Vísir - 17.11.1967, Side 3
I
' X
i
VÍSIR . Föstudagur 17. nóvember 1967.
]i/|'yndsjáin er að þessu sinni
^ á æfingu í Iðnó. Verk-
efnið er nýtt bamaieikrit eftir
Odd Bjömsson, „Snjókarlinn
okkar“ heitir það. Höfundurinn
kvaðst hafa samið það að
nokkm upp úr hugmyndum
bama úr Myndlistarskólanum í
Reykjavík.
Ævintýrið um Snjókarlinn
byrjar á jörðu niðri, en leiðist
sfðan til hinna ýmsu stjarna.
Stjömumar eru misgóðar pers-
ónur eins og mannfólkið, það
eru til ótuktarstjömur og
hrekkjusvín meðal þeirra, rétt
eins og hjá okkur, og jafnvel
töfrastjama, sem gerir bæði gott
og Htt af sér.
Stjömumar eru forkostulega
búnar, eins og gefur að skilja.
Máninn er næsta skrýtinn karl,
hálfmánalegur útlits, eins og
vera ber. Þó er Júpíter ennþá
skrýtnari, því að hann hefur
tvo hausa, fjórar hendur og
fjóra fætur, enda er hann spak-
ur mjög að viti og hefur tun
sig margar bækur. — Það sama
verður hins vegar ekki sagt um
Snjókarlinn, því að einfaldari
sál er varla ag finna, en hann
er líka afskaplega hlægilegur.
Sviðið er næsta skrautlegt í
hvítum, ljósbleiktim .ljósbláum,
ljósgrænum og gulum litum. —
Þar höfðar allt til ímyndunar-
afls bamanna, einfeldni og ein-
lægni gætu kannski verið eink-
unnarorðin.
Það er mikið sungið og dans-
að f leiknum. Tónlistin er verk
Leifs Þórarinssonar, en dans-
amir em eftir Bryndísi Schram.
Leikstjóri þessarar bamasýning-
ar er Eyvindur Erlendsson og
Siríus og Sjöstimið, sem leikið er af sjö telpum, yzt sitt hvorum megin standa óartarstjörnumar Marz og Merkúr (Palli og Pési).
SNJÓKARLINN
OKKAR
Snjókarlinn yzt til vinstri, Sirfus, Sjöstimið og krakkarnir Óli og Ása, fyrir miðju, og Júpíter, sá kynlegi „fýr“, lengst til hægri.
Sigurður Karlsson er Máninn
og Kjartan Ragnarsson sjálfur
Snjókarlinn, en það eru tvær
viðamestu „rullurnar" í leikn-
um.
Tveir litlir krakkar koma líka
mjög við sögu, það eru eiginlega
þau, sem koma öllu af stað, því
að þau búa til snjókariinn. Óli
Gunnar Borgarsson og Sigrún
Bjömsdóttir leika þau.
Loks eru þaö mamma og
pabbi, sem koma vig sögu, og
þau leika Guðrún Ásmundsdótt-
ir og Karl Guðmundsson.
Fmmsýningin verður á sunnu-
daginn.
aðalhlutverkin eru flest leikin af
ungum leikurum.
Fulltrúa hennar hátignar (Sólar-
innar) leikur Stefanía Svein-
bjarnardóttir, Siríus leikur Jón-
ína Ólafsdóttir, en hún er ný-
komin heim frá leiklistamámi i
Lundúnum og er þetta fyrsta
hlutverk hennar hér að þvi
loknu. Það duga ekki færri en
tveir til þess að leika Júpíter,
og þag gera þeir Daníel Wili-
amson og Guðjón Ingi Sigurðs-
son. Ótuktarstjömumar Marz
(Palla) og Merkúr (Pésa) leika
þær Þórunn Sigurðardóttir og
Soffía Jakobsdóttir. Fjósakon-
una leikur Emilía Jónasdóttir.
Sjöstirnið er hópur telpna úr
ballettskóla Sigríðar Ármann.
Hjá fjósakonunni.
Hjá Júpíter.
i
B U»