Vísir - 24.08.1967, Page 5

Vísir - 24.08.1967, Page 5
VÍSIR . 7;mmtud;^,>r 24. ágúst 1967. ' ..wZiífomCí. — ■ |'W4J z2\ti Pönnukökur á nýjan máta H Pönnukökur eru eitt það fyrsta, sem stúlkur læra í heimahúsum í matargerð og bakstri, og líklega vinsælasta „kaffibrauð“ íslendinga. — Hvemig væri að reyna að hafa dálítið meiri fjöl- breytni í pönnukökubakstrinum? Hér em nokkrar uppskriftir af góðum pönnukökuafbrigðum, sem ætluð eru sem eftirréttir, forréttir eða með kaffi. Rækjupönnukökur Út £ venjulegt ósykrað pönnu kökudeig er sett dálítið rækju- soð (úr dósinni) í stað mjólkur. Síöan eru pönnukökumar bak- aðar á venjulegan hátt og ekki hafðar of stórar. Jafningur er gerður úr afgangnum af rækju- soðinu, hveiti, smjöri, kryddi, rækjum og örlitlum rjóma, og jafningurinn siðan settur inn- an í pönnukökumar og þær brotnar saman í femt og raðað á disk, sem er skreyttur með rækjum, persillu og sítrónusneið um. ítalskar pönnukökur Gerið venjulegt pönnuköku- deig án þess aö setja sykur í það. Rifið ost saman við deigið, og bakið á vanalegan hátt. Ger- ið fars úr hökkuðu nautakjöti, steiktu I dálitlum lauk og smátt brytjuðu beikon. Blandið út í farsið tómatkrafti, hvítlauks- dufti, merina, salti og pipar. Setjið hæfilega mikið fars 1 hverja pönnuköku og rúllið þeim upp eins og við gemm við vana legar sykurpönnukökur. Þetta og hita síðan upp í ofni rétt áð- ur en það er borið fram. fspönnukökur Eplapönnukökur Eins og við vitum, þá eru pönnukökumar langbeztar, þeg- ar þær eru alveg nýjar, og oft kemur fyrir að við verðum að henda pönnukökum, ef þær eru ekki borðaðar meðan þær eru nýjar. Næst, þegar eitthvað gengur af pönnukökunum, skul- ið þiö reyna eftirfarandi: Smyrj ið eplamauki á pönnukökumar og brjótið þær síðan saman, eins og þegar við höfum sett rjóma í þær, veltið þeim upp úr þeyttu eggi og örlitlu hveiti og brúnið í smjöri. Þetta má gera nokkru áður en pönnukökumar eru bomar fram, og er alveg sér- staklega gott að setja örlítið romm eöa líkjör yfir þær, áður en þær eru hitaðar upp £ ofn- inum, Og ef um sérstakt til- efni er að ræða, þá má hella ennþá meira rommi yfir þær, um leið og þær em teknar út úr ofninum. og kveikja síðan í þeim, og bera fatið með log- andi pönnukökunum inn á borð ið. írskar pönnukökur 4 eggjarauður, 2 eggjahvítur, 3 dl. rjómi, dálitið múskat, 50 gr. sykur, 60 gr. smjör og 125 gr. hvéiti. — Þeytiö eggin og hellið rjómanum út £. Hrærið hveitið og kryddiö, smjöriö og sykurinn smátt og smátt út i, þangað til deigið er orðið hæfi- lega þykkt. Bakið pönnukök- umar mjög þunnar i mikilli feiti. Góðar með hunangi eða ávaxta- hlaupi. Sýrópspönnukökur Gerið þykkt pönnukökudeig, lítið sykrað. Bakið pönnukök- umar á venjulegan hátt, en haf- ið þær eins þykkar og hægt er, án þess að þær veröi hráar. Sið- an er pönnukökunum raðað hverri ofan á aðra, og sýrópi smurt á miHi þeirra. Skreytt að ofan með ávöxtum. og síöan er skorið úr pönnukökustaflanum eins og tertu, og þevttur rjómi borðaður með. Gætið