Vísir - 31.03.1967, Side 3
V1SIR . Föstudagur 31, marz 1967.
3
Stefán Ólafur Jónsson starfsfræðslustjóri flytur erindl sitt
Það var f jölmenni i Gamla Bíó, nærri hvert sæti ski pað.
Námskynning stúdenta heppnaðist vel
Námskynning stúdenta sl.
mlðvikudag þótti prýðilega
heppnuð og aðstandendum og
stjórnendum til mikils sóma.
Kunnu r.emendur Menntaskól-
ans og Verzlunarskólans vel að
meta þessa þjónustu við þá,
sem fólst í því að kynna þeim
menntunarleiðir á íslandi og
utan Islands, lána- og kjaramál,
lífið í hinum ýmsu háskólum
heima og heiman og sitthvað
fleira, sem verðandi háskóla-
borgarl þarf að vita áður en
hann velur sér námsgrein og
háskóla. Kynnlngin var einkum
ætluð nemendum úr 5. og 6.
bekk skólanna og er talið að um
400 nemendur hafi komið i kjall-
ara viðbyggingar Menntaskólans
um kvöldið til að gera fyrir-
spumir. Um morguninn hafði
verið gefið frí í skólunum til að
nemendur gætu sótt fyrirlestra,
almenns efnis í Gamla Bíói.
Þar ræddi starfsfræðslustjóri
Stefán Ólafur Jónsson almennt
um menntunarleiðir og atvinnu-
skiptingu og skýrði mál sitt með
skuggamyndum. Skúli Johnsen
formaður Stúdentaráðs Háskóla
íslands fór almennum orðum
um nám í H.í. en Gylfi ísaksson,
verkfræðlngur ræddi á sama
hátt um nám erlendis. Einar
Magnússon rektor flutti áður
stutt ávarp. Þórður Vigfússon
stud. ing. var kynnir.
Um kvöldið var svo náms-
kynning í Menntaskólanum vlð
Lækjargötu. Þar voru fyrir
fulltrúar allra deilda Háskóla
íslands og um 30 fulltrúar há-
skóla erlendis, sem svöruöu fyr-
irspumum þeirra 400 nemenda,
sem sóttu kynninguna að þessu
sinni. Auk háskólanna áttu
Kennaraskólinn, Tækniskólinn
og starfsfólk við blóðrannsóknir
fulltrúa meðal kynnenda.
Frammi lágu fjölritaðar upplýs-
ingar um námslán og náms-
styrki og allar deildir Háskóla
íslands. Starfrfræðslustjóri var
einnig þama og svaraði ýmsum
spurningum.
Að sögn þeirra, sem stjómuðu
kynnlngunni var mest spurt um
læknanám og BA-nám við Há-
skóla íslands, verkfræði í öllum
löndum, og tannlækningar er-
Iendis.
Stjómendur námskynningar-
innar veru Þórður Vigfússon
stud. ing., Guðjón Friðriksson,
stud. phil., og Þráinn Þorvalds-
son, stud. oecon., sem skipuöu
menntamálanefnd SHÍ og SÍSE.
Kynning þessi var án efa sú
vandaðasta sem haldin hefur
verið af stúdentum og skipulag
hennar og fyrlrkomulag allt að-
standendum til mikils sóma.
Hún reyndist einnig mikið nauð-
synjaverk eins og aðsókn nera-
enda Mennta- og Verzlunar-
skólans bar vott um.
MU —y "r/ w V " •'jpnM
Pilturinn með blaðið við munninn er að spyrja um verkfræðinám.
Guðrún Dóra Kristinsdóttir og Ingunn Halldórsdóttir svara tveim herramönnum.