni, sem snjóskriðan úr
Bjólfi ruddi út í sjó á dögunum
hefur verið að reka á fjörur und-
anfarna daga og er unnið aö því
að bjarga því, sem bjargað verður.
Mikill sniór er á Seyðisfirði eins
og víðast hvar fyrir austan, en nú
er komin sólbráð skaflarnir
farnir að siga niður með húshlið-
unum.
Unnur Skúladóttir
„Rækjuveiðar í ísafjarðardjúpi og
Arnarfirði verði stöðvaðar nú þegar"
segir Unnur Skúladóttir fiskifræöingur, sem baft hefur umsjón með rannsóknum á rækjustofnunum þar
Samkvæmt niðurstöðu rannsókna 1
á rækjustofnunum í ísafjarðar-
djúpi og Amarfirði og afurðagetu
þeirra hefur Unnur Skúladóttir
fiskifræðingur, sem safnað hefur
gögnum um rækjuveiðarnar, lagt
til að þessar veiðar veröi stöövað-
ar nú þegar. — En allmargir bátar
stunda veiðar nú og hefur sóknin
í rækjuna á þessum svæðum aukizt
mjög upn á síðkastið.
Unnur lýsir þessu yfir í grein,
sem. hún skrifar f Ægi tímarit
Fiskifélagsins, um rannsóknir á
rækjunni og þá einkum og sér í
iagi í ísfjarðardjúpi og Arnarfirði.
Þaðan hefur Hafrannsóknarstofn-
unin fengið skýrslur frá skipstjór-
unum sem veiðarnar stunda og
sýnishorn af veiðinni, og hefur það
gert stofnuninni kleift að fylgjast
mjög vel með rækjustofninum á
báðum þessum svæöum.
Unnur bendir á þaö . grein sinni
að bátum, sem veiðarnar stunda
vestra hefur fjölgað og sóknin auk-
izt með viku hverri, en samfara
Framh. a bls. 10