þess, að hafa ekki of mikið sýróp á pönnukökunum, svo að það leki ekki allt niður. Sveppapönnukökur Gerið venjulegt pönnuköku- deig, án sykurs, og kryddið það vel með salti, pipar og papriku og blandið smátt brytjuðum, litið steiktum sveppum út í. Bakiö pönnukökurnar ekki of stórar, rúllið þær upp heitar og setjiö einn heilan aspas í hverja, og berið fram með rifnum osti stráðum yfir. rK Líflegir gluggar fyrir Annað afbrigði af góðum eftir réttspönmikökum, er að setja ís innan í pönnukökumar, áður en þær eru bornar fram, en gæta skal þess að pönnukök- umar mega ekki vera heitar, þegar ísinn er settur í. Einnig er mjög gott að setja ávaxta- hlaup (jeily) og þeyttan rjóma innan í þær. IVÍargar gerðir af ávaxtahlaupi eru fáanlegar og bezt að setja dálítið af einhvers konar ávöxtum út I hlaupið, áð ur en það stífnar. litla peninga góðu verði fyrir þá, sem ‘ekki eiga gamlar ,,rúllugardínur“, en hafa hug á að útbúa skemmti- leg og ódýr tjöld fyrir glugg- Eigiö þið gamlar „rúllugard- ínur“, sem em orðnar ónýtar ? Ef svo er, þá getið þiö sjálfar auðveldlega gert þær sem nýj- ar með því að kaupa fallegt efni og setja í staðinn fyrir pappír- inn. Plast er hentugast, enda fást óteljandi tegundir af fall- egum plastefnum hér í bæn- um. Ef lítið reynir á gardín- úrnar, er líka hægt að fá fall- egt efni, sem ber sig vel, og er þá hægt aö velja þaö alveg í stíl við gluggatjöldin sjálf. Á svefnherbergið er mjög fallegt að hafa smámynstruð efni, ekki of gagnsæ, og gæti verið mjög skemmtilegt að hafa það sam- litt rúmteppi, púðum eða dúk- um. Bezt er að byrja á að mæla hvaö gömlu „rúllugardínurnar" em stórar, og þarf að ætla dálft iö aukalega að ofan og neöan. Þegar búið er að kaupa efnið, eru gömlu gardínurnar teknar niður, pappírinn rifinn af kéfl- inu og stönginni og síðan er efnið eða piastið límt með sterku lími á kefliö að ofan, á sama hátt og pappírinn var limd ur. Ef um tau er að ræða er bezt að setia nokkra smáa nagla í keflið að ofan til aö engin hætta sé á að efnið losni. Síðan er saumaöur eða límdur faldur að neðan og stönginni smeygt inn í. Gert er lítið gat fyrir spottann, sem togað er í. Ef efn- iö er mjög þunnt, er gott að límaband me~fram brúununum tilendanna, þá er minni hætta á að efniö misteygist. Gæta skal þess þó, að brúnin veröi ekki of þykk, þannig að efnið nái að rúllast alla leiö upp á kefliö. v Ef þið hafið ekki komið ykk- ur upp „amerískum uppsetning- um“ fyrir alla glugga þá er þetta mjög ódýr og góð lausn, sérstaklega fyrir þá, sem búa á jarðhæð eöa í kjallara. Ef að þið eigið. gamlar „rúllugardín- ur“ á háaloftinu. sem löngu hafa verið teknar niður, þá er hægt að fá ný járn til að setja keflin upp á 8 krónur parið í Glugga- um hf. Þar er raunar einnig hægt að fá kefli og stangir á í Tilvalið er að setja kögur, blúndu eða mislit bönd neðan á gardínumar. Hér eru dúskar saumaðir neðan á köflótt efni, sem hefur verið klippt £ stór lauf. m ra , •; jje

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.