Vísir - 10.04.1967, Síða 2
V1SIR . Mánudagur m.
ttp*n
Island jafnaði 21-21 þegar eft-
ir voru 13 sekúndur af leik
íslenzka liðinu tókst að komast úr 15 - 21 í 21 - 21
ú síðustu 10 mínútunum í gærkvöldi
□ íslenzka landsliðið kom rúmlega 2300 áhorfendum sannarlega skemmtilega á
óvart í gærkvöldi síðustu 10 mínútur landsleiksins gegn Svíum. ísland breytti
„töpuðu“ tafli í jafntefli með miklu harðfylgi, skoraði á þessum tíma 6 mörk gegn
engu marki hins unga sænska liðs, sem virtist sannarlega með pálmann í höndun-
um með 21:15.
□ En þá var það, að Gunnlaugur Hjáhnarsson & Co. komust loks í gang. Það var
þá, sem byrjað var að senda inn á línuna, fram að þeim tíma hafði boltinn varla
komið nálægt línumönnunum. Sigurður Einarsson hinn snjalli línumaður sagði þó:
„Ég hef sjaldan verið eins laus á línunni í landsleik og einmitt nú“.
voru þá átta og hálf mínúta eftir,
21:16, þá kemur Stefán Sandholt
með 5. skot sitt í leiknum og skor-
aði enn einu sinni mjög fallegt
mark. Svíarnir virtust nú einna
helzt á þeim buxunum að tefja leik
inn fyrir hinum áfjáðu leikmönn-
um Islands. En allt var okkar liði að
happi, utan það ag Sigurður Ein-
arsson fór illa með gott tækifæri,
skaut í stöng, þegar 6 mínútur voru
eftir.
Sænska landsliðið kom hingað án
„trompanna“ Gunnars Kámpendahl,
og Lindbloms eða Ericsons. Þessir
þrælvönu leikmenn Svía hefðu ef-
laust getað veitt liðinu þá festu,
sem nauðsynleg var gegn islenzku
liði í vígamóð síðustu 10 mínútur
leiksins. Það var engu Ifkara en að
Sviarnir hreinlega gæfust upp fyrir
þessu baráttuglaða liði, sem að auki
virtist hafa allt heimsins gengi með
f sér, svo vel heppnuðust sóknir ís-
lands. Hins vegar er það vitað að
þessir sömu kappar eru ekki leng-
ur það sem þeir voru áður og eru
farnir að verða „gamlir menn“ í
íþróttum og verða að víkja fyrir
þeim yngri, serq áttu sína fyrstu
landsleiki þetta kvöld, en nýlið-
ar Svía voru fiórir, allir mjög efni-
legir menn. Eflaust hitti fararstjóri
beirra naglann á höfuðið í hófi eft-1
ir leikinn, þegar hanrr sagði um:
'°ið og hann afhenti þeim forláta!
' e’-mahnappa að gjöf : „Það er erfitt j
að komast í sænska iandsliðið í;
handknattleik, — og enn erfiðara
að losna þaðan aftur“
En svo við víkjum að leiknum í
gærkvöldi, sem haföi safnað að sér
svo til fullu húsi áhorfenda, þrátt
fyrir harða samkeppni við Ðenna
dæmalausa í sjónvarpinu, gaman-
þátt í útvarpinu og fjölmargar ferm
ingarveizlur í borginni auk ferða-
laga í vorveðrinu út újr bænum, þá
leit í upphafi út fyrir hörkuleik
miili Svía og íslendinga, og allan
fvrri hálfleik má segja að leikur-
inn hafi verið barningur, sem Sví-
ar áttu þó ívið meira í. Fyrstu 10
mínúturnar virtist sem bæði löndin
hefðu rekið stálþil niður sem vam-
arvegg, staðan að loknum 10 mínút-
um var 1 :1 Svíar skoruðu fyrsta
markiö eftir 6 mínútur, en þar var
að verki hinn snjalli Tony Johans-
son. Geir Hallsteinsson svaraði fyr-
ir okkar lið á 9. mínútu. Þorsteinn
varði vel í byrjun og á 11. mínútu
skorar Stefán Sandholt 2:1 fyrir
Island með mjög laglegu skoti. Erik
son skoraði 2:2 úr vítakasti, en
Gunnlaugur Hjálmarsson skorar
3 : 2, „dribblaði“ endilangan völlinn
og skoraði stórfallegt mark, og
voru þá liðnar nær 15 mínútur af
leiknum.
