Vísir - 03.10.1967, Blaðsíða 8

Vísir - 03.10.1967, Blaðsíða 8
8 V1 S IR . Þriðjudagur 3, október 1967. VISIR .1 Utgetandi: Blaðaútgaran viau\ FramkvæmdastjOri; Dagur iónasson C\itstjóri: Jónas Kristjánsson AOstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson Fréttastjóri: Jon Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Bergþór Oltarsson Auglýsingar: Þmgholtsstræti l, slmar 15610 og 15099 Afgreiðsla; Hverfisgötu 55. Ritstjórn: Laugavegi 178 Sími 11660 (5 linur) Askriftargjald lcr 100.00 á mánuði innanlands I lausasöln kt. 7.00 eintakið Prents—iðit Vísis — Edda h.f. Þrælar kerfisins gók Svetlönu, dóttur Stalins ,mun vekja meiri athygli og umræður á Vesturlöndum og víðar en flestar eða allar bækur, sem út hafa komið þessi árin. Ber þar margt til. Það vakti strax heimsáthygli, þegar dóttir einræðisherrans, sem um áratugi var talinn hafa alla stjórnartauma hins víðlenda ríkis og fjölmargra lepp- ríkja í höndum sér, flýði undan oki þess stjórnmála- kerfis, sem faðir hennar hafði byggt upp og trúði á sem óskeikult lögmál mannlegs samfélags. Þótt bókin bæti að sönnu litlu við þá vitneskju, sem áður var fyrir hendi um stjórnarfarið í Sovétríkjunum á Stal- ins-tímanum, mun marga eigi að síður fýsa að lesa frásögn þeirrar konu, sem sjálf var alin upp í hjarta- stað kerfisins. Stjómkerfi kommúnismans er byggt upp af svo djöfullegri lævísi, að jafnvel sjálfir höfundar þess voru orðnir þrælar þess áður en þeir vissu af. Hvað þá um lærisveinana víðs vegar um heim, sem gleypa kennisetningarnar í blindni og vita í rauninni ekkert hvað þeir em að játast undir. Hjá mörgum þeirra er þetta í upphafi hugsjón, og sumir lifa og deyja í þéifri trú, af því að til þess kemur aldrei, að þeir þurfi að búa undir oki kerfisins og taka þátt í framkvæmd þess. Þeir trúa ekki lýsingum annarra, jafnvel ekki þeirra, sem sjálfir hafa verið þjónar kerfisins, en svo brotið af sér hlekkina og öðlazt frelsi og andlega heilbrigði aftur. Allur þorri þess fólks, sem fylgir kommúnistum hér á íslandi, veit nauðalítið hvernig stjómkerfi kommúnismans er í framkvæmd. Það hugsar ekki svo langt. Það trúir því, að þessi flokkur beiti sér fyrir að bæta afkomu þeirra, einkum hinna lægst launuðu, og því þurfi hann að vera nógu sterkur til þess að geta haft þar tilætluð áhrif. Þótt lagðar séu fyrir það órækar sannanir þess, hvemig kommúnist- ar rækja þetta „hlutverk“ sitt þar sem þeir komast til valda, lætur það slíkt ekkert á sig fá. Sumir trúa því ekki, en aðrir, sem hugsa eitthvað svolítið meira, segja sem svo: „Það er engin hætta á að þeir komist til valda hér, og ég mundi hætta að kjósa þá, ef það lægi við borð! Þannig hefur fólk hugsað og talað víðar en hér á íslandi, en svo hefur það sums staðar gerzt með skjótum hætti, að það var lokað inhi í þrælaneti kommúnismans og átti enga útgönguleið. Að sönnu er á slíku minni hætta hér á íslandi en víða annars staðar, en það skyldi þó jafnan haft í huga, að komm- únistar hafa hvergi komizt til valda með lýðræðisleg- um meirihluta í kosningum. Það hefur alls staðar gerzt með ofbeldi fámenns minnihluta. Og þegar stiórnkerfið er komið á, verður forustumönnum brátt ljóst, að kerfið stjórnar þeim, en þeir ekki því. Þeir eiga ekki framar að hafa samvizku eða sjálfstæðan vilja. Þeir eru þrælar þess ægivalds, er fyrirlítur frelsi og mannúð og nærist á þjáningum fómardýra sinna. —Listir-Bækur-Menningarmál- Halldór Haraldsson skrifar tónlistargagnrýni. Fyrstu tónleikar TVförgum