Vísir - 31.03.1967, Qupperneq 10
10
Varðbergsfundur í kvöld !
í kvöld kl. 20.30 efnir Varðberg
til fundar með þeim félögum sínum 1
og SVS, sem fóru til Bandaríkj- í
anna í október sl. Fundurinn er
haldiiin í Átthagasalnum í Hótel
Sögu og er öllum félagsmönnum ■
opinn.
Hallgrimur Árnason sýnir og
skýrir myndir, sem ýmsir tóku í
ferðinni, og enníremur veröur
dreift myndum úr ferðinni. Hilmar
Björgvinsson 02 Jón A. Ólafsson
sejja frá ferðaiaginu og Norfolk
og'V.’ashlngton DC.
Gunnar Gunnarsson segir frá
ferð sinni á ráðstefnu í Oxford.
Í.?íc?'3 fjser i^iaidÍBiu
* - ’ fs'.'is: frá ianúinu og stafar
það að einhverju leyti af því, að
• --iue.ur breytzt til suðvest-
an- og vestanáttar. Þegar blaðið
talaði við Veðurstofuna í morgun
hafði ísinn minnkað að siá frá
landstöðvunum og sást ekki til
hans nema þar sem hann hafði
orðið eftir í fjörum.
Frá Siglunesi voru ísfregnir á
hessa lund: Hér sést enginn ís
nema á fjörum, sömu fregnir komu
.-ú Giíi oy, nema þar var skyggni
slæmt vegna sniókomu og því ekki
hægt að ganga fullkomlega úr
ckugga um það, að ísinn væri horf-
inn úr sjónmáli. Frá Galtarvita
bárust þær fregnir að enginn ís
væri, nema stakir jakar á fjörum.
Skoruvík : íshrönglið er horfið.
Þótt ísinn sjáist ekki lengur frá
landstöðvum er hann samt úti fyr-
ir. Þannig tilkynnti flugvél Land-
helgisgæzlunnar, sem var í ískönn-
unarflugi i gærmorgun, að sam-
felldur ís virtist vera frá Horn-
bjargsvita 10—12 mílur úti, en
minni spangir innar.
BygpSnao'kostnaður
^ramh at bls. 1
fokheldar gerði byggingarsam-
vinnufélagið nýja kostnaðaráætl
un fyrir íbúðimar tilbúnar. Var
þá ðætlaö, að íbúðirnar kostuðu:
2ja herb. 480.000 kr., 3ja herb.
Í555.000 kr. og 595.000 kr., 4ra
herb. 680.000 kr. og 4ra herb.
íbúöirnar í kálfi 800.000 kr.
hver. Var þá áætlað að allar f-
búðirnar kostuðu samtals kr.
22.600.000 og er fullt útlit fyrir
að sú áætlun muni standast. —
Þannig var búið að verja sam-
tals 21.711.303.95 kr. í fjölbýlis-
húsin í gær, en áætlað er að
eftir sé verk fyrir 880 þús.
kr., en aðeins er eftir að dytta
smávegis að húsunum, en flest-
ir eigendur íbúðanna fluttir inn.
Ibúðunum var skilað þannig,
að þær voru með öllum eldhús-
innréttingum, eldavél, bakarofni
og viftu yfir eldavél. Hurðir
allar úr eik. Bað var fullbúið
með klósetti, baði og vaski. —
Málningarefni allt en til þess
er ætlazt, að eigendur íbúðanna
sjái sjálfir um að mála. — Það,
-1 e :ki fylgir með i þessu
verði er : Skápar i svefnherbergi
og gólfdúkar og er hugsunin sú
að margir muni ef til vill vera
orðnir hartþrengdir og vilji þvi
komast af án þessara hluta með
an þeir eru að safna fé fyrir
þeim.
