Vísir - 15.04.1967, Síða 10
10
Alþingi
Efri deild
Stjórnarfrumv. um Iðnlánasjóð,
sem afgreitt hefur verið frá Neðri
deild, kom til 1. umr. á fundi
deildarinnar í gær og var því
vísað til 2. umr. og iðnaðarnefnd-
ar. Ræðum.: Jóhann Hafstein, iðn-
aðarmálaráðh.. Afgreidd voru til
neðri deildar 5 stjórnarfrumv.,
frumvarpið um almenningsbóka-
söfn og frumvarpið um lántöku-
heimild vegna framkvæmdaáætlun
ar fyrir árið 1967, einnig frum.
um stjórnskipunarlög og frumv.
um Skipaútgerö ríkisins og síðast
frumv. um öryggisráðstafanir á
vinnustööum. Stjómarfrumv. um
Háskóla fslands kom til 2. umr.
og var vísað til 3. umr. Auður
Auðuns mælti fyrir hönd mennta-
málanefndar, sem lagði til að
frumv. yrði samþykkt. Stjórnar-
frumv. um jarðeignasjóð kom til
2. umr., en það mál hefur verið
afgreitt í neðri deild. Því var vís
að til 3. umr. Ræðum.: Bjartmar
Guðmundss. (S) og Ásgeir Bjarnas.
(F). Nýframkomið frumv. um at-
vinnuréttindi skipstjórnarmanna
kom til 1. umr. og mælti Jón Ámas
(S) fyrir því. Frumv. er flutt af
sjávarútvegsnefnd efri deildar. Því
var vísað til 2. umr. Stjórnar-
frumv. um listamannalaun kom til
umr. og var vísað til 3. umr.
"jartmar Guðmundss. (S) flutti á-
lit nefndar, sem lagði til að frumv.
vrði samþykkt. Hann flutti einnig
'lit landbúnaðárnefndar um tvö
'rumv. önnur, sem voru til 2. umr.
''eim var báðum vísað til 3. umr.
\nnað var um sölu 9 iarða í Nes-
hreppi utan Ennis og Lækjardals
í öxarfjarðarhreppi og hitt var um
sölu kristfiárjarðarinnar Litlu-
Þúfu í Miklaholtshreppi.
Neðri deild
Felld var tillaga um að vísa
til seinni umr. þáltll. um rann-
sóknamefnd til rannsóknar á á-
sökunum um trúnaðarbrot utan-
ríkismálanefndarmanna. Stjómar-
frumv. um kjarasamninga opin-
berra starfsmanna var visað til 2.
umr. og afgreitt var sem lög stjórn
arfrumv. um fávitastofnanir. Af-
greidd vom til efri deildar tvö
stjómarfmmv. Annað um lífeyris-
sjóð bamakennara og hitt um líf-
eyrissjóð starfsmanna ríkisins.
Stjómarfrumv. um bátaábyrgðar-
félög og stjórnarfrumv. um Sam-
ábyrgð Islands á fiskiskipum komu
til 2. umr. í gær og var báðum
vísað til 3. umr. Enn eitt stjómar-
frumv. var samþykkt til 3. umr.
Var það fmmv. um tollskrá o. fl.
Vísað var til 3. umr. frumv. um
sölu sex eyðijaröa í Grýtubakka-
hreppi og fmmv. um almannavam-
ir var samþykkt til 3. umr. Stjóm
arfrumv. um girðingalög var einn-
ig vísað til 3. umr. Stjómarfmmv.1
um samþykkt ríkisreikningsins fyr-
ir árið 1965 var samþykkt til 3.
umr. Til 1. umr. kom í gær stjóm-
arfrumv., sem lagt var fram í gær.
Var það um sfldarverksmiðiu rík-
isins. Því var vísað til 2. umr.
Kabcfirett
Framhald at Ols. 16.
fjölmörgum góðum vinningum til
ágóöa fyrir sjóðinn og dregið um
leiö.
Kynnir verður Hermann Ragnar
Stefánsson danskennari.
