Vísir - 23.09.1967, Síða 4
Hinn 84 ára gamli Pablo Pic-
asso reynist ekki jafn gestrisinn
öllum, sem til hans leita. Um dag-
inn gat hann til dæmis ekki hugs
að sér að fá heila hjörð ljósmynd-
ara og blaðamanna flæðandi inn á
heimili sitt og landareign. Því
sagðist hann ekki mundu verða
heima, þegar honum einn daginn
var tilkynnt að ambassador Rússa
f Frakklandi, Vaierian Zorin,
mvndi heimsækja hann daginn eft
ir.
Hins vegar bauð hann, daginn
eftir rússneska rithöfundinn Ilya
Ehrenberg, hjartanlega velkominn
á heimili sitt. Zorin varð hins veg-
ar að tilkynna yfirmönnum sínum
að ennvhefði mistekizt að fá Pic-
asso til þess að veita móttöku
friðarverðlaunum Lenins, æðstu
viðurkenningu Rússa, sem þeir
hafa ætlað að afhenda honum síð-
ustu 4 árin.
„Njet“
sagði
hann
IIIÍIIBaWMUiafiWMMfeWMM
mwmtntsu
Systir Jackie Kennedy í kvikmyndum
Yngri systir Jackie Kennedy,
prinsessan Lee Radziwill ætlar sér
í fuliri alvöru að gerast kvik,-
myndaleikkona. Það höfðu ýmsar
vangaveltur komið fram um það,
hvort hún ætlaði sér að leggja
fyrir sig kvikmyndaleik og virt-
ist hún sjálf ekki hafa verið ákveð
in, þótt hins vegar hún hefði
oft sagt, að henni fyndist það
freistandi.
Nú hefur hún afráðið þetta og
búið er að ganga frá öllu í sam-
bandi við ráöningu hennar og
hlutverk. Fyrsta verkefni hennar
veröur í kvikmyndinni, „Laura',
litmynd tveggja tima löng sem
framleidd er fyrir sjónvarp. Kostn
aður við gerð myndarinnar hefur
verið áætlaður 120.000 sterlings-
pund.
Helztu leikarar aðrir, sem meö
henni leika í myndinni, verða
George Sanders, Robert Stack úr
„The UntouchabIe“-þáttunum,
Farley Granger og Arlene Franc-
is. Lee prinsessa hefur ákveðið
aö koma fram undir skírnarnafni
sínu, Lee Bouvier.
Þegar frá því var skýrt, að Lee
myndi væntanlega hefja kvik-
mvndaleik, var því haldið fram,
að nokkrir erfiðleikar heföu risið
upp vegna nafns hennar. Sagt var
að hún vildi sjálf koma fram und
ir skímarnafni sínu, en framleið-,
andi myndarinnar, David Suss-
kind, hefði hins vegar viljað, að
hún notaði Radziwill-nafnið.
Hann hefur hins vegar sjálfur
sagt, eftir að afráðið hafði verið
að hún léki í myndinni: „Hún á
erfiðara um vik, vegna þess að
hún er yngri systir Jackie Kenn-
edy og vegna þess aö hún ber
titil. Fólk ætti hins vegar aðeins
að dæma hana sem leikkonu fyr-
ir leikhæfileika hennar".
Undirbúningur að töku myndar
innar hefur þegar verið hafinn og
eins og stendur æfa leikaramir
hlutverk sín í gömlum heræfinga
sal í Celsea í Bandaríkjunum.