Guðmundur Guðmundsson
form. félagsins tjáði Vísi í morg
un, að öll fagvinna hefði verið
un.iin a. löglegum iðnaðarmönn
um, sem unnu eftir uppmæling
artaxta. Varð því enginn sparn-
aður á þeirri vinnu. — Það eina
sem ef til vill var sparað mið-
að við aðrar byggingar, var í
efniskaupum, en sá sparnaður
hefur varla numiö meir en 10—
20 þúsund krónum á íbúö. Sam
kvæmt þessu virðist svo vera,
V1SIR . Föstudagur 31, marz 1967.
sem raunverulegur byggingar-
kostnaður sé þessi, sem að ofan
greinir, en gangverð íbúða fjarri
lagi og sé um óhóflegan gróða
að ræða hjá þeim, sem hafa
byggt íbúðir til aö selja þær.
Næsta verkefni Bygginga-
samvinnufélags sjómanna og
verkamanna er bygging þriggja
stigaganga í Fossvogi með 17 í-
búv.u:-i : lunu finm’ivæmdir
hefjast um þessi mánaðamót.
Einnig hefur félagið sótt um lóö
undir fjölbýlishús í Breiðholts
hverfi, en ef leyfið fæst verða
þar byggðar 46 — 50 íbúðir.
Byggingasamvinnufélagið
var stofnað 1. marz 1965. Stofn
endur voru 66 félagar málfunda
félagsins Óðins. Síðan það var
stofnað hafa 567 gengið í fé-
lagið.
Stjórn félagsins skipa nú Guð
mundur Guðmundsson form.,
Axel Guðmundsson ritari, Guð-
mundur Sigurjónsson, gjald-
keri og meðstjórnendur Guð-
jón Sigurðsson og Meyvant
Meyvantsson. Var öll stjórnin
endurkosin á aðalfundinum í
gær.
Bækjuveiðar —
Framh. af bls. 1
aukinni sókn hafi aflinn á hvern
togtíma (hverja klukkustund)
minnkað og minni afli stendur í
beinu sambandi við aukna sókn.
Þannig hafi aflinn á ísafjarðardjúpi
minnkað úr um 170 kg. á togtíma
að meðaltali árið 1965 niður í um
100 kg. í fyrra.
Einnig bendir hún á að rækju-
varpan hafi verið stækkuð og auk-
in veiðihæfni valdi einnig aukinni
sókn. Aukin veiði með því móti
sé ekki nein vísbending um stofn-
stærð rækjunnar. „Sú aukning
heildarafla, sem þannig mun fást
er ekki varanleg“ segir í grein-
inni.
Að lokum segir Unnur í grein
sinni:
„Raddir hafa heyrzt um að öll-
um takmörkunum á þessum veið-
um verði aflétt. Af því sem hér
hefur verið sagt má sjá að slíkt
er mjög óráðlegt, nema menn vilji
enn einu sinni treysta á kraftaverk
og hætta á þriggja ára lægð í
veiöamar.
Aö minu áliti er tímabært að
stöðva rækjuveiðar í ísafjarðardjúpi
og Amarfirði nú þegar“.
Skólatún —
Framhald af bls. 16.
í s,umar ef fjárhagur leyfir.
í Skálatúni dveljast sem kunn-
ungt er vangefin böm og eru þau
30 talsins, en verður fjölgaö þegar
nýbyggingunni, sem nýlega var
flutt í, verður að fullu lokið. Heim-
ilið, sem hóf rekstur fyrir 12 ámip
er sjálfseignarstofnun, en sund-
laugin er aftur á móti einkafyrir-
tæki. Em það foreldrar bamanna
sem á Skálatúni dveljast sem
standa að sundl.byggingunni og
vilja þeir með því reyna að leggja
sitt fram til þess að börnin megi
ná sem mestum og beztum líkam-
legum þroska. Má geta þess að
sundlaug sem byggð var á Sól-
heimum í Grímsnesi handa van-
gefnum bömum, sem þar dveljast
hefur gefið mjög góða raun.
Áætlaður kostnaður við bygg-
ingu sundlaugarinnar og hússins
er 800—900 þúsund krónur og
þar sem sundlaugin er einkafyrir-
tæki nýtur hún ekki opinberra
styrkja. Hafa ýmis félagasamtök
því gefið fé til byggingarinnar og
framkvæmdanefnd Sundlaugarsjóðs
ins hefur m. a. aflað fjár meö út-<
gáfu gjafabréfa. sem seld hafa ver-
ið. Einn liðurinn í fjáröfluninni er
svo skemmtanimar á sunnudag-
inn og er þess ag vænta að marg-
ar fjölskyldur sem vilja njóta góðr-
ar skemmtunar og styrkja um leiö
gott málefni leggi leið sína á Hótel
Sögu síðdegis á sunnudag, en þeir,
sem jafnframt vilja fá sér snúning,
fari á skemmtunina kl. 9 um kvöld-
ið.