Um kvöldið verða svo skemmti-
atriðin endurtekin, en þá veröur
einnig hljómsveit hússins, og stig-
inn dans. Aðgangseyri að báðum
skemmtununum veröur mjög stillt
í hóf, og eru veitingar innifaldar
í aögangseyri að deginum til en
eigi um kvöldið. Kosta miðarnir
aö deginum kr. 130 fyrir fullorðna
en kr. 50 fyrir börn. Þess ber að
geta sérstaklega að kvöldverður
verður framreiddur frá kl. 19 en
skemmtiatriði hefjast þá kl. 20.30.
Aðgöngumiöar verða seldir í and
dyri Súlnasals Hótel Sögu kl.
15 — 17 laugardaginn 15. apríl og
verður tekið á móti borðapöntun-
um um leið.
Viðtal dagsins —
Framh. af bls. 9
— Ég hef nú átt heima í Hafn-
arfirði í full 40 ár — aldrei
þekkt atvinnuleysi af eigin
raun.
Tjað, sem ég vildi svo segja að
lokum er þetta
Finna verður rekstursgrund-
völl fyrir togarana, án þess að
opna fyrir þeim landhelgina.
— Það má ekki ske. — Við meg
um ekki eingöngu hugsa um
daginn í dag.
Vonandi á þjóðin sér framtíð.
Þ.M.
Tekjur klúbbsins hafa verið með
limagjöldin sem nú eru 300 krón-
ur árlega fyrir manninn, og einnig
hefur klúbburinn fengið fjárfram-
lög úr músiksjóði Guðjóns Sigurðs-
sonar.
Nú er í ráði að bæta 30—40
nýjum meðlimum í klúbbinn og
verða áskriftarskírteini seld í bóka-
verzlun Sigfúsar Eymundssonar nk.
mánudag, þriðjudag og miöviku-
dag.
Það hefur verið klúbbnum mik-
ill styrkur að fá húsnæði til tón-
leikahalds endurgjaldslaust, en
fyrstu árin voru tónleikarnir haldn-
ir í Melaskólanum, en eru nú haldn
ir í Kennaraskólanum nýja.
Til styrktar starfsemi Kammer-
músikklúbbsins hefur verið kosið
12 manna verndarráð og þriggja
manna aðstoöarframkvæmdaráð.
Formaður hefur aldrei verið kos-
inn formlega í félaginu, en Guð-
mundur Vilhjálmsson hefur gegnt
þvi starfi frá upphafi.
Björn Ólafsson fiðluleikari og
Árni Kristjánsson píanóleikari hafa
frá upphafi verið ráðgefendur um
verkefnaval og hafa þeir félagar
verið klúbbnum til ómetanlegs
gagns og stuðnings, að sögn stjórn
arinnar.
Eins og fyrr var sagt, hefur
klúbburinn gengizt fyrir frumflutn
ingi á tónverkum íslenzkra tón-
skálda t. a. m. Jóns Leifs, Leifs
Þórarinssonar, Jóns Nordal og
Fjölnis Stefánssonar.
Tónleikar verða vegna 10 ára
afmælisins þann 20. apríl n.k., en
þá verða flutt sömu tónverk og
flutt voru á fyrstu tónleikunum,
en þau voru eftir Beethowen og
Schubert. Flytjendur verða að
mestu þeir sömu, eða Árni Krist-
jánsson, píanó, Bjöm Ólafsson,
fiðla, Einar Vigfússon, celló, Ingv-
ar Jónasson, iágfiðla, og Einar B.
Waage, bassafiðla.
Undirskriftir —
Framhald a; bls. 16.
— Þú segist hafa þín rök
fyrir hægri akstri. Þú ert þá
ekki einn þeirra sem finnst
nær, að nota það fé sem fer
í breytingarnar til endurbóta á
vegakerfi iandsins?
— Þróunin til betra vegakerf-
is hlýtur að vera hæg hjá okk-
ur, enda þurfum við aö tileinka
okkur reynslu annarra þjóða á
því sviði og mikið er eftir af
uppbýggingu og endurbyggingu
vega. Það eru mörg tækni-
atriði, sem þarna koma til
greina. Hvað kostnaði við breyt-
inguna viðkemur, er hann hverf
andi lítill, af athugað er, að ailt-
af er verið að endurnýia bif-
••eíðirnar hvort sem er. Siglinga
reglur hafa verið samræmdar á
hafi og í lofti og sama þarf
að gera á landi. Við erum fyrir
löngu komnir inn >' alheims-
umferðina og verðum þess
vegna að fylgja öðrum þjóðum
eftir til bóta.
