Vísir - 10.04.1967, Qupperneq 9
V í SIR . Mánudagur 10. apríl 1967.
Q
Seðlatalningavélarnar komu til landsins 1958, samhliða því að löngu og mjóu seölarnir voru teknir
I notkun. Vélamar eru bandarískar að gerð og eru þannig gerðar, að þær telja aðeins einn seðil í einu.
Líta á seðla eins og
hvern annan pappír
- Heimsókn í Seðlagreiningardeiid Seðiabanká íslands
1 kjallaraherbergi við Austur-
stræti sitja sjö stúlkur alla
vinnudaga og telja peninga. —
1 gegnum þeirra hendur fara
nær allir peningar, sem Seðla-
banki íslands setur í veltuna
hér á landi. Peningar, sem ég
og þú notum til þess aö borga
húsaleiguna og mjólkina fara í
gegnum þjálfaðar hendur þeirra.
Seðlar, sem við förum illa með,
dæma þær úr leik og um leið
og þær telia seðlana, ber þeim
aö hafa 1 huga, að jafnvel á ís-
landi geta falsaðir seðlar veriö
í umferð. — Beztu tæki til að
finna falsaða seðla eru fingur-
gómar mannsins, því erfiöasta
raun peningafalsara er að fá
rétta áferö á seölana og réttan
pappír. — Það eru raunar fleiri
en þessar stúlkur, sem fylgjast
meö fölskum peningaseðlum, t.
d. gjaldkerar bankanna, sem
hafa flestir fengið nær yfir-
skynlega tilfinningu fyrir seöl-
um.
Þegar stúlkurnar sjö koma
til vinnu, ganga þær um 1 aðal-
afgreiðslusal Landsbankans, þó
að vinnuveitandi þeirra sé ekki
Landsbanki Islands, heldur
Seðlabanki Islands, sem greind-
ist algjörlega frá Landsbankan-
um sem stofnun árið 1961, en
hafði aö nokkru leyti verið aö-
greindur frá 1957. Stofnanirnar
lifa þó enn í nánu sambýli í
sama húsnæðinu, en Seðlabank-
inn hyggst reisa sér hús yfir
starfsemina fljótlega vegna
plássleysis í Landsbankahúsinu,
sem verður ætíð meira áberandi
eftir því sem starfsemi stofn-
ananna þenst út.
Stúlkumar hverfa inn um lítt
áberandi dyr á afgreiöslu saln-
um, en innan við dyrnar liggur
hringlaga stigi niður £ kjallara
hússins. — Neðst í stiganum
girðir sterklegur jámgrindar-
veggur af allan stigann. — Þær
hringja á bjöllu og eftir skamma
stund kemur 'vörður að járn-
grir.dinni innan frá, — lftur
sem snöggvast á stúlkurnar,
dregur upp lykil og hleypir þeim
inn.
Tíðindamenn Vísis gengu ný-
lega þessa sömu leiö í fylgd
með Birni Tryggvasyni, skrif-
stofustjóra Seðlabankans, í þeim
tilgangi aö kynna sér starfsemi
seölagreiningardeildar Seðla-
bankans. — Voru forráðamenn
bankans svo vingjamlegir, að
hleypa okkur, fyrstum blaða-
manna, inn í þessa leyndustu
afkima stofnunarinnar. Ljós-
myndaranum var tilkynnt áður
en við lögðum af stað niður £
kjallarann, aö honum væri ekki
heimilt, að taka myndir alls
staðar á leiðinni vegna öryggis-
reglna, sem bankinn setur sér.
Þegar okkur hafði verið
hleypt inn fyrir járngrindarvegg-
inn, varð okkur starsýnt á járn-
grindahurö, sem lokaði af lít-
inn sa! á vinstri hönd — Ljós-
myndarinn gerði sig líklegan til
að smella af mynd, en var fljót-
lega stöðvaður. — Þarna blasti
sem sé við þaö „frystihús"
landsins, sem líklega þarf hvað
minnstar áhyggjur að hafa
vegna rekstrargrundvallarins, —
seðlageymsla Seölabankans, sem
er aðalféhirzla landsins. —
Hvaö er geymt þarna mikið fé?
spyrjum við, en Bjöm svarar
með tvíræðu brosi að hann viti
þaö ekki. — Það má þó skilja
Afköst dagsins, 15.3 milljónir. Seðlarnir 1 skúffunni tíl vinstri hafa
verið dæmdir úr umferð. Mest gengur úr af minnstu seðlunum,
5 kr., 10 kr. og 25 kr. Meðalumferðaraldur 5 kr. seðlanna er um
12 mánuðir, en 1000 kr. seðlanna þrjú ár.
Rammgerður stálgrindarveggur er fyrir innganginum inn í kjall-
arann, en hann er eitt af fleiri öryggistækjum, sem koma í
veg fyrir óþarfar heimsóknir £ eitt eftirsóknarverðasta „frystihús“
iandsins.
af brosinu, að upphæöin skipti
frekar þúsundum en hundruð-
um milljóna króna.
— Þetta er þó aðeins pappir
þar til Seðlabankinn hefur veitt
þvi út í veltuna, segir Björn.
— Viö bankastarfsmenn hætt-
um aö líta á peninga öðrum aug
um en sem pappír, þ. e. meðan
á vinnu stendur.
Eftir þetta intermesso er haldið
áfram eftir gangi, þar til komið
er að herbergi út við Austur-
stræti. — Daufa dagsskímu
leggur inn i herbergið úr glugga
upp við loft herbergisins, en á
milli rimla í glugganum má
greina fætur vegfarenda, sem
hraða sér eftir götunni fyrir
utan.
I herberginu er hljótt nema
suð heyrist i sjö seðlatalningar-
vélum og situr stúlka við hverja
vél og fóðrar hana á seðlum. —
Eini karlmaðurinn í herberginu,
Sigfús Styrkárson, kemur á
móti okkur. — Hann stjórnaði
deildinni þennan dag, en vfir-
maður deildarinnar Torfi Ólafs-
son var vant við látinn. — Þó
að Sigfús sýni okkur starfsem-
ina ásamt Birni af mestu vin-
semd, má þó finna, aö hann er
ekki nema mátulega ánægður
með heimsókn utanaðkomandi
í deildina. Vinnudeginum er aö
verða lokið, en að honum lokn-
um veröur hann að skila aðal-
gjaldkera bankans sömu upp-
hæö og hann fékk til að greina
um morguninn — Upphæðin,
sem deildin fær til meðferðar
á hverjum degi er nokkuð mis-
jöfn frá degi til dags, eftir því
hvernig seðlamir skiptast eftir
verðmæti, — liggur á bilinu frá
15—30 milljónir.
Tilgangurinn meö seðlagrein-
ingunni er fyrst og fremst sá,
að skilja frá seðla sem eru orðn-
ir mjög illa famir og taka þarf
úr umferö, en einnig er tilgang-
urinn sá, aö telja seðlana í 100
Framh á bls. 13.
Sigfús Sj;yrkársson gatar 100 seðla búnt, sem dæmt hefur verið
úr umferö.
i