Vísir - 13.04.1967, Blaðsíða 2

Vísir - 13.04.1967, Blaðsíða 2
2 V í SIR . Fimmtudagur 13. apríl 1967. Óviðkomandi veiðiskap Gunnlaugur Hjálmarsson sækir að sænska markinu og skýtur. Til vamar eru þeir Bengt Johansson, Thomas Persson, Lennart Eriksson og Bjöm Dannell. Bylting í sænskum handknattleik? I Pað vakti talsveröa furðu manna að Svíar skyldu skilja fjóra af hinum „föstu“ landsliðs- mönnum sínum eftir heima i Svíþjóð, þegar haldið var til ís- lands í nokkurs konar verölauna l ferðalag eftir heimsmeistara- > keppriina, en sænska handknatt- leikssambandið kostaði förina að mestu leyti sjálft, sem er j óvenjulegt, þegar lið heimsækja l okkur. Ekki er ósennilegt að hér hafi D?engja- og ung- Eingameistaramóf íslands d laugar- dag Keppni í kúluvarpi og stangar- stökki, sem frestað var, þegar þessi mót fóru fram, verður háð í íþróttahöllinni í Laugardal laugar- daginn 15. apríl klukkan 3.30 eftir hádegi í æfingatíma Reykjavíkur- félaganna. Auk þess verður keppt í kúlu-, varpi, stangarstökki og hástökki án * atrennu fyrir fullorðna. Knútur Bruun hdl. Lögmannsskrifstofa Grettisgötu 8 II. h. Sími 24940. Svlar stigið fyrsta skrefið í þá átt að yngja upp lið sitt. Lind- blom þó góður sé og Kampen- dahl eru báðir orðnir „gamlir menn“ í handknattlðik, famir að þyngjast og láta á sjá. Svíar voru ekkert yfir sig hrifnir af árangri liðsins í heimsmeistarakeppninni á heimavelli nú eftir áramótin, en liðið lenti í 5. sæti, sem þykir ekki góð frammistaða af sænsku landsliði. Ungir menn úr 2. deild voru sóttir í þetta lið. Það voru Gautaborgarleikmennimir Frank Ström, Bertil Söderberg og Benny Johansson, allir 2. deild- arleikmenn, 19 ára að aldri. — Þegar þeir fengu ermahnappa úr silfri frá sænska sambandinu í hófi sem menntamálaráðu- neytið hélt eftir fyrri leikinn, sagði aðalfafarstjórinn eins og hvlslandi: „Þeir, sem komast einu sinni i liðið eiga erfitt með að komast þaðan aftur". — Kannski var þetta vísbending til hinna ungu og efnilegu leit- manna. Það vakti ekki svo litla at- hygli að liðinu stjómaði hin gamla kempa Kjell Jönsson af lífi og sál og átti erfið tvö kvöld í baráttunni við íslenzka liðið. Benda allar líkur til að hinn 36 ára gamli „Danabani", eins og hann var kallaður fyrir það hve oft hann átti þátt i aö sigra danska landsliðið, muni verða skipaður iandsliðsþjálfari í sept- ember á aðalfundi SHF, og verði Curt Wadmark látinn hætta í því starfi. Kastíþróttin er tiltölulega ung íþrótt hér á landi, þó hún hafi ver- ið stunduð allt frá síðustu alda- mótum x ýmsum nágrannalöndum okkar, og í Bandaríkjunum. Það var ekki fyrr en eftir stríð að fyrsti og eini islendingurinn ennþá, Al- bert Erlingsson, tók kennslupróf í köstum á The Casting School of London, og hóf að ryðja þessari bæði fjölbreyttu og skemmtilegu íþrótt braut hér á landi. Kastklúbbur Islands var þó ekki formlega stofnaður fyrr en 1956, þ. e. sama ár og Alþjóðakastsam- bandið. I C F, en það er hin er- lenda skammstöfun fyrir Internati- onal Casting Federation, heldur heimsmeistaramót í köstum á hverju ári, í hinum ýmsu Vestur- Evrópulöndum til skiptis. 12 til 14 lönd senda á annað hundrað kepp- endur á þessi mót, þar sem keppt er í 10 mismunandi kastgreinum. Svíþjóð, Noregur, U.S.A. og Vest- ur-Þýzkaland eru fremst, og oft afar spennandi keppni milli ein- staklinga frá þessum löndum. Köst- in eru ekki flokkakeppni. Síðan byrjað var að halda heims- meistaramót f köstum, það fyrsta í Kiel 1957, hafa alltaf ein- hverjir mætt frá íslandi, oftast Al- bert Erlingsson, 10 sinnum, Bjarni Karlsson 4 sinnum og Sverrir Elías- son 3svar. — Má fullyrða, aö í fá- um íþróttum ef nokkrum, hafa ís- lenzkir keppendur náð jafngóðum árangri á heimsmælikvaröa á er- lendum vettvangi. Sum ísl. kast- metin hafa veriö sett á þessum mótum, önnur hér heima á mótum klúbbsins. Frá stofnun hefur klúbburinn haldið uppi kennslu og æfingum í köstum, að vetrinum til 1 KR-hús- inu, og vor og haust úti. Kastfþrótt- in er skyld stangaveiði, á líkan hátt og t.d. skotfimi skytteríi. En hvort tveggja, köstin og skotfimin eru ólympíuíþróttir, algjörlega óvið- komandi veiðiskap í nokkurri mynd enda f flestum greinum notaður út- búnaður, sem ekki hæfir venjuleg- um stSngaveiðiskap. Nokkurs mis- skilnings um þetta atriði gætir hér á landi ennþá. Hitt er að sjáifsögðu að góöur kastari hefur að öðru jöfnu meiri veiðimöguleika en sá, sem lítið kann fvrir sér. Sfðasta ár var með því bezta hvað kast- árangra snerti íslandsmeistari f köstum 1966 er Bjarni Karlsson. í klúþbnum eru nú um 60 félagar Stjórn hans skipa : Bjarni Karlsson form., . Björgvin Farseth gjaldk., Sverrir Elíasson ritari og meðstjóm endur Jóhann Guömundsson og Kol beinn Guðjónsson. Aðalkennari frá byrjun hefur verið Albert Erlings- son. Floyd Patterson, fyrrverandi heimsmeistari £ hnefalelk, og Cassius Clay, núverandi meistari, skrifuðu ný- lega undlr samning um keppni í Las Vegas um heim smeistaratignina en Patterson hefur gengið vel að . undanförnu. Átti kepþnin aö fara fram 25. þessa mánaðar, en nú virðist vera komið babb í bátinn, því rfk- 1 isstjórl Nevada neitar að liafa keppnina þar, kveðst ekki vilja neinar „slátranir“ i ríki sínu. í morgun bár- *.LrLfLft_n.^_n.n ust fréttir af sams konar svari ríkisstjóra Pennsylvaníu og hefur nú verið ákveðið að fresta keppninni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.