Vísir - 24.08.1967, Page 8

Vísir - 24.08.1967, Page 8
8 V1S IR . Fimmtudagur 24. ágúst 1967. VÍSIR Utfeefandi: Blaðaútgáfan VlSIR Framkvæmdastjúrl: Dagur Jónasson Kitstjóri: Jónas Kristiánssot) Aóijtoóarritstjórt: Axe) Thorsteinsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Olfarsson Auglýsingan Þingholtsstræti 1, simar 15610 og 15099 Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 Unur) Áskriftargjaid kr. 100.00 á mánuði tnnanlands ! lausasölu ttr. 7.00 eintakið Prentsuúðje Vísis — Edda h.f. Innlendar skipasmíðar Enginn ágreiningur ætti að vera um það, að allra hluta vegna sé æskilegast að íslenzk fiskiskip séu smíð- uð hérlendis, ef þau standast samanburð við erlend skip um gæði og verð. Að sögn þeirra, sem dómbæ'rir eru á þessi mál, eru íslenzkir skipasmiðir að öllu leyti jafnokar erlendra starfsbræðra sinna, og verðið þytfti ekki að vera óhagstæðara, ef smíðastöðvarnar hefðu árviss verkefni. Þess var t. d. getið í blaðaviðtali fyrir skömmu, að tvö stálskip, 360 og 370 lestir að stærð, sem smíðuð eru hjá Stálvík, séu ódýrari en sambæri- leg skip, sem flutt hafa verið til landsins upp á síð- kastið. Hins vegar eru tréskip af stærðinni 30—50 lesti'r allmiklu dýrari hér en erlendis. Skýringin er sögð sú, að ekki hafi verið gerð áætlun um endurnýjun báta- flotans, og því sé það meira og minna tilviljunum háð, hvo'rt skipasmíðastöðvarnar hafi nokkuð að gera í þeirri smíði eitt árið, en næsta ef til vill ekki hægt að anna eftirspurn, sökum þess að afgreiðslufrestur- inn, sem útgerðarmenn setja, er of stuttur. Þeir vilja of margi'r fá skipin í einu, og leita þá sumir til erlendra stöðva. Var haft eftir formanni Félags íslenzkra drátt- arb’rautaeigenda, að ef ekki yrði komið á einhvers konar áætlun um endurnýjun flotans, gæti innlend skipasmíði aldrei komizt á öruggan grundvöll. Nú hefur iðnaðarmálaráðuneytið haft forgöngu um skipun nefndar til þess að rannsaka þessi mál í heild og m. a. komast að niðurstöðu um, hvaða stærð og ge'rð fiskiskipa sé heppilegust og hvort hægt verði að staðla byggingu þeirra, þ. e. smíða svonefnd „seríu- skip“, eins og nú tíðkast mjög erlendis, t. d. í Þýzka- landi, Hollandi og víðar. Með því móti ættu skipin að geta orðið mun ódýrari, afgreiðslufrestur styttri og afkoma skipasmíðastöðvanna ö’ruggari. Aðstaða til smíði stærri skipa er einnig fyrir hendi hérlendis á a. m. k. þremur stöðum. Tilboð hafa verið gerð í smíði tveggja skipa fyrir Skipaútge'rð ríkisins, og ekkert er því til fyrirstöðu að smíða hér togara. Og verði íslenzkri skipasmíði tryggður sá starfsg'rund- völlur, sem hún þarf, líður varla á löngu, unz hægt verður að byggja hér stór farþega- og flutningaskip, m. ö. o. að við getum orðið okkur sjálfum nógir að mestu eða öllu leyti í þessu efni. Það eru engar smáupphæðir, sem við greiðum sum árin til erlendra aðila fyrir smíði á skipum, sem við gætum hæglega byggt sjálfir, ef þessum atvinnuvegi væru sköpuð nauðsynleg skilyrði: Hér er því um stó'r- kostlegan gjaldeyrissparnað að ræða og atvinnutekj- ur allmargra manna. Við verðum því að finna leið til þess, að þessi innlendi iðnaður, sem þegar er svo vel á veg kominn, lognist ekki út af fýrir mistök og úrræðaleysi. Úrslitakostir Kínastjórnar árásin á brezka sendiráðií U inn 20. þ. m. bárust fréttir um, aó kínverska stjómin hefól sett brezku stjóminni úr- slitakosti — krafizt þess f orö- sendingu, aó fellt yröl niður út- gáfubann á 3 kinverskum blöð- um í Hong-Kong og handtekn- um starfsmönnum þeirra sleppt — og ef ekkl yröi failizt á þess- ar kröfur myndl Kina grípa til hinna strengilegustu gagnráðstaf ana. Alls var um 53 handtekna menn að ræða. Veittur var tveggja sólarhringa frestur tii þess að verða við kröfunum. í