tónleikagesti Tón- listarhátíðar Norðurlanda hefur án vafa verið hugsað til þess hver verkanna, sem flutt voru, mundu hafa nægilegan lífs neista til að koma til með að verða flutt oftar f framtíðinni. Um það er mjög erfitt að segja. Stundum virðist samtíðarfólk- ið giámskyggnast á slíka hluti, ég sagði stundum, við skulum hugga okkur við, að við höfum einhverja dómgreind, þótt tak- mörkuð sé. „Enfant terrible" eða vandræðabam Rússa á sviði tónlistar á fyrri helmingi þess- arar aldar var Sergei Prokofiev. Þar með er ekki sagt, aö öll vandræðabörn verði að stór- skáldum. Þau eru sjálfsagt mörg vandræðabömin, sem Evrópu- þjóðimar og fleiri hafa alið á þessari öld. Þess vegna er það, að er þau öll gera sinn hávaða samtímis, eiga samtímamenn oft erfitt með að greina, hver er ekta og hver ekki. Þó skul- um við vona, að dómgreind okk- ar reynist glöggskyggn í því, að t. d. uppátæki Kóreumanns- ins, sem sýndi á sér rassinn hér forðum daga og átti að vera tek- ið sem nútímatónlist, séu loft- bólur, sem ekki verði talin stór- brotin listaverk í framtíðinni! Munurinn er e. t. v. sá, að sum- ir reyna svo mikið að vera „eitt hvað frumiegt“, en vandræða- barnið Prokofiev haföi í sér neistann, þótt samtíðarfólk hans sæi þag ekki í réttu ljósi fyrr en seinna. Þetta kvöld var einmitt leikið verk eftir Prokofiev, 3. píanó- konsertinn, sem þótti nú aldeil- is frumlegur, er hann var flutt- ur í fyrsta sinn 1921 eða ’22. En hann liföi og er einn vinsæl- ustu píanókonserta á þessari öld. Annar planókonsert var fluttur, sem fékk ærið misjafna dóma á sínum tima, nefnilega 5. píanókonsert Beethovens. Ein- leikari var bandaríski píanóleik- arinn Agustin Anievas. Hann er einn þeirra, sem unnið hafa marga sigra I píanókeppni víðs vegar um heim, en þeir, sem þar til þekkja, vita, aö þar þarf talsvert til. Anievas hefur frábæra tæknikunnáttu, en túlk- un hans, þó oft sé ljóðræn og smekkleg, virðist nokkuö mis- jöfn. AÖ þessu sinni þótti mér hann gera Prokofiev mjög góð skil, en marga mun vart gruna hve erfiður hann er tæknilega. Hins vegar var túlkun hans á Beethoven ekki eins sannfær- andi. Þótt tæknilegir og ýmsir Agustin Antevas. túlkunarlegir hlutir væru fali- ega gerðir, vantaöi þennan hráa undirtón, sem meir kom fram I leik Wiihrers I sama verki I fyrra. Hljómsveitin skilaöi sínu hlutverki furðulega vel í Prok- ofiev-konsertinum, en hún er I góðu formi eftir hátíðina. Það mátti sjá bezt I „Sinfónískum myndbreytingum" Hindemiths, sem talið er mjög erfitt hljóm- sveitarverk. Þetta var því visst afrek, sem Bohdan Wodiczko hlýtur að vera ánægður með — a. m. k. á leiðinni að haerra marki. kvik. mynchr Stund hefndarinnar Stund hefndarinnar (Be- hold a pale horse) Leikstjóri og framleið- andi: Fred Zinneman Byggt' á sögu eftir Emeric Pressburger Handrit: J. P. Miller Sýn'ngarstaður: Stjömu- bíó, sýningartími 121 mín. Frá árinu 1963. Tónlist: Maurice Jarre. íslenzkur texti jVTanuel Artiquez (Gregory Peck), fyrrv. skæruliös- foringi úr borgarastyrjöld- inni býr í Frakklandi eins nálægt landamærunum og mögulegt er. Þegar myndin byrjar hefur hann farið marg ar ferðir til Spánar yfir landa mærin, bæði til þess að ná í fé fyrir flóttamenn og til aö herja á erkióvininn Gu- ardia Civil (spænsku lögregl- una). Lítill drengur, José Dages, kemur og segir honum lát föður síns, hann lézt í sjúkra- húsi eftir meðferð hjá Vin- olas (Anthony Quinn) yfir- manni lögreglunnar i San Martin. Drengurinn krefst hefndar, því faðirinn vernd- aði