Vísir - 10.04.1967, Blaðsíða 8
8
VÍSIR . Mánudagur 10. apríl 1967.
VÍSIR
Otgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR
Pramkvæmdastjóri: Dagur Jónasson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Aðstoðarritstjóri; Axel Thorsteinsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Bergþór Úlfarsson
Auglýsingar: Þingholtsstræti 1, símar 15610 og 15099
Afgreiðsla: Túngötu 7
Ritstjóm: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 línur)
Askriftargjald kr. 100.00 á mánuði innánlands
1 lausasölu kr. 7.00 eintakið
Prentsmiðja Vísis — Edda h.f.
Framkvæmdaáætlunin
Qárungamir segja, að ekki sé hægt að láta áætlanir
standast hér á landi. alltaf vanti eitthvað upp á og
oftast meira en lítið. Þessi kenning var rækilega af-
sönnuð á föstudaginn, þegar fjármálaráðherra skýrði
á Alþingi frá reikningsskilum fyrstu íslenzku fjög-
urra ára áætlunarinnar fyrir árin 1963—1966. Sú áætl-
un stóðst ekki aðeins, heldur fóru framkvæmdir á
flestum sviðum langt fram úr því, sem áætlað var.
Athyglisvert er, að það voru einmitt framkvæmdir
í atvinnuvegunum, sem fóru svo langt fram úr áætlun.
Engin dæmi eru um aðra eins nýsköpun í atvinnu-
lífinu eins og átt hefur sér stað undanfarin fjögur ár.
Sér þess hvarvetna merki, í nýju skipunum og nýju
flugvélunum, í nýju fiskvinnslustöðvunum og nýju
iðjuverunum. Á fjórum árum hefur orðið alger stökk-
breyting í atvinnuvegunum.
Hins vegar voru framkvæmdir hins opinbera, eink-
um ríkisins, í samræmi við áætlunina. Ríkisstjórnin
hefur fylgzt náið með hinni miklu spennu, sem ný-
sköpunin hefur orsakað, og reynt að hamla gegn
henni með því að hafa sínar eigin framkvæmdir í hófi.
Ef til vill má líta svo á, að hún hefði mátt ganga
lengra á því sviði, en þar á móti kemur hin óseðjandi
þörf fyrir framkvæmdir ríkisins á öllum sviðum, í
vegum, skólum, sjúkrahúsum o. s. frv.
Framkvæmdaáætlunin fyrir 1967 fylgir svipuðum
meginsjónarmiðum og fjögurra ára áætlunin. Þrátt
fjnir hina miklu örðugleika, sem hafa steðjað að þjóð-
inni í kjölfar lækkandi útflutningsverðs, er sóknin
söm og jöfn sem áður. Framkvæmdir í ár eru ráð-
gerðar meiri en nokkru sinni fyrr í sögu landsins.
Þar vega þungt á metunum hinar miklu framkvæmd-
ir við Búrfell og Straumsvík, sem koma nú á heppi-
legu andartaki, einmitt þegar nokkuð hefur slaknað
á efnhagsspennunni. Á síðustu árum hefur verið
byggt upp svo sterkt efnahagskerfi, að það þolir vel
áföll eins og verðfallið á útflutningsafurðunum. Þjóð-
in á digra gjaldeyrisvarasjóði og meira lánstraust en
nokkru sinni fyrr. Þessi styrkur efnahagskerfisins
gerir þjóðinni fært að sækja fram í ár í enn ríkara
mæli en fyrri ár.
Hins vegar mun ríkisvaldið halda tiltölulega mikið
að sér höndum í framkvæmdum sínum. Á það að
vega á móti spennunni í atvinnulífinu og stórfram-
kvæmdunum. Þetta er ekki auðvelt hlutverk, því úr
öllum áttum er kallað á framkvæmdir ríkisins. Það
er ekki létt verk að neita framkvæmdum, sem allir
sjá, að eru mjög þarfar og nauðsynlegar. En það væri
nýtt, ef hægt væri að gera allt, sem þörf er á að gera.
Ríkisvaldlð hefur gefið atvinnuvegunum forgang að
framkvæmdum og með því móti byggist atvinnulífið
hraðar upp.
Heldur Kanellopoulos völd-
unum fram yfir kosningúr?
Hvað gerist i Grikklandi á
þeim vikum sem framundan eru
og þar til þingkosningar eru um
garð gengnar og þjóðin hefir
fengið að leggja sín lóð á vogar-
skálarnar? Um þetta er spurt og
menn eru á sama máli um það,
að allt sé frekar ótryggt, þótt
mynduð hafi verið bráðabirgða-
stjórn.
Pappandreu gamli, leiðtogi
stærsta þingflokksins er reiöur
og fleiri flokksleiðtogar gagn-
rýna Konstantín konung fyrir þá
ákvörðun hans, að fela Kanell-
opoulosi leiðtoga þjóðemisradi-
kala að mynda bráðabirgða-
stjórn, en líklega eru þeir fleiri,
sem telja, aö konungurinn hafi
gert hið eina rétta.
Panayotis Kanellopoulos er
65 ára. Konungurinn bað hann
er fílósóf, heimspekingur, and-
ans maður, og liggja eftir hann
bækur, um sögu mannsandans
í Evrópu, „þróun sonnettunnar"
og fleira og fleira.