Fyrir nokkru fór Ólafur Noregskonungur i kurteisisheimsókn til Suð-
ur-Ameríku og var honum þar vel fagnað. Kom konungurinn þar víða
við meðal annars i San Carlos de Bariloche, sem er einkar vinsæll
ferðamannastaður í Argentínu. Bjó hann á fjallahóteli með fögru út-
sýni, helgina 16.—17., en þaðan fór hann til Buenos Aires, höfuðborgar
Argentínu. Það var síðasta rikið i Suður-Ameríku, sem konungurinn
hafði viðdvöl i, þetta skiptið. Myndin er tekin, þegar hans hátign var
aö spenna á sig pryggisbelti fyrir ferð, sem hann fór með þyrlu í
heimsókn til sjóliðsforingjaskóla í Valparalso. Þar var honum tekiö með
heiðurskveðjum liðsforingjaefnanna, dynjandi eimpípublæstri skipanna
og kröftugum húrrahrópum.
Noregskonungur
í heimsókn til
Suður-Ameríku
Bréf um gömlu,
góðu Iðnó
„Nú stendur til að rífa gömlu
góöu Iðnó, en vegna hvers, iú,
það á að rísa ráðhús í Tjörnlnni
og þess vegna á Iðnó að hverfa.
Það má vel vera, að ráðhús
þurfi fyrir Reykjavík, en við
þurfum líka leikhús handa L.R.
Við verðum að fá gott og stórt
leikhús fyrir L.R.. en hvers
vegna, jú, vegna þess mikla og
, góða starfs, sem L.R. vinnur í
/ þágu alþjóðar.
1 Ég heyröi fyrir löngu, aö L.R.
j hafi fenglð úthlutað lóö ,en sú
ji úthlutun hafi síðan verið tekin
' til baka, en hvers veana veit ég
!1 ekki. Það er von mln, að gamla
góða Iðnó verði ekki rifin fyrr
en nýtt leikhús hefir rlsið af
grunni, já, leikhús sem er við
hæfi L.R., og þá baö stórt að
hinir góðu listamenn hjá L.R.
geti notið sín til fulls, og geti
óhikað tekiö hvaða verkefni sem
fyrir er.
Þær eru ótaidar bær ánægju-
stundir, sem ég hefi átt í Iðnó,
og mér finnst, að við sem för-
um í gömlu góðu Iðnó og sjáum
leikrit L.R. munum veröa svipt
allri gleði og öllu lífi og fjöri
ef við fáum ekki nýja Iðnó nægi
iega tímanlega í stað þeirrar
gömiu,
Það er furðulegt, hvað L.R.
getur gert í svo bröngu plássi
sem gömlu Iðnó, og bó, bað er
ein skýring á því, því þar fer
sarnan góður vilji og gott lista-
fólk. Það verður vonandi ekki
löng bið bjá L.R. og okkur eft-
ir nýju leikhúsi. Og bað verður
leikhús, sem L.R. á skilið að fá,
og það hið bráðasta.
Ég óska L.R. gæfu og gengis
og vona, að stór og góð Iðnó
megi rísa hið fyrsta af grunni,
og ég held að ný Iðnó geti risið
af grunni, ef borgarstjóm og aðr
ir hafa áhuga á málinu.‘‘
Með vinsemd, „Þröstur".
Ekki tel ég að starfsemi Leik
félags Reykjavíkur yrði trufluð
vegna húsnæðisleysis, því að
vart trúi ég því að svo mikið
liggi á að rífa gömlu góðu Iðnó
að ekki verði komið nýtt leikhús
áður en það yrði gert, því svo
snar þáttur eru leikhúsin i borg-
arlifi Reykjavíkur.
Varðandi lóð fyrir leikhús, þá
sló ég á þráöinn til Sveins Ein-
arssonar leikhússtjóra og spurði
hann um málið, og svaraði hann
því til að lóð væri þegar fyrir
hendi við Kringlumýrarveg, þar
sem hinn nýi miðbær á að rísa
í framtíðinni. En hins veegar
er í athugun ,hvort ekki eru tök
á að reisa leikhús við Tjörnina,
og halda leikstarfseminni þar
áfram sem næst gamla staðnum
Þessi byggingarmál eru því of-
arlega á baugi, og því ástæðu-
laus ótti, að Leikfélagið verði
húsnæöislaust, Með þökk fyrir
bréfið. Þrándur í Götu