Svíar fundu nú um síðir aðferð-
ina til að skora mörk hjá íslend-
ingum — leið, sem ætti í rauninni
að vera nokkurs konar „hin leið“
eða ófæra. Þeir fundu upp á því að j
fara fyrst í gegnum homið vinstra
megin. Þar skoruðu þeir óáreittir
tvö mörk í röð. Komust Svíar 5
sinnum i fyrri hálfleik 2 mörk yfir,
I 6:4, 8:6, 9:7, 10:8 og 11:9, en þann-
ig var staðan í hálfleik.
Byrjun seinni hálfleiks er eitt-
hvað það lakasta, sem íslenzkt
landslið hefur látið sjá til sín. —
Sænska liðið þurfti ákaflega lítið
fyrir hlutunum að hafa og eftir
rúmar 5 mínútur voru þeir búnir
aö skora 4 mörk í röð, staðan orð-
in „vonlaus" að því er flestum virt
ist, 15:9. Geir og Auðunn skora nú
tvö mörk fyrir lsland og staðan
15:11. Þá kemur sænskt mark og
íslenzkt, staðan 16:12, þá mörk frá
Jan Hodin, sem notaði sömu að-
ferð til að leika á vömina í þriðja
sinn með árangri og nýliðanum Jo-
hanson, og staðan er 18:12. Gunn-
laugur skorar á 17. mfnútu 18:13,
en, Danell (lék hér með Hellas eins
og Hodin) bætir við 19:13, Stefán
Sandholt skorar 19:14, sitt fjórða
mark (og notaði 4 tilraunir til þess),
en Tony Johansson svarar jafnharð
Þegar 5 mín. voru til leiksloka
skorar Geir með lúmsku skoti 21:18
og nú var fyrir alvöru búið að!
„kveikja í“ áhorfendum, sem fundu
lyktina af stórviöburöinum. Þegar
rúmar 3 mín. voru eftir skorar Sig-:
uröur Einarsson 21:19 og aðeins
2:12 sýndi rafmagnsklukkan, þegar!
Geir skorar 21:20. Svíar hefja sókn
en hann birtist í sókninni. Geir var
ágætur, en Örn óheppinn með skot
sín og Ragnar á sama báti. Jón
Hjaltalín sýndi að hann getur skot-
ið, en virtist ekki vera á sínum
rétta skotstað.
Sænska liðið var nokkuð jafnt,
en langbeztu menn vom þó þeir
Tony Johansson, Björn Dannell,
markvörðurinn Ström. Þá átti Jan
Hodin góðan leik. Sænska liðið hef-
ur yfirburði yfir það íslenzka í hæð,
leikmenn flestir mjög háir menn
og ættu skot þeirra því að njóta
sín einkar vel. Þó virðast furðu
fáir leikmenn þeirra geta skotið af
færi.
Dómarinn Westergaard var mjög
góöur eins og hann hefur raunar
sýnt áður hér á islandi. —jbp—
Gunnlaugur Hjálmarsson/afgerandi maður í leiknum í gær, skorar hér mark fyrir Island, eitt af mörkunum,
sem færði jafnteflið.
an með 20:14. Gunnlaugur skorar:
20:15 og á eftir fylgir mark frá1
Lennart Eriksson 21:15.