Hann tók við forustu þjóð-
ernis-radikala sambandsins, er
stofnandi þess Konstantine
Karamanlis, gerðist stjórnmála-
legur útlagi í París, beiskur
vegna fyrsta stjórnmálaósigurs
síns. Kanellopoulos er kvæntur
systurdóttur hans.
Kanellopoulos er fæddur í
Patras á Suður-Grikklandi. Ör-
lög eins frænda hans í móður-
ætt höfðu mikil áhrif á hugs-
analíf hans en Kanellopoulos
var um tvítugt, er þessi frændi
hans — Demetrios Gopumaris
— forsætisráðherra og fimm
ráðherrar hans voru teknir af
1
)
l
1
KONSTANTÍN, vandanum vaxinn.
að mynda stjóm og leita trausts
þingsins, sem vafasamt er þó
að Kanellopoulos fái, en hann
ákvað að mynda minnihluta-
stjóm og rjúfa ekki þing strax,
en gera það þó eigi síöar en í
maílok. Raddir hafa heyrzt um,
að Kanellopoulos ætli sér að
rjúfa þing, er þar að kemur,
hvórt sem hann fær traust sam-
þykkt á sig og bráðabirgðastjóm
sína eða ekki.
Það er búist viö að flokkur
Pappandreu og ef til vill tveir
aðrir flokkar greiöi atkvæði
gegn Kanellopoulosi, en þessir
þrír flokkar ráöa samtals yfir
um 200 af 300 þingsætum.
Kanellopoulos hefur veriö
þátttakandi £ grískum stjóm-
málum í rúma þrjá áratugi, og
oft komið fram sem sá, er bera
vill klæði á vopnin og er mikill
mannasættir Veröur held-
ur aldrei um hann sagt eins og
svo marga aðra gríska stjórn-
málaleitoga, aö hann sé í þessu
vegna þess að því fylgi hlunn-
indi og hagnaður, . að vera
flokksleiðtogi á Grikklandi, þar
sem margir líta á stjörnmál sem
,,sport“ eða „föndurstarfsemi",
sem geti ef vel er á haldið
verið „fjári góður bisness"
hærra en slíltir fuglar, — hann
Kanellopoulos svífur miklu
lífi, að ákvörðun byltingar-
stjórnar, sem kenndi þeim um
ósigurinn í styrjöldinni við
Tyrkland 1920—1922 ...
... Innanríkisráöherra í þá-
verandi byltingarstjórn var
Geosge Pappandreu, keppinaut-
ur Kanellopoulos nú. Það eru
langir skuggar á vettvangi
griskra stjórnmála, segir um
þetta í yfirlitsgrein, sem hér er
stuðzt við ...
Það var árið 1935, sem Kan-
ellopoulos stofnaði sinn eigin
flokk, Þjóðernis-bandalagið, en
áriö eftir gerði einræðisstjórn
Metaxas hershöföingja hann út-
lægan og flutti hann til fjar-
lægrar eyjar. Þegar ítalir réöust
inn £ Grikkland geröist hann
sjálfboðaliði. Áriö 1941 starfaði
hann mikið i leynifélagsskapn-
um („neðanjarðarhreyfing-
unni“), en þá höfðu Þjóðverjar
ruðzt inn i landið. Síðan sam-
einaöist hann grísku útlaga-
stjóminni, sem starfaði i Aust-
urlöndum nær, og var hermála-
ráöherra og varaforsætisráð-
herra.
Eftir aö Grikkland varð frjálst
aftur var hann ráðherra í hverri
ríkisstjóminni af annarri og var
forsætisráðherra í 22 daga, er
Grikkland reyndi hvort tveggja:
Að losa sig úr viðjum hemáms
PAPPANDREU, reiður...
nazista og forðast aö lenda í
viðjum kommúnista. ,
Hann var varaforsætisráð-
herra í stjóm Papagos. Hann
varð fyrir vonbrigðum, er Páll
konungur valdi Karamanlis eft-
irmann Papagos, og hugleiddi þá
aö hætta þátttöku í stjórnmál-
um, en siðar tókst þó samstarf
með honum og Karamanlis og
varð hann eftirmaður hans.
„Kanellopoulos er reyndur,
hygginn stjómmálamaður. Menn
ættu að forðast að meta hann
minna en hann hefir til unniö,
og menn ættu ekki að vera of
fljótir á sér að fella dóm yfir
Konstantin konungi, sem tókst
við erfiðar aðstæður aö leysa
stjórnarkreppu lýðræðislega . ..
og loks ættu menn ekki heldur
að vanmeta hvers öldungurinn
Pappandreu er megnugur".
Það er mikið rætt um hver
vandi Kanellopoulosi sé á hönd-
um og bráðabirgðastjórn hans,
en um þaö ber flestum saman,
að ekki sé öðrum betu. treyst-
andi en honum til að hafa t'or-
ustuna næstu vikur. Reynsla
hans,^ hyggindí og rósemi sam-
fara vilja til sátta gætu ef til vill
tryggt friðsamlegri Kosninga-
baráttu en menn höfðu þorað
að gera, sér vonir um. —
(Að mestu þýtt)
KANELLOPOULOS, róiegur...