Vísir - 06.06.1967, Síða 16
VISIR
Þriðjudagur 6. fúní 1967.
Fremur fjögur
30-barna heim-
ili en ,fjöldabiiðir/
— Svar Ratiða
kross Islands
Nýlega birtist í dagblöAun-
um yfirlýsing Bamavemdar-
nefndar þar sem taliö var aö
dvöl f sumarbúðum væri óh'oll
yngrl börnum. Nú hefur borlzt
svarbréf frá Rauða krossi Is-
lands, sem rekur sumardvalar-
heimili að Laugarásl í Biskups-
tungum.
Segir þar m, a. að í Laugarási
séu 118—120 böm. Eftir að ný
reglugerð hafi verið sett með
auknum kröfum um húsrými í
bamaheimilum hefðu skálamir
í Laugarási verið mældir upp í
vetur. Hefði þá komið í Ijós,
Framhald á bls. 10.
Harður áregstur
á Akureyri
Allharður árekstur varö við
gatnamót Hafnarstrætis og Aðal-
strætis á Akureyri um kl. 12.40
í gærdag. Strætisvagn, sem ekiö
var eftir Hafnarstræti, sem er að-
albraut, lenti á Voikswagenbifrelð,
sem kom úr Aðalstræti. Enginn
farþegi var í strætisvagninum, en
kvenfarþegi sem sat í framsætí
Volkswagensins, skall fram í rúðu
og hlaut mikið högg á enni. Var
hún flutt á sjúkrahúsið og þaðan
heim til sín, þar eð meiðslf henn-
ar voru ekki talin miög alvarleg.
Skemmdir urðu litlgr sem engar á
strætisvagninum, en Volkswagen-
b5freiðin skemmdist allmikið og var
óökufær á eftlr.
SIMASKRAIN1967- STÆRSTA
ÍSLENIKA BÓKIN KOMIN ÚT
Upplagiö a'ukið urn 13 jbús. eint'ók
— 70 tonn af pappir fara i skrána
□ Ný símaskrá er komin út og verður dreift út
næstu daga. Símaskrá þessi tekur gildi frá og með
19. júní n.k. og um leið munu símanúmer margra
símnotenda breytast. Upplag símaskrárinnar nýju
er 68000 eintök, en upplag þeirrar síðustu, sem
gefin var út 1965, var 55000 eintök. Pappírinn í
skrána vegur um 70 tonn. Kápuefni er úr ljósgrá-
um shirting, lakkbornum, sem á að vera auðvelt
að hreinsa.
Símaskráin er í líku formi og
seinast, en nokkru stærri 448
bls. á móti 400 seinast. Fremst
í skránni, bls. 8 og 9, er kort
af sjálfvirku stöðvunum á Is-
landi ásamt gjaldskrá fyrir sjálf
virk símtöl, á bls 12 er skrá
yfir telex-notendur og aftast
í bókinni er gjaldskrá og reglur
fyrir póst og síma. Þessir liðir
voru ekki í seinustu skrá.
Að öðru leýti er niðurröðun
í skránni sú sama og seinast.
Á eftir stuttum leiðbeiningum
fremst í bókinni kemur nafna-
s.krá notenda í Reykjavík og
Kópavogi, þá Hafnarfirði og síð
an atvinnu- og viðskiptaskrá.
í kafla II er skrá yfir síma-
notendur, sem tengdir eru við
sjálfvirkar stöðvar aðrar en í
Reykjavik, Kópavogi og Hafn-
arfirði.
Kafli III er yfir landssima-
stöðvarnar, aðrar en sjálfvirkar
stöðvar og skrá um bæi í sveit-
um, sem hafa síma. Loks er
kafli IV, sem er yfir skrásett
símnefni og gjaldskrá og reglur
fyrir póst og síma.
Kaflaskiptingin er sýnd meö
svörtum deplum á sniði bókar-
innar.
Númeraskrá veröur sérprent-
uð í takmörkuðu upplagi og
seld á kostnaðarverði eins og
seinast.
Sérsímaskrár verða prentaðar
fyrir nokkrar helztu símstöðvar
utan Reykjavíkursvæðisins.
Sérprentaö kort af Reykja-
vík, Kópavogi og Hafnarfiröi
er aftast í bókinni. Kortið var
prentað i Lithoprenti h.f.
Símaskráin var prentuð í
prentsmiðjunni Leiftri hf. og
prentsmiðjunni Odda hf. Bók-
band önnuðust Bókfell hf., Fé-
lagsbókbandið, Hólar hf. og
Sveinabókbandið.
Ritstjóri símaskrárinnar er
Hafsteinn Þorsteinsson. skrif-
stofustjóri.
UM 1200 BÍLAR FLUTTIR
INN JANÚAR - APRÍL
Bifreiðainnflutningurinn fyrstu
fjóra mánuði þessa árs var 1192
b'ifreiðir, sem er nokkuð minna
en í fyrra, en þá voru
fluttar inn 2087 bifreiðir á sama
tíma. — Innflutningurinn hefur
aftur á móti verið töluvert meiri
fyrstu fjóra mánuði þessa árs, en
sömu mánuðina árið 1965, en þá
voru fluttar inn 680 bifreiðir á
sama tíma. — Minnkun blfreiða-
innflutningsins frá fyrra ári staf-
ar fyrst og fremst af minni inn-
flutningi jeppablfreiða. — Nú hafa
verið fluttar inn 149 jeppabifreiðir,
en á sama tíma í fyrra voru flutt-
ar inn 868 jeppabifreiðSr.
