Vísir - 10.04.1967, Síða 16
. 15 ÁRA KVENNASKÓLASTÚLKA
y
Kristján Bersi Ólafsson
formaður Blaðamanna-
félagsins
Kristján Bersi Ólafsson var kjör-
in formaður Blaðamannafélags Is-
'•’ds á aðalfundi þess I gær. Aðr-
ir i stjórn voru kosnir Atli Steinars
Vjmas Karlsson, ívar H. Jóns-
n og Árni Gunnarsson. I launa-
tálanefnd voru kjörnir Björn Jó-
nnsson (Mbl.), Sigurður Frið-
jófsson (Þjóðv.), Valdimar Jó-
’.nnesson (Vísi), Kári Jónasson
T.'m.) 02 Anna Brynjólfsdóttir
\bl.) Á fundinum var samþykkt
5 hefja undirbúning 70 ára af-
lælis félagsins, sem verður síð-
nri hluta ársins 1968, og var skipuð
efnd í því skyni. Miklar umræð-
"T urðu um framkvæmd hinna
•""ju siðareglna Blaðamannafélags-
ins, en tveir dómar hafa fallið
' ;rir brot á þeim.
VARÐ FULLTRUIÆSKUNNAR167
Fimmtán ára Reykjavíkur-
stúlka, Kristín Helga Waage,
Laugarásvegi 73, var kjörin
„Fulltrúi ungu kynslóðarinnar
1967“ á föstudagskvöldið í Aust-
urbæjarbíói í Reykjavík. Kristfti
er elzt fjögurra dætra hjónanna
Guðrúnar og Sigurðar S. Waage
nemandí við Kvennaskólann í
Reykjavík.
Keppni þessi var ekki ein-
göngu miðuð við fegurð eða
þokka hinna ungu þátttakenda,
sem voru á aldrinum 15—17
ára, heldur var hér einnig dæmt
um það, hvernig framkomu kepp
endur höfðu, og einnig voru
stúlkurnar látnar „troöa upp“
með skemmtiatriði. Valdi Krist-
Framh. á bls. 10
Kristín Helga Waage ásamt, foreldrum sínum, Sigurði og Guðrúnu, og systrum, sem heita Sigrún, 5
ára, Hendrikka Guðrún, 1 árs, og Margrét 11 ára.
Stofnlánadeild Verzlunarbankans
tekur til starfa 1. júlí
Aðalumferðaræðin út á flugvöll var lokuö. Hér er mynd af Njarðar-
götunni, sem var gjörsamlega ófær.
^fðalfundur Verzlunarbanka ís-
lands h.f. var haldinn I veitingahús-
inu Sigtúni s.l. laugardag. Fundar-
stjóri var kjörinn Geir Hallgrims-
son borjarstjóri ea fundarritarar
Gunnlaugur J. Briem, verzlunar-
maður og Jón I. Bjarnason, ritstjóri
Verzlunartíðinda.
Þorvaidur Guðmundsson, formað
ur bankaráðs flutti skýrslu um starf
1 semi bankans s.l. ár og kom fram
, í henni að á árinu hafði öll starf-
i semi bankans farið vaxandi. Bank-
inn opnaði á árinu afgreiðslu i Um-
ferðarmiðstööinni og er þár um að!
i ræða þjónustu fyrir ferðamenn svo '
og viðskiptamenn bankans.
Á síðasta ári var öll afgreiðsla
ibartkans endurbætt og í notkun
I teknir rafreiknar við bókhald bank !
ans. Hefur sú ráðstöfun leitt af sérj
verulega bót á allri daglegri af-
greiðslu viðskiptamanna i bankan-
um. Jafnframt voru gerðar endur-
bætur á húsakynnum bankans, sem
nú eru mjög rúmgóð.
