Vísir - 03.11.1967, Side 7
V í SIR. Föstudagur 3. nóvember 1967.
7
morgun
útiönd í morgun
útlönd í morgun
út'lönd í morgun
útlönd
Talaði Chalfont lávarður af sér?
Bauðst til a<5 segja af sér, en Wilson hafnaði
Ag uzidanfömu hefur staðið styrr
mikill á Bretlandi vegna ummæla,
sem eftir Chalfont lávarði voru
höfð, er hann var í Sviss, þegar
fundur Fríverzlunarbandalagsins
var haldinn þar, en meginlandsblöð
kváðu hann hafa ýmist gefið i
skyn eða hótað, að Bretland tæki
til endurskoðunar skuldbindingar
sínar gagnvart Evrópu, fengi Bret-
land ekki aðild að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu.
Brown saétti aðeins mildri
gagnrýni á brezka þinginu
George Brown, utanríkisráðherra
Breta, hrósar nú happi eftir fyrstu
eldraun sina á fyrsta fundi hins
nýsetta þings Bretlands. Taiið var,
að hann yrði óspart gagnrýndur
þar, en þegar til kom, fékk hann
aðeins væga áminningu.
Brown hefur þótt sleppa um of
fram af sér taumunum, þar sem
áfengi hefur veriö haft um hönd.
Síðasta hneykslið gerðist á þriðju-
dagskvöld, er hann sat veizhi á
Savoy-hótelinu og heílti sér yfir
brezku blöðin.
Orðrómur var á kreiki um, aö
stjórnarandstaðan mundi krefjast
afsagnar hans. Þá tók fyrrverandi
forsætisráðherra landsins, sir Alec
Douglas Home, til máls í þinginu
og dró úr spennunni, sem hefur
ríkt vegna Browns. Hann minnti
Brown á, að í stöðu hans fælist, að
hann yröi að vera ábyrgur gagn-
vart áliti Bretaveldis erlendis.
Brown þakkaði sir Alec vin-
samleg orö og flutti síðan ræðu
um utanríkismál. Mun hann hafa
talið þá ræðu prófraun á, hvort
flokksbræður hans sættu sig við
hann áfram sem utanríkisráðherra.
Ræðan vakti enga hrifningu, en
engu að síður þykir Brown hafa
komizt tiltölulega vel úr eldraun-
inni.
Herskylda óformuð
í Jordaníu
Jórdaníustjórn tilkynnti í gær
áform varðandi endurreisn hers-
ins, flughers og landhers.
Hér er um að ræöa útvegun
nýs ’ búnaöar og að lögleiöa her-
skyldu.
Þetta kom fram í hásætisræðu
ríkisarfans, Hassans prins, er 9.
þjóðþing Jórdaníu kom saman til
fundar í gær.
Mikill
osigur
flokksins í aukakosningum
Winston Churchill náði samt ekki kjöri
Brezki verkamannaflokkurinn
beið í gær mikinn ósignr i auka-
kosningum til þingsins í gær. Kos-
ið var í þremur kjördæmum, jafn-
aðarmennimir féllu í tveimur
beirra og Winston yngra Churchill
:ókst næstum að vinna af þeim hið
’iriðja.
Úrslitin komu mest á óvænt i
skozku kjördæmi, sem hefur haft
verkamannaflokksþingmann síðan
1918. Þar vann nú þingsætið 48 ára
gömul móðir í flokki skozkra þjóðí
ernissinna. í öðru kjördæmi vann
frambjóðandi íhaldsflokksins sætið
af verkamannaflokknum.
Ekki munaði miklu, að hinn 27
ára gamli blaðamaður Winston
Churchill næði kosningu í Gorton,
sem framtil þessa hefur verið ör-
uggt jafnaðarmannakjördæmi. Ekki
munaði nema nokkrum tugum at-
kvæða.
Þótt verkamannaflokkurinn hafi
nú tapað allmörgum þingsætum,
^Russell-dómstóllinn"
,ekki sambærilegur við neinn dómstól" og er
bvi „slikur fundur" leyfður i Danmörku
Danska stjórnin hefir ákveðið, að
„vitni“, sem mæti fyrir hinum svo
nefnda Russell-dómstóli um Viet-
nam, megi koma til Danmerkur,
svo fremi að menn sæki um vega-
bréfsáritun með venjulegum hætti.
