Vísir - 26.10.1967, Síða 8
8
VÍSIR
(Jtgefandi: Blaðaútgaran vimiv \
Framkvæmdastjóri: Dagur Jónasson /
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson \
AöstoOarritstjóri: Axe) Thorsteinsson í
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson )
Auglýsingastjóri: Bergþór Últarsson \
Auglýsingar Þingholtsstræti 1, slmar 15610 og 15099 I
Afgreiðsla: Hverfisgötu 55. \
Ritstjóm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 llnur) (
Askriftargjald kx. 100.00 á mánuði innanlands )
I lausasölu Kr. 7.00 eintakið v
PrentsuJðjc Vtsls — Edda hd.
Hin nýja hagsýsla
J>ví meir sem umsvif ríkisvaldsins vaxa, þeim mun (
nauðsynlegra er, að ýtrasta spamaðar sé gætt á öll- (
um sviðum ríkisbúskaparins. Þessi nauðsyn er ekki /
sízt aðkallandi við núverandi ástand, er utanaðkom- )
andi ástæður hafa skapað atvinnuvegunum erfiðleika )
og margir aðilar ætlast til, að ríkissjóður hlaupi undir \
bagga með uppbætur og niðurgreiðslur. Við slík skil- (
yrði er fjárhagur ríkisins þröngur og er eðlilegt, að (j
hverri krónu sé velt, áður en hún er látin fara. )
Margir, sem tala um nauðsyn þess, að dregið sé úr \
ríkisútgjöldum, átta sig oft ekki á, hvaða aðgerðir (
fela í sér raunverulegan spamað. Vafasamur spam- (
aður væri að draga úr kennslu og skólahaldi, svo /
dæmi sé nefnt. Við lestur fjárlaga kemur greinilega í )
Ijós, að umfangsmestu rekstrarliðimir eru á sviðum )
kennslumála, félagsmála, heilbrigðismála og annarr- \i
ar slíkrar þjónustu, sem ekki er hægt að draga úr. ((
Ýmsir aðrir liðir, sem sagt er, að spara mætti, svo sem (í
sendiráð erlendis og veizlukostnaður, eru svo litlir, //
að þeir nema ekki einu sinni einum hundraðasta af )
því 750 milljón króna bili, sem efnahagsaðgerðir ríkis- )
stjómarinnar eiga að brúa. \
Tímabundinn sparnaður felst í því að draga úr (
framkvæmdum ríkisins og láta þær bíða betri tíma. (l
Hefur verið gert ráð fyrir töluverðum spamaði af //
þessu tagi í hinu nýja fjárlagafrumvarpi. En bezti ))
sparnaðurinn er fyrst og fremst fólginn í hagkvæm- )
um og vel skipulögðum vinnubrögðum, rækilegum \
undirbúningi framkvæmda og rekstrarbreytinga, og (
hlutlausu vali úrræða. Og það er einmitt spamaður (
af þessu tagi, sem einkennir fjármálastefnu ríkis- /
stjórnarinnar. \
Nýlega kom frram á Alþingi annað fjárlagafmm- (
varpið, sem hagsýslustofnun fjármálaráðuneytisins (
hefur samið. Er ljóst, að þegar er orðinn mikill árang- /
ur af starfi hinnar ungu stofnunar, enda hafa valizt )
þar til starfa sérstaklega hæfir menn. Mikið af starfi )
hennar mun samt ekki koma í ljós fyrr en á næstu ár- \
um, því að það er tímafrekt að spara á þennan hátt. (
Nú er verið að vinna að endurskipulagningu ýmissa (
stofnana og fyrirtækja ríkisins, og embættismenn em /
þjálfaðir í hinni nýju hagsýslu. Þetta starf kemur ekki )
strax fram í sparnaði, en þegar þar að kemur, verð- )
ur um að ræða varanlegan spamað. \
Meðal spamaðarathugana af þessu tagi, sem verið (
er að gera, má nefna nokkrar: Stöðlun skóla og emb- (
ættisbústaða. Endurskipulagning landhelgisgæzlu og /
rekstrar vitaskips og sameining skipaútgerðar ýmissa /
ríkisstofnana og -fyrirtækja. Sameining vinnuvéla og )
verkstæða ýmissa ríkisstofnana. Stóraukin notkun (
útboða við opinberar framkvæmdir. (
Með hínni nýju hagsýslu vinna fjármálaráðherra og (
ríkisstjómin öll hljóðlátt starf, sem mun spara þjóð- )
inni geysilegar fjárhæðir á ókomnum áram. /
V í S I R . Fimmtudagur 26. október 1967.
felldu þá. Það voru þeir Cecil
Price vara-sýslumaður og Tarny
Roberts. Og þeir hótuðu að
sprengja réttarsalinn í loft upp,
ef þeir væru sekir fundnir um
morð.
Dómarinn greip þá tækifær-
ið. er úrskurðurinn var fallinn
og lét setja þá inn og „væri
það sér sérstök ánægja“ — en
hinir ganga lausir gegn trygg-
ingu þar til dómur fellur nú í
vikunni. Hver sakbomingur á
á hættu að vera dæmdur í 10 ára
fangelsi og 5000 dollara sekt.