Innistæður í árslok námu sam-
tals 605.1 millj, kr. en útlán 489.2
millj. króna Aukning innistæöna
í sparisjóðsreikningum nam á árinu
72 millj. kr. en hlaupareikningsinni-
stæður lækkuðu um 11.8 millj. kr.
Höskuldur Ólafsson, bankastjóri
lagði fram jeikninga bankans og
skýrði þá. Kom fram í þeim að hag-
ur bankans er traustur. Hlutafé
bankans er nú 12 millj. kr. og vara-
sjóður 17 millj. króna. Reikningari
bankans voru samþykktir sam-
hljóða.
Fyrir fundinum lá tillaga frá
stjóm bankans um hlutafjáraukn-
ingu. Haföi Magnús J. Brynjólfsson
kaupmaður framsögu fyrir henni.
Var tillagan einróma samþykkt og
var stjórninni heimilað að auka
hlutafé bankans í allt að 30 millj.
króna á þessu ári.
Þá lagði stjórn bankans fyrir
fundinn tillögu að reglugerð fyrir
stofnlánadeild verzlunarfyrirtækja
við bankann. Egill Guttormsson,
stórkaupmaður, hafði framsögu fyr-
ir tillögunni, en próf. Ármann Snæ-
varr, háskólarektor, gerði grein fyr
ir reglugerð að frumvarpinu, en
hann hefur verið stjórn bankans ti)!
ráðuneytis við undirbúning málsins
TiIIaga stjórnar bankans var ein
Framh. a ms l('
0F ÞUNGAR BIFRFIÐIR
Á ÍSLENZKUM VEGUM
Vegimir í nágrenní borgar-
innar eru í mjög slæmu ásig-
komulagi um þessar mundir,
eins og kunnugt er, og skapast
það ástand af þíðviðri undanfar
inna daga.
Við höfðum samband við
Hjörleif Ólafsson, hjá Vegagerð
ríkisins og áttum við hann eft-
irfarandi viðtal.
- Hafa verið sett þungatak-
mörk á vegi í nágrenni Reykja-
víkur?
— Enn sem komiö er hafa
þungatakmörk emungis verið
sett á veginn frá Elliðaám um
Mosfellssveit. 1 raun og veru
eru alltaf gildandi þungatak-
mörk á islenzkum vegum, en
hámarksöxnfþungi er 9,5 tonn,
en á fyrrgreindri leið hefur
öxulþunginn verið takmarkaður
viö 7 tonn. Við munum tak-
marka þungann á öðrum leið-
um ef þurfa þykir og fylgja
því eftir stranglega.
— Lögreglan aðstoðar ykkur?
— Lögreglan annast þetta
með okkur. Við höfum sérstak-
ar vaktir sem við getum tekið
meö okkur hvert sem ér.
— Eru mikif brögð að brot-
um?
— Talsverö brögð eru að því
að menn brjóti þessi ákvæði,
stundum er þaö óviljandi, en
við höfiSm ástæðu til að ætla
að svo sé ekki alltaf.
— Finnst máske sumum bíl-
stjórum óréttlátt að þurfa að
takmarka hlassþungann?
— Því miður er það algengt
að menn kaupi of stóra bíla, til
dæmis bíla sem ætlaðir eru til
vinnu í námum eingöngu, og
aki þeim um þjóðvegina. Á-
kvæði um hámarksöxulþunga
eru ríkjandi í flestum löndum
heims og mig minnir að við
íslendingar séum með mesta
þungann af Norðurlöndunum.
Það er mikið um það hin síöari
ár, að bílstjórar kaupi stórar
bifreiðir tit þess að geta boðið
niður flutninglT ýmiss konar,
sem grundvallast á ofhleðslu.
Ef ofhlaðin bifreið fer um veg-
inn á óheppilegum tíma, get-
ur hún eyðilagt fyrir hundruð
þúsunda.
Vandræði sköpuðust á Suöurlandsveginum hjá Árbæjarhverfinu.
Bílarnlr á myndinni segja alla söguna.