Vísir - 13.04.1967, Qupperneq 5
V í SIR . Fimmtudagur 13. apríl 1967,
5
!
I
Reykjavík
sóknanna
— Spjallað vlð íormennina um starfsemina
Ingibjörg Þórðardóttir, formað-
ur kvenfélags Langholtspresta-
kalls:
— Kvenfélag Langholts-
prestakalls var stofnað 13. marz
1953 og var fyrsta félagið sem
stofnað var í þessari nýju sókn.
Stofnendur voru 40 konur en
þeim fjölgaði fljótt. Þegar Ás-
prestakall var stofnað fækkaöi
þeim aftur þannig að nú eru
félagskonur rúmlega 200.
— Félagið starfar að sjálf-
sögðu að fjáröflun fyrir kirkj-
una og að líknarmálum, en með-
an safnaðarheimilið var í bygg-
ingu rann fé sem safnaðist í
það. Við höfum svipaðar fjár-
öflunarleiðir og önnur kvenfé-
lög, höldum basar, happdrætti,
seljum merki og kaffi og hef-
ur alltaf ríkt einhugur meðal
kvennanna að vinna sem bezt
að málum kirkjunnar. Fyrstu
10 árin var Ólöf Sigurðardóttir
formaður, en þá tók ég við.
— Þótt fjáröflunin sé aðal-
mál kvenfélagsins þá reynum
Ingibjörg Þórðardóttir.
við að leggja áherzlu á hina
menningarlegu hlið félagsstarfs
ins ef svo mætti að oröi kom-
ast. Innan félagsins er æfður
kvennakór sem sungið hefur á
skemmtunum félagsins og hef-
ur hann bara þótt góður. Funda
höld hafa veriö haldin öðru
hverju. Upplestrarklúbbur er
starfandi og fá konur þar þjálf
un í að lesa upp og koma fram
á fundum. Þegar félagið held-
ur upp á afmæli sitt, en það
er fastur liður í starfseminni,
hefur markmiðið alltaf verið að
konumar sæju um skemmti-
atriðin sjálfar. Það hefur alltaf
ein kona haldið rseðu, kórinn
hefur sungið og konurnar hafa
farið með leikþátt. 1 fyrra end-
urtókum við afmælishátíðina
fyrir gamla fólkið í söfnuðin-
um.
— Á sumrin sjáum við ásamt
bræðrafélaginu um ferðalag fyr
ir aldraða íbúa sóknarinnar
og hafa Bæjarieiðir, lánað bíl-
ana, en þær hafa aðsetur hér
í næsta nágrenni. Fóru 38 bíl-
ar í ferðina í fyrra. Svo förum
við að sjálfsögðu i okkar árlegu
skemmtiferð á sumrin. Annað í
sambandi viö aldraða fólkið er
fótasnyrtingin, sem fél. veitti
fyrst í sambandi við Elliheim-
ilið en frá síðustu áramótum
hefur félagið alveg séð um
þessa vikulegu þjónustu. sem
hefur verið mjög eftirsótt.
— Nefnd úr kvenfélaginu sér
ásamt bræörafélaginu og kirkju
kórnum um svonefnd kynningar
kvöld sem haldin eru í safnað-
arheimilinu hálfsmánaðarlega
frá því 1 nóvember þar til í
marz. Yfirleitt er spilað þessi
kvöld og um leið kynnist fólk-
ið starfi félaganna, einn og einn
gengur síðan í þau og fer að
starfa með okkur.
— Aðstaðan til félagsstarf-
seminnar er mjög góð í safnaðar
heimilinu, en það eru takmörk
fyrir því hvað má hafa í húsi
þar sem fermt er og skírt. Þvi
þarf kirkjan aö rísa sem fyrst
og eins og ég sagði áðan þá
mun kvenfélagið halda áfram að
afla fjár til kirkjunnar.
Ebba Sigurðardóttir, formaöur
kvenfélags Bústaðasóknar.
— Félagið var stofnað i marz
1953 og markmiö þess er að
vinna fyrir kirkjuna eins og
mögulegt er. Á síðastliðnu ári
hefur aðaláherzlan verið lögð á
fjáröflun, því það þarf mikið fé
til kirkju- og félagsheimilisbygg
ingarinnar en þar munu félög
sem starfa innan sóknarinnar
fá húsnæði.
