Vísir - 13.04.1967, Qupperneq 12
V í SIR . Fimmtudagur 13. apríl 1967.
12
FYRSTI KAFLI
Jjetta var rigningarkvöld í októ-
ber. Ég sat viö, aö skrifa reikn
inga upp úr stórri söludagbók. Ég
var afgreiðslustúlka í nýlenduvöru
verzlun í Noröur-Dublin, hafði
unnið þar í tvö ár.
Vinnuveitandi minn og kona
hans voru úr sveit, eins og ég.
Beztu manneskjur. Ég vann oft
eftir lokun, hvaö þeim féll vel og
hétu mér kauphaskkun á næsta ári.
Ekki datt mér það í hug, aö ég yrði
þá víðs fjarri.
Það var lítið um viðskiptavini
vegna rigningarinnar, svo ég hafði
gott næði til að skrifa reikningana
en las þess á milli í sögubók, sem
ég hafði falið irjni í söludagbók-
inni, svo ég gæti litið í hana, án ■
þess að þurfa að óttast að upp!
kæmist.
Þetta var dásamleg saga, en held-
ur sorgleg. „Ljúf er nóttin," hét i
hún. Ég hljóp yfir annað hvert orð |
til þess að fá sem fyrst að vita,
hvort maðurinn heföi yfirgefið kon
una eða ekki. Alla skemmtilegustu
karlmennina var að finna í bókum
— þessa framandlegu, torskildu,
rómantísku karlmenn, sem ég dáði
mest.
Ég hafði einu sinni kynnzt slík-
um manni, en aðeins lauslega. Nú
voru tvö ár síðan ég sá hann síð-
ast. Hann var orðinn mér eins og
skuggi. Ég mundi einungis eftir
honum eins og maður man eftir
fallegri flík, sem maður átti ungur.
Klukkan hálffjögur kveikti ég á
rafljósunum. Búðin sýndist alltaf
óþrifalegri, eftir að kveikt var —
hillumar voru rykugar og loftið
hafði ekki verið málað síðan ég
kom, og var sprungiö langs og
þvers. Ég leit í spegilinn til að at-
huga hárið á mér. Við ætluðum út
að skemmta okkur í kvöld, Baba
vinstúlka mín og ég. Ég virti fyrir
mér andlit mitt, saug inn kinnam-
ar, svo ég sýndist langleitari. Sízt
af öllu vildi ég vera feit og kringlu
leit eins og Baba. Henni fórst að
minnsta kosti ekki að vera að tala
um, hvað ég væri magamikil.
— Það mætti halda, að þú værir
komin langt á leið, sagði hún við
mig í fyrrakvöld, þegar ég var kom-
in í náttkjólinn.
— Ertu brjáluð? spurði ég. Ég
mátti ekki hugsa til slíks, en Baba
stríddi mér stöðugt, endá bótt hún i
vissi að karlmaöur hafði aldrei
komizt nær mér en það að kyssa
mig.
— Sveitastelpur eins og þú geta
jafnvel orðið óléttar af því að
dansa við karlmann, sagði hún um
leið lét hún sem hún vefði karl-
mann örmum og dansaði við hann
vals á milli járnrúmanna. Því næst
fékk hún eitt af þessum kjánalegu
hlátursköstum um leið og hún
hellti ginblöndu í gagnsætt tann-
burstaglasið á náttborðinu. Hún
haföi fyrir skömmu tekið upp á því
að ganga með ginpela í töskunni
sinni. Reyndar fannst okkur gin-
biandan bragðvond, en við höfð-
um gaman af að bragða á henni á
kvöldin, þegar við flatmöguðum í
hörðum járnrúmunum okkar og
þóttumst vera drukknar.
Hvorug okkar var í föstum kynn
um við karlmann, þar var einungis
um að ræða lausakynni, en ein-
mitt þau geta verið hættuleg. Uni
sfðustu helgi hafði Baba ákveöiö
stefnumót við mann, sem starfaði
við snyrtivöruverzlun. Um kvöldiö
kom hann að sækja hana í bíl frá
verzluninni, sem allur var málaður
utan með aulýsingaslagorðum.