Vantar húsnæði -
Framhald at bls. 16.
skatt, og einnig þurfa þeir að
koma með vottorð um að þeir
hafi borgað af útvarpinu, eða
hljóövarpinu. eins og það heit-
ir víst núna.
— En sjónvarpinu, er ekki
sjónvarp í einhverjum bflum
hérlendis ?
— Það er sjónvarp í einni
Steindórsrútunni, og svo helc
ég aö sjónvarp sé í tveim
smærri bílum, en annar þeirra
er austur í sveitum. Skoðunar-
mennirnir þurfa að sjálfsögðu
að fylgjast með að sjónvarpið
sé staðsett þar sem bílstjórinn
sér ekki á það, aðeins farþeg-
tirnir.
Leiðrétting
í frétt í blaðinu á þriðjudag var
sagt að áætlunarferðir til Borgar-
ness og Hellu hefðu fallið niður á
laugardag, en átti að vera áætlun-
arferðir til Reykholts og Hellu. —
Áætlunarbifreiðin í Borgames fór
aftur á móti sína áætlunarferð,
þrátt fyrir gífurlegt hvassviðri og
erfiða færð. Em viðkomandi beðnir
afsökunar á þessu ranghermi.
I Allt i helgarmatinn |
Svínakjöt Hreinsuð og Appelsínur:
Alikálfakjöt óhreinsuð svið Blóðappelsínur
Hangikjöt (dilka) Kindahakk Jaffa appelsínur
Dilkakjöt Nautahakk Epli
Kjúklingar Folaldahakk (kanadísk og frönsk)
Saltkjötshakk Delicius epli Sítrónur Klementinur
Við bjóðum yður allar tegundir áleggs, þurrkaða Grapefruit
og niðursoðna ávexti og nýlenduvömr. Bananar
Fljót og góð
Kjörbúð Lougorness afgreiðsla Góð bflastæði
Dalbraut 3 S ímar 33-7-22 og 35-8-70 Sendum heim
BORGIN
BELLA
Ég gat ekki fundið neinn, sem
vildi bióða mér út í kvöld. Svo
ég tók Hiálmar með mér.
VEÐRIfi í DAG
Suðaustan gola
og þykknar smám
saman upp I dag.
Suðaustan kaldi
og dálítil slydda
og síðar rigning,
þegar líður á nótt
ina.
VISIR
50
Jyrir
áruni
VÉLBÁTURINN „PÉTUR“
frá Blönduósi, sem liggur hér á
höfninni, rakst upp að uppfyll
ingunni í rokinu á fimtudaginn.
Var það mest fyrir snarræði
Þriggja manna, skrifstofuþjóna
hjá Carl Hoepfner, að honum var
bjargað frá því að brotna f spón
1. apríl 1917,
SÍMASKÁK
Sjálfstæðiskvennafélagið
Hvöt
Heldur fund í Sjálfstæðishúsinu mánudagskvöldið 3. apríl kl. 8.30
Fundarefni: Kosnir verða fulltrúar á þing Landssambands sjálfstæðis-
kvenna.
Lagðar fram til fyrri umræðu tillögur stjórnarinnar um lagabreytingar.
Jóhann Hafstein dóms- og kirkjumálaráðherra talar: Um hvað snýst
kosningabaráttan?
Skemmtiatriði: Tónlist flutt af systrunum Þorgerði, Vilborgu, Unni
Maríu og Ingu Rós Ingólfsdætrum. Kaffidrykkja. Allar konur velkomnar
meðan húsrúm leyfir. Mætið stundvíslega. — Stjómin
25. Bc3xDg7 Rf4xg2
Akureyrl
Júlíus Bogason
Jón Ineimarsson
Reykjavík
Bjöm Þorsteinsson
Bragl Bjömsson