Samkvæmt upplýsingum, sem
stjómin hefir áflaö sér er hér í
rauninni aðeins um rannsóknar-
nefnd að ræða, sem ekki sé sam-
bærileg við neinn dómstól, og
stjórnin geti ekki hindrað, að slík-
ur fundur sé haldinn, sem sé ekki
frábrugðinn mörgum öðrum, sem
haldnir séu í Danmörku um sama
efni við og við.
SPRENGINGAR
JL
VANIR MENN
NÝTÆKI
TRAKTORSGRÖFUR
TRAKTOR5PRESSUR
LOFTPRESSUR
GRÖFTUR
ÁMOKSTUR JÖFNUN LÓDA
1 I
hefur hann enn traustan meirihluta
á þingi, 356 þingsæti af 630. Ihalds
flokkurinn hefur 254, frjálslyndi
flokkurinn 12 og aðrir aöilar 8.
Þetta vakti geysilega athygli á
meginlandinu — og ekki síður
heima fyrir, þar sem sagt var, að
Chalfont lávarður hefði átt að hóta
að kveðja heim allan herafla Breta
frá Vestur-Þýzkalandi, hætta sam-
starfi í NATO um varnir o. s. frv.
Svo virðist sem hlakkað hafi f
Frökkum vegna ummæla Chalfonts,
þótt „engin ástæða hafi nokkum
tíma verið til að taka hann sérlega
hátíölega", en í London var boriö
til baka, að Chalfont heföi sagt
það, sem eftir honum var haft og
kennt um misskilningi og rangtúlk-
un eriendra fréttaritara.
Blöðin ræddu málið áfram af
ákefð og Heath leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar boðaöi fyrirspum, er
þing kæmi saman, og svo bar málið
að sjálfsögðu á góma í neðri mál-
stofunni í gær, er umræðan hófst
um utanríkismálin.
Því skal þó viðbætt, að þegar
fréttirnar komust á kreik um um-
mæli Chalfonts, þótti Wilson nauð-
synlegt að kveðja hann heim til
að skýra málavexjti. Sagt var, að
hann hefði boðizt til að segja af
sér, en Wilson hafnað því boði. —
Vart þarf að minna. á, að Chalfont
lávaröur er aðalsamningamaður
I *
Chalfont lávarður
Breta um að teknar veröi upp form
legar samkomulagsumleitanir um
aðild Bretlands að EBE.
Til marks um andann í andstæð-
ingablöðum stjómarinnar, að Daily
Express segir, að menn hafi reynslu
af því, á Bretlandi, að „Wilson hafi
tungur tvær“, — hann komist upp
með það heima fyrir, en ekki á
meginlandinu. *
Sþ-nefnd vill bæta
aðstöðu flóttamanna
Laganefnd allsherjarþings Sam-
þykkti samhljóða í gær áskorun til
allra þátttökuríkjanna um að veita
landvist fólki, sem verður að yfir-
gefa heimaland sitt af stjórnmála-
legum, trúarlegum eða kynþátta-
legum ástæðum. Þessi áskorun verð
ur síðan tekin fyrir á allsherjar-
þinginu næsta haust.
I ályktuninni segir, að engum
manni megi vísa frá, ef hann óski
landvistar. Ríki má ekki afhenda
mann stjórnarvöldum lands hans,
ef hann biður um hæli. Ef ríki vill
ekki veita slíkt hæli, á það að
tryggja ferð hans til ríkis, sem vill
veita honum það, segir 1 áskorun-
inni.
lzoioíi
De Gaulle horfir á heiminn.
Sunday Mirror
Innrás í KATANGÁ?
Útvarpið í Kinshasa, höfuðborg
Kongó, sagði í gær, að vopnaðir
menn frá portúgalska bænum Ang-
óla hefðu ráðizt fyrr um daginn á
bæinn Dilolo í Katanga-héraði og
rænt þar og drepið. Útvarpið sagði,
að menn þessir væru frá Texeira
de Suze í Angóla. Eldd var nefnt,
hvort þetta væru hvítir málaliðar,
en sagt, að Angóla væri „sjóræn-
ingjahreiður' tuttugustu aldarinn-
ar“.
Allt var kyrrt í stærstu bæjum
Katanga, Lumumashi og Kolwezi.
Talið er, að árásarmennirnir hafi
farið yfir landamærin á miðviku-
daginn og komið til Dilolo i gær.
Kinshasa-útvarpið sagði, að árásin
mundi verða kærg fyrir ðryggis-
ráði Sanrcimiðe'þjóðanna.