Þótt í reyndinni sé um morð-
mál að ræða, var af forms-
ástæðum ekki hægt að ákæra
sakborninga fyrir morð, því að
sambandsríkis (Federal) dóm-
stóll getur aðeins tekið fyrir á-
kæm um morð framið á sam-
bandsríkisgrunni, og þess
vegna lét sambandsstjórnin sem
hafði forustu í að koma lögum
yfir sakbominga, ákæra þá
fyrir að hafa svipt hina myrtu
borgaralegum réttindum þeirra.
Hinir myrtu voru tveir hvitir
menn og einn blakkur, og þaö
var Price vara-sýslumaður, sem
handtók þá fyrir utan Meridan
fyrir of hraðan akstur. Eftir aö
hafa dúsað inni dálítið var þeim
gert að greiða sekt og sleppt,
en þeir hurfu á leið út úr bæn-
um. Ekk fyrr en 44 dögum
siðar fundust limlest lík þeirra,
en þau höfðu verið dysjuð.
Price og Ku Klux Klan for-
sprakkánn ,í Meridan, Samuel
H. Bowers, vom sakaðir um
samsæri til að ráða mennina af
dögum. Saksóknari hélt því
fram, að Price hafi haldið hin-
um myrtu f fangelsi, nógu lengi
til þess að Powers gæti til
kvatt Ku Klux Klan menn til
þess að vinna ódæðisverkiö.
Eitt vitnanna, James Jordan,
sagði fyrir réttinum, að Powers
hefði þakkað mönnum sínum
„dyggilega framkvæmt hlut-
verk“.
„Þið getið verið stoltir af því,
sem þið hafið gert í dag“. á
hann að hafa sagt. — Hann
kvaðst hafa staöið á verði
skammt frá — játaði það fyrir
réttinum, - en vitni báru aó
hann heföi verið á moröstaðn-
um og kallað af ákefð: Skiljið
einn eftir handa mér, en þá var
búið að myrða hvítu mennina.
Lét Jordan í ljós vonbrigði sfn,
en dró upp skammbyssu sína
og skaut hverju skotinu á fætur
öðru á blökkmanninn, sem eftir
var á lífi.
Heimshorna milli
□ í Lockhaven í Pennsylvaníu,
Bandaríkjunum brjálaðist mað-
ur skyndilega og varð 6 mönn-
um að bana og liggur sjálfur
milli heims og helju I sjúkra-
húsi, en þangað var hann flutt-
ur eftir skotbardaga við lögreg1-
una, sem reyndi að handsama
hann.
□ Ag minnsta kosti 19 menn
hafa beðið bana í hvirfilvindi í
Austur-Pakistan.' Enn er óvíst
um afdrif um 500 fiskimanna.
Fjöilda margir hafa flúiö heim-
ili sín.
Cecil R. Price (til vinstri) vara-sýslumaður og Alton Wayne Ro-
berts, sem ásamt fimm öðrum voru sekir fundnir. Báðir höfðu
utan réttarsalar haft I hótunum við kvlðdómendur.
Sögulegur dómur
/ Mississippi
Kviðdómur skipabur hvitum mönnum lýsir
seka 7 af 18 sakborningum i Meridan- ,
kynþáttamorðmálinu — Dómur fellur i jbess-
ari viku —
TJTinn 20. þ. m. voru sekir
11 fundnir 7 af 18 sakborn-
ingum fyrir þátttöku í morði á
þremur mönnum, sem unnu i
þágu blökkumanna eða að því að
þeir fengju í reynd fullt jafnrétti
við hvíta menn. Morðin áttu sér
stað í Meridan 14. júní 1964.
Kviðdómendur sýknuðu 8 af
sakbomingum, en gátu ekki náð
samkomulagi um hvo'rt sekir
væru eða saklausir 3 sakborn-
inga. Meðal þeirra, sem sekir
voru fundnir, eru vara-sýslu-
maður og einn af forsprökkum
leynifélagsskaparins Ku Klux
Klan.
Kviðdómurinn kvaö upp úr-
skurð sinn eftir hálfsmánaðar
setu, 160 vitni voru leidd. Kvið-
dó. -Inn skipuðu sjö hvítar kon-
ur og fimm hvitir karlmenn.
Tveir dagar fóru til þess að ná
einingu um sekt áðumefndra 7
sakbominga.
Dómur sem þessi telst hinn
sögulegasti í þessum hluta
Bandaríkjanna, sökum þess hve
erfitt — segja má ógerlegt —
hefir reynzt að koma lögum
yfir hvíta menn, sem brotið hafa
lög á blökkumönnum. Þar hafa
menn blátt áfram getað ..agað
sér að vild gagnvart blökku-
mönnum, án 'þess að óttast af-
leiðingamar fyrir sjálfa sig, ef
mál kæmi fyrir dómstólana, en
vegna nýrra laga um borgaraleg
réttindi á seinustu þremur ár-
um, hefir orðið stefnubreyting.
Meiri samúðar gætir í afstöðu
til blakkra. Og vegna hinna
nýju laga er ekki eins auðvelt
að hræða menn og fyrr. Það
tókst oft áður fyrr og það var
reynt nú — árangurslaust. Hat-
ursmenn blökkumanna geröu
opinskátt tilraunir til þess að
hafa áhrif á kviðdómendur svo
að þeir lýstu ákærðu saklausa.
En hótanir og mútutilraunir
báru engan árangur. Tveir sak-
borninga gengu svo langt aö
þeir hótuðu refsiaðgeröum gegn
kviðdómendum, ef þeir sak-
Samúel H. Bowers.