orðsendingunni var lýst yf- ir, að yröi Bretland ekki við áskoruninni, bæri það alla á- byrgð á alvarlegum afleiðingum, sem af myndu leiða. Ekkert var gefið í skyn um hverjar þær gætu oröið, en þær komu þegar í ijós, er fresturinn var útrunn- inn síðdegis í gær og Bretar neitað að hlíta úrslitakostunum, því að nær samtímis var árásin gerð á brezka sendiráðið í Pek- ing (sbr. fréttir f blaðinu í gær og í dag). í gildi eru alþjóöalög og regl- ur um foréttindi sendiráða og 2 sýningar i haust á sviði brezks byggingaiðnaðar Á hausti komanda verður efnt til tveggja mildlla sýninga í London á vélum og efni o.s.frv. sem notað er við bygginga- framkvæmdir. Nefnist önnur „Intemational Construction Equ ipment Exhibition" og stendur dagana 2.—7. október í „Crystal Palace“ eöa Kristalshöllinni. Til slíkra sýninga er efnt annað hvert ár. Hér er sýninga þessara að nokkru getið vegna þeirra, sem áhuga kynnu að hafa á þeim, en eins og kunnugt er fara ís- lenzkir áhugamenn ýmissa iðn- stétta og ýmsir sérfræöingar tíðum á ýmsar tæknilegar sýn- ingar, sem haldnar eru í ná- grannalandi okkar Bretlandi. Sýningar þessar sækja bygginga iðnaðarmenn Bretlands og margra annarra landa, verkfræö- ingar, húsameistarar, námu og vegaverkfræðingar og fulltrúar bæja- og ríkisstofnana. Sýningin í Crystal Palace var útnefnd sem sýning bygginga- iðnaðar Evrópu 1967 af sérlegri Evrópunefnd, „Committee for European Constraction Equlp- ment“, en sýnendur verða um 200 helztu framleiðendur véla og tækja í heiminum, m.a. frá eftir tölduni löndum: Asturríki, Dan- mörkú, Frakklandi, Hollandi, Italíu, Japan, Kanada, Noregi Sviss, Bandaríkjunum og Sovét- ríkjunum. Verðmæti véla og tækja á sýn ingunni er áætlað um 12 millj ónir punda. Sýningarflötur er um 40 ekrur lands, en nokkur hluti hans, um 20.000 ferhym- ingsfet, verður notaður til þess að gefa gestum kost á að sjá tækin og vélarnar I notkun. Eins og á sýningum fyrri ára verða byggðar tvær brýr yfir þennan vang sýningarinnar, til Framh á bls. 13 eru þau gagnkvæm hvarvetna, þar sem stjómmálatengsl eru milli landa. Sendiráðin eru sem sé friðhelg, hús þeirra og starfs- liðið, og er hverri ríkisstjóm tal- ið skylt að sjá um vernd sendi- ráða og sendiráðsstarfsmanna. Ekki er það einsdæmi, að sitt- hvað gerist kringum sendiráö, en það er þó oftast sent lið til að skakka leikinn, áður en of langt er gengið. Ofbeldi við sendiráð hafa þó tíðast veriö fáheyrðir atburðir, nema á þess- um „seinustu og verstu tímum“ og svo virðist sem í landi eins og Kína megi nú alltaf búast við, aö hvað sem er geti gerzt eins og komið er. Samkvæmt fréttum frá London hefur brezka stjórnin þó ekki búizt við, að afleiðingar úrslitakost- anna yrðu aðrar en þær, að til lokunar sendiráðsins kynni að koma, en það er í höndum sendi- fulltrúa (charge d’affaires, • sem gegnir störfum sendiherra sem settur). Meðfylgjandi mynd sýnir, er brezkt herlið f Hong-Kong geröi húsrannsókn hjá einu hinna um- ræddu blaða. Blöð þessi hafa í trássi við útgáfubannið komið út einu sinni sfðan a. m. k. (einnar sfðu blað, nánast „fregnmiði"). Áframhald er á hryðjuverkum kommúnista í Hong-Kong og einkum verða sprengjutilræði tfðari. Þeim hefur verió komiö fyrir í nánd við bamaleikvelli og á einum biðu 2 böm bana, og hefur það vakið meiri gremju í Hong-Kong en allt annað. Áöumefnd blöð voru sökuð um áróður og fjandskap við landstjórnina, jafnvel landráða- starfsemi. Dagblað alþýðunnar f Peking krefst þess, að Bretar skili aftur Hong-Kong, sem „alltaf hafi ver ið kínverskt land, en eftir ópí- um-stríðið fyrir 100 árum hafi Bretar notaö tækifærið og „hnuplaö" landinu". Hið sanna er, að yfirráð Breta byggjast á sáttmála.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.