Vísir - 31.03.1967, Síða 16
AðaBfufltdur Iðmið-
arbaflflkons á
niorgiHi
Aðalfundur Iönaðarbanka ís-
lands hf. verður settur á morgun
kl. 14 í Lídó. Sveinn Valfells for-
maöur bankaráðs flytur skýrslu
um starfsemi bankans á liðnu
starfsári. Bragi Hannesson banka-
tjóri gerir grein fyrir reikningum
bankans. Pétur Sæmundsen banka-
stjóri gerir grein fyrir reikningum
IÖnlápasjóðs. Þá fer fram kosning
bankaráðs og endurskoðenda. Loks
eru önnur mál. Fundinum mun
Ijúka síðdegis.
Okkur vautar þak yfír höfuðtö
segir Gestur Ólafsson forstööumaöur Bifreiöaeftirlitsins
□ Á mánudaginn hefst
hin árlega bilaskoðun í
Reykjavík, en af því til-
efni höfðum við sam-
band við Gest Ólafsson,
forstöðumann bifreiða-
eftirlits ríkisins.
— Hvað er helzt aö frétta úr
ykkar herbúðum, Gestur ?
—Okkur vantar menn, viltu
koma ?
- Ja, þarf ekki meiraprófs-
menn í svonalagað ?
— Jú og þeir þurfa helzt að
vera lærðir bifvélavirkjar Nká.
— Þið byrjið snemma að
skoða í ár ?
— Mun fyrr en vant er, en
það stafar af sívaxandi bíla-
fjölda í iandinu. Skoöunin mun
standa fram í október.
— Ilvað eru skoðaðir margir
bílar á viku ?
— Hundraö og fimmtíu á
dag, fimm daga vikunnar. Á
laugardögum tökum viö aðeins
bíla til endurskoðunar og skrán
ingar. Við þurfum ennþá að
vinna á laugardögum, meðan
fiestir aðrir opinberir starfs-
menn hafa frí.
— Hvað vinna margir við
skoðunina ?
— Svona fimm til sex og
veitir ekki af. Sífellt fleiri læra
á bíl og taka hið svokallaða al-
menna próf hjá okkur, en Bif-
reiðaeftirlitið sér einnig um
meirapróf, ökukennarapróf og
rútupróf.
— Rútupróf, hvað er átt við
með því?
— Það er próf sem þeir taka
sem ætla að aka strætisvögn-
um, eða farþegabílum, sem taka
16 farþega eða fleiri.
— Aöstaðan er ekki sem bezt
hjá ykkur ?
' — Hún er slæm. Okkur vant
ar þak yfir höfuðið. I gær var
veghefill að ryðja sköflum af
skoðunarsvæðinu. Einnig vant-
ar okkur fullkomnari tæki, en
ýmsir einstaklingar og fyrir-
tæki eru komin með tæki af
fullkomnustu gerð, meðan við
látum tjakkinn nægja, ef svo
mætti segja.
— Og menn þurfa að koma
með ýmis vottorð ?
— Þeir þurfa að koma með
ljósastillingarvottorð og vott-
orð um að þeir hafi borgað
tryggingariögjald og bifreiöa-
Framh. á bls 10
Gestur Ólafsson, forstöðumaður
Bifreiðaeftírlitisins.
Samið um þvottatæki í hús
byggingaráætlunarinnar
Forsetar íslands og ísraels, þegar þeir hittust í ísracl.
Forseti ísraei hingað
í opinbera heimsókn
Forseti íslands hefur boöið
Zalman Shazar forseta ísrael
hingað til lands í sumar í opin-
bera heimsókn. Hefur þessi op-
inbera heimsókn nú verið stað-
fest, og mun Shazar koma að
kvöldi 4. júní og dvelja hér á
landi til 7. júní. Snemma fyrra
árs fór forseti íslands í opinbera
heimsókn til ísrael og var af-
bragðsvel tekið eins og kom þá
fram í fréttum og frásögnum.
Forseti ísrael Zalman Shazar
er þriðji forseti hins ísraelska
lýðveldis, var kjörinn í embætti
1963, til fimm ára eins og venja
er þar í landi. Shazar er fæddur
1889 i Rússlandi. Nam hann
sagnfræði við háskólann í Pét-
ursborg og þá í Freiburg í
Pýzkalandi, Strasbourg og Ber-
lin. Settist Shazar að í Palest-
ínu árig 1924 bar sem hann
starfaði við blaðið Davar og
sem ritstjóri þess árabilið 1925-
1949. Var hann menntamálaráð-
herra ísrael 1949—50 og -'sinnti
síðan ýmsum mikilvægum störf-
um fyrir land sitt og eins og
fyrr segir tók við forsetatign
1963.
