Vísir


Vísir - 15.04.1967, Qupperneq 1

Vísir - 15.04.1967, Qupperneq 1
57. árg. — Laugardagur 15. aprfl 1967. — 86. tbl. Ríkissjóður greiðir andvirði 300 blaða NÝJAR FLUG- FREYJUR HJÁ F.í. Einn af vorboðunum í höfuöborginni birtist okkur i líki ungra og fagurra flugfreyja, sem spranga gjaman um gbtumar í nýju, bláu bún- ingunum sínum, ánægðar með allt og alla, enda engin furða, þVi þær hafa fengiö starf, sem freistar kvenna, og gildir þá einu um þjóð- emið, því alis staðar er efn.'sóknin í flug- freyjustarfið jafnmlkil, og afteins vel menntaðar og fallegar stúlkur hreppa hnossið. Þessar fjór- ar hittum við suður á flugvelll í gær, og þær voru svo elskulegar að gefa okkur kost á að taka þessa mynd, þó að þær ættu fullt í fangi með að hemja hárið í sunnanþeynum. Þær heita: Þórdis Jónsdóttir, Þóra Arthúrsdóttir, Hjördís Gunnarsdóttír og Þorbjörg Kaldalóns. Innan skamms fjölgar verulega f hóp nýju flugfreyj- anna, þegar sumaráætlunin er komin f gang fyrir alvöru. Sjómenn og útvegsmenn fái 2 menn í stjórn S.R. ufn stjómarfrumvarp, sem lagt var fram á Alþingi í gær 1 gær £6m fram á Alþingi um- ræður um ný framkomið stjómar- frumvarp, þar sem gert er ráð fyr- ir að tveir menn, annar tilnefndur af Landssambandi íslenzkra út- vegsmanna og hinn sameiginlega til nefndur af Alþýðusambandi ts- lands, Farmanna- og fiskimanna- sambandi íslands og Sjómannasam bandi islands, fái aðiid að stjórn "ildarverksmiðja ríkisins. Eggert G. Þorsteinsson, sjávarút- vegsmálaráðherra, mælti fyrir frum varpinu og gat þess, að frumvarpið væri tilkomið fyrir tilmæli ofan- greindra félagssamtaka. En þau höfðu sameiginlega farið þess á leit við sjávarútvegsmálaráðuneyt- ið, að það beltti sér fyrir því, að lagt yrði fyrir Alþingj frumvarp, þar sem gert væri ráð fyrir að út- vegs- og sjómenn fengju aöild að stjórn síldarverksmiðjanna. Ráðherrann harmaöi, hversu seint frumvarp þetta væri á ferð- inni, en kvaðst vona, að það næði fram að ganga á þessu þingi, þótt stutt væri til þingslita og því naum ur tími til stefnu. Vænti hann þess, að það mætti afgreiða frumvarpið á þeim tíma, ef samvinnuvilji allra þingflokka væri fyrir hendi. Eysteinn Jónsson og Lúðvík Jós efsson töldu, að vei hefði getað kom ið til mála, að þeir hefðu getað fylgt þessu frumvarpi, ef um hefði verið að ræða, að Samtök síldarsjó- manna fengju aðild að stjórn síld- arverksmiðjanna. Það kom einnig fram í ræöum þeirra, að ekki teldu þeir alitaf víst, aö ofangreind fé- lagasamtöik, sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu geti komið sér sam- an um tilnefningu eins manns. Pétur Sigurösson benti á, í stuttri ræðu sem hann flutti vegna þessa tilefnis, að þar sem Samtök -síldarsjómanna væru annars vegar væri um að ræða hagsmunasamtök in réttara hefði verið talið, að stétt arfélög ættu aðild að stjórn ríkis- verksmiðjanna. Væru óg Samtök síldarsjómanna enn það ung, aö ekki væri komin reynsla á, hvort þau væru fær um aö gegna því hlutverki, sem þeim væri ætlað meö stofnun sinni. Mikill munur á tilboðum í gler Tilboð alls konar í byggingar og fleira eru nú mjög til um- ræðu manna á meðal. Mikla at- hygli hafa vakið hin mjög svo misjöfnu tilboð í eitt og sama verkið, þó samhljóða tilboð hafi ekki sfður vakið athygli. Eins og flestum er kunnugt var málaravinna boðin út vegna byggingar Háskólans í Keldna- holti, en í það verk bárust níu samhljóða tilboð frá jafnmörg- um málarameisturum í Reykja- vík. Aðeins eitt tilboð barst sem var lægra, en það var frá aðil- um í Keflavík, og var því tekið. Sveitarstjórinn í Mosfellssveit Matthias Sveinsson, sagði Vísi i gær, að hann hefoi átt tal við málarameistara í Reykjavík, vegna barnasknlans að Varmá, og getið þess að aðstandendur byggingarinnar hefðu hug á því að leita tilboða vegna málara- vinnunnar. Málarameistarinn fræddi Matthias á þvi, að það væri alveg sama hversu margir málarameistarar i Reykjavík sendu tilboð í verkið, þau mundu öll hljóða upp á nákvæm lega sömu upphæð, þar sem málarar ynnu eftir sömu upp- mælingu og sömu gjaldskrá. Matthías sagði ennfremur, að hann hefði leitað skriflega tll níu aðila um tilboð i tvöfalt gler í hús, sem hann ætti í byggingu í Mosfellssveit og hefðl hann fengið skriflegt svar frá beim öllum. Mismunurinn á hæsta og lægsta tilboðinu var 14 þús. kr. en hér var um 15 rúður að ræöa samtals 38.5 ferm. Lægsta tíl- boðið var frá Hannesi Þorsteins syni, kr. 35.300 óísett. VISIR Dagblöðunum í Reykjavík hefur nú borizt bréf fjármála- ráðuneytisins þess efnis að í Vísir í vikulokin - fylgir Vísi í dag framtíðinni muni ríkissjóður greiða fyrir 300 blöð daglega, sem hingað til hafa verið gefin ýmsum rfkisstofnunum, aðallega sjúkrahúsunum. Er þetta gert trl að létta rekstur blaðanna, er oft hefur verið erfiður, svo sem alkunna er. Þá mun í athugun að ríkis- sjóður greiði fyrir birtingu á fréttatilkynningum ýmiss konar en ekki endanlega ákveðið með hvaða móti það verður. Þannig leit bíllinn út eftir brunann. DRENGIR KVEIKJA I BÍL Lögreglunni var í gærmorgun gert viðvart um að eldur væri kom- inn upp í vélarlausum bílgarmi, sem staðið hefur um alllangt skeið fyrir framan Safamýri 63. Bíll þessi hafði verið þymir í augum fólks þarna í nágrenninu og hafði það gert ítrekaðar tilraunir til þess að fá bílinn fluttan í burt. Bíllinn hafði staðið þarna opinn og höfðu börn og aðrir átt greið- an aðgang inn í hann. Við rann- sókn málsins kom í ljós, að tveir litlir drengir höfðu fundið í bilnum eldspýtur og fiktaö með þær. En af því orsakaðist eldurinn. Fljót- lega tókst að ráða niðurlögum elds ins en bílskriflið var gjörónýtt eftir. Var flakið dregið burt.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.