Síðori grein
— Fundir eru haldnir reglu-
lega annan mánudag í hverjum
mánuði og þá er reynt að hafa
bæði fróðleik og skemmtun.
Margar af konunum sem koma
á fundina fara lítið út af heim-
ilinu og því reynt að hafa
skemmtun með. Á fundina
koma ýimsir bæði menn og kon
ur og flytja okkur fróðleik og
skemmtun bæði í sambandi við
kirkjustarfið og önnur menn-
ingarmál sem við vinnum að.
— Félagskonur eru nú um
160 og fjölgaði þeim mikið á
síðasta ári og hafa margar ung-
ar konur gengið í félagið upp
á síðkastið. Það er aðallega
ungt fólk hér í hverfinu og lít-
ið um eldra fólk en fyrir
skömmu byrjuðum viö að hafa
skemmtanir fyrir eldri konur,
bæði úr hverfinu og svo mæður
okkar.
— Á 100. fundinum sem hald
inn var í febrúar voru staddir
fulltrúar frá flestöllum kirkju-
kvenfélögum í borginni og var
það mjög ánægjulegur og vel
heppnaður fundur. Finnst mér
æskilegt að samstarf kvenfé-
laganna aukist því að það væri
lærdómsríkt þar sem áhugamál
félaganna eru mikið til hin
sömu.
— Fjáröflunarleiðirnar eru
svipaðar og hjá öðrum kven-
félögum. Við höfum basar og
kaffisölu og í haust héldum við
skemmtun á Hótel Sögu og það
má segja að hafi verið stærsti
dagurinn í sögu félagsins því að
ágóðinn var 110 þúsund krón-
ur og lögðum við hann í kirkju
byggingarsjóðinn. Svo kemur
wÆmsSSSSm fflmísmi wm
Ebba Sigurðardóttir.
inn smáskildingur fyrir að selja
bræðrafélaginu i sókninni kaffi
þegar það heldur fundi einu
sinni í mánuöi. — Auk kven-
félagsins og bræðrafélagsins
eru starfandi æskulýösfélög í
sókninni og sækja börn og ungl
ingar kirkju mjög vel. Við reyn
um að hvetja konurnar til aö
koma með börnunum í kirkju.
Fyrsti formaður kvenfélags-
ins var frú Auður Matthías-
dóttir siðan var Rósa Svein-
bjarnardóttir formaður í éitt ár,
eða þar til fyrir hálfu öðru ári
að ég tók við. Á fyrstu árum
félagsins fór starfsémin fram í
litlu húsnæði viö erfiðar að-
stæður en síðan Réttarholts-
skólinn var byggður höfum við
fengið að vera þar og hefur
skólastjórinn verið okkur sér-
lega hjálpsamur í þvi sambandi
og aðstaðan öll því stórum batn
að.
Guðrún Jónsdóttir, formaöur
Kvenfélags Ásprestakalls.
— Það má segja að Ásprest-
kall hafi verið stofnað á göt-
unni haustið 1963. Það var ekki
til neitt til neins, hvorki hús-
næði né annaö til kirkjustarfs-
ins og þörfin því brýn á að út-
vega sem fyrst það nauðsyn-
legasta. Kvenfélagið var stofnað
24. febrúar 1964 og hófst það
sítrax handa um að safna lé
til að hiaupa uadir bagga.
— Stoi'nendur voru kringum
90, en nú eru konurnar um
130. Kom mér það satt að segja
á óvart hvað konurnar í presta
kallinu voru áhugasamar, þvi
að margt af þessu fólki hafði
þegar stutt kirkjubyggingar í
Laugarnes- og Langholtssókn,
en eins og kunnugt er var Ás-
prestakall stofnað úr broti af
Laugarnesprestakalli og Lang-
holtsprestakalli. Voru þær strax
fullar áhuga á að vinna fyrir
kirkjuna.