Kammermúsik —
Framhald aí bls. 16.
hafa átt leið um, hafa margir leik-
ið á vegum klúbbsins, en hann e~
að sjálfsögðu ekki það fjársterkur
að geta fengið þá hingaö til lands
sérstaklega.
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í niðurrif og brottflutning á
Baðhúsi Reykjavíkur við Kirkjustræti hér í
borg. — Útboðsskilmálar eru afhentir í skrif
stofu vorri og verða tilboðin opnuð þar föstu-
daginn 21. apríl kl. 11.00 f.h. — Húsið verður
til sýnis væntanlegum bjóðendum þriðjudag-
inn 18. apríl n.k. frá kl. 1-7 e.h.
iNNKAUPASTOFNUN REYIOAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18 800
BELLA
Auðvitað eyddi ég ekki eins
miklu í fegrunarlyf og bess hátt-
ar, fyrir fimm árum síðan, eins
og nú. En bá var ég líka tveim
árum yngri.
VISIR
50
fijrir
áruiu
Eyrarbakka 12. apríl.
Afli ágætur tvo síðustii dagana,
minst 300 á skip, e’n mest 1200
í gær. I dag er einnig ágætur
afli. Veður er milt, en nýtur
ekki sóíar fyrir þoku.
14. apríi 1917.
VINNA
Stúika óskast um sláttinn á
gott heimili til að vera inni við.
Uppl. á Hverfisgötu 80.
15. anríl 1917.
Varðarfimdar
i elag
Hádegisverðarfundur Varðar verð
ur haidinn í dag kl. 12-2 í Sjálfstæfi
ishúsinu. — Fjármálaráðherra
Magnús Jónsson, ræðir um undir
búning og skipulag ríkisfram-
kvæmda.
MINNINGARSPJQLD
Minningarspjöld Kvenfélags Bú
staöasóknar fást á eftirtöldum
stöðum: Bókabúðinni Hólmgaröi
hjá frú Sigurjónu Jóhannsdóttur
Sogavegi 22. Hjá frú Sigríöi Ax-
elsdóttuí, Grundargerði 8. Hjá
Trú Oddrúnu Pálsdóttur. Soga
vegi 78
K.F.U.M. — Á morgun:
KI. 10.30 f.h. Sunnudagaskólinn
Amtmannsstíg. Drengjadeiidir
Langagerði 1 Barnasamkom^
Auðbrekku 50 Kópavogi.
Kl. 10.35 f. h Drengjadeildin Kirkju
VlSlR. Laugardagur 15. april 1967.
Toyota sýndur
Forráðamenn Japönsku bif-
reiðasölunnar boðuðu frétta-
menn á fund sinn í gær í Há-
skólabíói, til að kynna fyrir
þeim nýja bifreið frá Toyota-
verksmiöjunum í Japan. Bifreið
í Húskólabíói
þessi, „Toyota Corolla“ var
fyrst kynnt á bifreiðasýningu í
Tókíó í október s.l. og vakti
þá þegar mikla athygli, enda
hafði lengi verið búizt við
nýrri bifreið frá Toyota. Bif-
reiðin, sem sýnd er í Háskóla-
bíói, er sú fyrsta sinnar teg-
undar í Evrópu. Orri Vigfússon,
framkvæmdastjóri Japönsku bif
reiðasölunnar, skýrði frá því,
að um þessar mundir væru tvö
ár iiðin frá því að fyrstu Toy-
ota bifreiðirnar komu til lands-
ins, en tala þeirra er nú hátt
á þriðja hundrað.
BORGIN
Fermingarskeyti Landssimans
Símar 06 og 11005
Háseta vantar
t
.
á Andvara RE 101. Uppl, í síma 33428.
teigi 33.
Kl. 1.30 e.h. Drengjadeiidirnar (Y.
D.) viö Amtmannsstíg og Holta-
veg
Kl. 8.30 e.h. Almenn samkoma í
húsi félagsins við Amtmanns-
stíg. Benedikt Arnkelsson, guð-
fræðingur, talar. •- Allir vei-
'■‘"“nnir.