Þetta var sá ás, sem sneri leikn- j
um við. Nú var það íslendinganna
að sýna hvað þeir gátu. Áhorfendur
voru greinilega orðnir vondaufir, |
en það reyndust liðsmenn lslands j
ekki og sá var gæfumunurinn. —
Gunnlaugur skorar fyrsta markiö og \
tö
< » §
w W o ■ s O: < P >1 ►1 P 1 fo 2. oí & O: Stangarskc Linusendin O: 3 C/Q C/3 O) 3 Bj 3* s e 3 8 ■g Brotið - ■mt vítakas
H X o* p. 3 CTQ CTQ O* • r+ 1
Gunnlaugur Hjálmarsson n 5 3 2 í 0 3 l 1 0
Geir Hallsteinsson ii 6 0 2 2 1 1 1 0 0
Ragnar Jónsson 7 1 3 1 2 0 0 0 0 0
Örn Hallsteinsson 7 0 3 1 1 2 1 2 2 0
Jón Hjaltalín Magnússon 5 2 1 1 1 0 0 0 0 ö
Stefán Sandholt 5 0 0 0 0 0 1 0 1
Sigurður Einarsson 3 1 1 0 0 1 3 0 0 1
Auðunn Óskarsson - 2 1 0 0 0 1 0 0 0 0
Hermann Gunnarsson 1 0 1 0 0 0 2 0 0 2
Stefán Jónsson 0 0 0 0 0 0 0 0 0 0
/
mat.aii.as'i ■■■
en missa enn einu sinni boltann til
Islendinga. Boltinn berst inn á lín-
una til Hermanns, sem á gott færi,
en þá er gróflega brotið á honum
og Westergaard, hinn ágæti danski
dómari bendir á vítapunkt.
Sjaldan hefur íslenzkur lands-
liðsmaður átt erfiðara hlutskipti en
Geir Hallsteinsson, — 13 sek. eftir,
staðan 21:20, — en Geir virtist full-
komlega rólegur og boltinn þaut í
vinstra hornið og átti markvörður-
inn litla möguleika á að verja. Geir
stökk Látt i loft upp og fagnaði inni
lega. Svíar fengu sitt tækifæri á að
sigra, úr aukakasti, sem lenti í
þéttum íslenzkum varnarvegg.
íslenzka liðið í þessum leik var
æði misjafnt. Markverðirnir t.d.
munu eflaust ekki eiga svo slæman
leik í kvöld. Svíarnir notfærðu sér
hornin um of, því markverðirnir
virtust ekkert ráða við skot þaðan.
hvernig sem þau komu. Voru mörk-
in þaðan ekki færri en 10 talsins.
Vöm Islands ætlaði að gefa Svíum
„vegabréf" þá leiðina, sem gafst
þó ekki of vel vegna leiks mark-
varðanna. Mjög góðir vamarleiks-
menn voru þeir Auðunn og Stefán
Sandholt. Gunnlaugur var þó maö-
urinn, sem mest kvað aö og í seinni
hálfleik færðist ekki líf í liðiö fyrr
/'PjlIIJiS
I iililíllliiliíli!
P!p!!l!'li
á'l.f
Iðll!
ipllípiilniiðiiiiij!
/ijl .f/f|
1.......Éil 1
Úrslit í 6. umferð ensku bikar-
keppninnar.
Birmingham-Tottenham 0—0 —
leikurinn var heldur leiöinlegur, og
lítið um spennandi augnablik, nær
ekkert skot á mark í leiknum —
liðin leika seinnj leikinn á mið-
vikudagskvöldið.
Chelsea — Sheffield Wed. 1—0,
spennandi og fjörugur leikur, sem
endaði með sigurmarki frá Chelsea,
er aðeins 2 mín. voru til leiksloka..
Leeds — Manchester City 1—0,
einnig mjög spennandi leikur, og
markið gert seint í síðari hálfleik.
Notthingham Forest — Everton.
Bezti leikurinn, i æsispennandi og
fjörugur. Everton hafði yfir í hálf-
leik, 1—0, en Nott. Forest jafnað'
í byrjun seinni hálfleiks og komst
yfir, með tveim fallegum mörkum,
sem bæði voru gerð á rúmum 2 mín
útum. Everton jafnaði, en Nott
Forest skoraði sigurmarkið á síð-
ustu mínútum.
Þrír leikir fóru fram í 1. deild-
inni.'Aston Villa — Fulham 1—ls
Blackpol — Sheff. Utd. 0—1, Sout-
hamton — Bumley 4—0