„Það er okkar silkimjúka krem,
sem hún þarfnast!“ „Okkar dá-
samlega hörundskrem, sem veitir
ungmeyjarlitaraft.“ Yfirbygging
bílsins var skærblá, letrið silfur-
bronsað. Baba leit út um glugg-
ann, þegar hún heyröi hljóðmerk
ið, en brá óþægilega þegar hún
sá farartækið.
— Almáttugur ... ekki kemur
mér til hugar að láta nokkurn lif-
andi mann að sjá mig í slíku sirk
usfarartæki. Faröu niður og segðu
honum, að ég sé þannig fyrirkölluð
að ég geti ekki farið út með honum.
Ég gat ekki fengið mig til að
nota svona tvírætt orðalag, svo að
ég sagði honum, að Baba væri með
höfuðverk.
— Viljið þér þá ekki koma í
hennar staö?
Ég kvað nei við því.
í aftursætinu lágu auglýsinga-
spjöld og litlar krukkur, sýnishorn
af hinu óviðjafnanlega hörunds-
kremi. Mér datt í hug, að hann
mundi gefa mér sýnishom, en ekki
gerði hann það.
— Þú hefðir gaman af að sjá
myndina.
Ég svaraði því til, að ég hefði
ekki tíma til þess.
Þá ók hann af stað án þess að
segja fleira.
— Hann var ákaflega vonsvik-
inn, sagði ég, þegar ég kom upp
aftur.
— Hann hefur bara gott af því.
Fékkstu nokkur sýninshom?
— Ég hefði þá orðið að taka
þau og hvemig hefði ég átt að
fara að því, þegar hann sat inni
í bílr.um?
— Þú gazt glapið athygli hans.
Otað að honum brióstunum, eða
sýnt honum hvað þú værir sól-
brennd á fótleggjunum.
Það er þýðingarlaust að rökræða
við Maria.!'Hún‘heldúr Ifltk'fiéiftisk-
ar? en fólk er flest. Þessir náurigar,
sem fást við sölumennsku, hljóta
þó að ... • Inrt saman tvo og tvo.
— Hann mælti varla orð af vör-
um, sagði ég.
— Einn af þessum fámæltu, sagði
Baba og gretti sig. — Þú getur
rétt ímyndað þér hvað kvöldið
befði orðið skemmtilegt. Svona í
skélltu þér nú í minkapelsinn, nú!
förum við út og fáum okkur snún- j
ing.
— Ég fór í ljósa blússu með
bindi, og við fómm á veitinga-
staö, þar sem dansað var á laug-
ardagskvöldum.
— Ef Indverji meö vefjárhött
býður þér sígarettu, máttu ekki
þiggja hana, sagði Baba á leiðinni.
— Það gæti verið eiturlyf i henni
Sá orðrómur gekk þá í Dyflinni,
ð tveim ungum stúlkum hefði ver-
ð byrlað eiturlyf og síðan farið
með þær upp í fjallakofa í vikunni
áöur.
Sígarettur með eiturlyfjum!
Okkur var ekki einu sinni boðið
upp í dans. Karlmennirnir voru
í miklum minnihluta. Við hefðum
getað dansað hvor við aðra, en
Baba sagði aö það væri upphaf
Ég fór f ljósa blússu með bindi, og við fórum á veitingastað.
endalokanna. Við gerðum því ekki
annað ep híma í sætum okkar og
strjúka gæsahúðina af handleggj-
unum. Áuðvitað létum við orð falla
um karlmennina, sem stóðu í hin-
um enda salarins. Þeir buðu ekki
fyrr en hljómsveitin byrjaði að
leika, og virtust þá velja þær
stúlkur, sem voru hendi næst. Við
fluttum okkur því þangað, en höfð-
um ekki lánið með okkur þar
heldur.
