Vísir - 29.05.1967, Síða 1
VÍSIR
BROTIZT INN OC
DINAMÍTI STOLIÐ
Gipsy Moth IV
til Plymouth I gær
Hálf milljón manna fagnaöi Sir Francis
'"Þonnig Situr fyrstn
s
jsienzkn þotnn út
j; Þannig lítur hin glæsilega
: þota Flugfélags íslands út í dag
þar sem hún stendur á flugveil
; inum við verksmiðjur Boeing í
Seattle f Washingtonríki. Glæsi
legt farartæki, sem senn bætist
fslenzka flugflotanum og mun
fljúga tvisvar fram og til baka
daglega milli íslands og Evröpu.;
Áætlað ér að vélin komi hingað •
að loknu reynslu og æfingaflugii
síðast í júnímánuði. ;
\
Fánar blöktu á hverri stöng, blás-
ið var í skipsflautur, slökkviliös-
bátar þeyttu vatnssúlum hátt í
loft upp, þyrlur og Gipsy Moth
flugvélar svifu um loft og hálf
milljón manna, sem beðið hafði
klukkustundum saman við innsigl-
inguna til Plvmouth, veifaði og
æpti fagnaðaróp, er Sir Francis
Chichester sigldi inn til Plymouth
smásnekkju GIPSY MOTH IV að
aflokinni hnattsiglingu, sem hófst
fyrir 9 mánuðum, og í gær steig
hann í fyrsta sinn fótum á land
siðan hann lét úr höfn í Sidney
í Ástralíu til heimfarar.
Sir Francis er hraustlegur og
Frh. á bls. 8.
Lögreglunni var tilkynnt á að-
faranött sunnudagsins, að brot-
izt hafði verið inn í vinnuskúr
Landhelgisgæzlunnar hjá svo-
nefndri Rjúpnahæö, sem er rétt
hjá Vatnsendahæð. í skúr þess-
um geymdi Vitamálastjómln
sprengiefni og fleira, en ekki
varð séð, hvort einhverju af því
eða öðru hefði verið stolið.
Skúmum var læst með smekk
lás og hengilás, en hurðin hafði
verið sprengd upp með ein-
hverju verkfæri, líkast til klauf-
jámi. Maöur, sem starfar hjá
Reykjavíkurhöfn og var þama
inn frá í erindagjörðum hennar,
varð innbrotsins var rétt fyrir
kl. 5 á sunnudagsmorgun, og
gerði lögreglunni aðvart. I
skúrnum var geymt dýnamít og
hvellhettur og annað sem slfku
fylgir. Ekki varð séð á birgðun-
um, hvort einhverju hefði verið
stolið eöa ekki.
Um svipað leyti var lögregl-
unni einnig tilkynnt um þjófn-
að í vinnuskúr í Breiðhoiti, rétt
innan við Blesugróf. Sá skúr
var í eigu „Miðfells h.f.“. Úr
honum var saknað lykla, sem
gengu að öðrum skúrum þar,
einnar reiknivélar og peninga
að upphæð 1300 kr. Þar hafði
sami háttur verið hafður á við
Frh. á bls. 8.
Árni Ámundason og Hlöðver Jónsson í geymslu Loftorku, þar sem
brotizt var inn.
Fiskimjölsframleiðendur í Perú telja
sig jjurfa hærra verð
— Eiga i miklum
| Fiskimjölsframleiðend-
| ur í Perú berjast við
\ mikla rekstrarörðug-
I leika um þessar mundir.
[ Framleiðendurnir telja
( nú að framleiðslukostn-
, aður sé orðinn of hár í
samanburði við mark-
rekstrar'óröugleikum
aðsverð á fiskimjöli.
Þeir halda því einnig
fram að kostnaður við
framleiðslu fiskimjöls í
Perú sé nú orðinn meiri
en í nokkru öðru landi
veraldar.
Þeir saka Perústjórn urn að
hafa íþyngt fiskimjölsiðnaðin-
um með of háum beinum og
óbeinum sköttum og tollum.
Og þeir telja einnig að launa-
hækkanir og aðrar kjarabætur
sem fiskimönnum voru veittar
í desember s.l. hafi verið of
miklar, f samanburði við
greiðslugetu fiskimjölsframleiö-
enda.
Þá hafur veiðikostnaðurinn
hækkað um 10 dollara á tonn-
ið vegna þess að ungviði er nú
hlutfallslega stærri hluti veiöi-
magnsins en áður. Fram til
þessa hefur verig talið aö það t
þyrfti 5.5 tonn af fiski til /|
framleiðslu á einu tonni af »j
fiskimjöli í Perú, en það hlut- I
fall hefur hækkaö upp í 6.1:1. i
Framleiðsla á lýsi hefur minnk- /
að aö undanfömu. I
Sjálfstæöir framleiðendur )
f Perú, sem framleiða sameigin- I
lega um 50% af allri framleiðslu t
Perúmanna á fiskimjöli hafa á- /
kveðið að bindast samtökum og J
mynda þrjú sölusamtök f þvf I
skyni aö vinna að öflun hærra . t
verðs fyrir fiskimjöl. t
Frásögn um þessa örðugleika I
birtist í tímaritinu World Fish- í
ing, maí-hefti. j
Öryggisrúðið
kemur saimm
Oryggisráð Sameinuðu
þjóðanna kemur saman
til fundar í kvöld til þess
að ræða styrjaldarhætt-
una í löndunum fyrir
botni Miðjarðarhafs.
Danmörk og Kanada
fóru upphaflega fram á
að ráðið kæmi saman á
fund þegar í stað, og s.l.
laugard. óskaði Egypta-
land að tekin væri fyrir
kæra á hendur ísrael fyr
ir ofbeldi.
Kommúnistalöndin, Asíu- og
Afrikuriki sameinuðust um það
í gær, að ráðið skyldi ekki koma
saman til fundar fyrr en í kvö.ld
Frh. á bls. 8.
-----------------------
Sumarsíldin
kemin
l»að er Réykjaborg, RE 25, skip-
stjóri Haraldur Ágústsson, sem á
helðurinn af því að hafa
veltt fyrstu sumarsíldina í ár. Skip-
ið fékk um 70 lestir aðfaranótt
föstudags á miðum Færeyinga. Var
skipið þá statt á 65 gráðu norður
breiddar og 3 gráðu vestur lengdar
nær miðjan veg milli Noregs
og íslands, um 150 mílur í norð-
austur frá Færeyjum. Annað síldar
skip er nú komið á þessi mið. Það
er Harpa GK hið nýja skip Mið-
ness hf., í Sandgerði. Skipstjóri á
þvi er Árni Gislason, bróðir hinna
kunnu aflamanna Þorsteins og
Eggerts.
Reykjaborgin ætlaði aö reyna fyr
ir sér á miðunum aðfaranótt laug
Frh. á bls. 8.