Artiquez með þögn sinni. Frá Spáni berast Artiquez þau tíðindi, að móðir hans liggi fyrir dauðanum, heiðurs síns vegna verður hann að ná fundi hennar áður en hvíti hesturinn kemur. Hefst nú mikið baktjaldamakk og svik til að ná Artiques til Spánar. Keniur prestur- einn, faðir Franceso þar mjög við sögu. Beztu atriði myndarinnar er byrjunin, fréttamyndir frá borgarastríðinu og reiðmenn- imir á snæviþaktri jörðinni. £n myndin sjálf er of lang- dregin, andvörp og hik Arti- ques verða leiðinleg og snerp una vantar. Það táknræna í myndinni er dálítið útþynnt og einum of augljóst. Vinol- as á hvíta hestinum (vald hans yfir lífi annarra) móðir og sonur hlið við hlið að lok- um. Bezt gerða persónan er presturinn, leikur Omar Shar ifs er góður, sérstaklega þeg- ar tillit er tekið til þess að hann ieikur mann, sem er miklu yngri en hann sjálfur. Hann er heilsteyptasti per- sónuleikinn í allri myndinni. Undirstraumur myndarinnar, föðurhefnd litla drengsins er máttlaus, hann gæti eins ver- ið að biðja um appelsínu og höfuð Vinolasar. Þessi leik- ræni stíll sem bpr myndina ofurliði of oft, kemur ekki sízt fram í byrjuninni, þegar andlit skæruliðanna eru sýnd, það er sem hópur vel alinna borgara hafi fengið byssur og nokkur sárabindi og raðað sér upp í röð bföandi eftir að komast yfir til Frakklands meö kurt og pí. Minnist nokk ur fréttamyndanna af fólki illa klæddu, hungruðu og svipur- inn altekinn þeirri angist sem aðeins skelfing stríðsins get- ur markað. Artiquez lifnar aldrei í meðferð Pecks, hann er hvergi þessi harði gamli skæruliðaforingi, sem allur Spánn óttast og þekkir, og síðasta ferð hans til að sanna sjálfum sér og öðrum hug- rekki sitt og jafnframt fórna sér verður ekki eins áhrifa- mikij og til er ætlazt. Það vantar alla alvöru, við finn- um aldrei þessa knýjandi lausn hans á vandamálinu finnurn aldrei til með honum fyrir allt það, sem hann hef- ur orðið að þola, því einfald- lega, að þaö er aldrei nógu vel sýnt svo við getum ööl- azt hlutdeild í því. Ef t. d. byrjað hefði verið á aö sýna okkur úttaugaða menn horfa upp á allar þær hörmungar, sem þeir urðu að þola, er þá lifðu, væri kvikmyndin sann- ari og um leið betri. En svona eins og hóp ferðamanna, sem verða að láta byssurnar af hendi áður en þeir fara inn í Iandið, það er fráleitt. Fred Zinneman hefur sýnt ýmsa góða kosti leikstjóra i myndum eins og High Noon 1952 (sýnd hér) og The Sun- downers, en á því, sem geVói High Noon að sérstaklega góðri kvikmynd í sínum flokki, örlar hvergi hér. Það er sem allar persónur vanti forsendur fyrir gerðum sínum nema prestinn. — Klippingarnar eru ágætar, en hraðann vantar alveg. Tón- listin, sem er eftir Maurice Jarre, er mjög spönsk og fall- eg gítartónlisV og eintónn- inn, sem notaöur er þegar Vinolas er að springa af ó- þolinmæði, er mjög góður. — Atriðiö viö dauða Artiquezar er svo líkt og í Trönurnai; fljúga (sýnd í Bæjarbíói) og einnig slow motion, drengur- inn að ná boltanum, að stappar nærri eftirlíkingu (sem oft er í kvikmyndum), Því er þetta ekki eins góö kvikmynd og viö mætti búast frá hendi Zinnemans. Það er hvergi minnzt á Fedrico Garcia Lorca í kvik- myndinni, en presturinn er frá Lorca-héraóinu /í Anda- lúsíu, þaöan sem hann var og nafn myndarinnar um föla hestinn rifjar óneitanlega upp hið dásamlega fallega kvæöi Lorca úr Blóðbrullaup- inu í þýðingu Magnúsar As geirssonar, um stóra hvíta hestinn sem tákn dauöans. P.L. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.