Inni'lutningurinn á bifreiðum
skiptist þannig: Almenningsbifreiö-
ir 9 (fyrir 1.862 millj. cif), aðrar
fólksbifreiðir 906 (52.694 millj.),
jeppabifreiðir 149 (14.904 millj.),
sendiferðabifreiðir 34 (2.249 millj.)
og vörubifreiðir 103 (25.668 millj.
kr.). Samtals gerir þetta 1192 bif-
reiðir fyrir 97.377 milljónir króna.
Bifreiðainnflutningurinn í fyrra
og 1965 skiptist þannig: Almenn-
ingsbifreiöir 6 (1965: 3), aðrar
■fólksbifreiðir 1014 (453), jeppabif-
reiðir 868 (113), sendiferðabifreið-
ir 56 (32) og vörubifreiðir 143
(79). — Alls nam innflutningurinn
fyrstu fjóra mánuði 1966 2087 bif-
reiðum fyrir 50.244 millj. kr.
B YGGUJG TVEGGJA ST0R
BRÚA HAFIN
— Lokið við 110 m brú á Jökulsá
á Breiðamerkursandi i haust
Að því er Ámi Pálsson, yfir-
verkfræðingur hjá Vegagerð rik-
isins, hefur tjáð Vísi, er hafin
eða í þann mund að hefjast bygg
ing flmm nýrra brúa á vcgum
Vegagerðarinnar. Síðar á vorinu
munu i'ramkvæmdir hefjast við
byggingu enn fleiri brúa. Þessar
brýr sem framkvæmdir eru hafn
er við em allar á Suöur eða Suö
austurlandi. Tvær þessara brúa
em með þeim stærstú á land-
inu, hvor í sinni röð. Önnur
þeirra er brúin yfir Jökulsá á
Breiðamerkursandi, 110 m löng
hengibrú, sem mun tengja
Hornafjörð og A-Skaftafells-
sýslu og mun vcrða lokið við
liana í haust. Hin brúin er yl'ir
Jökulsá á Sólheimasandi. Er þar
um að ræða 159 m langa stál-
bitabrú í finim höfum. Kemur
sú brú í stað 46 ára gamallar
brúar.
Annars fórust Árna Pálssyni
yfirverkfræðingi orð á þessa
leið:
— Fyrsta brúin, sem hafizt
var handa um framkvæmdir við,
er síðari áfangi 110 m hengi-
brúar yfir Jökulsá á Breiðamerk
ursandi. Hófust framkvæmdir
við hana strax eftir hvítasunnu.
Smíði brúarinnar hófst á síðast
liðnu sumri.
— Tíu dögum síðar var hafin
éndurbygging brúar yfir Jökulsá
á Sólheimasandi. Stendur nýja
brúin nokkuð neðan við gamla
brúarstæðið. Ilér er um að ræða
stálbitabrú með steyptu gólfi, i
fimm höfum og er lengd henn-
ar um 159 metrar. Þessi nýja
Framhald á bls. 10
Athygli skal vakin á því,
að símaskráin 1967 gildir frá
mánudeginum 19. júní n.k. og
um leið breytast símanúmer hjá
mörgum símanotendum í Reykja
vík, og er því áríöandi að síma
notendur ónýti gömu síma-
skrána, þegar þeir fá hina nýju.
Starfsstúlkur Prentsmiðjunnar Ilóla h.f.^ eru þarna viö einn stafl-
ann af símaskránni 1967. Símaskráin er bundin í fjórum bókbands-
vinnustofum i borginni.
Fóðurkögglarnir henta
betur en fóðurmjölið
segja brezkir sérfræðingar að lokinni heimsókn hér
Fyrir nokkru voru hér á i
ferð 2 brezkir fóðurfræðingar frá ■
The British Oil & Cake Mills Ltd.;
í Bretlandi, þeir Mr. J. tíarner og
Mr W. H. M. Whitson
í
Menn þessir komu hingað á veg j
um Fóðurblöndunnar hf., til þess
að kynna sér ísjenzkan landbúnað,!
bæði aðstæður allar i sambandi við
fóðrun gripa og svo að skoöa is-
lenzkan búfénað og heygæöi, til
aö athuga mismun á heyi hér og
í Bretlandi. með þaö fyrir augum
að samræma B.O.C.M. fóðurblönd
urnar, sem hér eru á markaði. ís-
lenzkpm staðháttum.
Þeir Garner og Whitson ræddu
við landbúnaöarráðunauta hér og
ferðuðust víða um landið og héldu
fundi með bændum og umboðs-
rnönnum Fóðurblöndunnar hf. Enn
fremur skoðuðu þeir íslenzk bænda
býli og ræddu við bændur.
Eftir fyrrgreindar athuganir og
viðræður, töldu þeir að kúafóður
kögglarnir frá 3.O.C.M. hentuðu
betur hérlendis en mjölið, þar sem
kögglarnir innihalda meiri sykur,
en hann er vörn við súrdoða. Þeir
Garner og Whitson, voru mjög
hrifnir af íslenzka sauðfjárstofn-
inum og töldu að B.O.C.M sauð-
fjárblandan hentaði mjög vel hér
lendis Það vakti hins vegar undr
un þeirra, hve ungkálfaslátrun ei
mikil hérlendis, og bentu á, að
með góðu ungkálfafóðri og kálfa-
eldisfóðri mætti ala upp kálfa frem
ur ódýrt meö svo nefndu hrað-
eldi og fá með því móti mjöp
gott nautakjöt, sem bændur ættu
að geta selt hér á háu verði og
ba'tt með því afkomu sína.