— Fundir eru haldnir reglu-
lega einu sinni í mánuði en í
prestakallinu er enginn fundar-
staöur ekki einu sinni skóli og
mun það áreiðanlega eina
prestakallið í borginni, ef ekki
á landinu þar sem svo er á-
statt. Höfum við því fengið af-
not af safnaðarheimili Lang-
holtssóknar og mætt þar mikl-
um velvilja. Eru fundimir yfir-
leitt haldnir fyrsta mánudag
hvers mánaðar. Á fundina koma
jafnan einhverjir skemmtikraft
ar og fræðsluerindi um ýmsa
hluti eru haldin og held ég að
það sé svipað og hjá öðrum
kvenfélögum. Kvenfélagskon-
urnar safna í sjóði og er t. d.
búið að kaupa fermingarkyrtla.
— Við höfum haldið basar 1.
desember öll árin í Langholts-
Guðrún Jónsdóttir.
skóla og hefur hann jafnan
gengið mjög vel. Svo höfum við
sjóð sem við nefnum kirkju-
sjóð og er tekið við gjöfum í
hann og minningarspjöld sem
frá Greta Björnsson teiknaði
eru seld. Kirkjudagur var hald-
mn í fyrra og í ár og var þá
messað f safnaðarheimili Lang-
hoítssóknar og kaffi selt á
eftir.
-- Kvenfélagið hefur spila-
kvöld einu sinni til tvisvar á
vetri og á þrettándanum held-
ur þaö jólaskemmtun fyrir böm
í LaUgarásbiói. Þangaö kemur
jölasveinn og önnur skemmti-
atriði eru við barna hæfi. í
fyrra var tekið upp í samráði
við Elliheimilið að veita öldr-
uðu fólki fótaaðgerðir en það
er eins og það hafi ekki athug-
að að-nota það nógu vel. Lang-
ar okkur nú mikið að reyna aö
hafa einnig skemmtanir fyrir
aldrað fólk.
— Við vonumst til þess að
eftir því sem okkur vex fiskur
um hrygg getum við aukið fé-
lagsstarfið og látið meira að
okkur kveða en við höfum get-
að til þessa.
Ragna Jónsdóttir, formaöur
Kvenfélags Grensássóknar:
— Kvenfélag Grensássóknar
var stofnaö 9. janúar 1964 og
vom stofnendumir 40 konur
en síðan hefur tala félags-
kvenna þrefaldazt. Þar sem viö
erum bara búnar aö starfa i
þrjú ár liggja engin ósköp eftir
okkur enn sem komið er. Allt
fé sem við söfnum fer í safnað
arheimilið, en fyrsti áfangi þess
er nú í byggingu. Auk þess höf
um við keypt fermingarkyrtla
og lagt fé í orgelsjóð.
— Tekjulindir félagsins eru
þessar venjulegu: basar, kaffi-
sala og merkjasala. Fundir eru
haldnir yfir vetrarmánuðina,
frá því í október þar til í maí
og em þeir haldnir í Breiða-
geröisskóla. Viö reynum aö hafa
þá bæði fræðandi og skemmti-
lega og hefur fundarsókn ver-
ið prýðileg og félagsandi mjög
góður.
— Fyrir utan fundina og
þessi venjulegu félagsstörf hef-
ur kvenfélagið haft námskeið í
hjálp i viðlögum og á sumrin
höfum viö haft íþróttakennslu
í 6 vikur fyrir unglinga. Hefur
hún farið fram á gamla golf-
vellinum, en hann er innan
sóknarinnar. 1 vetur héldum við
jólatrésskemmtun fyrir böm og
var hún i danssal Hermanns
Ragnars, en hann er hér rétt
hjá, þótt hann sé ekki innan
sóknarinnar. Er aðbúnaður allur
þar sérlega góður og húsnæðið
heppilegt til þessara hluta. Á
sumrin förum við okkur til
hressingar og skemmtunar í
ferðalag.
— Kvenfélagið á Akranesi er
eins konar vinakvenfélag Kven-
félags Grensássóknar og er
meiningin að félögin skiptist á
heimsóknum þannig að við
heimsækjum þær og sitjum
fund hjá þeim annað árið en
Akranesskonur komi til okkar
hitt árið. Erum við búnar að
heimsækja þær einu sinni og
þær hafa heimsótt okkur og
hafa þessar heimsóknir verið
Framh. á bls. 13.
Ragna Jónsdóttir.