Nokkrar bækur hafa verið
gefnar út eftir Shazar, þar á
meðal sjálfsævisöguþættir.
Framkvæmdanefnd byggingará-
ætlunar hefur nú samið um kaup
á öllum tækjum í þvottahús fjöl-
býlishúsanna 6, sem reist verða i
1. áfanga áætlunarinnar í Breið-
j holti. — Tilboð bárust frá 5 að-
í ilum um tæki í þvottahúsin, en
Framkvæmdanefnd valdi hagstæð-
ustu tækin frá þremur aðilum. —
Að því er Ólafur Sigurðsson arki-
tekt tiáði blaðinu. fengust mjög
viðunandi tilboð í tækjauppsetn-
ingu í þvottahúsin, en Ólafur sér
I um allar innréttingar og tæki í
fjölbýlishúsin. — Eitt þvottahús
verður í hverju fjölbýlishúsi, en
auk þess verður sköpuö aðstaða
til þvotta í hverrl íbúð, sem verða
52 í hverju fiölbýlishúsi. — 3 sjálf
virkar þvottavélar, 2 þeytivindur,
1 þurrkari og 1 strauvél verða í
hverju þvottahúsi og munu tækin
öll kosta um 150 þús. kr. uppsett.
— Þó að margar íbúðir verði um
hvert þvottahús, er bó afkastageta
þeirra slik, að hver íbúð mun a.m.
k. hafa aðgang að þvottahúsi hálfs
mánaðarlcga.
Tækin í bvottahúsin veröa frá
Bræðrunum Ormsson (AEG), G.
Marteinsson (Miele) og Fönix
(GEM).
Skemaitamr til styrktar
Skálatúassmdlaugmm
Sundlaugarsjóður Skálatúnsheim-
ilisins efnir til tveggja skemmtana
á Hótel Sögu n.k. sunnudag. Verður
sú fyrri kl. 3 en sú síðari kl. 9 um
kvöldið. Skcmmtiatriðin verða
mjög fjölbreytt: sýning á tízku-
fatnaði frá 5 fyrirtækjum og sýna
þar þrjár dömur, tveir herrar og
táningur; sýnd verður meðferð á
hárkollum; söngur og hljóðfæra-
leikur unglinga úr Réttarholts-
skóla; danssýning; 10 ára stúlka,
Elín Clausen fer með kvæði og
leikur það. Unnur Amgrímsdóttir
og Hermann Ragnar Stefánsson
danskennarar hafa séð um skemmti
atriðin.
Skemmtanirnar veröa haldnar til
ágóða fyrir sundlaugabyggingu ‘
Skálatúni í Mosfellssveit, en bygg
ing hennar hófst áriö 1965 Var
lokið við að steypa lauginá, sem
er 80 fermetrar, á liðnu sumri, en
við hana verður 55 fermetra hús
meö böðum og búningsklefum
Verður framkvæmdum haldið áfram
Framh. á bís 10
STABAT MATER
FLUTT A SKAGA
Kirkjukór Akraness hélt tónleika
á skírdag í 'kirkjunni á Akranesi.
Húsfyliir var á tónfeikunum, sem
tókust mjög vel og voru aðstand-
endum og þátttakendum til mik-
ils sóma.
Áður en tónleikarnir hófust
flutti sóknarpresturinn séra Jón
M. Guðjónsson bæn. Að henni lok-
inni var flutt verkið „Ó, höfuð
dreyra drifiö“ eftir Johann Sebast-
ian Bach, sálmaforleikur og bland-
aður kór. Stjómandi var Magnús
Jónsson, en Haukur Guðlaugsson
lék á orgelið. Þá var flutt tónverk-
ið Lacrimosa eftir Wolfgang Am-
adeus Mozart, en það verk er úr
Sálumessu í d-moll K. V. 624. Að
þessu verki loknu var hlé, en síö-
an var flutt Stabat mater eftir
Giovanni Battista Pergolesi. Flytj-
endur voru kvennaraddir úr kirkju
kórnum, en einsöngvarar voru þær
Guðrún Tómasdóttir og Sigurveig
Hjaltested. Undirleik á orgel ann-
aðist Fríða Lárusdóttir, en kvart-
ett skipaður meðlimum úr Sin-
fóníuhljómsveitinni lék með. Stjóm
andi var Haukur Guðlaugsson. —
Raddþjálfari Kirkjukórs Akraness
er Einar Sturluson.
Hér er sýningarfólkið, sem koma mun fram á tízkusýningunni og sýna um 30 klæðnaði og eins og
sjá má af þessu sýnishomi verða sýnd alls konar föt, allt frá skíðafötum upp í samkvæmisklæðnað.