Baba sagði á eftir, að við skyld-
um aldrei fara á slika samkomu-
staði aftur. Hún sagði að við yrð-
um að kynnast fólki, sem væri
eitthvað, málsmetandi mönnum,
sem hefðu einhver áhrif.
Eins og það væri ekki einmitt
þaö, sem ég þráði hvað mest. Á
hverjum morgni vaknaði ég í sælli
fullvissu um, að nú væri loks
runninn upp sá dagur, þegar það
ætti fyrir mér að liggja að kynnast
dásamlegum manni. Ég snyrti mig
jsem bezt ég kunnr og dró djúpt
ándann til þess aö ' draga
úr hjartslættinum. En ég kynntist
aldrei neinum, öðrum en þessum
föstu viðskiptavinum í nýlendu-
vörubúðinni og einhverjum náms-
mönnum, sem Baba þekkti.
Allt þetta var ég að hugleiða,
þegar ég límdi rauðu merkin á þá
reikninga, sem fallnir voru í gjald
daga. Við póstlögðum aldrei reikn
inga, því að frú Burns kvað ódýr-
ara að fáta seridilinn afhenda þá
Hann kom inn í búðina einmitt
í þessu og hristi regndropana af
hattinum sínum.
— Hvar hefurðu haldið þig?
— Hvergi...
Við tíndum eitthvað í svanginn
eins og við vorum vön um þetta
leyti dagsins, áður en síödegis-
annirnar hófust. Brotið kex, rúsín-
ur, gráfíkjur og fáein kirsuber.
Hann var blár á höndunum af
vatnskulda.
— Lízt þér ekki vel á þá? spurði
ég, þegar hann glápti á nýju, hvítu
skóna mína. Þeir voru svo tálangir,
að ég varð- að ganga á hlið upp
stiga. Ég hafði sett þá upp, vegna
þess að Baba hafði tilkynnt mér,
að við myndum smygla okkur inn
*...SOI WEHT TO TEE MAMBU
VILLAGE WHEZE THEBOLUGAS
AZE ENSLAVEP...
*I LEAZNEP THAT SOME OF THEM HAP
SEEN KtLLEP WHEN TttEY TZ/EP TO
COME TO MY MtSStON... SUPPENLY
IWAS SUZZOUNPEP SyMAMBUS'"
á virðulega vínsmökkunarathöfn.
Við höfðum smyglað okkur inn á
tvær virðulegar athafnir að undan-
förnu, sem við sáum tilkynntar í
dagblöðunum — tízkusýningu, og
eins konar einkasýningu á ferða-
kvikmyndum frá írlandi, fyrir hóp
SPARIfl TÍMfl
FYRIRHOFN
'B/UUE/GAN
cHElM/ttEi
RAUÐARARSTlG 31 SfMI 22022
ÞVOTTASTÖÐIN
SUÐURLANDSBRAUT
SI'MÍ 38123 OPIÐ 8 —22.30
SUNNUD. 9 -22,30
RÖREINANGRUN
Einkaleyfi á
fljófvirkri
sjólflæsingu
KOVA er hægf að leggja
beinf í jörð
KOVA röreinangrun þol-
ir mesfa frost, hitabreyt-
ingu og þrýsting KOVA
þolir 90°C stöðugan hita
Verð pr. metra:
3/8” kr.25.00 T'kr.40.00
1/2" kr. 30.00 V/4" kr.50.00
3/4” kr. 35.00 iy2”kr. 55.00
.áívað kom svo fyrir þig, faðir Jósef?"
„Þeim fækkaöi alltaf Boulugas-mönnunum,
sem komu í skólann til mín“.
„Svo ég fór til þorpsins, þar serii þeir
þræluöu daginn út...
... og mér var sagt, að nokkrir heföu verið
drepnir, sem ætluðu að fara til mín. Skyndi-
lega var ég svo umkringdur Mambus-her-
mönnuin“. .
KOVA UmboðiS
SIGHVATUR EINARSSON&CO
SÍMI24133 SKIPHOLT 15